Þjóðviljinn - 13.08.1987, Qupperneq 2
■"SPURNÍNGIN™
Hvernig leggst opnun
Kringlunnar í þig?
(Spurt í verslunum við Laugaveg-
inn)
Herdís Harðardóttir
í Libia:
En sæt spurning! En opnun
Kringlunnar leggst bara vel í mig.
Ég er ekkert hrædd um að allt
hverfi héðan.
Frank Ú. Michelsen
hjá Franch Michelsen, úr-
smíðameistara:
Ég held að við höfum ekkert að
óttast. Það eru frekar fata-
verslanirnar.
Lilja Jónsdóttir
verslunarstjóri í Faco:
Ekkert allt of vel. En það verður
bara að koma í Ijós hvað verður.
FRÉTTIR
Frœðsluumdæmi Vestfjarða
Tugi kennara vantar
Pétur Bjarnason, frœðslustjóri Vestfjarða: 20 til30 kennhra vantar. Astandið verst
á ísafirði. Augljóstað vandrœði hljótast af í haust þegar skólar byrja
Við lendum sýniiega í vand-
ræðum í haust þegar kennsla
byrjar. Það vantar víða kennara.
Ástandið er þó sýnu verst á Isa-
fírði, - eins undarlegt og það kann
að virðast, sagði Pétur Bjarna-
son, fræðslustjóri Vestfjarða.
- Ég kann engar einhlítar skýr-
ingar á því hvers vegna svo er.
Undanfarin þrjú ár hefur gengið
illa að manna kennarastöður á
ísafirði. Hugsanlega kann það að
hluta að stafa af því að margir
þeir sem ráðast til kennslu hyggja
á styttri dvöl og vilja því gjarnan
setjast að á smærri stöðum en
þeim stærri. Jafnframt eygja
menn oftastnær meiri yfirtíð við
fámennari skólana en þá sem
fjölmennari eru, sagði Pétur
Bjarnason.
- Það er dálítið erfitt að slá því
föstu hvað marga kennara vant-
ar. Undanþágunefnd fjallar núna
um umsóknir þeirra sem rétt-
indalausir eru og ég veit ekki
hvernig hún kemur til með að af-
greiða umsóknir þeirra. Það er
þó víst að okkur vantar ennþá
milli 20 og 30 kennara, sagði Pét-
ur Bjarnason.
- Um helmingur kennara á
Vestfjörðum hefur verið rétt-
indalaus. Þrátt fyrir að kennarar
hafi fengið nokkra leiðréttingu
sinna mála í síðustu samningum,
náði sú leiðrétting einungis til
réttindakennara og þeir réttinda-
lausu voru skildir eftir. Réttinda-
laust fólk sækir trúlega ekki eins í
kennslu eftir að launabilið jókst
milli réttindamanna og þeirra
sem réttindalausir eru. Þetta
kann að geta sett strik i reikning-
inn hjá okkur þar sem við höfum
þurft að styðjast til jafns við rétt-
indalaust fólk og fólk með rétt-
indi, sagði Pétur Bjarnason. -rk
Skáksveit Seljaskóla á leið I Finnlandsslaginn. F.v. Sigurður Daði Sigtússon, (fararstjóri) og Snorri Karlsson. Bakgrunninn prýðir skilirí af tveimur afreks-
Sæberg Sigurðsson, Kristinn Friðriksson, ÞrösturÁrnason, ÓlafurH. Olafsson mönnum í skáklistinni: Spasskí og Fischer.
Skólaskák
Seljaskóli á Norðuriandamót
Bestu grunnskólasveitirnar etja kappi. Titilvörn hjá Seljaskólapiltum, en þeir unnu keppnina í fyrra
Arnar G. Hjálmtýsson
verslunarstjóri í Skífunni:
Fyrir mína parta get ég ekki ann-
að en glaðst yfir henni. Fyrirtækið
er með verslun þar líka.
Birna Hafstein
í Ólympíu:
Vel. Ég held að þetta verði allt í
lagi. Nú er búið að opna Lauga-
veginn og hann er svo fallegur.
Arlegt Norðurlandamót grunn-
skólasveita í skák stendur nú
fyrir dyrum. Mótið fer að þessu
sinni fram í Finnlandi, og tekur
skáksveit Seljaskóla þátt í því
fyrir Islands hönd.
Mótsstaðurinn er Pietarsaari
(Jakobstad) í Finnlandi, og verð-
ur teflt um næstu helgi, 14. til 16.
ágúst. Rétt til þátttöku eiga besta^
grunnskólasveit frá hverju
Norðurlandanna. Skáksveit
Seljaskóla heldur uppi merkinu
fyrir íslands hönd, en hún sigraði
á íslandsmóti grunnskólasveita í
vor. Sveitin á titil að verja, en
hún vann Norðurlandameistara-
titilinn á mótinu hér í Reykjavík í
fyrra. Sömu skákmenn skipa
hana nú og þá.
Keppnin er liður í hinum sam-
ræmdu norrænu skólaskák-
mótum auk þess að vera Norður-
landamót framhaldssveita. Jafn-
framt er hún einstaklingskeppni í
norrænni skólaskák í fimm ald-
ursflokkum.
íslendingar taka nú þátt í þess-
um þremur mótum árlega, og er
það mál manna að þau hafi mikla
þýðingu í uppbyggingarstarfi
æskulýðsskákar hér á landi. HS
Vímuefni
Okkar á milli á hvert heimili
Samstarfshópur um vímuefnamál gefur út Okkar á milli
Okkar á milli - fræðslurit um
vímuefnavandann - er ný-
komið út. Ritið fjallar öðru frem-
ur um unglinga og vímuefnaljón-
in sem verða á þcirra vegi, en er
beint sérstaklega til foreldra í
þeirri von að efnið geri þeim bet-
ur kleift að ræða við börn sín um
vímuefni.
Það er Samstarfshópur um
vímuefnamál sem gefur ritið út, í
samvinnu við Áfengisvarnarráð,
íþróttasamband íslands, Ung-
mennafélag fslands og foreldra-
samtökin Vímulausa æsku. Full-
trúar þessara aðila auk fulltrúa
ffkniefnalögreglu rita ávörp í rit-
ið.
Ritstjóri og höfundur texta er
Árni Einarsson, fulltrúi Áfengis-
vamarráðs, en Brian Pilkington
hefur annast myndskreytingar.
Okkar á milli er prentað í sjö-
tíuogfimmþúsund eintaka upp-
lagi og dreift inn á öll heimili á
landinu.
HS
__ Varst það þú sem
skrifaðir um ritstjórann sem
sagði upp?
rfjwx iS ^
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 13. ágúst 1987