Þjóðviljinn - 13.08.1987, Side 6
FLÓAMARKAÐURINN
Til sölu
2 VW 1303. Einnig JVC ferðavideo
og upptökutæki. Uppl. ísíma 15305
eftir kl. 18.
Til leigu
Herbergi til leigu fyrir geymslu á
húsgögnum eða hreinlegri vöru.
Rakalaust, bjart og upphitað. Uppl.
í síma 681455.
Starfsmann Þjóðviljans
vantar litla íbúð. Skilvísum
greiðslum og mjög góðri umgengni
heitið. Uppl. í sima 35236.
Veiðileyfi
Veiðileyfi í Langavatni. Góð að-
staða í húsum og traustir bátar.
Einnig er hægt að fá aðstöðulaus
veiðileyfi. Nánari upplýsingar gefur
Halldór Brynjólfsson í síma 93-
7355.
Hjónarúm til sölu
frá IKEA (bæsuð fura), 6-7 ára
gamalt, með 2 náttborðum og dýn-
um. Uppl. í síma 20045.
Vistarvera
Ef þú ert heiðarlegur húseigandi á
Stór-Reykjavíkursvæðinu og átt 1-
3 herbergja íbúð sem þú vilt leigja
fyrir sanngjarnt verð þá erum við
tvær 21 árs og reyklausar Elínar
ofan úr Borgarnesi sem bjóðum þér
á móti: Öruggar mánaðargreiðslur,
(fyrirframgreiðslu ef þú ert blankur)
og snyrtilega og hávaðalausa um-
gengni. Við erum í skóla og vinnum
í banka og höfum meðmæli. Uppl. í
síma 23089 (á kvöldin) og 93-
71337.
2 reglusamar stúlkur, sem
stunda nám i Kvennó
óska eftir 3-4 herb. íbúð á leigu.
öruggar greiðslur og góð með-
mæli. Fyrirframgreiðsla ef óskað
er. Uppl. eftir kl. 19 í síma 622118.
Óska eftir að kaupa
þrekhjól
Sími 75518.
Dagmamma óskast
fyrir tæplega 2ja ára dreng, Þing-
holt eða miðbær, hálfan daginn,
vinnutími eftirsamkomulagi. Uppl. í
síma 24091.
Svalavagn
Okkur vantar ódýran (eða jafnvel
gefins) svalavagn. Vinsamlegast
hringið í síma 84686 eftir kl. 19.00.
Kalkhoff hvítt telpuhjól
var numið á brott af Skólavörðuholti
(Lokastíg) um síðustu mánaðamót.
Hvítt með rauðum stöfum og rauð-
um lyklalás. Skilvís finnandi vins-
amlegast snúi sér til lögreglunnar
eða hringi í síma 621481. Fundar-
laun.
Barnakerra
Óska eftir að kaupa notaða skerm-
kerru með svuntu. Þarf að vera í
góðu lagi. Sími 17639. Karólína.
Ódýrir farmiðar tii
Kaupmannahafnar
21.8. fyrir fullorðinn og barn. Seljast
ódýrt. Uppl. í síma 18343.
Til sölu vel með farinn
BOSCH ísskápur 105 cm á hæð.
Einnig barnabílstóll, bakburðarpoki
og hlið fyrir stigaop. Á sama stað
fæst gefins svefnbekkur. Uppl. í
síma 16557 eftir kl. 17.
íbúð óskast
Ung reglusöm hjón með 1 barn
óska eftir 2ja-4ra herb. íbúð á Stór-
Reykjavíkursvaaðinu. Fyrirfram-
greiðsla ef óskað er. Vinsamlegast
hringið í síma 18583.
Reglusama fjölskyldu vantar
4-5 herb. íbúð til leigu. Uppl. í síma
30704.
Saumavél gefins
Gömul en skemmtileg iðnaðar-
saumavél í lagi fæst gefins. Uppl. í
síma 681310 á daginn.
Barna- og unglingahúsgögn
til sölu
DOMINIG II; skrifborð með einni
skúffu undir og kommóðu með fjór-
um skúffum, hillu ofan á hvoru
tveggja. Uppl. í síma 41311.
Óska eftir unglingsstúlku
til að passa 3ja ára stúlku öðru
hverju á kvöldin. Uppl. í síma 30887
eftir kl. 17. Bý í Hólmgarði.
Óska eftir unglingsstúlku
til að passa 3ja ára dreng. Uppl. í
síma 24203 eftirkl. 17. Býá Lauga-
vegi.
Til sölu
Skoda árg. '83, ekinn 38 þús. km.
Skoðaður ’87. Uþpl. í síma 53090.
Brio kerra og svalavagn
furuhjónarúm 1,60x2 m með dýn-
um. Svefnsófi frá IKEA. Uppl. í síma
13921.
Lada Samara ’87
Til sölu '87 módel af Lada Samara.
Keyrður ca. 8 þús. km. Upþl. í síma
35196.
Stór og vandaður
fataskápur til sölu á 4 þús. kr. Mjög
góð hirsla. Uppl. hjá Dagnýju í síma
18114 eftir kl. 17 eða ísíma 17042
(Heiða)
Laxamaðkar til sölu
Sími 34627.
Óskum eftir bakburðarpoka
fyrir 1 árs barn. Uppl. í síma 25398.
BEGGA
Veistu hvað Tarsan sagði þegar
hann sá fílana koma yfir hæðina?
Ásta, sími 18356.
Barnfóstra
10-12 ára stúlka óskast til að gæta
stelþu á 4. ári kvöld og kvöld. Búum
í Skiþholti. Uppl. í síma 13907.
Óskast keypt
Leikgrind úrtréóskastkeypt. Uppl. í
síma 13105.
Gamait reiðhjól
Ódýrt hjól fyrir 7-9 ára dreng til sölu.
Uppl. í síma 671578. Gunnar.
Frá menntamálaráðuneytinu
§5§ LAUSAR STÖÐUR VIÐ
FRAMHALDSSKÓLA:
Umsóknarfrestur um áður auglýsta stöðu kennara í dönsku við
Iðnskólann í Reykjavík framlengist til 17. ágúst.
Við Menntaskólann í Hamrahlíð vantar stundakennara í ensku og
stærðfræði. Umsóknir skal senda fyrir 20. ágúst til skólameistara,
sem veitir nánarí upplýsingar.
Við Fjölbrautaskóla Vesturlands Akranesi er laus staða kennara í
efnafræði og líffræði, rafiðnaðargreinum. Umsóknarfrestur er til 20.
ágúst.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík.
Menntamálaráðuneytlð
Útför móður okkar og tengdamóður
Guðmundínu Einarsdóttur
frá Dynjanda
fer fram frá Kapellunni í Hnífsdal laugardaginn 15. ágúst
Kristín Ólafsdóttir
Inga Hanna Ólafsdóttir
Hallgrímur Ólafsson
Magna Ólafsdóttir
Samúel Ólafsson
Kristján H.B. Ólafsson
og aðrir aðstandendur
Kristmundur Bjarnason
Sigurður Tryggvason
Guðný Sigurðardóttir
Margrét Ingimundardóttir
Fjóia Sigurðardóttir
Sigríður Sigurðardóttir
BÚ87
Gott að hafa húsaskjól
Reiðhallarvísur
Sennilegt er að erfitt hefði orð-
ið að koma upp svo umfangs-
mikilli landbúnaðarsýningu og
|>eirri, sem nú er að líta dagsins
íjós, ef hin nýja Reiðhöli væri
ekki fyrir hendi. Magnús Sig-
steinsson, framkvæmdastjóri BÚ
’87 telur trúlegt, að styttra líði
miili landbúnaðarsýninga hér
eftir en hingað tii, vegna J>ess
hversu góð aðstaða hefur skapast
þarna til sýningarhalds.
Það eru því fleiri en „grjót-
harðir“ hestamann, sem fagna
byggingu Reiðhallarinnar þótt
þeirra kunni fögnuðurinn að vera
mestur. Hagorður hestamaður,
Jói í Stapa - Jóhann Guðmunds-
son frá Stapa í Skagafirði - lýsir
tilfinningum sínum með þessum
orðum;
Reisur víða um fjöllin fríð
fjörga lýða sinni,
en geri hríð og garratíð,
gott er að ríða inni.
Jón í Skollagróf hefur aftur á
móti sínar efasemdir og segir:
Fer ég létt um fjallaleið,
fjötrum sprett af sinni,
en heims í þéttri hallarreið
hef ég þrettakynni.
-mhg
HLUNNINDI (lax, silungur, LOÐDÝR 1,6%
heysala, æöardúnn, reki, trjávara ofl.)
6,2%
SVÍNAKJÖT 3,9%
ALIFUGLAR OG EGG 8,4%
GARÐÁVEXTIR OG
GRÓÐURHÚSAAFURÐIR
8,7%
HROSS 1,9%
ULL, GÆRUR, SLÁTUR
OG HEIMASLÁTRAÐ
KINDAKJÖT
---MJÓLK
34,1%
NAUTGRIPAKJÖT
6,5%
6,2%
22,4%
Búvörur
Framlag landbúnaðar-
ins í þjóðarbúið
Árlega gerir Framleiðsluráð
iandbúnaðarins verðmætaáætl-
un. Kemur þar fram hvað hver
grein landbúnaðarins leggur
fram I þjóðarbúið. Á tímabilinu
1985-1986 var verðmæti land-
búnaðarafurða áætlað rúmlega
8,5 miljarðar. Meðfylgjandi
mynd sýnir hvernig verðmætin
skiptast milli einstakra búgreina.
Kýmar eru hér drýgstar með
afurðir upp á 3,45 miljarða. Pá
kemur sauðféð með rúmlega 2,4
miljarða. Þar af er ullin með 161
milj. kr., gærur 169 milj. kr. og
slátur 105 milj. kr. Stærsti liður-
inn í hrossaverðmætinu eru líf-
hross seld í þéttbýli, 6,5 milj. kr.
og kartöflur vega þyngst af garðá-
vöxtunum, rúmar 400 milj. kr.
Eggjunum veitir heldur betur en
kjúklingunum 376 milj. á móti
308 milj. kr. I hlunnindaliðnum
vega þyngst lax og silungur, 345
mili. kr.
A myndinni koma þó ekki öll
kurl til grafar. Þar vantar t.d.
Ferðaþjónustu bænda með rúm-
ar 10 milj. og kanínurækt með 6,5
milj.
Framleiðsluráð sendir Hag-
stofunni að sjálfsögðu áætlunina.
Hún verður að hljóta blessun
þeirrar stofnunar áður en hún
færist fjármálaráðherra. Hag-
stofan gerir jafnan sínar athuga-
semdir og eru ekki allar auð-
skildar. Að þessu sinni lækkaði
hún áætlunina niður í 7.821.525
miljarða. Nákvæmt skal það
vera. Munar þar mest um lækk-
anir á hlunnindaliðnum eða um
287 milj. kr. Ýmsir aðrir liðir eru
lækkaðir verulega. Ofan í kaupið
viðurkennir Hagstofan ekki ferð-
aþjónustu, afurðir af loðdýrum
og kanínum, hrossasölu innan-
lands, selt hryssublóð, blóm,
runna og plöntur og minnkar
með þeim hætti útflutningsbóta-
réttinn af heildarupphæðinni.
Mörgum sýnist, og ekki að á-
stæðulausu, að hér sé verið að
skerða lögbundin réttind' bænda-
stéttarinnar, auk þess sem afurðir
nýbúgreina eru ekki viðurkennd-
ar, sem þáttur í búvörufram-
leiðslunni.
-mhg
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN , Flmmtudagur 13. ágúst 1987