Þjóðviljinn - 13.08.1987, Blaðsíða 10
Karl Linnas er einn þeirra stríðsglæpamanna nasista sem hafa haldið til í Bandaríkjunum. Hann var framseldur til
Sovétríkjanna og dæmdur fyrir glæpi sem hann framdi í seinni heimsstyrjöldinni í útrýmingarbúðum í Tartu í Eistlandi.
Klaus Barbie við réttarhöldin í Lyon í Frakklandi. „Hann var á mála hjá banda-
rísku leyniþjónustunni," segir Sanchez.
Stríðsglœpir
Böðlager í Bandaríkjunum
Sanchez fyrrum innanríkisráðherra Bólivíu: Baráttan beinistfyrstog fremst gegn
hugmyndafrœði fasismans en ekki gömlum nasistum
að er nauðsyniegt að gera sér
Ijóst að Frakkland og reyndar
Evrópa öll hefur unnið mikinn
Suður-Afríka
Harkan
eykst
Lögreglan í Suður-Afríku hand-
tók í gær 78 verkfallsmenn, og
færist aukin harka í verkfall
hundruða þúsunda verkamanna í
gull- og kolagreftri með hverjum
deginum sem líður.
Lögregluyfirvöld í Pretoríu
hafa látiö fara frá sér yfirlýsingu
um málið, og segir í henni að
mennirnir hafi verið handteknir í
áhlaupi á skrifstofur verkalýðsfé-
laga í Klerksdorp fyrir vestan Jó-
hannesarborg. Lögreglan segir
að til standi að ákæra mennina
fyrir að skipuleggja morð og
önnur óhæfuverk, en vildi ekki
tjá sig nánar um málið.
sigur, en sá sigur byggist á
ákvörðun lítillar þjóðar í Suður-
Ameríku. Árið 1983, í forsetatíð
Hernán Siles Suazo, handtóku
Bólivíumenn stríðsglæpamann-
inn Klaus Barbie og framseldu
hann frönskum yflrvöldum.
Petta eru ummæli Gustavo
Sanchez á nýlegum blaðamanna-
fundi en hann var innanríkisráð-
herra Bólivíu fyrir fjórum árum
og er það ekki síst honum að
þakka að það tókst að handsama
Barbie. Eins og kunnugt er af
fréttum var þessi fyrrum yfirmað-
ur Gestapó í Lyon í Frakklandi
dæmdur til lífstíðarfangelsis ný-
lega fyrir glæpi gegn mannkyn-
inu.
Sanchez bar vitni í réttarhöld-
unum gegn Barbie en ekki fékk
hann barið kauða augum, þar
sem Barbie neitaði að vera við-
staddur eigin réttarhöld.
„Mér þykir verst að hann
skyldi ekki sjá mig en dómurinn
er þó það sem máli skiptir.
Frönsk réttvísi á alla mína virð-
ingu, sem og fórnarlömb nasism-
ans, gyðingarnir sem útrýmt var í
stórhópum og ég er hreykinn af
hlutdeild Bólivíu í því að það
tókst að koma lögum yfir Bar-
bie,” segir Sanchez. Hann vísar
til föðurhúsanna orðrómi í þá
veru að Bólivíumenn hafi þegið
fé og matargjafir frá Frökkum
Contadoraríkin
fýrir vikið og vill meina að þann
orðróm megi rekja til Bandaríkj-
anna.
„Ég vona að ríkisstjórnir í
Suður-Ameríku fylgi fordæmi
Bólivíu og að fjórði júlí - þann
dag var dómurinn kveðinn upp -
verði héðan í frá einn af merkis-
dögunum í sögu mannkynsins.”
Sanchez er á því að lýðræðisþró-
unin í Paraguay og Chile eigi enn
erfiðara uppdráttar en þyrfti að
vera vegna þess að fyrrum her-
menn nasista séu þar við störf.
Að sögn Sanchez viðhélt Bar-
bie ýmsum tengslum við Evrópu
allt þar til hann var handtekinn.
Meðal annars hafi hann haft gott
samband við fasistabandalag á
Spáni og að sonur hans hafi
menntast í Barcelona.
Sanchez leggur áherslu á að
baráttan beinist ekki fyrst og
fremst gegn „gömlum nasistum”
heldur miklu fremur gegn hug-
myndafræðinni, en hún hafi dafn-
að meðal Iærisveinanna sem njóti
verndar Pinochets og hans nóta
með fullu samþykki Bandaríkja-
stjórnar.
„Ég heiti á fólk að berjast gegn
nasisma og fasisma, en þessum
stefnum hefur verið að vaxa fisk-
ur um hrygg í ýmsum löndum,”
segir Sanchez. Hann heldur því
einnig fram að í vissum skilningi
megi líta svo á að Che Guevara sé
meðal fórnarlamba Klaus Bar-
bie; Sá síðarnefndi hafi verið ráð-
gjafi René Barrientos hershöfð-
ingja en þá notast við nafnið
Klaus Altmann og verið á því
svæði þar sem sveitir Guevara
störfuðu.
Sanchez fullyrðir að sægur af
gömlum nasistum sé enn í Chile
og Paraguay, Argentínu og Bras-
ilíu. Flestir búi þeir þó í Banda-
ríkjunum og njóti verndar og
fjárhagsaðstoðar stjórnvalda
enda séu ýmsir þeirra á mála hjá
leyniþjónustunni. í þessum hópi
telur hann Klaus Barbie.
Sanchez er grjótharður á því að
Barbie hafi notið verndar Banda-
ríkjanna. „Dómurinn sem var
kveðinn upp yfir honum í Lyon
verður öðrum þjóðum hvatning
til að draga stríðsglæpamenn fyrir
lög og dóm,” segir hann.
(Stuðst við Gramma)
HS
ísrael
Shultz
fcr hvergi
Vangaveltur hafa verið uppi í
þá veru að George Shuitz, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna,
hygði á ísraelsför til að greiða
fyrir friðarviðræðum í Mið-
Austurlöndum. Bandarískir
embættismenn fullyrða nú að
ekki sé flugufótur fyrir þessum
fregnum.
Mjög er nú óljóst hvort af
friðarviðræöum verður á næst-
unni, en innan ísraelsstjórnar eru
skiptar skoðanir um alþjóðlegt
ráðstefnuhald í þessa veru.
Shamir forsætisráðherra má ekki
heyra á slíkt minnst, en á hinn
bóginn er Simon Peres utanríkis-
ráðherra hugmyndinni fylgjandi.
Shultz hefur áður sagt að Banda-
ríkjamenn muni ekki þrýsta á um
að af alþjóðlegri friðarráðstefnu
verði nema ísraelsstjórn styðji
slíka hugmynd einhuga. HS
Gustavo Sanchez. Hann var innanríkisráðherra Bólivíu þegar Klaus Barbie var
handtekinn og á drjúgan hluta af heiðrinum af því þjóðþrifaverki.
Með stuðningi frá Kreml
Sovétmennfagna Guatemalasamþykktinni oghvetja jafnframt
Bandaríkjamenn til að makka rétt
Ríkisstjórn Sovétríkjanna hef-
ur sent frá sér yfirlýsingu um
niðurstöðu fundar Mið-
Ameríkuríkjanna fimm fyrr í
mánuðinum, og er bert að
samkomulagið mælist vel fyrir í
Kreml.
í samþykktinni segir meðal
annars: „Það samkomulag sem
þama náðist sannar raunhæfni og
árangur þess starfs sem Conta-
doraríkin hafa unnið til að koma
á heiðarlegu, pólitísku sam-
komulagi í Mið-Ameríku, á veg-
um ríkja Rómönsku Ameríku
sjálfrar og á grundvelli fullrar
virðingar fyrir fullveldi þessara
ríkja og án íhlutunar um innan-
ríkismál þeirra, þar sem virtur
skal réttur hverrar þjóðar til að
ráða eigin þróun.“
Sovétmenn velta að vonum
vöngum yfir því hvaða afstöðu
Bandaríkjamenn muni taka,
„hvort þau séu reiðubúin til að
virða vilja fullvalda ríkja eða
haldi áfram að reka fyrri íhlutun-
arstefnu sína, brjóta alþjóðalög
og setja sig upp á móti allri Róm-
önsku Ameríku.“
„Nýir tímar sem upp em runnir
í þróun heimsmáia krefjast þess
að fyrirframgerðar stórvelda-
hugmyndir verði aflagðar, og að
um öll málefni verði fjallað á
ábyrgan hátt, þar á meðal um
málefni Mið-Ameríku,“ segir í
samþykkt Sovétstjórnarinnar.
Síðan segir: „Sovétríkin fagna
niðurstöðu ráðstefnunnar í Gu-
atemala. Þau lýsa stuðningi sín-
um við það samkomulag sem
þarna náðist, og álíta það verð-
mætt framlag Contadoraríkjanna
og stuðningsríkja þeirra. Sovét-
ríkin munu vissulega virða
ákvörðun hinna fimm þjóðarleið-
toga.“ HS
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 13. ágúst 1987