Þjóðviljinn - 13.08.1987, Page 12
ÚTVARP - SJÓNVARP
i
Á ððnm skómm
22.20# Á STÖÐ 2, í KVÖLD
Maðurinn á rauða skónum
nefnist mynd, sem Stöð 2 tekur til
sýningar í kvöld kl. 22.20.
Ungur maður á rauðum skó, er
hundeltur af útsendurum CIA.
Síminn er hleraður, reynt er að
ræna honum, og þegar um allt
þrýtur reyna útsendararnir að
koma unga manninum fyrir katt-
arnef. Eitthvað er maðurinn
sljórri en gengur og gerist með
unga menn, því hann verður ekki
hið minnsta var við allt brambolt-
ið.
Kvikmyndin Maðurinn á rauða
skónum er bandarísk, frá árinu
1985. Aðalhlutverkin leika Tom
Hanks, er að sögn Kvikmynda-
handbókarinnar rembist eins og
rjúpan við staurinn og gerir ör-
væntingarfullar tilraunir til ^ð
vera skoplegur, Dabney Colem-
an og Lori Singer. Leikstjóri
þessa er Stan Dragotti.
Ljóðaleikur
21.30 A RAS
Ljóðagerð valinkunnra ís-
ienskra skálda, sem eru fyrir
margt annað betur kunn en ljóða-
gerð, er umfjöllunarefni þáttar-
aðarinnar „Leikur að ljóðum“,
en fyrsti þátturinn er á dagskrá
Rásar 1 í kvöld.
Ljóðagerð þrettán skálda
verður til umfjöllunar í þáttaröð-
inni, sem telur alls sjö þætti.
Þættirnir verða á dagskrá á
fimmtudagskvöldum kl. 21.30.
1, I KVOLD
í þættinum í kvöld er fjallað um
ljóðagerð Sigurðar Nordals og
Éinars Ólafs Sveinssonar. Lesið
veður úr verkum þessara öndveg-
ismanna og leikin lög sem til eru
við ljóð sem þeir hafa ort.
Umsjónarmaður þáttarins,
sem og allrar þáttaraðarinnar, er
Símon Jón Jóhannsson, þjóð-
háttafræðingur, og lesari með
honum er Ragnheiður Steindórs-
dóttir, leikari.
Fimmtu-
dagsleikrit
20.00 Á RÁS 1, í KVÖLD
Fimmtudagsleikritið að þessu sinni
nefnist Móðir mín hetjan eftir ung-
verska skáldið George Tabori. Þýð-
ingu gerði Jón Viðar Jónsson. Leik-
stjóri er Hallmar Sigurðsson.
1 Leikritið fj allar um gyðingaofsókn-
ir nazista í Ungverjalandi og er byggt
á sannri reynslu nánustu ættingja Ta-
boris.
Meðal leikenda eru Þorsteinn
Gunnarsson, Guðrún Þ. Stephnesen,
Sigurður Skúlason og Bríet Héðins-
dóttir.
Kvöld-
spjaii
23.00 Á RÁS 2, í KVÖLD
Rás 2 vill vera útvarp allra lands-
manna, ekki síður en móðurútvarpið,
- gamla Gufan. Sökum þessarar ást-
ríðu Rásar 2, fá hlustendur Rásarinn-
ar að heyra hljóðið í fleirum en höfu-
ðborgarbúum og nágrönnum þeirra í
kvöldspjalli. í kvöld ræðir Haraldur
Ingi Haraldsson við Friðþjóf Sigurðs-
son og Gunnar Gunnsteinsson um
leikhúslíf á Akureyri,en báðir eru
þeir Friðþjófur og Gunnar félagar í
leikklúbbnum Sögu.
6.45 Veðurfregnir. Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 Morgunvaktin-HjördísFinnboga-
dóttir og Jóhann Hauksson. Fréttir
sagðar kl. 8.00 og veðurfregnir kl. 8.15.
Fréttayfirlit kl. 7.30 en áöur lesið úr for-
ustugreinum dagblaðanna. Tilkynning-
ar lesar kl. 7.25, 7.55 og 8.25. Guð-
mundur Sæmundsson talar um daglegt
mál kl. 7.20. Fréttir á ensku sagðar kl.
8.30.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Óþekktarormurinn hún litla systir“
ottlr Dorothy Edwards. Lára Magnús-
dóttir ies þýðingu sína (3).
9.20 Morguntrimm. Tónleikar.
10.00 Fróttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Ég man þá tíð. Hermann Ragnar
Stefánsson kynnir lög frá liðnum árum.
11.00 Fréttir. Tilkynningar.
11.05 Samhljómur. Umsjón: Anna Ing-
ólfsdóttir. (Þátturinn verður endurtekinn
að loknum fréttum á miðnætti).
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Hádagisfróttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tón-
13.30 í dagsins önn - Fjölskyldan. Um-
sjón: Kristinn Ágúst Friðfinnsson. (Þátt-
urinn verður endurtekinn nk. mánu-
dagskvöld kl. 20.40).
14.00 Mlödegissagan: „Á hvalvelða-
slóðum", minnlngar Magnúsar
Gfslasonar. Jón Þ. Þór les (9).
14.30 Dægurlög ó milli stríða.
15.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
15.20 Ekki til setunnar boðið. Þáttur um
sumarstörf og frístundir. Umsjón: Inga
Rósa Þórðardóttir. (Frá Egilsstöðum).
(Endurtekinn þáttur frá sunnudegi).
16.00 Fróttir. Tilkynningar.
16.05 Dagbókin. Dagskrá.
16.15 Veöurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Fréttir. Tilkynningar.
17.05 Siðdeglstónleikar. a. Rondinó
fyrir blásaraoktett eftir Ludwig van Beet-
hoven. Hollenska blásarasveitin leikur.
b. Blásarakvintett op. 43 eftir Carl Niel-
sen. Kammersveit Vestur-Jótlands
leikur.
17.40 Torgið. Umsjón: Þorgeir Ólafsson
og Anna M. Sigurðardóttir.
18.00 Fréttir. Tilkynningar.
18.05 Torglð, framhald. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar. Daglegt mól. Endur-
tekinn þáttur frá morgni sem Guðmund-
ur Sæmundsson flytur. Að utan. Frétta-
þáttur um erlend málefni.
20.00 Leikrit: „Móðir m/n hetjan" eftir
George Tabori. Þýðandi: Jón Viðar
Jónsson. Leikstjóri: Hallmar Sigurðs-
son. Leikendur: Þorsteinn Gunnarsson,
Guðrún Þ. Stephensen, Sigurður
Skúlason, Bríet Héðinsdóttir, Baldvin
Haldórsson, Erlingur Gislason, Bjarni
Steingrimsson, Guðmundur Ólafsson,
Eggert Þorleifsson og Guðný Helga-
dóttir. (Áður flutt í september 1985).
21.30 Leikur að Ijóðum. Fyrsti þáttur:
Um ^óðagerð Sigurðar Nordal og Ein-
ars Ólafs Sveinssonar. Umsjón: Símon
Jón Jóhannsson.
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Hugskot. Þáttur um menn og mál-
efni i umsjá Stefáns Jökulssonar.
23.00 Afmælistónieikar Skólahljóm-
sveitar Kópavogs 14. mars sl. Kynnir:
Jón Múli Árnason.
24.00 Fréttir.
00.10 Samhljómur. Umsjón: Anna Ing-
ólfsdóttir. (Endurtekinn þáttur frá
morgni).
01.00 Veðurfregnir.
Næturútvarp á samtengdum rósum til
morguns.
00.10 Næturvakt Útvarpsins. Gunn-
laugur Sigfússon stendur vaktina.
6.00 I bitið - Guðmundur Benediktsson.
Fréttir á ensku sagðar kl. 8.30.
9.05 Morgunþóttur í umsjá Kristínar
Bjargar Þorsteinsdóttur og Skúla Helga-
sonar.
12.20 Hódegisfréttir.
12.45 Á mllll mála. Umsjón: Guðrún
Gunnarsdóttir og Hrafnhildur Halldórs-
dóttir.
16.05 Hrlngiðan. Umsjón: Broddi
Broddason og Snorri Már Skúlason.
19.00 Kvöldfróttir.
19.30 Vinsældalisti rásar 2. Gunnar
Svanbergsson og Georg Magnússon
kynna og leika 30 vinsælustu lögin.
Einnig lýsing á leikjum í bikarkeppni KSl.
23.00 Kvöldspjali. Haraldur Ingi Har-
aldsson sér um þáttinn að þessu sinni.
(Frá Akureyri).
00.10 Næturvakt Útvarpslns. Gunn-
laugur Sigfússon stendur vaktina til
morguns.
Fróttlr kl. 7.00, 8.00, 9.00, 10.00, 11.00,
12.20, 15.00, 16.00, 17.00, 18.00,
19.00, 22.00 og 24.00.
07.00 Þorgeir Ástvaldsson. Snemma á
fætur með Þorgeiri Ástvaids. Lauflétt-
ar dægurflugur frá því í gamla daga fá
að njóta sín á sumarmorgni. Gestir tekn-
ir tali og mál dagsins í dag rætt ítarlega.
08.30 Fréttir.
09.00 Gunnlaugur Helgason. Jæja. Það
er öruggt að góð tónlist er hans aðals-
merki. Gulli fer með gamanmál, gluggar
í stjörnufræðin og bregður á leik meö
hlustendum í hinum og þessum get-
leikjum.
09.30 og 11.55 Fréttir.
12.00 Pla Hansson. Hádegisútvarpið
hafið. Pia athugar hvað er að gerast á
hlustunarsvæði Stjörnunnar. Tónlist.
Kynning á íslenskum hljómlistar-
mönnum sem eru að halda tónleika.
13.00 Helgi Rúnar Óskarsson. Lagalist-
inn er fjölbreyttur á þessum bæ. Gamalt
og gott leikið af fingrum fram, með hæfi-
legri blöndu af nýrri tónlist. Helgi fylgist
vel með því sem er að gerast.
13.30 og 15.30 Fróttlr.
16.00 Bjarni Dagur Jónsson. Þessi.
hressi sveinn fer á kostum með kántrý
tónlist og aðra þægilega tóniist. Spjall
við hlustendur er hans fag og verð-
launagetraun er á sínum stað milli kl. 5
og 6, síminn er 681900.
17.30 Fréttir.
19.00 Stjörnutíminn ó FM 102.2 og 104.
Gullaldartónlistin ókynnt í einn klukku-
tíma. „Gömlu" sjarmarnir á einum stað,
uppáhaldið þitt. Elvis Presley, Johnnye
Ray, Connie Francis, The Marcels, The
Platters og fleiri.
20.00 Einar Magnússon. Létt popp á sið-
kveldi, með hressilegum kynningum.
Þetta er maðurinn sem flytur ykkur ný-
metið.
22.00 Örn Petersen. ATH. Þetta er alvar-
legur dagskrárliður. Tekið er á málum
liöandi stundar og þau rædd til mergjar.
Örn fær til sín viðmælendur og hlust-
endur geta lagt orð í belg í síma 681900.
23.00 Fréttir.
23.15 Tónleikar.TónleikaráStjörnunni i
Hi-Fi stereo og ókeypis inn.
00.15 Gísli Sveinn Loftsson. Stjörnu-
vaktin hafin. Ljúf tónlist, hröð tónlist,
semsagt tónlist við allra hæfi. Til kl.
07.00.
07.00 Pétur Stelnn og Morgunbyigjan.
Pétur kemur okkur réttu megin framúr
með tilheyrandi tónlist og lítur í blöðin.
Fréttir kl. 07.00, 08.00 og 09.00.
09.00 Valdís Gunnarsdóttir á léttum
nótum. Sumarpoppið allsráðandi, af-
mæliskveðjur og spjall til hádegis. Fjöl-
skyldan á Brávallagötunni lætur ( sér
heyra. Fréttir kl. 10.00 og 11.00.
12.00 Fréttir.
12.10 Þorsteinn J. Vilhjólmsson ó há-
degl. Þorsteinn spjallar við fólkið sem
ekki er I fréttum og leikur létta hádegis-
tónlist. Fréttir kl. 13.00.
14.00 Ásgeir Tómasson og siðdegis-
poppið. Gömul uppáhaldslög og vin-
sældalistapopp í réttum hlutföllum. Fjal-
lað um tónleika komandi helgar. Fréttir
kl. 14.00, 15.00 og 16.00.
17.00 Salvör Nordal f Reykjavík síð-
degis. Leikin tónlist, litið yfir fréttirnar og
spjallað við fólkið sem kemur við sögu.
Fréttir kl. 17.00.
18.00 Fréttir.
19.00 Anna Björk Birgisdóttir á flóa-
markaði. Flóamarkaður milli kl. 19.03
og 19.30. Tónlist til kl. 21.00.
21.00 Jóhanna Harðardóttir - Hrakfall-
abólkar og hrekkjusvfn. Jóhanna fær
gesti í hljóðstofu. Skyggnst verður inn í
spaugilega skuggabletti tilverunnar.
24.00 Næturdagskró. Tónlist og upplýs-
ingar um veður og flugsamgöngur. Til
kl. 07.00.
16.45 # Vogun vinnur. (Looking to get
out). Bandarísk gamanmynd frá 1982
með John Voight, Ann-Margret og Burt
Young í aðalhlutverkum. Tveir fjárhætt-
uspilarar á flótta undan skuldunautum
sínum, leggja leið sína til Las Vegas.
Leikstjóri er Hal Ashby.
18.30 # Hundalif. (All about Dogs).
Leikin ævintýramynd fyrir yngri kynslóð-
ina.
19.00 Ævintýri H.C. Andersen. Kopar-
svínlð. Teiknimynd með íslensku
tali. Leikraddir: Guðrún Þórðardóttir,
Júlíus Brjánsson og Saga Jónsdóttir.
19.30 Fréttir.
20.05 Leiðarinn. I leiðara Stöðvar 2 er
fjallað um málaflokka eins og neytend-
amál, menningarmál og stjórnmál og þá
atburði sem efstir eru á Daugi. Stjórn-
andi er Jón Óttar Ragnarsson.
20.40 Sumarliðir. Hrefna Haraldsdóttir
kynnir helstu dagskrárliði Stöðvar 2
næstu vikuna. Stjórn upptöku: Hilmar
Oddsson.
21.05 DagarognæturMollyDodd. (The
Days and Nights of Molly Dodd). Banda-
rískur gamanþáttur um fasteignasalann
Molly Dodd og mennina I lífi hennar.
21.30 # Dagbók Lyttons. (Lytfon's Di-
ary). Breskur sakamálaþáttur með Pet-
er Bowles og Ralph Bates í aðalhlut-
verkum. Maður nokkur sem er stríðs-
hetja og að auki þekktur fyrir mannúðar-
störf, er að láta af störfum. Lytton kemst
yfir bréf sem upplýsir að stríðsafrekin
eru ekki eins merk og af er látið.
22.20 # Maðurinn i rauða skónum.
(The Man with one Red Shoe). Ný,
bandarísk kvikmynd með Tom Hanks,
Dabney Coleman og Lori Singer. Ungur
maður er eltur uppi af njósnurum, sími
hans hleraður, lagðar eru fyrir hann
gildrur og honum sýnt banatilræði.allt
án þess að hann verði þess var. Leik-
stjóri er Stan Dragoti.
23.50 # Flugumenn. (I Spy). Bandarísk-
ur njósnamyndaflokkur með Bill Cosby
og Robert Culp í aðalhlutverkum. Kelly
Robinson er ásakaður um föðurlands-
svik og er hundeltur af starfsbræðrum
sínum, þar á meðal Alexander Scott.
00.45 Dagskrórlok.