Þjóðviljinn - 13.08.1987, Blaðsíða 15
ÍÞRÓTTIR
Frjálsar íþróttir
Þrefalt heimsmet
Alessandro Andrei frá Ítalíu
gerði sér lítið fyrir í gær og sló
heimsmetið í kúluvarpi þrívegis.
Hann náði ótrúlegri kastseríu og
öll köstin voru yfir 22 metra.
Andrei setti metið á frjáls-
íþróttamóti á Ítalíu.
Hann byrjaði á að slá ítalska
metið með 22.19, því næst kast-
aði hann 22.37 metra og loks féll
heimsmet Udo Bayer, 22.64 sem
var sett í ágúst 1986. Andrei kast-
aði 22.72 metra. En hann lét ekki
þar við sitja. Hann bætti metið að
nýju með 22.84 og loks endaði
hann á 22.91 metra, glæsilegt
heimsmet og ótrúlegur árangur.
-Ibe/Reuter
Knattspyrna
Óskabyrjun Þjóðverja
Varnarmistök í upphafi leiks
kostuðu Frakka tap gegn Vestur-
Þjóðverjum, 2-1 í vináttulands-
leik í knattspyrnu i gær.
Strax eftir tíu mínútur var stað-
an 2-0 Þjóðverjum í vil. Rudi
Völler nýtti sér misskilning í
frönsku vörninni og skoraði af ör-
yggi á 4. mínútu. Hann bætti svo
öðru marki við á 10. mínútu eftir
hornspyrnu.
6. flokkur
Skagamót
Hið árlega HI-C Skagamót í knatt-
spyrnu verður haldið á Akrancsi um
helgina. Þar mæta til leiks 10 félög
með 20 lið í 6. flokki drengja.
Keppt verður bæði innan- og utan-
húss og glæsileg verðlaun í boði. Auk
knattspyrnunnar verður svo margt til
gamans gert, knattþrautir, leikir,
grillveisla og kvöldvaka.
Mótið hefst kl. 13 á föstudag og
lýkur á sunnudag.
Þjóðverjar sóttu svo stíft og
fóru illa með góð færi. Þeir voru
heldur ekki hressir með dóm-
gæsluna sem hafði af þeim tvö
mörk. Guido Buchwald skoraði
mark með skalla sem var dæmt af
án nokkurrar sjánlegrar ástæðu
og Amoros felldi Völler fyrir
innan vítateig, en dómarinn
dæmdi aðeins aukaspyrnu.
Það var svo Eric Cantona, ný-
liði í franska liðinu, sem
minnkaði muninn á 42. mínútu.
Franz Beckenbauer, landsliðs-
einvaldurinn þýski, var mjög
ánægður með leik sinna manna í
fyrri háfleik, en að sama skapi
óánægður með síðari hálfleik.
Frakkar eru úr leik í Evrópu-
keppninni, en Vestur-Þjóðverjar
eru gestgjafarnir og því þegar
komnir í úrslitakeppnina. Þeir
eru taldir með mjög sigurstrang-
legt lið.
Þá léku Noregur og Svíþjóð
vináttuleik í gær sem lauk með
jafntefli, 0-0.
-Ibe/Reuter
Það fer án efa illa um Kjartan Steinsson undir hendinni á Hálfdáni Örlygssyni.
Kjartan og félagar í Gróttu hrósuðu þó sigri að lokum. Mynd.Ari.
4. deild
Naumt hjá Gróttu
Grótta styrkti stöðu sína í úr-
slitakeppni 4. deildarinnar með
sigri gegn Árvakri, 2-1 á gervi-
grasinu í Laugardal.
Leikurinn var jafn, en Sverrir
Sverrisson náði forystunni fyrir
Boccia
Firmakeppni
Fyrsta firmakeppni í boccia verður
haldin í dag á íþróttavellinum við
Bjarkarás í Stjörnugróf.
Rúmlega fimmtíu fyrirtæki taka
þátt í þessari keppni sem hefst kl. 15.
Gróttu í fyrri hálfleik. Björn Pét-
ursson jafnaði fyrir Árvakur þeg-
ar 15 mínútur voru til leiksloka.
Það var svo Sverrir sem var aftur
á ferðinni og skoraði með skalla
rétt fyrir leikslok.
Þá léku Bolungarvík og Vík-
verji í Bolungarvík. Leiknum
lauk með jafntefli, 0-0. Leikurinn
var jafn og bæði lið fengu ágæt
færi, sem þeim tókst þó ekki að
nýta.
Þá sigraði Hvöt HSÞ.c, 2-0 í
hinum riðli úrslitakeppninnar.
Ingvar Magnússon og Áxel Rún-
ar Guðmundsson skoruðu mörk
Hvatar.
Víðismenn komu nokkuð á óvart með því að gera jafntefli gegn Val í báðum leikjum liðanna i deildinni. Á myndinni, sem
er úr leiknum á Valsvelli, bjargar Sævar Leifsson á línu eftir þunga sókn Valsmanna.
Mjólkurbikarinn
Undanúrslití kvöld
Valsmenn í Garðinn og Þór og Fram á Laugardalsvelli
í kvöld eru undanúrslit Mjólk-
urbikarkeppni KSÍ. Fram og Þór
leika á Laugardalsvelli og Víðir
og Valur i Garðinum. Báðir
leikirnir hefjast kl. 18.30.
Það er allt útlit fyrir hörku-
leiki, enda öll liðin í toppbaráttu-
inni nema Víðir. Þeir hafa þó sýnt
að þeir gefa hinum liðunum ekk-
ert eftir og geta m.a. státað af
jafnteflum við öll helstu toppliðin
og hafa sigrað KR í 8-liða úrs-
litum.
Framarar oftast sigrað
Af þeim liðum sem eftir eru í
Bikarkeppninni, geta Framarar
státað af besta árangri. Þeir hafa
fimm sinnum sigrað í Bikar-
keppninni. Þeir hafa 11 sinnum
komist í sjálfan úrslitaleikinn, en
tapað sex sinnum. Framarar sig-
ruðu síðast 1985, en töpuðu gegn
ÍA í úrslitaleik í fyrra.
í 16-liða úrslitum sigruðu
Framarar lR 6-0 og Leiftur, 3-1 í
8-liða úrslitum.
Valsmenn hafa einnig staðið
sig vel í Bikarkeppninni. Þeir
hafa sjö sinnum komist í úrslit og
sigrað fjórum sinnum. Valsmenn
sigruðu síðast í bikarkeppninni
1977, en töpuðu úrslitaleikjunum
1978 og 79, gegn ÍA og Fram.
Valsmenn sigruðu Grindvík-
inga í 16-liða úrslitum, 2-1 og
Völsunga, 4-3 í 8-liða úrslitum,
eftir vítaspyrnukeppni.
Þórsarar hafa aðeins einu sinni
áður náð í undanúrslit. Það var
1985. Þá mættu þeir Fram og
töpuðu, 0-3. Þeir hafa án efa hug
á að gera betur nú og hafa farið
illa með Framara í deildar-
leikjum.
Þór sigraði KA, 6-5 eftir víta-
spyrnukeppni í 16-liða úrslitum
og ÍBK í 8-liða úrslitum, 4-3,
einnig eftir vítaspyrnukeppni.
Víðismenn hafa aldrei náð svo
langt. Það lengsta sem þeir kom-
ust áður var í 8-liða úrslit 1985. Þá
mættu þeir KA og töpuðu, 1-2.
Víðir sigraði Þrótt Neskaup-
stað, 2-0 í 16-liða úrslitum, eftir
framlengdan leik. Þeir sigruðu
svo KR-inga, 2-0 í 8-liða úrslit-
um.
Hörkuleikir í deildinni
Innbyrðis leikir liðanna í
deildinni hefa verið jafnir.
Valur og Víðir gerðu jafntefli,
1-1 í Garðinum í fyrsta leik og
leik liðanna á Valsvelli lauk einn-
ig 1-1.
Þór sigraði Fram í fyrsta leik,
3-1 og á Akureyri, 4-1. Markatal-
an gefur þó líklega ekki rétta
mynd af gangi leikjanna og Fram-
arar án efa staðráðnir í að hefna
ófaranna.
Það er þó líklega hæpið að bera
leiki í deildinni sama við undan-
úrslit bikarkeppninnar. Þar eru
liðin úr leik ef þau tapa og án efa
ekkert gefið eftir. _jbe
2. deild
Stórleikur Þorvaldar
ÍBV-Leiftur 1-1 ★ ★ ★
Leiftursmenn geta þakkað
markverði sínum, Þorvaldi
Jónssyni, fyrir annað stigið í
Eyjum. Hann átti stórleik og
varði m.a. vítaspyrnu.
Það voru Leiftursmenn sem
náðu forystunni strax á 2. mín-
útu. Sigurbjörn Jakobsson
skoraði með skalla af stuttu færi
eftir hornspyrnu. Óskar Ingi-
mundarson fékk svo gott færi á að
bæta við, en hann skaut framhjá
eftir að hafa komist einn í gegn-
um vörn ÍBV.
Heimamenn jöfnuðu á 24.
mínútu. Elías Friðriksson átti
góða sendingu á Hlyn Stefánsson
sem skoraði með góðum skalla í
bláhornið, 1-1.
Vestmannaeyingar voru svo
sterkari aðilinn næstu mínúturn-
ar. Lúðvík Bergvinsson átti
þrumuskot frá markteigshorni
sem Þorvaldur varði meistara-
lega. Ingi Sigurðsson skaut svo
rétt yfir af markteig. Leifturs-
menn fengu einnig gott færi, en
Óskar skaut í stöng.
Þá var komið að þætti Þorvald-
ar í markinu. Lúðvík átti þruntu-
skot frá vítateig sem Þorvaldur
varði glæsilega og hann varði
mjög vel skalla frá Jóhanni Ge-
orgssyni og Hlyn Stefánssyni.
Síðsutu mínúturnar voru svo
ein samfelld sókn Vestamannae-
yinga. Lúðvík var brugðið í víta-
teig og heimamenn fengu vítasp-
yrnu. Elías Friðriksson tók
spyrnuna, enÞorvaldur varði vel.
Síðan sóttu Vestmannaeyingar
stanslaust, en stórkostleg mark-
varsla Þorvaldar og óheppni
Eyjamanna kom í veg fyrir sigur.
Þorvaldur var yfirburðamaður
á vellinum, blátt áfram ótrúlegur
í markinu. Þá áttu þeir bræður
Steinar og Óskar góðan leik.
Hjá ÍBV bar mest á ómari Jó-
hannssyni og Lúðvík Bergvins-
syni.
Eftir þennan sigur hafa Lewift-
ursmenn tveggja stiga forskot í
deildinni og stefna ótrauðir á sæti
í 1. deild.
Maður leiksins: Þorvaldur
Jónsson, Leiftri. -j*1
3. deild
Steindór
með sjö!
ÍK hressti heldur betur upp á
markatöluna með ótrúlegum sigri
gegn Skallagrími, 15-0! Af þessum 15
mörkum skoraði Steindór Elísson 7 og
er nú lang markahæstur í 3. deildinni.
í hálfleik var staðan 6-0 og í síðari
hálfleik komu níu mörk þrátt fyrir að
Steindór brenndi af vítaspyrnu. Það
gerir mark á sex mínútna fresti!
Auk Steindórs skoruðu þeir Skúli
Þórisson, Reynir Björnsson og Jón
Hersir Elíasson tvö hver.og Björn
Bjömsson og Friðrik Friðriksson eitt
mark hvor.
-Ibe
Fimmtudagur 13. ágúst 1987 ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 15