Þjóðviljinn - 13.08.1987, Blaðsíða 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
Fimmtudagur 13. dgúst 1987 175. tðlublað 52. ðrgangur
LEON
AÐ FARSÆLLI
SKÓLACÖNCU
0
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDSHF
Sjávarútvegsráðuneytið
Dómskerfinu
snúið við
Jökull eittþeirrafimmfyrirtœkja sem sökuð hafa verið um
kvótasvindl. SkúliAlexanderssonframkvœmdastjóri: Viðerum
bornir röngum sökum. Ráðuneytið ekki sýntþvíminnsta áhuga að
kanna sekt eða sakleysi okkar. Veist að mér sem þingmanni
Með þessu hefur sjávarútvegs-
ráðuneytið snúið íslensku
réttarkerfi við. Fram til þessa
hefur einstaklingurinn verið sak-
laus þar til sekt hans hefur verið
sönnuð en nú á sakborningurinn
að sanna sakieysi sitt, sagði Skúli
Alexandersson, þingmaður og
framkvæmdastjóri útgerðarfyr-
irtækisins Jökuls á Hellissandi.
Jökull er eitt þeirra fimm útgerð-
arfyrirtækja sem sökuð hafa ver-
ið um kvótasvindl.
„Ráðuneytið hefur borið upp á
okkur að það vanti 120 lestir af
þorski svo aflinn standi undir
framleiðslu okkar árið 1986.
Þetta er byggt á alröngum for-
sendum, meðaltali af nýtingu fyr-
irtækja á aflanum. Sá sem rekur
fyrirtæki vel á því á hættu, einsog
núna, að verða ákærður um laga-
brot, en skussarnir sleppa. Það
vita allir að afli nýtist mjög mis-
jafnlega hjá fyrirtækjum og það
hefði verið auðvelt fyrir ráðu-
neytið að kanna það hvort hér
hafi verið landað framhjá, en það
hefur ekki verið gert. Þá hef ég
sent þeim upplýsingar úr bók-
haldinu um landaðan afla hjá
fyrirtækinu og greiðslur fyrir
aflann, en þeir ekki tekið mark á
því. Ráðuneytið hefur því ekki
gert neitt til þess að fá óyggjandi
sannanir um hlutina."
Skúli sagðist mótmæla þessu
kröftuglega þar sem ekki væri
bara verið að ráðast á fyrirtækið
heldur ekki síður á hann sem al-
þingismann og bera hann sökum,
sem væru uppspuni. Skúli sagðist
líta svo á að viðbrögð ráðuneytis-
ins væru mjög vítaverð. „Svona
vinnubrögð eru síst til þess fallin
að auka traust á öðrum vinnu-
brögðum ráðuneytisins í sam-
bandi við eftirlit með nýtingu
fiskstofnanna.“
Skúli hefur á undanförnum
árum gagnrýnt kvótakerfið. Tel-
ur hann að með þessari aðför
ráðuneytisins sé verið að kippa
fótunum undan honum þannig að
hann sé í miklu erfiðari aðstöðu
til að gagnrýna kvótann þegar
ráðuneytið hafi dæmt hann, þar
sem það taki hann ákveðinn tíma
að sanna sakleysi sitt. „Ráðu-
neytið leggur nú ofurkapp á það
að halda uppi því að ég sé sekur
þó að ég sé saklaus. Það er verið
að skerða heiður ráðuneytisins ef
það þarf að renna til baka með
fullyrðingar gegn mér.“
-Sáf
Barnabókaverðlaun
Guðmn og Bdan tilnefnd
Guðrún Helgadóttir og Brian Pilkington hafa verið tilnefnd afíslands
hálfu til hinna viðurkenndu H. C. Andersen verðlaunafyrir barna- og
unglingabœkur
Af hálfu íslands hafa Guðrún
Helgadóttir og Brian Pilking-
ton verið tilnefnd til hinna viður-
kenndu H.C. Andersen verð-
launa fyrir barna- og unglinga-
bækur, og er þetta í fyrsta skipti
sem tilnefning til þessara verð-
launa er gerð af Islands hálfu.
Formaður tilnefningarnefndar-
innar er Sigrún Klara Hannes-
dóttir dósent.
Guðrún Helgadóttir sagði að
það væri geysilega gaman að fá
þessa tilnefningu þó hún gerði sér
ekki miklar vonir um að fá verð-
launin. Gefið er út sérstakt rit um
alla þá sem tilnefndir eru til verð-
launanna til kynningar og sagði
Guðrún slíkt vera hverjum rit-
höfundi mikils virði, auk þess
sem þessi útgáfa hvetti til þýð-
inga. Ákvörðun um hver hlýtur
verðlaunin verður væntanlega
tekin í október og fer verðlauna-
afhending fram í Oslo í kringum
áramótin.
H.C. Andersen verðlaunin eru
alþjóðleg verðlaun veitt af Int-
ernational Board on Books for
Young People og voru þessi verð-
laun fyrst veitt 1956 en þau eru
veitt annað hvert ár. Síðan 1966
hafa þau jafnframt verið veitt
fyrir myndskreytingar.
Guðrún Helgadóttir sagði
þessi verðlaun ekki veitt fyrir ein-
stakar bækur heldur fyrir allt
höfundarverk viðkomandi rithöf-
undar. „Margir merkir rithöf-
undar hafa fenglð þessi verðlaun,
svo sem Astrid Lindgren, Tove
Jansson og Maria Gripe þannig
að maður er í fínu selskapi
þarna,“ sagði Guðrún Helgadótt-
ir.
-ing
Stefnir í metár
Samkvæmt bráðabirgðatölum
frá Fiskifélagi íslands fyrir
júlímánuð bendir allt til þess að
árið í ár sigli hraðbyri í það að
verða aflamesta ár sem komið
hefur. Samtals hafa komið á land
tæplega milljón tonn af físki, eða
969.333 þúsund tonn á móti
799.978 þúsundum tonna á sama
tíma í fyrra.
Sé iitið á aflabrögð í júlímán-
uði þá hefur þorskafli bátaflotans
aukist um tæp 3 þúsund tonn frá
sama mánuði í fyrra, úr 11.841
þús. tonna í 14.835 þúsund tonn.
Rækjuaflinn hefur einnig aukist
frá fyrra ári, en í júlí komu á land
6.477 þúsund tonn á móti 3.715
þúsund tonnum í sama mánuði í
fyrra.
Þorskafli togara í júlí í ár er
mun betri en í fyrra á sama tíma. í
síðasta mánuði veiddu togararnir
28.392 þúsund tonn en rétt 19
þúsund tonn í júlí ’86 sem er
aukning um 9 þúsund tonn. Þó er
togaraaflinn ekki nema tæpum
þúsund tonnum meiri í júlí í ár
miðað við sama tíma í fyrra og
kemur þar til að ekki hefur eins
mikið veiðst af öðrum
botnfisktegundum. Togaraaflinn
er því 42.010 í júlí ’87 en var
41.292 í júlí ’86.
grh
gær var verið að leggja síðustu hönd á endanlegan frágang I Kringlunni. Þessi
stúlka hafði þó fengið sér sæti í rúllustiganum með ryksuguna, enda lítill tími
gefist til að tylla sér niður undanfarna daga. Mynd: Sig.
Kringlan
OpnaTT dag
Stœrsta verslunarmiðstöð hér á landi. 400
manns munu vinna þar. Á TVR hefur opið í
hádeginu
Stærsta verslunarmiðstöð sinn-
ar tegundar hér á landi,
Kringlan, opnar með viðhöfn
klukkan 10 fyrir hádegi í dag.
Byggingin er um 28.000 fermetr-
ar að flatarmáli og um 150.000
rúmmetrar. Um er að ræða 9%
aukningu á verslunarrými höf-
uðborgarsvæðisins. Alls verða 76
verslanir, veitinga- og þjónustu-
aðilar í Kringlunni. A næstunni
ve.rður tekin í notkun 2.800 fer-
metra hæð sem ætluð er fyrir
skrifstofur og þjónustustarfsemi.
Áætlaður starfsmannafjöldi í
Kringlunni er um 400 manns. Við
opnun verða um 1.400 bílastæði.
Þar af verða um 900 stæði að vest-
anverðu á tveimur hæðum. Ráð-
gert er að byggja til viðbótar 400
stæði á næsta ári.
Sameiginlegur opnunartími
verður sem hér segir: Mánudaga-
fimmtudaga klukkan 9.30-19.30,
föstudaga klukkan 9.30-20.00 og
laugardaga klukkan 9.30-18.00.
Á laugardögum verður einungis
opið til klukkan 16.oo þar til
reglugerð Reykjavíkurborgar um
opnunartíma hefur verið numin
úr gildi. Nokkrir aðilar eru und-
anþegnir sameiginlegum opnun-
artíma, meðal annars veitinga-
staðirnir, ÁTVR og fleiri. En
þess má geta að ÁTVR verður
með opna verslun í hádeginu,
sem eru nýmæli.
grh