Þjóðviljinn - 15.08.1987, Qupperneq 10
ÖRFRÉTTIR
III REYKJHIÍKURBORG III
^ ^ ^»**
<*^ *■* ***
£<zu&cvi Sfödca
Félagsmálastofnun Reykja-
víkurborgar
AUGLÝSIR
Lausar stöður félagsráögjafa á hverfaskrifstofum
fjölskyldudeildar í Vonarstræti 4 og Síðumúla 34.
Upplýsingar gefur yfirmaður fjölskyldudeildar í
síma 25500. Umsóknarfrestur er til 28. ágúst.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíikurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð á
sérstökum eyðublöðum sem þar fást.
Lóðarvinna
Tilboð óskast í lóðargerð við Vistheimilið við Holt-
aveg í Reykjavík.
Verkið nær til lögunar lóðar, hellulagðra svæða,
snjóbræðslulagna, gras- og gróðursvæða og
ýmiss konar búnaðar.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri Borg-
artúni 7, Reykjavík gegn 5.000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað, mánudaginn
24. ágúst kl. 11:00 f.h.
111 REYKJHIÍKURBORG IW
k _________________________n» H
rs i*n r* <^^
JLautevi Stödíci
Dagvist barna óskar að ráða
forstöðumenn
til starfa á eftirtalin dagvistarheimili Reykjavíkur-
borgar:
- Dagh./leiksk. Fálkaborg v/Fálkabakka, frá og
með 1. ágúst.
- Dagh./leiks. Foldaborg v/Frostafold.
- Leiksk. Árborg v/Hlaðbæ.
- Leiksk. Leikfell v/Æsufell, frá og með 1. sept-
ember.
- Dagh. Múlaborg v/Ármúla, frá og með 1. sept.
Um er að ræða 9 mánaða starf vegna námsleyfis
forstöðumanns.
Upplýsingar veita framkvæmdastjóri og umsjón-
arfóstrur í síma 2 72 77.
Kynningarnámskeið
fyrir fóstrur og aðra með sambærilega upp-
eldismenntun
verður haldið á vegum Dagvistar barna í Reykja-
vík í Tjarnarborg v/Tjarnargötu dagana 17.-18.
ágúst frá kl. 10.00 - 15.00.
Námskeið þetta er fyrst og fremst hugsað sem
kynning á hinni fjölbreyttu starfsemi Dagvistar
barna, auk þess sem kynntar verða nýjungar í
dagvistaruppeldi á íslandi s.l. 5-10 ár.
Námskeið þetta er ætlað fóstrum sem hafa verið
frá störfum í lengri eða skemmri tíma.
Námskeiðsstjórar eru umsjónarfóstrurnar Fanny
Jónsdóttir og Arna Jónsdóttir, sem jafnframt
veita allar nánari upplýsingar annast innritun
þátttakenda í síma 27277.
Dagvist barna í Reykjavík tilkynnir opnun
leyfisveitinga fyrir
DAGGÆSLU Á EINKA-
HEIMILUM
á tímabilinu 1. ágúst til 31. október.
Vakin skal athygli á því að sérstaklega er þörf fyrir
dagmæður í eldri borgarhverfum.
Nánari upplýsingar veita umsjónarfóstrur með
dagvist á einkaheimilum á skrifstofu Dagvistar í
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, sími 27277.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á afgreiðslu
Dagvistar.
Fóstrur
vantar í 100% störf og hlutastörf á skóladag-
heimilið Völvukot sem er 16 barna heimili við
Völvufell.
Upplýsingar í síma 77270.
FJÖLBRAUTRSKÓLiNl
BREIÐHQLTI
Frá Fjölbrautaskólanum
í Breiðholti
Stundakennara í íslensku vantar við Fjölbrauta-
skólann í Breiðholti.
Upplýsingar á skrifstofu skólans í síma 75600.
Skólameistari
Fóstrur - starfsfólk
Bakkaborg v/Ðlöndubakka
Okkur á Bakkaborginni vantar hresst fólk í hópinn
til að vinna með okkur að markvissu uppeldis-
starfi í líflegu umhverfi og góðum starfsanda.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 71240.
íþróttafulltrúi
Félagsmálastofnun
Kópavogs auglýsir
stöðu íþróttafulltrúa
lausa til umsóknar
íþróttafulltrúi hefur umsjón og eftirlit með rekstri
mannvirkja, aðstöðu og starfsemi á vegum íþrótt-
aráðs Kópavogs.
Hann er starfsmaður íþróttaráðs, undirbýr fundi
þess og annast framkvæmd samþykkta ráðsins.
Umsóknarfrestur er til 25. ágúst n.k.
Nánari upplýsingar veitir undirritaður á Félags-
málastofnun Kópavogs, Digranesvegi 12, sími
45700 á milli kl. 11-12, en þar liggja umsóknar-
eyðublöð frammi.
Félagsmálastjóri
A
Forstöðumaður
íþróttahúss
og valla
Laus er til umsóknar staða forstöðumanns íþrótt-
ahússins Digraness og íþróttavalla Kópavogs.
Forstöðumanni er m.a. ætlað að annast daglega
verkstjórn í Digranesi og á íþróttavöllum.
Umsóknarfrestur er til 25. ágúst n.k. og liggja
umsóknareyðublöð frammi á Félagsmálastofnun
Kópavogs, Digranesvegi 12. Nánari upplýsingar
veitir undirritaður í síma 45700 milli kl. 11-12.
Félagsmálastjóri
Vesturþýskir
ráðamenn
hafa fram aö þessu haldið stift fram
þeirri kröfu að 72 Pershing-1A
flaugum þeirra verði haldið utan
samninga risaveldanna um eyðingu
kjarnflauga úr Evrópu en nú virðist
samstaða sambandsstjórnarinnar
vera að rofna um það mál einsog
fleiri. Tveir þekktir þingmenn Frjálsra
demókrata hafa tekið undir með leið-
togum jafnaðarmanna sem hvetja
Kohl kanslara til að fórna flaugunum
fremur en stuðla að því að sögulegir
afvopnunarsamningar risaveldanna
fari út um þúfur.
40 ár
voru í gær frá stofnun ríkisins Pakist-
an sem fyrrum var hluti bresku ný-
lendunnar Indlands. Stjórnvöld höfðu
ákveðið að hafa hátíðarhöld í lág-
marki af ótta við að hryðjuverkamenn
létu til skarar skríða. Engu að síður
sprungu sprengjur í borginni Pes-
hawar og urðu tveim mönnum að
bana.
Allir krókódílar
sem heimilisfastir eru í dýragarðinum
í Moskvu eru í hungurverkfalli um
þessar mundir og hafa verið um
nokkurra mánaða skeið. Ástæðan
kvaö vera sú að þeir voru fluttir úr
gryfju sinni yfir í annan samastað í
vetur vegna framkvæmda í dýragarð-
inum en um þær mundir voru vetrar-
hörkur með eindæmum eystra. Krók-
ódílunum þóttu tilfærslurnar ekki virð-
ingu sinni samboðnar og jafnskjótt og
þeir höfðu verið fluttir hófu þeir mót-
mælaaðgerðirnar. Þegar hafa þrjú
dýr drepist úr hungri og mörg eru
mjög aðframkomin. Málgagn komm-
únistaflokksins, Pravda, hefur krafist
þess að yfirmenn dýragarðsins bæti
aðbúnað skepnanna verulega ekki
seinna en strax.
Kári Willoch
frændi okkar og fyrrum forsætisráð-
herra Noregs þykir koma sterklega til
greina sem næsti framkvæmdastjóri
Atlantshafsbandalagsins. Norskir
valdahafar hafa þegar stungið upp á
honum til starfans við aðalstjórn her-
bandalagsins og norskir sendiherrar
reka áróður fyrir honum í öllum höfuð-
borgum aðildarríkja þess. Hreppi
Willoch hnossið mun hann taka við af
Carrington lávarði á næsta ári.
Sérfræðingar
Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinn-
ar um eyðni hafa skorað á mæður
sem hafa veiruna í líkama sínum að
hætta ekki að gefa börnum sínum
brjóst. Þeir segja líkurnar á því að
veiran berist á milli í móðurmjólkinni
mjög litlar. Ekki þurfi að hafa mörg
orð um mikilvægi brjóstagjafar og
missir hennar getur reynst korna-
börnum afdrifaríkur.
Grænfriðungar
láta ekki deigan síga og í gær hrintu
þeir af stað herferð gegn þeim ósiði
breskra fyrirtækja að veita allskyns
efnasulli og úrgangsdrulli beint í haf-
ið. Þeir kveða bresku stjórnina hunsa
gersamlega viðleitni annarra ríkja við
Norðursjó í þá veru að draga úr
mengun hans og segja Bretland ótví-
rætt verðskulda nafngiftina „subbu-
karl Evrópu."
HAKLQ5P