Þjóðviljinn - 15.08.1987, Síða 11
ERLENDAR FRETTIR
Indland
Hvað hefur
áunnist?
Um helgina eru fjórir áratugir liðnirfrá því
Indverjar urðu sjálfstæð þjóð en ástandið hef-
ursjaldan verið ískyggilegra
Þegar klukkan slær tólf á mið-
nætti og þjóðirnar sofa mun
Indland vakna til lífsins og frelsis-
ins. Þannig fórust Jawaharlal Ne-
hru orð aðfaranótt fimmtánda
dags ágústmánaðar árið 1947 en
þann dag öðluðust Indverjar
sjálfstæði og voru ekki lengur ný-
lenduþegnar brcska heimsveldis-
ins.
Nehru var fyrsti leiðtogi Ind-
lands, faðir Indiru Gandhi sem
var númer tvö í valdaröðinni og
afi Rajivs er nú trónir á tindi pýr-
amídans. Nehru dreymdi stóra
drauma um framtíð landsins og
vildi hefja það til hásætis meðal
þjóða sem voru að brjótast undan
nýlenduoki skömmu eftir síðari
heimsstyrjöld. Fjörutíu árum síð-
ar virðast draumsýnir hans ekki
koma heim og saman við þann
veruleika sem dóttursonurinn
þarf að glíma við.
Indverjar eru nú um 800 milj-
ónir talsins og stór hluti þjóðar-
innar er enn fanginn í þeirri sjálf-
heldu sem Nehru vildi losa lands-
menn úr. Arið 1947 kom til
grimmilegra átaka hindúa og mú-
hameðstrúarmanna þegar þessari
nýlendu Breta var skipt í tvö ríki,
Pakistan og Indland. Enn þann
dag í dag berast þeir á banaspjót
auk þess sem aðrir trúhópar beita
æ meir ofbeldi í samskiptum sín á
milli. Nehru hefði aldrei getað
ímyndað sér að dóttir hans myndi
falla fyrir hendi sikha en þeir
höfðu ætíð verið í hávegum hafð-
ir sem sérstakir verndarar Ind-
»iattSSsS5s*«««rt: fetí
Indland öðlast sjálfstæði þann 15. ágúst árið 1947. Nehru og Mountbatten lávarður, síðasti landstjóri Breta, standa við
hljóðnemann.
lands og hindúismans. Að þeir
myndu vilja stofna sjálfstætt ríki í
Punjab hefði honum þótt fráleitt.
Hann og lærifaðir hans, Ma-
hatma Gandhi, gerðu sér glögga
grein fyrir hörmulegum afleið-
ingum erfðastéttaskipunarinnar
og unnu gegn henni. Þeir vildu
veita „hinum ósnertanlegu"
Danmörk
Kosið eftir mánuð?
Information segir að Schliiter boði til kosn-
ingal5. septembervegna vandræða kringum
fjárlög og erfiðrar stöðu krata
Ðanska blaðið Information hef-
ur eftir heimildum nærri
ríkisstjórninni að eftir réttan
mánuð verði þingkosningar í
Danmörku, og muni Schlúter for-
sætisráðherra boða til þeirra þeg-
ar hann kalli saman þing eftir
rúma viku.
Blaðið segir að forsætisráð-
herra hægristjórnarinnar ætli að
kalla þingmenn saman úr sumar-
leyfi 25. ágúst til að bregðast við
kjaradeilu milli ríkisins og stétt-
arfélags tölvumanna, PROSA,
og noti þá tækifærið um Ieið til að
boða til kosninga.
Til kosninganna hafi Schlúter
og félagar ýmsar ástæður, segir
Information. Efnahagsspár allar
séu stjórninni nú mjög nei-
kvæðar, og geri ráð fyrir hnignun
í dönsku efnahagslífi á næstunni
samfara stórauknu atvinnuleysi.
Enn sjáist ekki teljandi merki um
þessa mögru tíma og sé fjór-
flokkastjórninni því heppilegt að
endurnýja umboð sitt fyrir vet-
urnætur og hætta ekki á kosning-
ar rétt eftir áramót einsog áður
var gert ráð fyrir.
Þá geti kosningar frestað erf-
iðu uppgjöri um fjárlög næsta
árs. Róttæki flokkurinn, sem
stutt hefur minnihlutastjórn
Schluters, hefur sýnt fjárlaga-
gerðinni fálæti og engan veginn
heitið stuðningi sínum. Rót-
tækum kynni að reynast erfiðara
að þæfa þau mál komi stjórnin
sterk úr kosningum, -og fái hún
meirihluta þarf engar áhyggjur af
þeim samferðamönnum að hafa.
Enn er nefnt til að hneykslis-
mál að undanförnu í fyrirtækjum
tengdum krötum og verkalýðs-
hreyfingunni hafa veikt kjör-
þokka krata, og auk þess er talið
að sósíaldemókratar í Danmörku
Poul Schluter vill styrkja stöðu sína
með kosningasigri áður en veður
gerast válynd.
standi verr að vígi í skammvinnri
kosningabaráttu en langærri,
þarsem það taki nokkurn tíma
fyrir Jörgensen og hans menn að
ræsa kosningavélina.
Gert er ráð fyrir að Schlúter
segi ráðherrum sínum af eða á nú
um helgina, þegar ríkisstjórnin
hittist á norðanverðu Sjálandi til
að ganga frá sameiginlegri kosn-
ingastefnuskrá stjórnarflokk-
anna fjögurra.
Nýja Sjáland
Þingkjör í dag
Fáir búast við því að stjórnarandstaðan hnekki veldi
Verkamannaflokks Davids Lange
Stjórnmálabroddar á Nýja Sjá-
landi köstuðu mæðinni í gær
og höfðu hægt um sig eftir kosn-
ingabaráttu umliðinna vikna.
Þeir munu ekki kveða sér hljóðs á
ný fyrr en talið hefur verið upp úr
kjörkössunum og dómur kjós-
enda liggur fyrir eftir þingkosn-
ingar í dag.
Rúmar tvær miljónir manna
munu greiða atkvæði í dag og á-
kveða hvort Verkamannaflokkur
Davids Lange mun áfram fara
með völd í eyríkinu eða hvort
Þjóðarflokkur Jims nokkurs Bol-
gers fær að spreyta sig við stjórn
landsins næstu þrjú árin.
En satt best að segja eru þeir
fáir sem reikna með að stjórnar-
andstaðan hnekki veldi Langes.
Vitaskuld þykjast félagar Þjóð-
arflokksins vera bjartsýnir en
enginn stjórnmálaskýrandi tekur
í sama streng.
Ritskýrendur allra helstu dag-
blaða eru á einu máli um að
Lange sé traustur í sessi enda
ekki ástæða til að ætla annað þar
eð skoðanakannanir gefa til
kynna að Verkamannaflokkur-
inn muni hreppa vænan meirL
hluta á þingi.
Jafnvel fjölmiðlar sem alla-
jafna styðja Þjóðarflokkinn hafa
þegnrétt. Á fjörutíu árum hafa
engar breytingar átt sér stað á
stéttakerfinu. Og hungur og fá-
tækt eru hlutskipti manna víða úti
á landsbyggðinni.
Vandinn er samur og fyrr.
Þekktur indverskur menntamað-
ur, Rajni Kothari að nafni, hefur
orðið: „Það er sama hvar borið er
niður. Allsstaðar blasa við hrika-
legar andstæður sem skerpast í
sífellu. Öndvert mikilli auðlegð
er himinhrópandi örbirgð, an-
spænis stjórnvöldum stendur al-
menningur, hindúar setja sig upp
á móti trúhópum minnihluta og í
borgum og í sveitum býr ekki
sama þjóð.“
Ofbeldi færist sífellt í aukana
einsog alkunna er úr fréttum en
menn á borð'við Kothari halda
því fram að átök milli trúhópa og
stétta séu mun tíðari og mann-
skæðari en stjórnvöld vilji vera
láta.
Vinstrisinnaðir menntamenn
velkjast ekki í vafa um það hver
sé undirrót átakanna. „Það hafa
orðið efnahagsframfarir á Ind-
landi en alþýða manna hefur ekki
fengið notið þess. Vera má að
fólk fari í mótmælagöngur gegn
miklu atvinnuleysi á Vestur-
löndum. En hér á Indlandi fær
fólk útrás fyrir vonbrigði sín með
öðrum hætti. Það berst við fólk úr
öðrum trúhópum og erfðastétt-
um,“ segir einn félaga kommún-
istaflokks landsins.
-ks.
Sovéskar þrœlakistur
Ungirafbrotameim
giátt leiknir
Unglingar sem afplána dóm í vinnubúðum
þurfa að strita alla daga vikunnar og eru
plagaðir afallskyns sjúkdómum og kvillum
Mýverið birtist grein í sovéska
r - ■
snúið við honum baki nú og telja
hag landsmanna best borgið
undirforystu Langes. f kosninga-
baráttunni hafa efnahagsmálin
verið í brennidepli og er það mál
manna að stjórn Verkamanna-
flokksins hafi haldið vel á spöð-
unum í þeim málaflokki. Fyrir
þessar kosningar lögðu þeir því-
næst fram ítarlega áætlun um ný-
sköpun í efnahagslífinu og telja
leiðarahöfundar stórblaðsins
Christchurch Star Þjóðarflokk-
inn ekki bjóða uppá neitt sem
komist í hálfkvisti við áformuð
nýmæli ríkisstjórnarinnar.
-ks.
dagblaðinu Sovetskaya Rossi-
ya um aðbúnað afbrotaunglinga í
þrælakistum nærri Leníngrað.
Greinin er eftir blaðamanninn A.
Markovich og þykir marka tíma-
mót þvt aldrci fyrr hefur verið
fjallað um þetta feimnismál í fjöl-
miðlum eystra. En nú er „Glas-
nost“ lausnarorðið í Kreml og
fyrir vikið er ekki lengur goðgó
að ræða um skuggahliðar sovésks
samfélags.
Grein Markovich er mjög
gagnrýnin. Hann dregur upp
átakanlega mynd af ungmennum
sem vita að þeir eiga sér ekki við-
reisnar von í samfélaginu þegar
þeir hafa tekið út refsingu sína.
Hann horfir á þá halda frá vinnu-
staðnum í átt að svefnskálunum
og „úr augum þeirra skýn upp-
gjöf og leiði."
Hann ræðir við þann einstakl-
ing sem hefur umsjón með „póli-
tískri endurhæfingu" fólksins.
„Við reynum af fremsta megni að
mennta unglingana og veita þeim
starfsþjálfun. Benda þeim á að
einstaklingum beri að vera skap-
andi en ekki ástunda eyðilegg-
ingu. En sumum þurfum við að
kenna frumstæðustu hegðunar-
reglur, að þvo sér, að búa um rúm
sín og jafnvel að halda á skeið.“
En víða er pottur brotinn í
stjórnun búðanna. Það er brýnt
fyrir unglingunum að halda í
heiðri allar reglur og minnsta yf-
irsjón varðar straffi. Ekki virðast
yfirmennimir sjálfir telja sér
skylt að hlýða ákvæðum reglu-
gerða því þeir skirrast ekki við að
láta fangana vinna á sunnudögum
sem aðra daga þó hann sé lögboð-
inn frídagur, einnig í þrælakist-
um. Ástæðan er sú að stjórnend-
urnir óttast að geta ekki staðið í
skilum með jafn mikið magn af
skrúfum, boltum og ýmsu smá-
dóti öðru sem framleitt er í búð-
unum og þeim ber að standa skil á
innan ákveðins tíma.
Blaðamaðurinn hjó eftir öðru
sem honum fannst ískyggilegt.
Við fyrstu sýn virðist hreinlæti í
hávegum haft í vinnubúðunum
en þó er algengt að þar grasseri
allskyns smitsjúkdómar og sumir
mjög alvarlegir.
Markovich leiðir hugann að
því hver verði örlög unglinganna
eftir að þeir losna úr búðunum.
Hann telur þá ekki eiga í nein hús
að venda og nefnir dæmi máli
sínu til stuðnings.
Einn þeirra er í þann mund að
ljúka refsivist sinni. Hann gerir
sér fulla grein fyrir því að erfið-
lega muni ganga að hasla sér völl í
samfélaginu á nýjan leik og á-
kvað því að ganga í herinn. En
hann fékk þvert nei við umsókn
sinni.
Markovich klykkir út: „Piltur-
inn er nú að snúa aftur í mann-
heim og vill fá að axla ábyrgð.
Hann vill gegna skyldu sinni eins-
og jafnaldrarnir þurfa að gera.
En hann fær ekki tækifæri.“
-ks.
Laugardagur 15. ógúst 1987 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11