Þjóðviljinn - 25.08.1987, Blaðsíða 3
FRETflR
Laxveiðin
Smálaxaspámar bmgðust
Sigurður Guðjónsson, Veiðimálastofnun: Spárnar um miklar smálaxagöngur brugðust. Smálaxarfáir ogsmáir.
Stórlaxaveiði í meðallagi. Vatnsleysi veldur, að laxar ganga legnir“
Veiðimálastofnun. En stofnunin
hafði allt frá í fyrra spáð miklum
smálaxagöngum á þessu ári, og
byggði þær spár á miklum seiða-
göngum úr ánum í fyrra.
„Smálaxinn sem hefur skilað
sér í ár hefur verið mjög smár,
ekki nema 2-3 pund þeir smæstu.
Og þar að auki hefur verið mjög
lítið af honum.“ Sigurður sagði
að menn hefðu ekki skýringu á
reiðum höndum á þessu, en benti
á að samkvæmt upplýsingum
sérfræðinga Hafrannsóknastofn-
unar hefði vorkoman í sjónum í
fyrra verið sein, þó vorið hefði
verið gott þegar það loksins kom í
sjóinn. „Ef til vill hafa seiðin
gengið of fljótt og ekki náð sér á
strik vegna sjávarkuldans þegar
þau gengu út. Smæðin á smá-
löxunum sem þó hafa veiðst
bendir til, að þeir hafi fengið
slæmt start.“
Sigurður kvað menn á stofnun-
inni nú ætia að leggjast í gögn frá
fyrri árum og reyna að athuga
hvort þarna kynni að vera sam-
band á milli.
Að sögn hans hefur veiði á
stórlaxi verið í góðu meðallagi.
Hann sagði jafnframt, að seiða-
göngur á þessu ári virtust hafa
verið þokkalegar.
Miklir þurrkar hafa leitt til þess
að ár eru margar vatnslitlar. Fisk-
urinn hefur því beðið neðan
ánna, og fyrir bragðið gengur lax-
inn nú víða hálfkynþroska og kol-
leginn úr sjó. í Leirvogsá hafa
þannig verið að ganga laxar, sem
koma langlegnir úr sjó.
Anna Halldórsdóttir og Eiríkur Þorláksson við húsnæði AFS á Hverfisgötunni. Svo skemmtilega vill til að Anna er þúsundasti skiptineminn á vegum AFS, en
þrjátíu ár eru liðin síðan starfsemi télagsins hófst hér á landi. Mynd: E.Ol.
AFS
Spárnar um miklar smálaxa-
göngur á þessu sumri hafa svo
að segja brugðist alveg, sagði Sig-
urður Guðjónsson hjá
■ ÖRFRÉTTIR ■■■■■*!
Gamii miðbærinn
heldur almennan fund að Hótel
Borg í kvöld klukkan 20.30.
Fundurinn er opinn öllum, bæði
hagsmunaaðilum og áhugafólki
og eru allir hvattir til að mæta. í
fréttatilkynningu frá félagasam-
tökunum segir að framtíð gamla
miðbæjarins ráðist hjá fólkinu og
hvergi annarsstaðar. Fundar-
stjóri verður Páll Líndal.
Landsvirkjun
undirritaði í gær lánssamning í
London upp á rúman einn og
hálfan milljarð íslenskra króna.
Var samningurinn gerður við
Hambros Bank Limited og sjö
aðra erlenda banka. Halldór Jón-
atansson, forstjóri Landsvirkjun-
ar undirritaði samninginn af hálfu
Landsvirkjunar. Lániðertil tíu ára
og afborgunarlaust fyrstu fimm
árin. Vextir af láninu eru milli-
bankavextir í London einsog þeir
eru reiknaðir á hverjum tíma að
viðbættu vaxtaálagi, það þýðir að
vextir nú eru 7,5% að meðtöldu
vaxtaálagi. Lánið er tekið sam-
kvæmt heimild í lánsfjárlögum og
kemur í stað eldra og óhagstæð-
ara láns hjá Hambros Bank Li-
mited.
Háskólaráðgjafar
frá öllum Norðurlöndunum þinga
nú á Laugarvatni. Yfirskriftþings-
ins er „Háskólamenntun á Islandi
og reynsla íslenskra náms-
manna af námi erlendis. Alls
sækja 65 manns frá 25 borgum
þingið, þar af sjö íslendingar. Allir
fyrirlesarar á þinginu eru íslend-
ingar. Hópur norrænna háskóla-
ráðgjafa hefur starfað saman frá
1981 og er markmið þeirra að
efla innbyrðis tengsl á milli Há-
skóla á Norðurlöndum með aðal-
áherslu á bætta fyrirgreiðslu til
handa stúdentum.
Nýtt póstútibú
hefur verið opnað í Kringlunni.
Þar er einnig ný þjónustu- og
söludeild fyrir símnotendur auk
þess sem öll almenn póstþjón-
usta auk póstfaxþjónustu er á
boðstólum. Auk þess eru póst-
hólf til leigu á staðnum. í
þjónustu- og söludeildinni fá
símnotendur alla þjónustu varð-
andi nýja síma og flutning á
símum auk þess sem þar verður
til sölu úrval af símtækjum og
símabúnaði. Útibússtjóri er Anna
Bjarnadóttir en deildarstjóri
þjónustu- og söludeildar Sæ-
mundur Guðmundsson.
Þúsundasti skiptineminn
Anna Halldórsdóttirfrá Akranesifer utan á morgun. Eiríkur Porláksson,
framkvœmdastjóri AFS: Aldreifariðfleiri utan á vegum samtakanna en íár
Anna Halldórsdóttir, sautján
ára nemi í Fjölbrautaskóla
Vesturlands á Akranesi, leggur á
morgun upp í Italíuferð sem
skiptinemi. Svo skemmtilega vill
til að Anna er þúsundasti einstak-
lingurinn sem AFS á íslandi send-
ir til námsdvalar crlendis í sam-
vinnu við alþjóðasamtök AFS, en
skammstöfunin stendur fyrir al-
þjóðlega fræðslu og samskipti.
Anna mun dvelja í tíu þúsund
manna bæ að nafni Carignano
skammt frá stórborginni Torino.
Nýju „foreldrarnir“ eru bæði
íþróttakennarar, og auk Önnu er
í heimili sextán ára dóttir þeirra
hjóna.
Anna sótti um síðastliðið
haust, og í júní fékk hún
fullnaðarsvar þess efnis að allt
væri klappað og klárt. „Ég hef
verið að vinna í Haferninum á
Akranesi í allt sumar til að fjár-
magna þetta,“ sagði hún.
Að sögn Eiríks Þorlákssonar,
framkvæmdastjóra AFS á ís-
landi, fara 78 manns utan á veg-
um samtakanna skólaárið ’87 til
’88 og hafa aldrei verið fleiri.
„Enda bjuggumst við ekki við að
röðin kæmi að þúsundasta skipti-
nemanum fyrr en á næsta ári,“
sagði Eiríkur.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Aðspurður hvort einhverjar
tískubólur væru meðal skipti-
nema í vali á dvalarlöndum sagði
Eiríkur að þær kæmu alltaf upp.
„Frakkland hefur þannig verið
ofarlega á blaði þegar Evrópu-
löndin eru annars vegar. Þeir sem
vilja fara langt nefna Ástralíu, og
við erum með nokkra skiptinema
á Nýja-Sjálandi. Það kvað vera
lengstu samskipti í kílómetrum
talin innan hreyfingarinnar,"
sagði hann.
Algengast er að krakkar sem
fara utan á vegum AFS séu á aldr-
inum 16 til 18 ára. En hingað
koma líka krakkar að utan til
dvalar á vegum samtakanna. í
dag korna 21 skiptinemi hingað til
lands. Þeir eru alls staðar að og
munu dvelja hér hjá íslenskum
fjölskyldum í eitt ár.
L ífey rissjó ðirnir
Mæsl á miðri leið
Talið að vextirafskuldabréfakaupum lífeyrissjóðanna af ríkinu verði um
7°/o. Búist viðfundi ídag eða á morgun. Verið að kanna eldri skuldabréf.
Beðið eftirJóhönnu
Búist er við að fulltrúar lífeyris-
sjóðanna og ríkisins hittist á
fundi í dag eða á morgun til að
ræða vexti á skuldabréfum Hús-
næðisstofnunar. Hittust þeir á
fundi á laugardagsinorgun og um
helgina hafa verið óformlegir
fundir með fulltrúum lífeyris-
sjóðanna og Sigurði Þórðarsyni,
fulltrúa fjármálaráöuneytisins í
viðræðunefnd ríkisins.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans er nú skammt í að skrifað
verði undir samkomulag og að
niðurstaðan verði um 7% vextir.
Upphaflega bauð ríkið 6,25% en
lífeyrissjóðirnir fóru fram á 7,5%
vexti.
Nú er verið að kanna eldri
skuldabréf, allt upp í tíu ára
gömul bréf, sem eru með 4,2%
vexti, en í viðræðunum hefur ver-
ið talað um að hækka vexti af
þeim. Er talað um að þau hækki í
4,5% til 5% vexti.
Þó samkomulag sé skammt
undan er ekki búist við að form-
lega verði gengið frá því fyrr en
Jóhanna Sigurðardóttir kemur til
landsins, en hún er nú stödd er-
lendis. Er hún væntanleg um
næstu helgi.
Övíst er hvort þetta hefur í för
með sér hækkun á útlánsvöxtum
Húsnæðisstofnunar, en það er
ríkisstjórnin sem tekur ákvörðun
um það.
-Sáf