Þjóðviljinn - 25.09.1987, Blaðsíða 10
ERLENDAR FRÉTTIR
Danska þingið
Er Grænland
þorp í Rússíá?
Nýrþingmaður Grœnlendinga í Kaupmannahöfn œtlarað bretta upp
ermarnar. Danir verða að standa sig ífjárveitingum, - Grœnlendingar
eiga að verafremstir ífriðarfylkingu
Hans-Pavia Rosing: Enn til Danir sem halda aö ísbirnir séu á vappi ágötunum í
Nuuk.
Einn nýrra þingmanna á öllum á óvart velti úr sessi sam- anna tveggja í kosningunum um
danska þinginu er Grænlend- flokksmanni sínum Preben Lange daginn. Rosing rak kosningabar-
ingurinn Hans-Pavia Rosing, sem við kjör grænlensku þingmann- áttu sína undir slagorðinu „Nýjan
þlÓÐVILJINN
0 68 13 33
Tímiiin
0 68 18 66
0 68 63 00
Blaðburður er
og borgar sigL
i£Sx
BLAÐBERAR ÓSKAST í: Vesturbæ
Seltjarnarnes
þlÓDVILIINN
Nýja Miðbæ
Smáíbúðahverfi
Fossvog
Seljahverfi (Breiðholt)
Bakkahverfi Breiðholt)
Hafðu samband við okkur
þjómnuiNN
Síðumúla 6
0 68 13 33
stil!“ og ýmislegt bendir til að
hann muni láta meira á sér bera
en hingaðtil hefur verið venja
Grænlandsfulltrúanna.
Rosing er úr Siumut-
flokknum, mið-vinstriflokknum
sem haldið hefur um stjórnar-
taumana í Nuuk síðan þar kom
heimastjórn, og í kosningabarátt-
unni beindi hann jafnt spjótum
að Lange og fulltrúa hægriflokks-
ins Atassut, Otto Steenholdt, -
báðir litu þeir á þingsætið í Kaup-
mannahöfn sem „þægilega auka-
vinnu fyrir atvinnupólitíkusa“.
Rosing ætlar sér til dæmis sæti í
utanríkisnefnd þingsins, þarsem
Steenholdt hefur setið - sumir
segja sofið - hingaðtil, og hyggst
hann semja um það sæti við krata
og SF, - og hann vill líka í fjár-
veitinganefnd til að geta barist
þar fyrir grænlenskum málefn-
um.
Rosing segist í viðtali við In-
formation vera hræddur um að
hægrimaðurinn Steenholdt hafi í
utanríkisnefndinni beinlínis lagst
á upplýsingar sem með réttu
hefðu átt að ganga til landstjórn-
arinnar í Nuuk.
Rosing telur að Grænlendingar
eigi að standa þjóða fremst í bar-
áttu fyrir friði og afvopnun, og
hann segist ætla að nota ræðustól
danska þingsins til að út-varpa
grænlenskum viðhorfum í þeim
efnum.
í viðtalinu minnist Rosing á ný-
afstaðna menningarhátíð í Nuuk
og sérstaklega á heimsókn ís-
lensku Sinfóníunnar, - þetta hafi
vakið honum stolt, en þær tilfinn-
ingar hafi þó verið blendnar.
Vissulega eigi Grænland að taka
þátt í norrænu samstarfi, en hinn
póllinn í grænlenskri utanríkis-
stefnu verði að vega jafnþungt,
nefnilega samstarf heimskauta-
þjóðanna í sambandi þeirra ICC.
Norræna húsið í Nuuk sé glæsi-
legt, en þar þurfi líka að reisa
heimskautahús, jafnstórt og
öflugt og hið norræna.
Hér verði Danir að koma til
hjálpar og endurgreiða skuld sína
við nýlenduna meðal annars með
því að styðja ICC-samtökin sem
nú eiga í fjármálakreppu.
Grænlenski þingmaðurinn í
Kaupmannahöfn telur reyndar
að danska stjórnin reyni einsog
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
hún getur að komast í kringum
fjárhagslegar skuldbindingar
sínar gagnvart Grænlendingum. í
Danmörku ríki lítill skilningur á
þessum fjárhagssamskiptum, -
eitt af stefnuatriðum Framfara-
flokksins var að hætta að svara
þessum „sníkjum" úr norðri. Ro-
sing minnir á að þegar heima-
stjórnarsamningurinn var gerður
hafi verið samið um að tilfærsla
valda yrði með þeim hætti að
hvorugur tapaði á, danska stjórn-
in eða heimastjórnin í Nuuk.
Schlúter-stjórnin hafi hinsvegar
haft á þann hátt að skömmu áður
en Grænlendingar taka sjálfir við
ýmsum þáttum landstjórnarinnar
sé skorið niður fé til þeirra, þann-
ig að fjárhagsbyrði Grænlend-
inga eykst við að vinna upp niður-
skurðinn.
En fyrst og fremst ætlar Hans-
Pavia Rosing sér að vekja athygli
danskra þingmanna og dansks al-
mennings á því að Grænland er til
sem nútímasamfélag með nú-
tímaþarfir og útímapólitík. „Því
miður eru enn til þeir Danir sem
halda að ísbirnir séu dagleg sjón á
götunum í Nuuk,“ sagði Rosing
við Information, „mörgum
Dönum finnst Grænland vera
nánast þorp á sléttunum í Sovét.“
-m
Ítalía
Ævafom
flóðhestur
Á síðustu tveim dögum hafa
ítalskir fornleifafræðingar fengið
hvern stóravinninginn á fætur
öðrum þar sem þeir eru við upp-
gröft í Serravalle del Chienti.
Það sem þeir hafa haft uppúr
krafsinu fram að þessu er heilleg
beinagrind flóðhests og hinir að-
skiljanlegustu hlutar nashyrninga
og fila. Allt kvað þetta góss vera á
að giska 800 þúsund ára gamalt.
Þegar hinn nýfundni flóðhestur
var og hét var hitabeltisloftslag á
Ítalíu. Hann verður brátt sýndur
almenningi í nýju safni í Flórens-
borg.
-ks.