Þjóðviljinn - 03.11.1987, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 03.11.1987, Qupperneq 1
Staðan í 1. deild handbolta FH...........6 5 1 0 186-130 11 Valur........6 5 1 0 132-90 11 Víkingur.....6 4 0 2 156-142 8 UBK..........6 4 0 2 122-123 8 Stjarnan.....6 3 1 2 143-151 7 [R...........6 2 1 3 126-139 5 KR...........6 2 0 4 128-140 4 KA...........6 1 1 4 118-137 3 Fram.........6 1 1 4 136-157 3 Þór..........6 0 0 6 123-161 0 í úrvalsdeildinni í körfu- knattleik UMFN 2 2 0 0 213-123 4 Valur 3 2 0 1 253-199 4 (BK 2 2 0 0 148-124 4 KR 2 2 0 0 153-140 4 UMFG 3 2 0 1 214-203 4 Haukar 2 1 0 1 151-136 2 (R 2 0 0 2 135-169 0 Þór 3 0 0 3 217-279 0 UBK 3 0 0 3 154-265 0 Rugby Dýrblti! Rugby-Ieikmaður frá Nýja Sjá- landi hefur verið dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir að bíta eyra af andstæðingi í leik. í dómsúrskurði sagði m.a.„Að bíta eyra af andstæðingi samræm- ist ekki leikreglum og því síður hinum almennu venjum sem gilda í íþróttum yfir höfuð.“ Lögfræðingur hins dæmda sagði hinsvegar að skjólstæðingar hans hefði ekki gert þetta af yfir- lögðu ráði!-Ibe/Reuter Blak Þróttarsigur íslandsmeistararnir í blaki, Þróttarar, sigruðu Víkinga um helgina, 3-1. Fram sigraði Þrótt frá Nes- kaupstað 3-0 og HK sigraði Þrótt einnig, 3-0. Þá sigraði IS KA, 3-0. í 1. deild kvenna sigraði Þrótt- ur Reykjavík HK 3-0 og UBK sigraði Þrótt Neskaupstað 3-0. Þá sigruðu Stúdentar KA, 3-0. -Ibe Víkingur og Stjarnan léku um helgina fyrri leiki sína í Evrópukeppninni í handknattleik. Víkingur sigraði Kolding 19-16 og Stjarnan sigraði Urædd 20-19. Á myndinni er Víkingurinn Siggeir Magnússon tekinn föstum tökum af varnarmanni Kolding. Nánar segir frá leikjunum í opnu. Mynd.KGA. Knattspyrna Hörður til Leifturs Hörður Benónýsson, einn markahæsti maður Völsunga i sumar, mun leika með Leiftri á Ólafsfirði næsta sumar. Hörður var næst markahæstur í liði Völsunga, skoraði fimm mörk og mun án efa styrkja nýlið- ana verulega. Þá er líklegt að Þórsarinn Árni Stefánsson gangi til liðs við Leiftursmenn, en það mun að öllum líkindum skýrast á næstu dögum. HK/Akureyri Lyftingar íris setti þrjú met íris Grönfeld setti þrjú íslands- met í 60 kg. flokki á heimsmeistaramóti kvenna í ol- ympískum lyftingum um helgina. íris lyfti 57.5 kg. í snörun og 75 kg. í jafnhöttun, samtals 132.5. Allt eru þetta íslandsmet. íris hafnaði í 10. sæti á mótinu sem var haldið í Florida í Banda- ríkjunum. -Ibe Knattspyrna Guðjón til Grindavíkur Guðjón Ólafsson, sem þjálfaði Reyni Sandgerði í sumar mun þjálfa lið Grindavíkur í sumar. Guðjón mun þó ekki vera einn því að Júlíus Pétur Ingólfsson mun einnig sjá um þjálfun liðsins. Júlíus lék vel í sumar og var markahæsti maður liðsins. Hann mun Ieika áfram með liðinu á næsta ári, en Guðjón mun stjórna í leikjum. ibe V-Pýskaland i Góðir möguleikar Frá Jóni H. Garðarssyni, fréttamanni Þjóðviljans i V-Þýskalandi: íslendingaliðunum í V- Þýskalandi gekk vel í Evrópu- keppninni. Bæði liðin töpuðu þó á útivelli, en eiga engu að síður góða möguleika á að komast áfram. Essen lék gegn Rostock frá Austur-Þýskalandi og tapaði 19- 22. í hálfleik var staðan 8-13. Al- freð Gíslason var markahæstur í liði Essen með 6 mörk ásamt Fra- atz. Gummersbach Iék gegn Gran- itas Kaunas frá Sovétríkjunum og tapaði 10-14. Bæði liðin ættu að eiga nokkuð góða möguleika á að komast áfram. Þriðja liðið frá V- Þýskalandi í Evrópukeppninni, Groswaldstadt sigraði Cretcil frá Frakklandi á útivelli, 30-17. Svíþjóð Gautaborg meistarar Gautaborg tryggði sér um helg- ina sænska meistaratitilinn í knattspyrnu. Liðið tapaði fyrir Malmö í síðasta leik, 1-2, en það nægði þeim til sigurs. Það var mark Gautaborgar á útivelli sem réð úrslitum. Gauta- borg sigraði 1-0 í fyrri leiknum og það var því mark þeirra í síðari leiknum sem tryggði þeim titi- linn. Stefan Petterson skoraði þetta þýðingarmikla mark fyrir Gauta- borg, en Haakan Lindman og Thorbjörn Persson höfðu áður skorað fyrir Malmö. Með þessum sigri tryggði Gautaborg sér sæti í Evrópu- keppni á næsta ári, en félagið sig- raði í fyrra í UEFA-bikarnum. -Ibe Umsjón: Logi B. Eiðsson ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9 Belgía Amór gekk ut Þjálfarinn setti hann á varamannabekkinn ogArnór tók pokann sinn Þegar Arnór Guðjohnsen mætti til leiks með Anderlecht gegn Waregem í bikarkeppninni á laugardag tilkynnti þjálfarinn honum að hann ætti að sitja á varamannabekknum. Arnór sagði nokkur vel valin orð við þjálfarann og fór. Þjálfari Anderlecht, Georges Leekens, hefur verið mjög um- deildur og tók steininn úr er hann tók Arnór úr liðinu og setti í hans stað 18 ára leikmann frá Sambíu. Sá heitir Charles Musonda og kemur frá Cercle Brugge, en þar var Leekens einmitt þjálfari í þrjú ár áður en hann kom til Anderlecht. Amór fór á fund með forráða- mönnum félagsins í gær og voru þeir ekki hrifnir af því sem Amór sagði í viðtölum við belgísk blöð. Amór má líklega eiga von á því að þurfa að borga háar sektir og jafnvel leika með varaliðinu. Amór sagði í viðtölum við belgísku blöðin að sér fyndist framkoma þjálfarans óskiljanleg. í stað þess að láta hann leika sömu stöðu og í fyrra, sem færði honum markakóngstitilinn, hef- ur hann látið hann leika í mörg- um mismunandi stöðum á vellin- um. Hann hefur sífellt verið að reyna eitthvað nýtt og það hefur bitnað á leik liðsins. Hann sagði einnig að þjálfar- inn virtist hafa eitthvað mikið á móti sér og nýtti hvert tækifæri sem hann fengi til refsinga. Leikmenn Anderlecht em ó- ánægðir með aðferðir þjálfarans og það er ekki aðeins Árnór sem hefur kvartað. Anderlecht mætir Sparta Prag á miðvikudag í síðari leik liðanna í Evrópukeppni meistaraliða. Þessi leikur er mjög þýðingar- mikill, en svo gæti farið að Amór yrði látinn sitja á bekknum. -4be Amór Guöjohnson stendur I deilum við þjálfara Anderlecht.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.