Þjóðviljinn - 19.11.1987, Qupperneq 1
Eldsvoðinn í Garðinum
Rosalegt áfall
40-50 manns atvinnulaus. Tjónið sem
eldurinn olli nemur tugum milljóna
Þessi eldsvoði er rosalegt áfall fyrir atvinnulífið hér í
Garðinum og sorglegt að horfa upp á þessa eyði-
leggingu. Hjá Nesfiski hf. unnu að staðaldri 40-50
manns og á þessari stundu er ekkert vitað hver fram-
vindan verður með atvinnu þess. En tjónið er örugg-
lega upp á tugi milljóna króna, því húsið var kjaftfullt
af fiski, bæði unnum og óunnum, sagði Sigurjón Krist-
insson verkstjóri hjá Nesfiski hf. við Þjóðviljann í
gær.
Að sögn Guðmundar R.J. Guðmundssonar,
slökkviliðsmanns og starfsmanns Eldvarnaeftirlits
Suðurnesja, var í gær ekkert vitað um hvað olli eldin-
um en starfsmenn Brunamálastofnunarinnar vinna að
rannsókn málsins.
Tilkynnt var um eldinn í fiskvinnsluhúsinu um hálf-
fjögurleytið í fyrrinótt. Stuttu eftir að komið var á
vettvang varð geysiöflug gassprenging í tækjasal þess
og við það breiddist eldurinn óðfluga út. Náði hann að
komast í bifreiðaverkstæði Magnúsar Guðbergs-
sonar, við hliðina á fiskvinnslunni, og brann það einn-
ig til kaldra kola og tveir bílar sem þar voru inni. Bæði
slökkviliðið á Keflavíkurflugvelli og í Sandgerði
komu fljótlega til hjálpar en án árangurs og brann allt
sem brunnið gat. _ grh
Fimmtudagur 19. nóvember 1987 259. tölublað 52. árgangur
Starfsmenn Nesfisks virða fyrir sér rústirnar af vinnustað sínum í gærmorgun. Mynd: E.ÓI.
y Samningar
VSI brýnir klæmar
hagsspá Vinnuveitenda. Þröstur Ólafsson: Forsendur spárinnar ekkitrúverðugar.
Mikiar líkur eru á því að slitni
uppúr samningaviðræðum
Verkamannasambandsins og
Vinnuveitendasambandsins í
dag, en horfurnar á áframhald-
andi viðræðum hafa heldur
versnað eftir að vinnuveitendur
lögðu fram svarta þjóðhagsspá
sína í gær. Viðræður munu því
líklega tefjast enn frekar, en
margir telja að vinnuveitendur
sjái sér hag í því að teija viðræð-
urnar eins lengi og þeim er unnt.
í spá vinnuveitenda er m.a.
gert ráð fyrir því að viðskiptahalli
verði rúmir 9 miljarðar á næsta
ári og kaupmáttur launa komi
óhjákvæmilega til með að
minnka vegna ytri aðstæðna.
Ólafur Davíðsson hagfræðingur
sá um gerð spárinnar, en hann
heldur því fram að ríkisstjórnin
hljóti að þurfa að endurmeta
efnahagsstefnuna í ljósi þessarar
spár. Það sé ljóst að fjárlagahall-
inn verði verulegur á næsta ári
grípi ríkisstjórnin ekki til að-
gerða. Sagði Ólafur niðurskurð á
útgjöldum og gengisfellingu ekki
óraunhæfa möguleika í stöðunni.
Þröstur Ólafsson í fram-
kvæmdastjórn Verkamannasam-
bandsins sagði í samtali við Þjóð-
viljann í gær að þær forsendur
sem spáin væri byggð á væru ekki
mjög trúverðugar. T.d. væri mið-
að við gengi dollarans eins og það
er í dag en allt bendi til þess að
dollarinn sé á uppleið á ný. Þá sé
ekki gert ráð fyrir því í forsend-
unum að Evrópulöndin séu
markaðslönd fyrir fiskafurðir og
þar sé ekki greitt í dollurum.
Þröstur var ekki bjartsýnn á að
samningaviðræður bæru árangur
á næstunni.
Það er ljóst að spá vinnu-
veitenda flýtir ekki fyrir samning-
um, en ýmsir innan verkalýðs-
hreyfingarinnar telja að ekki sé
ólíklegt að þeir hafi hug á að
fresta samningagerð við Verka-
mannasambandið eins og hægt er
og þeir séu jafnvel að vonast til
þess að sambandið fari á endan-
um í samflot með ASÍ. Með því
að fresta samningum munu
vinnuveitendur að öllum líkind-
um spara töluverð útgjöld.
—K.ÓI.
Sjá bls. 3
Staðgreiðsla skatta
Meðaljóninn hækkar
34.75% dragastfrá launum, en 15 þúsund krónapersónuafsláttur kemurámóti.
Björn Þórhallsson, varaforseti ASI: Vinnuskylda eftirásköttunarfyrir bí
ví kann að verða haldið á lofti
að þeir sem hafa hæstu tekj-
urnar hagnist á hinum flata tekju-
skatti miðað við gamla kerfið, en
þá má heldur ekki gleyma því að
ýmsir þeir frádráttarliðir sem
voru við lýði í því skattakerfi
komu einkum hinum hæst-
launuðu til góða. Skattstofninn
hefur nú verið breikkaður mikið,
og það miðar í jöfnunarátt, segir
Björn Þórhallsson, varaforseti
ASI, en af hálfu Alþýðusam-
bandsins átti hann sæti í milli-
þinganefndinni sem fjallað hefur
um staðgreiðslu skatta.
Að sögn Björns er það lykilatr-
iði í hinu nýja skattakerfi að það
frelsar fólk undan þeirri viðvar-
andi vinnuskyldu sem gamla
kerfið lagði því á herðar með
eftirásköttun. „Menn sem ein-
hvern tímann höfðu góðar tekjur
voru knúnir til að halda að
minnsta kosti jafnháum tekjum
hlutfallslega næstu árin til að eiga
fyrir sköttunum,“ sagði hann.
Nokkrir fulltrúar í milliþinga-
nefndinni eru ekki að fullu sáttir
við álitsgerð nefndarinnar í öllum
greinum. Þannig eru Kristín Sig-
urðardóttir, Kvennalista, og
Ragnar Árnason, Alþýðubanda-
lagi, á því að hærra skattþrep eigi
að koma til fyrir hina tekjuhæstu.
- Menn verða að koma auga á
skóginn fyrir trjám, segir Björn:
mestu skiptir að koma stað-
greiðslukerfinu á. Það gefst tóm
til að sníða af þá agnúa sem fram
kunna að koma í ljósi reynslunn-
ar.
Staðgreiðslukerfinu er komið á
að frumkvæði Alþýðusambands-
ins. Að sögn Björns eru grunn-
hugmyndirnar sem unnið var út
frá, sama tekjuskattsprósenta á
öll laun og sami persónuafsláttur,
þaðan komnar. HS
Sjá bls. 2
Handbolti
Stórsigur Islendinga
íslendingar unnu glæsiiegan
sigur yfir Pólverjum í gær, 28-21,
í skemmtilegum leik.
íslendingar voru yfir allan tím-
ann og gerðu út um leikinn með
mjög góðum kafla í síðari hálf-
leik.
Þetta var stærsti sigur íslend-
inga gegn Pólverjum frá upphafi,
en við höfum ávallt átt í vand-
ræðum með Pólverja.
Þjóðirnar leika að nýju í kvöld
kl. 20.30, en kl. 18.30 leikur ís-
lenska unglingalandsliðið gegn
ísrael.
-Ibe
Sjá nánar bls. 15.
Nýja Delí
Ólafur tekur
við Gandhi-
verðlaunum
Ólafur Ragnar Grímsson tekur
í dag við verðlaunum sem forseti
Indlands afhendir í minningu
Indiru Gandhi fyrrverandi ieið-
toga landsins. Ólafur tckur við
viðurkenningunni fyrir hönd al-
þjóðlegu þingmannasamtakanna
PGA, „Parliamentarians for Glo-
bal Action“.
Samtökin hljóta verðlaunin,
100 þúsund Bandaríkjadali,
vegna frumkvæðis síns að sam-
starfi þjóðarleiðtoganna sex og
vegna aðstoðar sinnar við samn-
inga vísindamanna risaveldanna
um eftirlit með kjarnorkutil-
raunum.
Shri Ramaswami Venkataram
forseti afhendir verðlaunin í
fyrsta sinn í dag að viðstöddum
forsætisráðherranum Rajiv
Gandhi og öðru stórmenni ind-
versku. 19. nóvemberer afmælis-
dagur Indiru Gandhi, sem var
skotin til bana fyrir þremur árum.
______ -m