Þjóðviljinn - 19.11.1987, Qupperneq 3
FRETTIP
VSI
Dregin upp svört mynd
Samkvœmtspá Vinnuveitendasambandsins verður viðskiptahallinn á nœsta ári
9 miljarðir. Kaupmáttur launa talinn fara minnkandi
Vinnuveitendasambandið hef-
ur látiS gera úttekt á horfum í
efnahagsmálum fyrir komandi ár
og telur sambandið að niður-
stöðurnar séu þess eðlis að ríkis-
stjórnin hljóti að bregðast við
með því að endurskoða fjárlaga-
frumvarpið. Því er spáð að við-
skiptahallinn verði rúmlega 9
miljarðar króna á næsta ári í stað
4.4 miljarða eins og Þjóðhags-
stofnun hafði spáð. Þá dregur
Vinnuveitendasambandið þá á-
lyktun af niðurstöðunum að ytri
aðstæður gefi til kynna að
kaupmáttur tekna muni fara
minnkandi á næsta ári.
Efnahagsúttektin, sem Ólafur
Davíðsson hagfræðingur hefur
gert, er grundvölluð á þremur
megin forsendum. í henni er gert
ráð fyrir að þorskafli verði tak-
markaður við 345 tonn, að við-
skiptakjör versni um 2 % og að
kaupmáttur tekna verði svipaður
á árinu 1988 og við lok ársins
1987, en kaupmáttur taxtakaups
verði mun minni.
Því er spáð að með minnkandi
aflakvóta dragist sjávarafurða-
framleiðsla saman um 6 % á
næsta ári. Vöruútflutningur muni
dragast saman um 4 %, en sam-
kvæmt spá Þjóðhagsstofnunar
hafi verið gert ráð fyrir 1/2 %
aukningu.
Þá er því spáð að miðað við
núverandi gengi dollarans gætu
viðskiptakjör rýrnað um 2-3 %,
Hasssmyglið
í varðhaldi
fram í janúar
Rannsókn
risasmyglmálsins beinist
að því hvort þessi leikur
hafi verið leikinn áður
Tveir karlar og ein kona sitja
nú í varðhaldi vegna hins stór-
fellda smyglmáls sem fíkniefna-
deild lögreglunnar hefur komið
upp um í samvinnu við rannsókn-
ardeild Tollgæslunnar. Fólkið er
á fertugs- og fimmtugsaldri.
Þau munu sitja í varðhaldi
fram í janúar hið skemmsta, og er
talið að rannsókn málsins beinist
ekki síst að því að kanna hvort
þau hafi leikið sama leik áður, en
grunsemdir eru uppi í þá veru.
Reynir Kjartansson, starfs-
maður fíkniefnadeildar, varðist
allra frétta um hvernig yfir-
heyrslum miðaði. Hann var einn-
ig fámáll um hvernig deildin hefði
komist á snoðir um góssið.
Að sögn Reynis er hér um að
ræða langmesta magn sem lagt
hefur verið hald á þetta árið, en
ekki endilega hið mesta frá upp-
hafi.
Eins og fram hefur komið
stofnuðu þremenningarnir inn-
flutningsfyrirtæki á nafni óvið-
komandi manns. Á vegum fyrir-
tækis þessa var síðan hafist handa
um innflutning á málningu, en
áður var hasspartíinu sökkt í
málningardollurnar. Sendingin
kom með skipi frá Belgíu í síð-
ustu viku.
Framtak þremenninganna er
með stærstu smyglmálum sem
upp hafa komið hér á landi, sem
sést á því að allt árið í fyrra var
lagt hald á minna magn, eða um
tíu og hálft kíló. Verðmæti
smyglgóssins er metið á um 11
milljónir króna.
HS
en í þessari spá er gert ráð fyrir
því að ekki megi búast við hækk-
un afurðaverðs á Bandaríkja-
markaði og verð í Bretlandi muni
ekki fara hækkandi nema ef vera
skyldi í stuttan tíma.
Kaupmáttur tekna um næstu
áramót er sagður verða svipaður
og að meðaltali á árinu 1987, en
kaupmáttur taxtakaups mun
minni, enda horfur á að vísitala
framfærlsukostnaðar hækki um
10 % frá 1. september til ára-
móta. Þá er því spáð að vegna ytri
áhrifa muni kaupmáttur tekna á
næsta ári fara minnkandi.
Spá um viðskiptahalla vegur
einna þyngst í úttektinni, en eins
og áður kom fram er því spáð að
hann verði rúmlega 9 miljarðir.
K.Ól.
Tekið við platínuplötu fyrir „Frelsi til sölu" og gulli fyrir „Dögun". Mynd: Sig..
Hljómplötur
Bubbi fær gull og plabnu
Óútkomin plata seld í 6000 eintökum
Nýjasta plata Bubba Mort-
hens, Dögun, kom út í gær og var
Bubba samdægurs afhent gull-
plata fyrir sölu á henni, sem er
einsdæmi hér á landi. Útgáfufyr-
irtæki Bubba, Grammið, hafði
selt 6000 eintök í verslanir áður
en platan kom út.
Um leið og hann veitti gullplöt-
unni móttöku ásamt úgefanda og
útsetjara, tók hann við platínu-
plötu fyrir að hafa selt síðustu
plötu sína, „Frelsi til sölu” í hátt í
tuttugu þúsund eintökum. Nýja
platan er tileinkuð Amnesty Int-
ernational.
Það varð tilefni nokkurrar um-
ræðu við afhendinguna í gær að
nýlega var reglum um veitingu
gullplatna hér á landi breytt
þannig að nú þurfa menn aðeins
að selja 3000 eintök í stað fimm
þúsunda áður, á sama tíma og
plötusala hefur aukist allveru-
lega. Lýstu þeir Bubbi og Ás-
mundur Jónsson í Gramminu óá-
nægju sinni með þá breytingu.
Nánar verður fjallað um þessa
nýju plötu Bubba á poppsíðum
blaðsins síðar. _ ÆÖJ
Kannanir
Jafnt
sfjornarfylgi
Stuðningur við ríkisstjórnina
og andstaða gegn henni virðist
lítið breytast ef miðað er við
kannanir í sumar og haust, þrátt-
fyrir töluvcrðar fylgishreyfingar í
nánast sömu könnunum.
í DV-könnun sem birtist ný-'
lega nýtur stjórnin fylgis 61%
þeirra sem afstöðu taka, 39%
leggjast gegn stjórninni. í fyrstu
könnun um þetta eftir stjórnar-
myndun voru hlutföllin 55-45, en
í könnunum eftir það (HP, DV,
Hagvangur) 64-36, 63-37, 60-40.
Megi marka þessar kannanir
hafa litlar breytingar orðið á af-
stöðu til stjórnarinnar frá því um
mitt sumar, þótt kannanir sýni
talsverðar fylgissveiflur flokk-
anna sjálfra. Stjórnarflokkarnir
þrír fengu samtals rúmt 61% í
kosningunum og hefur samanlagt
kannanafylgi þeirra síðan rokkað
frá 63,6% uppí 73,7.
Þegar tekið er tillit til þeirra
sem ekki taka afstöðu í könnun-
unum kemur í ljós að stjórnin ný-
tur varla meirihlutafylgis. í fimm
könnunum frá júlí til nóvember
mælist beinn stuðningur við
stjórnina í tölunum 34, 55, 46,47
og47 prósent. Samsvarandi ands-
töðutölur eru 26, 32, 27, 32 og 30
prósent. -m
Samningar
Stór orð
óþörf
Það er óþarfi að hafa stór orð
um það að VMSÍ fái að heyra
hversu illa þjóðarbúið stendur en
ekki við. Við fáum nákvæmlega
sömu rulluna, sagði Kristbjörn
Árnason, formaður Félags starfs-
fólks í húsgagnaiðnaði, vegna
þeirra ummæla Karvels Pálma-
sonar í gær að þegar verið væri að
semja um lægstu launin væru
dregnar upp svartar þjóðhags-
spár en ekki þegar verið væri að
byggja yfir banka eða semja við
iðnaðarmenn.
Kristbjörn sagði að innan síns
félags væri bæði faglært fólk og
ófaglært og engu auðveldara fyrir
þessa hópa að ná samningum en
fyrir VMSÍ. „Ég get ekki betur
séð en að þeir hafi náð talsverð-
um árangri fyrir stóra hópa í
Dagsbrún þótt þeir hafi ekki get-
að samið almennilega fyrir fisk-
vinnslufólk. Það er hins vegar
fráleitt að kenna okkur um það,
það er alfarið á þeirra ábyrgð.“
-K.ÓI.
Gorbatsjov
Perestrojka um allan heim
Sumarbók Sovétleiðtogans kom útsamtímis í vestrœnum
Igær kynntu forráðamenn
bókaforlagsins Iðunnar nýja
bók eftir Mikhaíl Gorbatsjov sov-
étleiðtoga er ber heitið „Perest-
rojka Ný hugsun Ný von.“
Það varð uppi fótur og fit í
sumar leið er mönnum þótti Gor-
batsjov dveljast um skör fram
lengi í sumarfríi og töldu ýmsir að
aðalritarinn lægi banaleguna eða
eitthvað þaðan af verra.
En úr leyfi kom hann lífs og við
góða heilsu. Á daginn kom að
hann hafði varið tíma sínum til að
ljúka við samningu bókar er hann
hafði upphaflehga heitið banda-
rískum forleggjurum, „Harper
og Row,“ að semja.
í fréttatilkynningu Iðunnar
segir: „„Perestrojka. Ný hugsun.
Ný von“ er bók er fjallar frá sjón-
arhorni Sovétleiðtogans um
ástand mála í heimalandi hans og
heimsbyggðinni allri. Hann segir
þar umbúðalaust skoðun sína á
höfuðborgum
Frá kynningu á hinni nýju bók Gorbatsjovs. Heimir Pálsson les uppúr bókiAii
og á hann hlýða Jón Karlsson, framkvæmdastjóri Iðunnar, Steingrímur Her-
mannsson utanríkisráðherra og ígor Krasavín, sendiherra Sovétmann á ís-
landi. Mynd Sig.Mar.
sögu og samtíð, gerir upp við
fortíðina án þess að reyna að gera
sjálfan sig að hetju á kostnað fyrri
leiðtoga, enda segir hann sjálfur
að meginatriðið hljóti að verða
samtíðin og framtíðin, ekki sagan
og mistök fyrri tíðar.“
Bókin kom út samtímis um all-
an hinn vestræna heim í gær. ís-
lenska frumþýðingin var unnin af
tíu manns í miklum flýti um mið-
bik síðasta mánaðar en síðan
hafði Heimir Pálsson með hönd-
um það vandasama og erfiða
hlutskipti að samræma ólík stfl-
brigði þýðenda.
Á fundi með fréttamönnum í
gær fluttu þeir Steingrímur Her-
mannsson utanríkisráðherra og
fgor Krasavín, sendiherra Sovét-
manna á íslandi, ávörp auk þess
sem Heimir gerði grein fyrir að-
draganda útgáfu bókarinnar hér-
lendis.
-ks.
Fimmtudagur 19. nóvember 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3