Þjóðviljinn - 19.11.1987, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 19.11.1987, Qupperneq 5
Umsjón: Magnús H Gíslason | ' - Á annað hundrað manns mættu í Staðarskála. (Mynd: J.Sig.). Þúsundasti gesturinn, Birna Lár- usdóttir, tekur við matarkörfunni úr hendi Ingvars Guðmunds- sonar matreiðslumeistara. Kynnirinn, Eyjólfur Gunnarsson, spjallar við veislugesti. (Mynd: J.Sig.) Staðarskáli Hálfsmánaðar matarveisla Lambakjötskynning-verðlaunaveiting- getraunakeppni Tímarit Eiðfaxi í 10. tbl. Eiðfaxa ritar Hjaiti Jón Sveinsson forystugrein þar sem hann víkur að þeim ásöku- num íð hestamenn eigi verulegan þátt í að spilla gróðurlendi lands- ins. Telur greinarhöfundur þar í ýmsu ofmælt en hvetur á hinn bóginn hestamenn til þess að taka höndum saman og ganga í lið með áhugamannasamtökum og stjórnvöldum í baráttu gegn land- eyðingu. Anders Hansen ritar um hið nýja nafnnúmerakerfi á hross sem til stendur að taka upp. Telur það horfa til bóta en vill jafn- framt halda í gamla ættbókar- númerakerfið. Sagt er frá heimildakvikmynd um íslenska hestinn sem Hróðmar Bjarnason o.fl. eru að gera. Áfram halda deilurnar um val á næsta lands- mótsstað og birtist nú grein frá þeim Leifi Jóhannessyni og Kára Arnórssyni, fyrir hönd stjórnar L.H., um það mál. Reynir Aðal- steinsson ritar um lull við upphaf töltþjálfunar, ástæður og ráð til úrbóta. Erna Arnardóttir hvetur konur til að taka meiri þátt í hestamannamótum sem kepp- endur, en þar hafi þær verið allt of hlédrægar. Rætt er við Baldur Jónsson fyrrverandi forstöðu- mann íþróttavalla Reykjavíkur. Er það viðtal bæði fróðlegt og skemmtilegt. Síðan Baldur lét af störfum fyrir aldurs sakir hefur hann stundað hestamennskuna af lífi og sál. Sigrún Björgvinsdóttir heldur áfram að segja söguna um Perlu, framhaldssögu fyrir börn og unglinga. Sagt er frá heimsókn til Höskuldar Aðalsteinssonar og Michaelu Uferbach í Frosthöf í Austurríki. Birtar eru fréttir frá hestamannafélögunum Létti, Þyt, Herði, Þjálfa og Grana. Og eins og ævinlega er fjöldi ágætra mynda í ritinu, m.a. frá Landbúnaðarsýningunni í sumar og mótum á Murneyri og Vind- heimamelum. - mhg Laugardaginn 31. okt. sl. gerðu menn sér heldur betur glaðan dag hjá þeim bræðrum Magnúsi og Eiríki í Staðarskála í Hrútafirði. Þar kom þá saman á annað hundrað manns, sat að dýrindis veisluhöldum og skemmti sér fram eftir nóttu. Með þessu hressilega hátíðar- haldi norður við Hrútafjörð lauk kynningu á íslensku lambakjöti, sem þeir bræður höfðu staðið fyrir samfleytt í tvær vikur. Var Markaðsnefnd landbúnaðarins höfð með í ráðum, án þess þó að hún þyrfti nokkru til að kosta öðru en því að gefa góðar leiðbeiningar. Þegar svo þúsundasti gesturinn hafði mætt í Staðarskála frá því að kynningin hófst, voru honum veitt sérstök verðlaun. Verð- launin voru blómum skreytt og vöxtuleg matarkarfa, sem útbúin hafði verið hjá Kjötiðnaðarstöð Kaupfélags Eyfirðinga. Gestur- inn sem hnossið hlaut var Reykvíkingurinn Birna Lárus- dóttir. Namm namm Eins og nærri má geta var lambakjöt á borðum kvöldið góða í Staðarskála. Á matseðlin- um var lambakjötsseyði, pálma- lamb með kartöflum og ávaxta- terta í eftirmat. Höfundur mat- seðilsins var matreiðslumeistari Staðarskála, Ingvar Guðmunds- son, en hann var áður yfirmat- reiðslumaður hjá Möllen í Osló. Dylst engum sem einhvers neytir í Staðarskála að hann kann vel til verka. Meðan setið var undir borðum, lék Sigurður Daníelsson tónlistarkennari á Blönduósi á orgel. Loks var dansað og lék hljómsveitin Upplyfting fyrir dansinum. Kynnir og stjórnandi hófsins var Eyjólfur Gunnarsson frá Bálkastöðum í Hrútafirði og ann- aðist hann það af miklu fjöri og skörungsskap. Tók hann ýmsa gjarnan tali en síðan var þeim viðræðum varpað til veislugesta með þráðlausum hljóðnema og þótti hin besta skemmtun. Gettu nú í sambandi við matarkynning- una var efnt til getraunasam- ÞJÓÐVILJINN - SfÐA 5 Staðarskáll í Hrútafirði. keppni og stóð hún yfir frá 25. sept. til 9. okt. í henni tóku þátt þeir mátargestir sem komu við í Staðarskála á umræddu tímabili. Spurningarnar á getraunaseðlin- um voru einkum tengdar heima- héraði húsráðenda, ferðamálum og svo náttúrlega lambakjötinu. Þátt í getrauninni tók 1351 gestur og 1209 getraunaseðlar skiluðu sér. Veislukvöldið var svo dregið í getrauninni og veitt fern verð- laun. Fulltrúi sýslumanns Hún- vetninga við þá athöfn var Þórar- inn hreppstjóri Þorvaldsson á Þóroddsstöðum í Hrútafirði. Fyrstu verðlaunm, ferð til Am- sterdam fram og til baka, á veg- um Ferðaskrifstofunnar Ferða- bæjar, hlaut Helgi Ingimarsson, Siglufirði. Önnur verðlaun fékk Elísabet Lilja Stefánsdóttir, 6 ára Reykvíkingur, 30 kg af nýju lambakjöti frá Jóni bónda á Skarfhóli í Miðfirði. Og til að fyrirbyggja hugsanlegan mis- skilning skal það tekið fram að kjötið kom beint úr sláturhúsi á Hvammstanga. Þriðju verðlaun, ljósmyndavél af Fuji-gerð, komu í hlut Sóleyjar Stefánsdóttur, Garðavegi 24, Hvammstanga. Fjórðu verðlaun fékk svo Að- alsteinn Már Þorsteinsson, Mím- isvegi 17, Dalvík, tvær hljómplöt- ur: Bóndinn og Með góðum mat. Allt fór þetta hóf fram með miklum myndarbrag og aðstend- endum þess og öllum viðstödd- umtil verðugs sóma. Þýðingarmikil þjónustustarfsemi Hrútfirðingar eru ekki heillum horfnir á meðan þeir hafa í sveit sinni starfsemi á borð við þá sem rekin er í Staðarskála. Þar fer saman vistlegt og haganlegt hús- næði, þægileg afgreiðsla, góðar veitingar, alúð og liðlegheit hús- ráðenda. Um leið er skálinn eins konar samkomustaður og fé- lagsheimili sveitarinnar. Loks er hann þýðingarmikill tengiliður í samgöngum milli landsfjórð- unga. Kemur það sér ekki síst vel að vetrinum því þar er greiðasala og gisting árið um kring. Væri þó eflaust hagstæðara fjárhagslega að loka staðnum yfir háveturinn en hjálpsemin má sín meir. - mhg Fiskeldi Togstreita milli ráðuneyta Átök eru um það, kannski meira undir yfirborðinu en ofan- sjávar, hvort fiskeldismál skuli heyra undir sjávarútvegsráðu- neytið eða landbúnaðarráðu- neytið, svo sem er og hefur verið. Stjórn Búnaðarfélags íslands hefur eðlilega fjallað um þetta mál og er það eindregin skoðun hennar að landbúnaðarráðuneyt- ið eigi áfram að fara með fiskeld- ismál. Þau rök sem stjórnin færir fram fyrir skoðun sinni eru eink- um þessi: Fiskeldi er í eðli sínu búskapur hliðstæður öðrum greinum rækt- unar á ýmsum dýrategundum. Um hann gilda sömu lögmál, t.d. hvað varðar kynbætur og ræktun, og við eldi annarra dýrategunda. Þær starfandi stofnanir sem búa yfir mestri þekkingu og reynslu í fiskeldi, heyra flestar undir landbúnaðarráðuneytið svo sem Veiðimálastofnun, Rannsóknastofnun landbúnaðar- ins, dýralæknaþjónustan, fisk- sjúkdómanefnd, Búnaðarfélag íslands og bændaskólarnir. Veiðimálastofnun og Veiðimála- nefnd, sem lögum samkvæmt hafa lengi stjórnað veiðimálum og leiðbeint um fiskirækt í ám og vötnum, hafa einnig staðið fyrir rannsóknum á fiskeldismögu- leikum og hlutum sem tengjast því, svo sem hafbeit. Mikilvægt er að efla sjúkdóma- varnir og starfsemi á því sviði undir forystu dýralækna og fisk- eldisrannsóknir svo sem á sviði fóður- og kynbótafræði. Fiskeldi er kennt við báða bændaskólana og sérstök náms- braut í fiskeldi hefur verið við Hólaskóla um nokkurt skeið. Hjá Búnaðarfélagi íslands starfar nú sérmenntaður ráðunautur í fiskeldi. Fiskeldi snertir á margan hátt annan búskap svo sem í sambandi við nýtingu lands-, vatna- og veiðihlunninda. Gæti það leitt til óþarfa árekstra ef farið væri með þessi mál af öðrum aðilum en þau heyra undir nú. Fiskeldi er ein af þeim nýbú- greinum sem líklegar eru til að skapa aukna atvinnu í sveitum. Er mikilvægt að hún verði tekin upp af bændum þar sem náttúrleg skilyrði leyfa. Minna má á að þær búháttabreytingar, sem nú fara fram í sveitum landsins, eru að sjálfsögðu á verksviði landbún- aðarráðuneytisins og stofnana sem undir það heyra. - mhg

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.