Þjóðviljinn - 19.11.1987, Side 6

Þjóðviljinn - 19.11.1987, Side 6
Kjararannsóknanefnd opinberra starfsmanna óskar eftir aö ráöa mann til starfa fyrir nefndina. Æskilegt er að umsækjandi hafi menntun eöa reynslu á sviði hagfræði, viöskiptafræöi, tölfræöi eöa talnavinnslu. Um getur oröið að ræöa ráöningu í hlutastarf eða fullt starf. Umsóknarfrestur er til 24. nóvember n.k. Umsóknum skal skilað til: Kjararannsóknanefndar opinberra starfsmanna b/t. fjármálaráðuneytið Arnarholti Reykjavík Auglýsið í Þjóðviljanum St. Jósefsspítali Landakoti Kvöldvaktir - býtibúr Óskum eftir starfsmanni á kvöldvaktir í býtibúr. Vinnutími frá 16.30-21. Unnið er í 7 daga í senn og frí í 7 daga. Upplýsingar gefur ræstingastjóri í síma 19600/ 259 frá kl. 10-14 daglega. Reykjavík 18. nóv. 1987 /íp\ Til sölu '>5/; Þönglabakki 6, Reykjavík Kauptilboð óskast í byrjunarframkvæmdir ásamt lóðarréttindum eignarhluta ríkissjóðs í fast- eigninni Þönglabakka 6, Reykjavík. Sökklar hafa verið steyptir að um 800 fm. grunni. Kaupandi er skuldbundinn á sama hátt og fyrri lóðarhafar af öllum bygginga- og skipulagsskil- málum, sem um lóðina gilda, þar með talin þátt- taka í sameiginlegum framkvæmdum með öðr- um lóðarhöfum í Mjódd. Skriflegt kauptilboð er greini kaupverð og greiðsluskilmála berist skrifstofu vorri, Borgar- túni 7, Reykjavík fyrir kl.11.30 f.h. fimmtudaginn 26. nóv, n.k., en þá verða kauptilboð opnuð. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS Borgartúni 7, sími 26844 REYKJKMÍKURBORG JLauMn, St&uvi Sálfræðingar - unglingadeild Unglingadeild Félagsmálastofnunar Reykjavík- urborgar óskar eftir sálfræðingi í fullt starf. Skil- yrði er að viðkomandi hafi a.m.k. 2 ára starfs- reynslu sem sálfræðingur. Starfið felst m.a. í meðferð, ráðgjöf við starfshópa og þátttöku í stefnumótun og skipulagningu unglingastarfs- ins. Umsóknarfrestur er til 8. desember. Upplýsingar veita Snjólaug Stefánsdóttir, deildarstjóri unglingadeildar í síma 622760 og Gunnar Sandholt yfirmaður fjölskyldudeildar í síma 25500. Umsóknum skal skilað til starfsmannahalds Reykjavíkurborgar á umsóknareyðublöðum sem þar fást. Þeir tóku hraustlega til matar síns, slökkviliðsmennimir hjá Brunavörnum Suðurnesja, þegar slöngumálastjórinn þeirra kom með kaffi og meðlæti til þeirra í gær. Enda orðnir lúnir og þreyttir eftir ósköp næturinnar í glímunni við eldinn. Mynd E.ÓI. Eldurinn í Garðinum Hörfuðum fet lyrir fet Kristberg Kristbergsson slökkviliðsmaður: Mesta mildi að engin slys urðu á mönnum þegar gassprengingin varð í tœkjasal Nesfisks hf „Við vorum nýkomnir uppá þakið á fiskvinnslunni þegar allt í einu varð geysiöflug gassprenging í tækjasalnum og þakið rifnaði af ■ bókstaflegri merkinu. Eftir það varð ekki við neitt ráðið og við urðum að hörfa undan eldtung- unum fet fyrir fet,“ sagði Kríst- berg Krístbergsson slökkviliðs- maður í gær í Garðinum við Þjóðviljann í gær. Þegar Þjóðviljinn kom á vett- vang í gær, voru slökkviliðsmenn úr Brunavörnum Suðurnesja enn að störfum við rústir fiskvinnslu- húss Nesfisks hf. og bifreiða- verkstæði Magnúsar Guðbergs- sonar, sem brunnu til kaldra kola í eldsvoða í fyrrinótt. Eyðileg- gingin blasti allsstaðar við og ljóst að tjónið nemur tugum milljóna króna því fiskvinnslan var yfirfull af fiski þegar eldurinn kviknaði. Að sögn Kristbergs var það mikil mildi að engin slys urðu á mönnum við slökkvistarfið þegar mest gekk á eftir að gasspreng- ingin varð. Ekki hjálpaði það til við slökkvistarfið að vindur var mjög hvass að sunnan. Þegar ljóst var að ekkert yrði ráðið við eldinn, var reynt eftir föngum að bjarga nærliggjandi húsum sem voru hulin reyk, og tókst það giftusamlega. grh „Þegar gassprengingin varð í tækja- sal fiskvinnslunnar varð ekki við neitt ráðið og við urðum að hörfa undan eldtungunumfetfyrirfet,'' sagði Krist- berg Kristbergsson slökkviliðsmað- ur. Hann ásamt fleiri slökkviliðs- mönnum var hætt kominn þegar þak- ið rifnaði af í bókstaflegri merkingu við sprenginguna. Mynd E.ÓI. Slökkviliðsmenn úr Brunavörnum Suðurnesja voru enn að störfum við rústirfiskvinnsluhúss Nesfisks hf. um miðjan dag í gær. Eins og sjá má er eyðileggingin alajör eftir hamfarir eldsins. Mynd E.OI. Fiskvinnsla Nesfisks hf. var kjaftfull af fiski, bæði unnum og óunnum, þegar eldurinn kviknaði í fyrrinótt. Ljóst er að tjónið nemur tugum milljóna króna. Mynd. E.ÓI. 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.