Þjóðviljinn - 19.11.1987, Page 8

Þjóðviljinn - 19.11.1987, Page 8
VIÐHORF Hugleiðingar í tilefni lands Ólafur Þ. Jónsson skrifar Illa agaður, innbyrðis sundurþykkur flokkur, með loðna og óljósa stefnu, á einfaldlega ekki upp á pallborðið hjá vinnandi alþýðu þessa lands oggetur heldur ekki átt við hana brýnt erindi Það hefur verið fróðlegt nokk- uð að fylgjast með formanns- raunum Alþýðubandalagsins, þessa myrku haustdaga, þótt að- eins sé það fjölmiðlaþáttur þeirra, sem hingað berst, í fásinn- ið. Opinberiega hófst baráttan milli frambjóðendanna tveggja, í Þjóðviljanum 12. september s.l. á því, að Mörður Árnason birti þar stutt viðtöl við þá báða. Spurningar Marðar voru mildar og ljúfar og enda svörin við þeim eftir því. Sigríður Stefánsdóttir fullyrðir að það sé rangt hjá Guðrúnu Helgadóttur að hún (þ.e. Sig- ríður) sé frambjóðandi „ráðherr- agengisins“ (Svavars, Ragnars, Hjörleifs) í flokknum, hún vill engar yfirlýsingar gefa um Ólaf Ragnar, hún telur mikilvægt að konur komi við sögu í þessu eins og öðru í flokknum og hún stað- festir þá skoðun margra, að helsti kosturinn við búsetu á Akureyri sé sá að þaðan sé einkar auðvelt að komast til Reykjavíkur „með nútíma samgöngum og tækni, ætti það ekki að vera vandamál.“ Ólafur Ragnar Grímsson fær mjög hliðstæðar spurningar í sinn hlut, nema hvað honum er af skiljanlegum ástæðum ekki gert að fjalla um búsetu manna á Ak- ureyri og er hvorki bendlaður við „ráðherragengi" né konur. Hon- um finnst óeðlilegt að vera að tjá sig, á þessu stigi, um Sigríði, hann fellst á að hann sé umdeildur. „Sá stjórnmálamaður, sem aldrei verður ágreiningur um - hann er lítils virði.“ (Að mati spyrils er Sigríður trúiega ekki umdeild.) Og það gleður hann, hve margir flokksfélagar hafa lagt að honum að taka við forystu í flokknum. Þetta höfðu sum sé frambjóðend- ur að segja lesendum Þjóðviljans í upphafi kosningabaráttunnar að viðbættu því auðvitað, að báðir ætla að vinna ötullega að því, á málefnalegan hátt, að ná Al- þýðubandalaginu upp úr öldu- dalnum. Þessi snotru viðtöl þóttu held- ur bragðdauf á Hornströndum, en menn sögðu sem svo: Þetta er nú varla marktækt, hér er aðeins um upphafið að ræða. Það gekk eftir, þótt með nokkuð öðrum hætti væri en vér ætluðum. Baráttan milli frambjóðend- anna og þá ekki síst stuðnings- manna þeirra harðnaði mjög, einkum eftir frægt fulltrúakjör á landsfund í Alþýðubandalaginu í Reykjavík. Forystumenn flokks- ins, sumir hverjir, er töldu sig hafa farið halloka í nefndu full- trúakjöri, ruku beint í ljósvaka- miðlana, eins og mikill siður er orðinn íhreyfingunni, og jusu þar úr skálum reiði sinnar. Stóryrðin auðvitað ekki spöruð, talað um aðför, bolabrögð, ruddaleg, sóðaleg og óeðlileg vinnubrögð, svo eitthvað sé nefnt. Þessum skeytum var beint að sigurvegurum fulltrúakjörsins í Reykjavík, og jafnframt gefið í skyn, „að þess yrði hefnt í héraði, er hallaðist á Alþingi", eða séð yrði til þess, að alþýðubandalags- menn á landsbyggðinni kysu sína fulltrúa á landsfund, af réttri sort. Óbreyttir flokksfélagar hafa svo notað Þjóðviljann óspart, bæði til að vitna um ágæti fram- bjóðenda, henda svolitlum skít í nánustu samherja sína og síðast en ekki síst, lýsa innstu hugrenn- ingum sínum og því, hversu þeir sjálfir hafi unnið og vinni enn þýðingarmikið starf í þágu hreyfingarinnar. Og áreiðanlega er mikið magn ókomið enn af þessum litteratúr, ef að líkum lætur. Þessu greinarkorni er hvorki ætlað að mæra annan frambjóðandann né kasta rýrð á hinn. Bæði er að litlar horfur eru á að þetta nái á prent fyrir lands- fund og svo hitt að það er skoðun höfundar að einu gildi hvor fram- bjóðenda verði kjörinn formaður flokksins; uppdráttarsýki hans er komin á alvarlegra stig en svo að- hún verði læknuð með formanns- skiptum einum sér og fylgi flokksins hjá vinnandi alþýðu mun ekki vaxa að mun, þótt nýr formaður verði valinn, ef ekkert fleira verður að gert. Hvers vegna ekki og hvað er að hjá flokknum? Nú skulum við skoða aðeins glæný skrif tveggja flokksfélaga, sem báðir voru kosnir á lands- fundinn. 27. okt. s.l. ritarStefan- ía Traustadóttir hjá Jafnréttisráði grein í Þjóðviljann, sem ber yfir- skriftina „Af hverju styð ég Sig- ríði?“ í þessari ritsmíð fræðir Stefanía okkur á því að sósíalism- inn sé í hennar huga hvorki mark- mið né samfélagsgerð, heldur lífs- viðhorf „en getur þó verið og á að vera sterkt afl, sem hægt er að beita í baráttunni fyrir samfélagi jafnaðar, frelsis og jafnréttis". Sósíalisminn er með öðrum orð- um ekki samfélagsgerð, heldur afl til að búa til samfélagsgerð, þarsemm.a. frelsið ríkir. Hverjir skyldu nú eiga að vera frjálsir og samfélags verða í einkaeign og eigendur þeirra þar með hafa frelsi til að arðræna þá sem ekki eiga annað en vinnuafl sitt? Skyldi vera í því samfélagi frelsi fyrir hægrisinnaðan rumpulýð til að reka áróður fyrir stríði og kyn- þáttamisrétti? Eða gengur þetta frelsistal kannski ekki upp, eru lágþokublettir í hugsuninni og skyggni til framtíðarlandsins eitthvað bágborið? Össur Skarphéðinsson ritar innsýnargrein í Þjóðviljann 24. okt. s.l. Orð eru dýr, skrifar Össur, en hristir samt heilsíðu- grein fram úr erminni í hvelli. Þar segir m.a.: „f stefnuskrá flokks- ins (Abl.) er tekið skýrt fram, að það eigi að þjóðnýta banka og aðrar fjármálastofnanir, trygg- ingafélög, utanríkisverslun að mestu, og stærstu fyrirtækin í sjávarútvegi, iðnaði, samgöngum og verslunina innanlands eigi annaðhvort að gera að eign sam- vinnufélaga'eða taka undir ríkið. Þessi viðhorf eru auðvitað að verulega leyti löngu úrelt“. Og Össur spyr: „Hvers vegna ættu allir bankarnir að vera ríkisbank- ar? Af hverju ætti að þjóðnýta tryggingafélögin?" Og enn spyr hann: „Er sjálfgefið að Alþýðu- bandalagið sé á móti hinum svok- ölluðu frjálsu fjármagnsmörku- ðum? Er þjóðnýting kannski ekkert annað en úrelt þing, sem við höfum ekkert við að gera lengur?" Þannig spyr ritstjóri Þjóðviljans fáum dögum fyrir landsfund og mundi ekki gera, nema vegna þess að bæði hann og ýmsir aðrir í flokknum eru á móti þeim stefnuskráratriðum, sem vitnað var til í grein hans áðan. Enda segir Össur, hreint út: „Þessi viðhorf (þ.e. þjóðnýting) eru auðvitað að verulegu leyti löngu úrelt“. Sem sagt gott, þetta hefur íhaldið líka alltaf sagt. Þessir tveir landsfundarfull- trúar munu án efa verða valdir til þess á landsfundinum að fjalla um og móta stjórnmálaályktun flokksins og jafnvel endurskoða stefnuskrána. Má ef til vill gera ráð fyrir að innan skamms taki Alþýðubandalagið og Þjóðvilj- inn til við að yfirbjóða fhaldið og Moggann í „einkavæðingu" á sama hátt og í sovétníði?) (Eins og það hefur nú eflt flokkinn). Ég segi nú bara eins og sagt var stundum í gamla daga: „Guð hjálpi þér mannlega eymd“. Eða er kannski allt saman „hinn nýi sósíalíski búningur í nútíð og til frambúðar, sem flokkurinn ætlar son í DV 19. okt. s.l.) Væri þá betur að sem flestir félagar í Ál- þýðubandalaginu færu að dæmi Stefaníu Traustadóttur og litu á sósíalismann sem lífsviðhorf ein- göngu og settu sér ekki það mark- mið að breyta samfélagsgerðinni. „Takk fyrir, sagði skáldið og heitkona hans óskaði enn að Jes- ús vildi styrkja framkvæmda- stjórann. En mikið lángar mig sem ómentað alþýðuskáld að spyrja þig að einu Pétur: Hvað eigum við að gera við flugvél hér á Sviðinsvík? Hvað við eigum að gera við flugvél, sagði framkvæmdastjór- inn hneykslaður. Ertu eitthvað verri kalli minn. Skilurðu ekki hvað við eigum að gera við flugv- él. Við eigum auðvitað að fljúga í loftinu maður. Flugvél, það er nútíminn. Ég hélt að nútíminn, það væri fyrst og fremst að hafa f sig og á, sagði skáldið. Framkvæmdastjó- rann rak í rogastans." (HKL. Hús skáldsins bls. 42-43). Þeir alþýðubandalagsmenn, sem ég vitnaði til hér áðan, eru dæmigerðir fyrir þann skoðana- hrærigraut, sem einkennir Al- þýðubandalagið og stendur því jafnframt fyrir þrifum. Illa agað- ur, innbyrðis sundurþykkur flokkur, með loðna og óljósa stefnu, á einfaldlega ekki upp á pallborðið hjá vinnandi alþýðu þessa lands, og getur heldur ekki átt við hana brýnt erindi. Og það á ekki af þessum flokki að ganga. Sem ég nú sit og rita þessar línur, heyri ég í útvarpinu (rás 1) valinn kafla úr ræðu Þrast- ar Ólafssonar, sem hann var að flytja á 13. þingi Verkamanna- sambands íslands. Hvað skyldi nú fréttamanni útvarpsins hafa þótt athyglisverðast í ræðunni? Greinilega það, að í ræðunni var Þröstur að burðast við að gera sjómenn og opinbera starfsmenn tortryggilega í hugum fisk- vinnslufólks. Læða því inn hjá því, að sjómenn og opinberir starfsmenn beri á vissan hátt ábyrgð á þeim endemis launa- kjörum, sem fiskvinnslufólk sætt- ir sig við. Með öðrum orðum, stéttabaráttan hefur til þessa ver- ið á hinum mestu villigötum, svokallaðir eigendur framleiðslu- tækjanna í fiskiðnaðinum eru ekki höfuðstéttarandstæðingur fiskvinnslufólks, enda oftast kall- aðir vinnuveitendur t.d. í fjöl- miðlum, heldur skal nú etja sam- an vinnandi fólki eftir starfsgrein- um, t.d. fiskvinnslufólki gegn sjómönnum og vitavörðum. Það þarf varla aðtaka það fram að Þröstur var kosinn á landsfund- inn og mun þar stöðu sinnar vegna einkum fjalla um ályktun landsfundar um verklýðsmál. hafa frelsi til að gera hvað, í samfélagi Stefaníu? Allir kann- ski? Skyldu framleiðslutæki þess að klæða grundvallarhugmyndir sínar í“? (Ölafur Ragnar Gríms- skyldur undir fátæktarmörkum, eins og þau eru opinberlega á- kveðin í landi okkar. Störf kvenna eru því, jafnvel þó þau séu í meira mæli hlutastörf en störf karla, ekki dútl sem þjóðfé- lagið getur leyft sér að lítilsvirða. Án vinnuframlags kvenna hefði þjóðfélagsþróun vissulega orðið önnur og hægari hér á landi, en við vitum öll að íslenska þjóðin hefur af fádæma metnaði unnið sig upp úr ótrúlegri fátækt á að- eins örfáum áratugum. Það er einnig vert að undir- strika, að í sjónmáli er ekki þjóðfélag þar sem konur eru jafnsterkar og karlmenn á vinn- umarkaðnum. Aðeins með því að meta stöðu sína rétt geta konur losað sig úr því þrátefli sem þjóð- félagsstaða þeirra er nú í. Móður- hlutverk konunnar hlýtur á ýms- um sviðum að gera hana að var- anlega veikari þjóðfélagsþegni en karlmanninn. Én með því að leysa úr Iæðingi alla þá orku sem felst í vitneskjunni um að mannréttindunum má jafnan skjóta á frest og að réttlætið er tvíkynja eins og mannkynið, get- ur konan hafið sig jafnhátt karl- manninum sem félagsvera. Kon- ur verða með öðrum orðum að vita að þær verða jafnan að geta meira og gera meira en karlar ef þær ætla að uppskera hið sama. Athafnafrelsi - neyslufrelsi Á þeim tveim áratugum sem liðnir eru frá upptökum hinnar nýju kvennahreyfíngar hefur hið sjálfsprottna þjóðskipulag mark- aðshyggjunnar lengst af verið í sókn í flestum löndum Vestur- Evrópu. Frjálshyggjan, sem hrósar sér af því að vera óháð mannlegu skipulagi, mannlegum vitsmunum og mannlegum ófull- komleika, er í raun sú hagfræði þar sem einstaklingurinn frjálsi er fjölskyldufaðirinn, frelsishug- myndir frjálshyggjunnar eru hug- myndir um athafnafrelsi karl- manna og neyslufrelsi kvenna. Það er kunnara en frá þurfi að segja að vinstri menn hafa á þessu tímabili talið sig standa frammi fyrir stöðnun verkalýðshreyfing- arinnar sem hefur, að því er virð- ist, fyrir fullt og fast sæst á ákveð- ið hlutfall þjóðarteknanna og þar með misst frumkvæðið í kjara- og félagsmálum úr höndum sér. Við vitum öll að pólitískar umræður vinstri manna hafa hin síðari ár snúist um uppbyggingu hreyfing- arinnar, en ekki markmið og innri störf og flokkadrættir og til- raunir til að sprengja hina svok- ölluðu gömlu stjórnmálaflokka og stofna nýja hafa dregið þrótt- inn úr pólitísku starfi. En er víst að jafnframt hafi verið um hug- myndafræðilega stöðnun að ræða? Getur hugsast að menn hafi ekki gefið hinum nýju pólit- ísku straumum nægilegan gaum, vegna þess að þeir komu þaðan sem síst var átaks að vænta, frá konum? Sókn félagshyggjuafla Þessar spurningar, sem mér finnst tímabærar, svo og hinn mikli lýðræðisstyrkur kvenna- hreyfingarinnar, sýnir pólitíska sókn félagshyggjuaflanna, sem í fyrsta áfanga beindist inn á við til rýmkunar frelsishugmynda þeirra. Það er mitt mat að verka- lýðshreyfingin sé nú langt komin með að vinna sig frá hinum hefð- bundna pólitíska skilningi, sem gerir ráð fyrir að markmið henn- ar sé baráttan fyrir frelsi, jafnrétti og bræðralagi fjölskyldufeðranna með konurnar einhvers staðar baksviðs. Næsta stigið hlýtur að vera ný heildarstefnumótun fé- lagshyggjumanna sem geri hreyfingunni fært að snúa sókn sinni að þjóðfélagslegum mark- miðum. Næstu áratugir hljóta að skera úr um, hvaða samfélagslega stöðu konur framtíðarinnar skipa í landi okkar. Stunda konur þá enn sem fyrr vinnu sína mest megnis innan um aðrar konur, verða þær meðlimir í stéttarfé- lögum kvenna, munu þær skipa sér í pólitískar fylkingar mest- megnis með konum? Sjáum við kannski fyrir okkur fulltrúalýð- ræði, þar sem konur verða full- trúar kvenna? Verði þróunin þessi hlýtur hún að staðfesta kon- ur sem valdalítinn láglaunahóp í tæknivæddu iðnaðarsamfélagi þar sem öll raunveruleg völd verða í höndum annars vegar 8 SlÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 19. nóvember 1987 Fimmtudagur 1

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.