Þjóðviljinn - 19.11.1987, Side 10
Dagheimiiið Völvuborg
Völvufelli 7
Völvuborg er lítiö notalegt dagheimili velmannaö
fóstrum og ööru góöu starfsfólki.
Við þurfum aö ráöa fóstru eða annan uppeldis-
menntaöan starfsmann á deild yngstu barnanna
nú þegar eöa um áramót.
Einnig höfumvið lausa stöðu fyrir aöstoöarfólk.
Upplýsingar hjá forstöðumanni í síma 73040.
ALPVÐUBANDALAGIÐ
Vesturland
Aðalfundur kjördæmisráðs
Aðalfundur kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins á Vesturlandi verður hald-
inn sunnudaginn 22. nóvember kl. 13.30 í Röðli, Borgarnesi.
Stjórnin
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Morgunkaffi
Laugardaginn 21. nóvember hellir Valþór Hlöðvers-
son bæjarfulltrúi uppá könnuna frá 10 til 12 í Þing-
hóli, Hamraborg 11. Allir velkomnir.
Stjórnin
AB Siglufirði
Aðalfundur
Alþýðubandalagsins á Siglufirði verður haldinn sunnudaginn 22. nóv. n.k.
kl. 14.00 í Suðurgötu 10.
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Fréttir af landsfundi
3. Önnur mál
Stjórnín
Alþýðubandalagið í Hafnarfirði
Bæjarmálaráðsfundur
Fundur í bæjarmálaráði verður haldinn laugardaginn 21. nóvember kl.
10.00 í Skálanum, Strandgötu 41.
Fundarefni: Undirbúningur fjárhagsáætlunar og helstu framkvæmdir á
næstunni. - Stjórnin.
ÆSKULÝÐSFYLKINGIN
Æskulýðsfylkingin Hafnarfirði
Aðalfundur
Æskulýðsfylkingin í Hafnarfirði boðar til aðalfundar laugardaginn 21. nóv-
ember nk. kl. 16.00 í Risinu, Strandgötu 41. Venjuleg aðalfundarstörf.
Mætum hress og kát. - Stjórnin.
Æskulýðsfylkingin
Til allra félagsmanna ÆFAB
Sunnudaginn 22. nóvember kl. 13.00 byrjar vinnudagur Æskulýðsfylking-
arinnar, að Hverfisgötu 105. Fyrir liggur fjölbreytt og skemmtilegt uppbygg-
ingarstarf sem þú mátt ekki missa af.
Kaffi og með því á staðnum.
Mætum öll, þó ekki sé nema í kaffið.
Framkvæmdaráð
Þökkum innilega auösýnda samúð og vinarhug við andlát
og útför eiginmanns míns, föður okkar og tengdaföður
Ingólfs Pálmasonar
fyrrv. lektors við Kennaraháskóla íslands
Hulda Gunnarsdóttir
Pálmi Ingólfsson
Gunnar Ingólfsson
Guðrún Ingólfsdóttir Eiríkur Rögnvaldsson
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við and-
lát og útför eiginmanns míns, föður okkar, sonar míns,
bróður, mágs og tengdasonar
Kristins Pálssonar
Hryggjarseli 6
Gerður Sigurðardóttir
Páll Kristinsson
Páll Kristinsson
Helga Pálsdóttir
Ingveldur Kjartansdóttir
Ingveldur Kristinsdóttir
Þórir Eyjólfsson
Sigurður Jónsson
ERLENDAR FRETTIR
Meðaldrœgar kjarnflaugar
Bjartsýni þrátt
fyrir tortryggni
Sovétmenn segjast enn eiga eftir að skilgreina nákvœmlega hvað skuli
eyðlagt eftir undirritun samnings. Bandaríkjamenn vilja stíft eftirlit
með því að menn haldi heitsín
Aðalsamningamenn Sovétríkj-
anna og Bandaríkjanna hafa
lokið þriggja daga málastappi í
Genf og eru flognir til síns heima.
Báðir fullyrða þeir að samningur
um eyðingu meðal- og skamm-
drægra kjarnflauga verði tilbú-
inn til undirritunar á leiðtoga-
fundi í desemberbyrjun þótt enn
eigi eftir að ná samkomulagi um
ýms mikilsverð atriði.
f- öllum opinberum yfirlýsing-
um sínum leggja þeir Júlí Vor-
ontsov og Max Kampelmann
höfuðáherslu á að fyrir leiðtoga-
fundinn í Washington dagana 7,-
10. desember næstkomandi verði
lögð fullmótuð drög að samningi
um eyðingu um þúsund meðal-
drægra kjarnflauga er öðlist gildi
við undirritun þeirra félaga Mik-
hafls Gorbatsjovs og Ronalds
Reagans.
„Drögin eru samtals um 120
síður og vinna við frágang þeirra
er á lokastigi,“ sagði Vorontsov í
sjónvarpsviðtali í fyrradag. „Við
erum mjög nærri settu marki,
nánast á leiðarenda. Við munum
ná samkomulagi," sagði Kampel-
mann við fréttamenn í gær.
Sem kunnugt er verður öllum
meðaldrægum kjarnflaugum
risaveldanna komið fyrir kattar-
nef á þrem árum eftir undirritun
samningsins og söm verða örlög
skammdrægra flauga á 18 mán-
uðum. Þær flaugar er hér um
ræðir geta flogið sleitulaust 500-
5000 kflómetra leið. Samninga-
viðræður um eyðingu þeirra hafa
staðið yfir með hléum frá því árið
1985.
Kampelmann og Vorontsov
héldu heim í gær til að gefa hús-
bændum sínum skýrslu. Eftir
urðu í Genf herskarar minni spá-
manna og er það í verkahring
þeirra að klastra saman loka-
drögum.
Ymsir samningamanna tjáðu
fréttamönnum f gær að enn ætti
eftir að leysa ýmsan meiriháttar
vanda, einkum hvað varðar eftir-
lit með því að aðilar reyni ekki að
snuða hvor annan og hafa rangt
við.
Bandaríkjamenn staðhæfa að
Sovétmenn hafi enn ekki gefið
fullar upplýsingar um tölu og
staðsetningu eldflauga sem eyði-
leggja á eftir undirritun samn-
ings. Slíkt sé vitaskuld alger for-
senda þess að samkomulag náist.
Bandarískir herfræðingar full-
yrða að Kremlverjar eigi 130
skammdrægar eldflaugar sem
hver og ein hafi innanborðs sex
kjarnodda. Ráðamenn í Was-
hington vilja óðir og uppvægir að
kollegar þeirra í Moskvu staðfesti
þessar tölur. Ennfremur kvað
það bögglast fyrir brjósti Banda-
ríkjamanna að Sovétmenn hafa
krafist þess að fá að hafa eftirlit
með svæðum þar sem samningsf-
laugar eru/voru staðsettar næstu
13 árin.
Vandinn er sá að þorri meðal-
drægra Pershing II flauga Banda-
ríkjamanna eru staðsettar í ýms-
um bandalagsríkjum þeirra í
Vestur-Evrópu, Bretlandi, Vest-
ur-Þýskalandi, Belgíu og Ítalíu.
Stjómvöld í Washington kveðast
ekki geta samið um að sovéskir
eftirlitsmenn valsi um í löndum
þessum að vild sinni þar eð þau
fari ekki með völd í þeim.
Sovétmenn segja aftur á móti
að höfuðþrándurinn í götu
samkomulags sé einfaldlega sú
staðreynd að enn eigi eftir að skil-
greina nákvæmlega hvað skuli
eyðileggja. Þeir vilja að burðar-
flaugar, kjarnoddar, skotpallar
og hvaðeina er viðvíkur kjarn-
flaugunum verði haugagóss eftir
undirritun samnings. „Við spurð-
um Bandaríkjamenn hvað þeir
vildu að yrði eyðilagt eftir samn-
ingsgerð," sagði Vorontsov í fyrr-
nefndu sjónvarpsviðtali, „og þeir
sögðu að það væru burðarflaug-
arnar.“
Hann sagði að sú krafa Banda-
ríkjamanna að þeir fengju að
halda eftir ýmsum kjarnbúnaði,
stýribúnaði og vélum úr lágfleyg-
um stýriflaugum væri ekki um-
ræðuverð, slíkar vífilengjur væri
ekki hægt að taka alvarlega. „Við
munum ekki fallast á annað en að
þessum flaugum verði eytt í heilu
lagi.“
Sovéskir heimildamenn segja
Bandaríkjamenn enn halda fast
við þá kröfu sína að fá að hafa
eftirlit með verksmiðjum er
framleiða langdrægar kjarnflaug-
ar til að fyrirbyggja að þar verði
hafist handa um framleiðslu með-
aldrægra flauga á næstu árum.
„Þessi krafa er út í hött því þessir
hlutir verða til umræðu í næstu
lotu afvopnunarviðræðnanna. Þá
verður rætt um 50 prósent fækk-
un langdrægra flauga,“ sagði
Vorontsov.
Eftirlitsmálið snýst um það að
hvor tveggi fái fyrirvaralaust að
senda fulltrúa sína til að snuðra á
svæðum þar sem meðaldrægar
flaugar hafa verið staðsettar eða
grunur leikur á að verið sé að
koma nýjum fyrir. Slíkar jarð-
spildur eru nefndar „grunsamleg
svæði" af viðræðuaðilum. Heim-
ildamenn í búðum beggja hafa
staðfest að enn hafi ekki verið
skilgreint hvaða svæði séu „grun-
samleg" í þessu samhengi. Þetta
kvað verða að gera til að fyrir-
byggja að aðilar misnoti eftirlits-
réttinn til að njósna um önnur
hernaðarmannvirki en þau er
samningurinn kveður á um.
Reaganstjórnin leggur höfuð-
áherslu á að tryggilega sé um
hnúta búið hvað varðar eftirlit
því að öðrum kosti eigi hún á
hættu að öldungadeild Banda-
ríkjaþings hafni samningnum. Til
þess að samningurinn öðlist gildi
verðá tveir þriðju hlutar fulltrúa
deildarinnar að samþykkja hann.
Reagan getur sjálfum sér um
kennt. Hann hefur löngum hamr-
að á því að Sovétríkin séu „hið
illa heimsveldi“ og að Kremlverj-
ar hafi svindlað æ ofaní æ eftir að
þeir hafi gert afvopnunarsamning
við Bandaríkjamenn. Þegar við-
ræðurnar um eyðingu meðaldr-
ægu kjarnflauganna hófust árið
1985 hvatti hann vopnaeftirlits-
nefnd öldungadeildarinnar mjög
til að fylgjast grannt með gangi
þeirra og vera óspara á gagnrýni.
Þingið hefur neitað að staðfesta
þrjá mikilsverða afvopnunars-
amninga sem leiðtogar risaveld-
anna hafa gert með sér frá því á
öndverðum áttunda áratugnum.
Ýmsir stjórnmálaskýrendur
kveða Reagan standa frammi
fyrir erfiðu vali á næstu vikum.
Þeir segja að enginn samningur
verði undirritaður í Washington í
desemberbyrjun nema Banda-
ríkjamenn dragi ýmsar óbilgjörn-
ustu eftirlitskröfur sínar í land.
En geri þeir það kann svo að fara
að forsetinn verði auðmýktur af
þingi er fellir samninginn strax í
upphafi næsta árs.
En hvað sem þessu líður þá
eiga menn ekki von á því að Kam-
pelmann og Vorontsov eigi frek-
ari viðræður áður en leiðtoga-
fundurinn fer fram. _ks.
Sovéskar SS-20 meðaldrægar kjarnflaugar. Allt snýst nú um eftirlit með því að
aðilar haldi samning.
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 19. nóvember 1987