Þjóðviljinn - 19.11.1987, Side 11

Þjóðviljinn - 19.11.1987, Side 11
ERLENDAR FRETTIR írans/Kontrahneykslið Reagan ber ,höfuðábyrgð‘ Þingmenn birtu ígœr niðurstöður rannsókna sinna á hinu nafntogaða Irans/Kontrahneyksli. Þungorðir ígarð Reagans þótt enn sé á huldu hvort hann vissi um lögbrot undirsáta sinna liam heitinn Casey, Iopinberri skýrslu Bandaríkja- þings um Írans/Kontrahneyksl- ismálið margumtalaða er komist að þeirri niðurstöðu að Ronald Reagan forseti beri „höfuð- ábyrgð“ á því er miður fór, lög- brotum undirmanna sinna er ráku sína eigin utanríkisstefnu og reyndu síðan með ólöglegum hætti að hindra réttvísina í því að komast til botns í málinu. Eftir miklar yfirheyrslur og ít- arlegar eftirgrennslanir létu rannsóknarnefndir öldunga- og fulltrúadeilda Bandaríkjaþings frá sér fara 690 blaðsíðna skýrslu í gær um Írans/Kontrahneykslið er komst í hámæli fyrir ári. Þótt rit- smíð þessi sé mikil að vöxtum svarar hún ekki þeirri spurningu er brennur á allra vörum; vissi Reagan að ágóðinn af leynilegri vopnasölu til írans rann í vasa Kontraliða í Honduras? Hinsveg- ar segja skýrsluhöfundar: „Hafi forsetinn ekki vitað hverju vatt fram...þá átti hann að vita það. Höfuðábyrgðin á þeim atburðum er áttu sér stað á þessum tíma hlýtur að hvfla á herðum forset- ans. “ Þingmennirnir bæta því síð- an við að Reagan hafi brugðist þeirri stjórnarfarslegu skyldu sinni að tryggja að lög væru hald- in í heiðri. Einhver ágreiningur mun hafa verið um það í rannsóknarnefnd- unum hve mikla ábyrgð forset- 1ÖRFRÉTTIR1 30 einstaklingar eru taldir hafa farist í miklum eldsvoða í Kings Cross neðan- jarðarjárnbrautarstöðinni í mið- borg Lundúna í gær. Eldurinn braust út á háannatíma og var margt fólk samankomið á stöð- inni. Um kvöldmál höfðu björgun- armenn fundiö fjórtán lík en lög- reglumenn segja að mun fleiri sé saknað. Boris sá Jeitsín er fyrir skömmu var rekinn úr embætti formanns Moskvu- deildar Kommúnistaflokks Sov- étríkjanna hefur fengið nýjan starfa. Hann var í gær skipaður varaformaður nýbygginganefnd- ar Sovétríkjanna. Jeltsín var sem kunnugt er rekinn fyrir að fara of- fari í nýsköpunarstarfi. Hann liggur um þessar mundir á sjúkrahúsi og hafa ýmsir leitt get- um að því að stöðusviptingin hafi lagst þungt á hann. Nýja emb- ættið hvað jafngilda ráðherra- dómi en er engu að síður mun litilvægara en flokksleiðsögn í höfuðborginni. Kim Philby er að öllum likindum frægasti njósnari allra tíma. Hann kom fram í sovésku sjónvarpi fyrir skömmu í fyrsta sinn frá því hann flúði austur fyrir 24 árum. Þessi fyrrum yfirmaður í bresku gagnn- jósnaþjónustunni ræddi í fjórar mínútur við fréttamenn lettneska sjónvarpsins um njósnir lettne- skra útlaga fyrir vestrænar leyni- þjónustur. Viðtalið við Philby er talið vera í tengslum við áróðurs- herferð gerskra ráðamanna gegn lettneskri þjóðernishyggju en þann átjánda nóvember á næsta ári verða liðin nákvæm- lega sjötíu ár frá því Lettland var lýst sjálfstætt ríki. Edwin Meese, yfirmaður dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna, og hús bóndi hans. Báðir sæta ámæli í skýrslu rannsóknanefnda Bandaríkja þings. innn bæri í raun á athöfnum óst- ýriiátra undirsáta sinna. Allir þingmenn Demókrataflokksins í báðum deildum og þrír af ellefu fulltrúum Repúblikanaflokksins munu hafa staðið að skýrslunni en átta flokksbræðrum forsetans fannst hann of grátt leikinn í niðurstöðu meirihlutans. Heimamenn í Hvíta húsinu voru farnir að gera lítið úr niður- stöðu skýrslunnar áður en hún kom almenningi fyrir sjónir í gær. Blaðafulltrúi Reagans, Marlin Fitzwater, sagði að eina nýmælið í þessu áliti væri það að fulltrúar í rannsóknanefndunum væru ósammála um stjórnarfarslega ábyrgð forsetans á misgjörðum hirðsveina sinna. En þótt hvíthýsingar tali digur- barkalega þykir fullvíst að álykt- un skýrsluhöfunda komi sér mjög illa fyrir forsetann er farinn var að ná sér nokkuð á strik eftir að ákveðið var að þeir Mikhail Gor- batsjov sovétleiðtogi ættu með sér fund og undirrituðu sögu- legan afvopnunarsamning. Nú þarf forsetinn að sæta því að nýju að þegnar hans velti því fyrir sér í gríð og erg hvort hann sé lög- brjótur eður ei. í skýrslunni eru ekki birtar ákærur á hendur höfuðpersónum hneykslisdramans, slíkt er í verkahring sérstakrar rannsókn- arnefndar er Hæstiréttur landsins skipaði. Engu að síður eru nöfn þeirra nefnd. Það eru ekki nýjar fréttir að aðalhlutverkin voru í höndum Johns Poindexters aðmíráls og þess nafntogaða ofursta, Olivers Norths. Ennfremur er staðhæft að fyrrum yfirmaður CIA, Wil- Skák Kasparov hikar Ollum að óvörum treysti Garrí Kasparov heimsmeistari í manntafli sér ekki til að tefla 15. skák einvígis síns og Anatólís Karpovs áskoranda í gær. Hann ákvað því að fresta taflmennsku fram á morgundag. Þá mun hann stýra svörtu mönnunum og freista þess að ná skiptum vinningi. Heimsmeistarinn ræddi við fréttamenn spænska sjónvarpsins í gær og baðst velvirðingar á því að hafa ekki látið vaða á súðum í síðustu skákum. Nú væri það áskorandans að taka áhættu og tefla tii vinnings. Þvínæst bætti hann við: „Ég er fullviss um að brátt fer blóðið að streyma enda er það ósk skákáhugamanna.41 Alkunna er að Kasparov hefur nú einn vinning umfram fjanda sinn, sjö og hálfan gegn sex og hálfum. En hann gerði lítið úr þeim ávinningi: „Það skiptir ekki sköpum að hafa eins vinnings forskot. Það er svo lítil forysta að ég verð að fara að öllu með gát.“ -ks. Ítalía Stjómarkreppa leyst Goría heldur velli Francesco Cossiga, forseti Ital- íu, ákvað í gær að verða ekki við lausnarbeiðni Giovannis Gor- ias forsætisráðherra er hann lagði fram fyrir sig og ráðuneyti sitt í fyrri viku. Þess í stað skipaði hann Goria að fara fram á traustsyfírlýsingu ítalska þings- ins. Ákvörðun Cossigas sigldi í kjölfar yfirlýsingar stjórnarflokk- anna fimm um að þeir treystu sér til að leysa ágreining þann um efnahagsstjórn er olli því að for- sætisráðherrann baðst lausnar á laugardag. Samkomulag stjórnarflokk- anna veldur því að atkvæða- greiðslan á þinginu verður aðeins formsatriði enda hafa Kristilegi demókrataflokkurinn, Sósíalista- flokkurinn, Repúblikanaflokk- urinn, Jafnaðarmannaflokkurinn og Frjálslyndi flokkurinn traustan meirihluta fulltrúa á lög- gjafarsamkundunni. -ks. hafi verið einn höfuðpauranna. Edwin Meese, yfirmaður dómsmála- ráðuneytisins, sætir kárínum fyrir að hafa staðið ákaflega illa að frumrannsókn hneykslisins og vekur það spurningar um hæfni hans. En hvað sem öðru líður er ljóst að Reagan hlýtur þyngsta skell- inn þótt enn sé á huldu hvort hann hafi vitað hvað fram fór. Skýrsluhöfundar saka hann nefnilega um að hafa gefið undir- sátum sínum meira og minna frjálsar hendur til starfa og ekki verið með á nótunum. -ks. Fimmtudagur 19. nóvember 1987 ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 11 FLÓAMARKAÐURINN Vandaðir og vel útlítandi hlutir — næstum gefins Ross Bigmouth 100w bassamagn- ari, 100 ára gamall rokkur, eðals- míði, baðskápur með speglahurð- um, 2 baðspeglar, nokkur baðhengi með flúri, borvél með fylgihlutum, strauborð, fatahengi og 2 ferða- töskur. Uppl. gefur Steinn í síma 45755 á kvöldin. Ódýrt rúm og saumavél Til sölu er hjónarúm, svefnherberg- ishúsgögn og Pfaff saumavél í borði. Selst ódýrt. Uppl í s. 42139 e.kl. 17. Viltu læra spænsku eða kataiónsku Spænskur nemi við Háskóla (s- lands vill kenna fólki spænsku og/ eða katalónsku. Vinsamlegast haf- ið samband við Jorge á herbergi nr. 2 á Nýja Garði, sími 625308. Til sölu jólasveinahúfur og jólasveinabúningar Upplýs. í síma 32497 e.kl. 20 á kvöldin. Einstaklingsíbúð óskast sem fyrst í Reykjavík. Upplýs. í síma 32738. Til sölu 10 eldhússtólar, rauðir og skápur (gamall). Uppl. í s. 16502. Saab- bílar og varahlutir Til sölu Saab 99 árg. '75, sjálf- skiptur og Saab 99 árg '77 bein- skiptur. Einnig varahlutir í Saab, m.a. vélar og gírkassar. Hagstætt verð. Uppl. í s. 44503 á kvöldin og um helgar. Fiskartilsölu upplýsingar hjá Einari 686821. sima Tilsölu tveggja borða Winner raf- magnsorgel með fótbassa og skemmtara. Selst ódýrt. Ennig ný- legur körfuhengistóll á statífi. Uppl.s. 72196. Til sölu Einnig furusófasett 3+2. mjög lágu verði. Sími Sófasett Selst á 74929. Tilsölu Eldhúsinnrétting m. helluborði og ofni á vegg og vaski. Selst ódýrt. Sími 71371 eftir kl. 19. Til sölu ódýrt sófasett, sófaborð, svefnbekkur og skrifborð, símaborð og stóll úr tágum. Gefins 2ja sæta sófi og stóll. Sími 71371 eftir kl. 19. Wartburg station selst fyrir lítið í varahluti. 687816. Simi Píanó Ég er ungur maður í söngnámi og mig bráðvantar píanó. Er einhver til í að selja mér afar ódýrt píanó eða jafnvel gefa? Hringið í kvöld eða næstu kvöld í síma 21799. Tómas. Drapplitaður baðvaskur á fæti Verð kr. 1500. Baðskápur með spegilrennihurðum, verð kr. 1000. Borðstofuborð úr tekki, sem er hægt að stækka, verð kr. 2000. 2 borðstofustólar á kr. 1000 stk. Nýr lítill stálvaskur með borði verð kr. 1000. 2 snjódekk 165x13 verð kr. 1000 stk. Sími 76455. Tilsölu Citroen GS '79 skoðaður '87. Vetrardekk fylgja. Verð kr. 50.000. Uppl.s. 11653. Til sölu handlaugarskápur og spegilskápur á baðherbergi, lítið notað. Selst ódýrt. Sími 75262. Til sölu næstum nýr Maclaren Lie flap buggy regnhlífa- kerra með skermi, regnyfirbreiðslu og sólhlíf. Ný kr. 14.000. Selst á kr. 9.000. Sími 17089. 2 snjódekk á felgum 14” og 2 sumardekk Fást fyrir lítið eða ekki neitt ef þau verða sótt. Sími 45530 eftir kl. 19. Bráðvantar eldhúsborð, ekki kringlótt, má vera gamalt, þreytt og slitið auk stóla. Þarf ekki að eiga saman. Uppl.s. 33698 eftir kl. 20. Til sölu lítill ágætur ísskápur Verð kr. 2 þús. Sími 39162 eftir kl. 20. Stúdíóíbúð í hjarta Parísar- borgar nánar tiltekið fimmta hverfi er til leigu frá og með 20. des. nk. til 4. jan. 1988. íbúðinni fylgir eldhús, bað og sími. Uppt.s. 19719. Óska eftir gömlum húsgögn- um silfri, kopar, postulíni og fleira. Uppl.s. 10541 e.kl. 20. Gömul tekkborðstofuhús- gögn óskast keypt á vægu verði. Helst ferkantað stækkanlegt borð og 6-8 stólar. Uppl.s. 46462. Bækur í bráðri hættu Mig vantar tilfinnanlega bókahMlur fyrir bækurnar mínar. Allar stærðir og gerðir koma til greina. Hringið í síma 24269 e.kl.15. Til sölu 3 rafmagnsþilofnar og fataskápur með rennihurðum. Hagstætt verð. Sími 75875. Ódýrvel meðfarinn notaður svefnbekkur til sölu. Uppl.s. 51643 eftir kl. 15. Gefins eldavél, ísskápur. sv/hv sjónvarp og kaffivél (í þokkalegu standi.) Simi 17574.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.