Þjóðviljinn - 19.11.1987, Side 16

Þjóðviljinn - 19.11.1987, Side 16
Aðalsími 681333 Kvöldsími 681348 Helgarsími 681663 þJÓDVIUINN Fimmtudagur 19. nóvember 1987 259. tölublað 52. órgangur Þjónusta íþínaþágu SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF. Hafnarfjörður Sparibaukum stolið Þjófarnir spenna upp lausafög og teygja sig inn ígluggakistu. Tveir þjófnaðir á þriðjudag Töluvert hefur borið á því í Hafnarfirði að undanförnu, að sparibaukum hefur verið stol- ið úr gluggum íbúðarhúsa. Þann- ig hurfu á þriðjudaginn baukar úr að minnsta kosti tveimur íbúð- um. Að sögn Jóhannesar Björg- vinssonar, lögreglumanns í Hafn- arfirði, spenna þjófarnir upp lausafögin og teygja sig inn eftir sparibaukunum. Það er því full ástæða til að vara Hafnfirðinga, og aðra, við að láta sparibaukana standa í gluggakistum. „Þetta kom okkur gersamlega í opna skjöldu,“ sagði foreldri sem missti á þennan hátt tvo spari- bauka á þriðjudag. „Krakkarnir höfðu safnað í baukinn í allt sumar og var ætlunin að setja peningana inn á bankabækur fyrir jól, einsog við höfum gert undanfarin ár. Ætli það hafi ekki verið hátt í tíu þúsund krónur samtals í baukunum.“ Foreldrið sagði að baukarnir hefðu verið hafðir í eldhúsglugg- anum þar sem auðvelt var að tæma klink úr vösum í þá. Auk þess hafa hundrað kallar frá öfum og ömmum lent í baukunum auk peninga sem krakkarnir fengu í afmælisgjöf. Hér var því um tölu- verða upphæð að ræða. „Maður hefði sætt sig við að tapa þessu úr eigin veski en að því sem krakkarnir eru að spara sé stolið er óþolandi." -Sáf Alþingi Álfheiður áþing Alfheiður Ingadóttir tók sæti á Alþingi í gær, sem varamaður Svavars Gestssonar, en Svavar er nú staddur á þingi Sameinuðu þjóðanna í New York. Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, hefur setið í tvær vikur sem varamaður Svavars en Álfheiður mun nú taka við. -Sáf Bræðurnir Jón Múli og Jónas Árnasynir með nýju plötuna sfna. Mynö: Sig.Mar. Það vaxa blóm á þakinu Jón Múli ogJónas á nýrriplötu og Tómas, Eyþór og Gunnlaugur leika Hinsegin blús að er skemmtilegt þegar þrjár kynslóðir sameinast svona í tónlist; ég, Eyþór Gunnarsson og Bjarni Arason, allir saman á plötu. Það er ekkert kynslóðabil lengur, sagði Jón Múli Árnason við Þjóðviljann um nýja plötu með lögum Jóns við texta Jónasar bróður hans, frumraun Almenna bókafélagsins í plötuútgáfu. Á plötu Jóns Mújá og Jónasar er að finna ýmis gömul og góð lög: Vikivaki, An þín, Við heimtum aukavinnu, Einu sinni á ágústkvöldio.íl., öll í nýjum bún- ingi. Eitt splunkunýtt lag er á / plötunni, Pað vaxa blóm á þak-l inu, en sá texti er tekinn og stíl-í færður úr 17. kafla í Höll sumar- landsins eftir Halldór Laxness. ! Söngvarar og hljóðfæraleikar- ar eru ýmsir af okkar fremstu listamönnum; Bubbi Morthens, Ellen Kristjánsdóttir, Bjarni Arason „látúnsbarki“, Sif Ragn- hildardóttir og fleiri, auk bræð- ranna sjálfra. Hin platan sem er að koma út hjá AB heitir Hinsegin blús og er djassplata af bestu gerð með sam- nefndu tríói, skipuðu þeim Eyþóri Gunnarssyni, Tómasi R. Einarssyni og Gunnlaugi Briem, en tónsmiðar eru eftir þa Eyþór og Tómas. Trióið og hjálparmenn þess halda á laugardaginn tónleika í tilefni útgáfunnar í Iðnó. -ns. B-álman Vantar 300 milljónir Heildarkostnaður við B-álmu Borgarspítalans var kominn í tæpar 360 milljónir króna í októ- ber 1986 framreiknað til verðlags október í ár. Þetta kemur fram í svari heilbrigðisráðherra við fyr- irspurn Svavars Gestssonar og Guðrúnar Helgadóttur um álm- una. Framkvæmdafé til B-álmunnar í ár eru rúmar 19 milljónir króna og það tæki fimmtán og hálft ár að ljúka byggingunni ef framlög væru þau sömu, en bygging B- álmu hófst árið 1977. í svari ráðherra kemur fram að í maí sl. hafi verið lögð fram til- laga fyrir stjórn sjúkrastofnana Reykjavíkurborgar þar sem lagt er til að lokið verði við álmuna á næstu þrem árum, 1988-1990. Til að svo megi verða er áætlað að þurfi að verja 100 milljónum króna á ári, þannig að nú vantar um 300 milljónir til að lokið verði við álmuna. f svarinu kemur fram að brýn þörf er á plássi fyrir 354 aldraða einstaklinga og76 hjón. Aukþess eru 276 einstaklingar og 46 hjón á biðlista hjá borginni eftir húsn- æði án þess að þörfin sé mjög ■ brýn. \ -Sáf Fiskiþing „Gengið er fallið“ Bjarni Kr. Grímssonframkvœmdastjóri Þingeyri: Fiskvinnslan þolirþetta ekki lengur. Stundin er runnin upp Menn standa frammi fyrir þremur valkostum: að loka fyrirtækjunum, lækka laun og fiskverð eða í þriðja lagi að stjórnvöld skrái gengið rétt, sagði Bjarni Kr. Grímsson, fram- kvæmdastjóri Hraðfrystihúss Dýrfírðinga, á fiskiþingi í gær, en hann hafði þar framsögu um fastgengisstefnu stjórnvalda. Bjarni benti á að frá því í des- ember 1985 hefði innlendur kostnaður fiskvinnslunnar hækk- að um 85% á sama tíma og gengið lækkaði um 10%. Þá hefði dollar- inn fallið verulega á þessum tíma en um 70% af tekjum frystingar væri í dollurum. - Gengisfelling veitir svigrúm til aðgerða, sem nauðsynlegar eru til að tryggja stöðugleika í framtíðinni, en gengisfelling ein sér læknar ekki vandann, sagði Bjarni og bætti við: „Við stönd- um frammi fyrir þeirri staðreynd í dag að stundin er runnin upp. Fastgengisstefnan er brostin, gengið er fallið.“ -lg. Skák Toppmanna- jafntefli Efstu menn á alþjóðlega Suðurnesjaskákmótinu, Hannes Hlífar Stefánsson og Helgi Ólafs- son, gerðu jafntefli í 9. umferð- inni sem tefld var í gær. Björgvin Jónsson og Norwocd sömdu einnig um skiptan hlut, og Guðmundur Sigurjónsson og Weldon slíkt hið sama. Þröstur Þórhallsson vann Sigurð Daða, en Jóhannes Ágústsson tapaði rir Pyhala. Jacobs vann Davíð lafsson. Fyrir lokaumferðirnar tvær er Helgi efstur með 7 vinninga. Hannes Hlífar og Norwood hafa hlotið 6.5 v. og Þröstur 6.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.