Þjóðviljinn - 22.11.1987, Blaðsíða 20
þJÓÐVILJINN
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
Vantar herslumuninn
Framkvœmdirvið byggingu safnsins hafa legið niðri síðaníjúnívegna
fjárskorfs. O .Johnson 8r Kaaber hafa gefið safninu miljón til þess að
vinna höggmyndina „Sköpun" í marmara
Vinsamlegast sendíð mér........stk. heilsugorm
Nafn.........................................Heimlll
Póstnúmer............................Staður.........
Flaksandi faldar
í nóvemberlok verða þrjár
sýningar á nýjasta verkefni ís-
lenska dansflokksins í Þjóð-
leikhúsinu. Sýningin heitir
Flaksandi faldar, sem eru tvö
ný dansverk eftir Hlíf Svavars-
dóttur, og hollenskan dans-
höfund, Anaelu Linsen. Verk
Hlífar heitir Á milli þagna og
samið við valsastef úr ýmsum
áttum, en verk Angelu heitir
Kvennahjal og er allnýstár-
legt, en þar er dansað eftir ít-
alskri alþýðutónlist, söngli,
Ijóðaflutningi og þögnum.
Ljóð eftir Jón úr Vör erfellt að
verkinu. Búningarerueftir
Sigrúnu Úlfarsdótturen
Sveinn Benediktsson annast
lýsingu.
Það eru dansarar íslenska
dansflokksins sem að þessu sinni
er eingöngu skipaður kvenfólki,
sem dansa í sýningunni. Auk
þeirra dansar María Gísladóttir
en þetta er í fyrsta sinn sem hún
æfir fyrir uppfærslu með flokkn-
um. María dansaði hér síðast sem
gestur er hún var nokkrum sinn-
um í hlutverki Giselle, árið 1982.
En sem kunnugt er hefur hún gert
garðinn frægan sem sólódansari,
bæði í Þýskalandi og Bandaríkj-
unum. Dansarar dansflokksins
að þessu sinni eru: Ásta Henriks-
dóttir, Birgitte Heide, Guðm-
unda Jóhannesdóttir, Guðrún
Pálsdóttir, Helena Jóhannsdótt-
ir, Helga Bernhard, Katrín Hall,
Lára Stefánsdóttir, Ólafía
Bjamleifsdóttir og Sigrún Guð-
mundsdóttir.
Frumsýning verður sunnu-
dagskvöld 22. nóvember en
seinni sýningar 26. nóv. og 28.
nóv. Allar sýningar hefjast kl.
20.30 og miðasala er hafin.
GETUR GERT KRAFTAVERK!
Það verður að segjast eins og
er, að það er þrekvirki sem
Birgitta Spur, ekkja Sigurjóns
Ólafssonar myndhöggvara,
hefur unnið við að skapa lista-
verkum eiginmanns síns
samastaðtilframbúðar. Úr
engum efnum hefur hún
endurbyggtvinnustofu hans
frá grunni og bætt við hana
húsplássi þannig að nú erris-
ið í Laugarnesinu á rústum
þess hermannabragga sem
Sigurjón gerði að heimili sínu
og vinnustofu á sínum tíma,
lítið listasafn sem verða mun
sönn borgarprýði og skapa
mun verkum listamannsins
verðugan samastað til fram-
búðar, borgarbúum og öðrum
listunnendum til ánægju og
yndisauka.
Blaðamönnum var í vikunni
boðið að skoða árangur þeirrar
vinnu, sem staðið hefur yfir með
hléum frá 1985, og er endurbygg-.
ing vinnustofu Sigurjóns nú tilbú-
in undir innra tréverk, ásamt með
glerskála og öðrum viðbygging-
um. Er fyrirsjáanlegt að safnið
stofnaður sérstakur styrktarsjóð-
ur til uppbyggingar safnsins, og
hefur hann staðið fyrir um það bil
2/3 hluta kostnaðar við uppbygg-
inguna til þessa. Önnur framlög
hafa komið frá ríki og bæ. Til
verksins hefur nú verið varið um
10 milj. króna á núvirði, og er
áætlað að um 8-9 miljónir króna
vanti til að ljúka verkinu. Skuldir
safnsins nema í dag um 3 miljón-
um króna.
Það eru áform safnstjórnarinn-
ar að framkvæmndir hefjist á ný í
safninu eftir áramótin, svo að
unnt verði að vígja það þann 21.
október 1988, en þann dag verða
80 ár liðin frá fæðingu Sigurjóns.
Til þess að svo megi verða þarf að
koma til myndarlegt átak borgar-
innar, ríkisins og annarra velunn-
ara safnsins, sem reyndar hafa
sýnt þessu framtaki mikinn
stuðning þegar. Hefur styrktar-
sjóðurinn meðal annars verið
fjármagnaður með sölu á af-
steypum af verkum Sigurjóns, en
Birgitta Spur sagði að sú ákvörð-
un hefði verið tekin að selja ekki
frummyndir úr safninu, nema til
opinberra aðila. Meðal fjöl-
margra sem sýnt hafa safninu
rausnarskap er fyrirtækið O.
Johnson & Kaaber hf., sem á-
kvað það á 80 ára afmæli fyrir-
tækisins á síðasta ári að verja ein-
ni miljón króna til þess að láta
vinna höggmyndina Sköpun í
marmara og velja henni stað í
höggmyndagarði safnsins. Er
gjöf þessi jafnframt gjöf til borg-
arbúa í tilefni 200 ára afmælis
höfuðborgarinnar.
Birgitta Spur sagði að þótt Sig-
urjónssafn væri að forminu til
einkasafn, þá væri nú í undirbún-
ingi að koma því í kring, að safnið
geti í framtíðinni orðið eign ríkis-
ins og Reykjavíkurborgar. Er
þess að vænta að ríki og borg taki
nú við sér og leggi þessu þjóðþrif-
afyrirtæki myndarlegt lið.
-ólg
AÐEINS
i*
STÆLIR
mjaðmir og læri, brjóst og arma, maga og mitti - og allt hitt á aðeins 5
mínútum á dag.
Þú gerir æfingamar heima - sparar tíma og peninga. 5 mínútur á dag með
heilsugorminum jafnast á við að hjóla 6 km! Svo getur þú aftur farið í þröngu
gallabuxumar, stuttbuxurnar og sundbolinn með fullu sjálfstrausti.
PANTIÐ í TÍMA í BOX 8600
128 Reykjavík KLIPPIÐ
Birgitta Spur við verkið „Sköpun“ sem verður unmð i marmara.
verður hin ákjósanlegasta um- þess sem safnbyggingin mun
gerð um listaverk Sigurjóns, auk auka mjög við gildi staðarins, en
Laugarnesið er nú eini staðurinn
á strandlengjunni út á Viðeyjar-
sundið, sem ekki hefur verið
lagður undir hraðbrautir, verk-
smiðjur, vöruhús og hafnar-
mannvirki. Þá verður sýningars-
alurinn einnig tilvalinn til þess að
hýsa minni tónleika og menning-
arviðburði, en gert hefur verið
ráð fyrir því við endurbygging-
una. Úr glerskála listasafnsins,
þar sem fyrirhugað er að reka
kaffistofu, munu gestir fá útsýni
yfir sundin, sem á sér ekki sinn
líka í höfuðborginni.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
var stofnað af Birgittu Spur 1.
desember 1984 í þeim tilgangi að
búa í haginn fyrir það mikla safn
listaverka, sem Sigurjón Ólafs-
son lét eftir sig. Var um leið