Þjóðviljinn - 25.11.1987, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 25.11.1987, Blaðsíða 6
LANDSBYGGÐIN 1§| Styrkir tii háskólanáms í Finnlandi, Noregi og Svíþjóð 1. Finnsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa (slending- um til háskólanáms eða rannsóknastarfa í Finn- landi námsárið 1988-89. Styrkurinn er veitturtil níu mánaða dvalar og styrkfjárhæðin er 1.500-2.200 finnsk mörk á mánuði. 2. Sænskstjórnvöld bjóðafram styrk handa íslendingi til háskólanáms í Svíþjóð námsárið 1988-89. Styrkfjárhæðin er 3.880 s.kr. á mánuði í 8 mánuði. - Jafnframt bjóða sænsk stjórnvöld fram þrjá styrki handa íslendingum til vísindalegs sérnáms í Sví- þjóð á sama háskólaári. Styrkirnir eru til 8 mánaða dvalar, en skipting í styrki til skemmri tíma kemur einnig til greina. - Ennfremur gefst íslenskum námsmönnum kostur á að sækja um styrki þá, er sænsk stjórnvöld bjóða fram í iöndum þeim, sem aðild eiga að Evrópuráðinu, en þeir styrkir eru ein- göngu ætlaðir til framhaldsnáms við háskóla. 3. Norsk stjórnvöld bjóða fram styrki handa erlendum ungmennum til námsdvalar við norska lýðháskóla eða menntaskóla skólaárið 1988-89. Ekki er vitað fyrirfram hvort nokkur styrkjanna kemur í hlut ís- lendinga. Styrkfjárhæðin á að nægja fyrir fæði, húsnæði, bókakaupum og einhverjum vasapening- um. - Umsækjendur skulu eigi vera yngri en 18 ára og ganga þeir að öðru jöfnu fyrir sem geta lagt fram gögn um starfsareynslu á sviði félags- og menning- armála. Umsóknum um framangreinda styrki skal komið til menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 15. janúar n.k., á sérstökum eyðu- blöðum sem þar fást. Umsóknum fylgi staðfest afrit prófskírteina ásamt meðmælum. Menntamálaráðuneytið, 23. nóvember 1987 Barnaheimili í Vogahverfi Dagheimilið Sunnuborg, Sólheimum 19, óskar eftir fóstrum, uppeldismenntuðu fólki og aðstoð- arfólki til starfa í 100% og 50% stöður. Upplýsingar í síma 36385. Jfl REYKJKtfÍKURBORG Skrifstofumaður óskast hjáskráningadeildfasteignaog húsatryggingum. Starfið er fólgið í almennri afgreiðslu og færslum á tölvu. Upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 10190 og 18000. Hafnarfjörður Víðivellir Starfsmaður, karl eða kona, óskast strax í 50% starf tímabundið. Allar nánari upplýsingar veitir Þórelfur Jónsdóttir forstöðumaður í síma 52004. Félagsmálastjórinn í Hafnarfirði löS alla virk ■2*9? frá kt. 15 ' 18.30 ÚTVARP Mjolmsholti 14 Brautarholti 3 Simi 62 36 10 (tvær linur) i Elarn situr þægilega uggt í barnabílstól ið á það skilið! mÍUMFERÐAR Uráð Hagsmunasamtök hrossabænda 350 félagar í átta félagsdeildum Félag hrossabænda var stofnað 19. aprfl 1975. Það er opið öllum sem stunda vilja hrossarækt og markmiðið er að „móta sölu- markað fyrir hross og hrossaaf- urðir” eins og segir í lögum félags- ins. Meginástæðan fyrir stofnun félagsins var sú að hrossabændur töldu að hagsmunamálum þeirra væri ekki nægur gaumur gefinn og útflutningur reiðhrossa því á undanhaldi. Sölumál hrossa- bænda nytu ekki sömu umfjöll- unar og annarra búgreina. Ekk- ert verð fékkst fyrir húðir og inn- mat. Sölufyrirtækin verðlögðu hrossakjöt nánast fyrir aftan bak. Verðið hjá fyrirtækjunum var mismunandi og greiddist gjarnan á hálfu öðru ári, vaxtalaust. Kjöt- ið naut ekki afurðalána, niður- greiðslna né útflutningsuppbóta. Óseljanlegar birgðir hlóðust upp. Þessu hefur nú smátt og smátt verið kippt í lag fyrir atbeina fé- lagsins. Félag hrossabænda er nú eitt af 11 búgreinafélögum landbúnað- arins, á aðild að Stéttarsambandi bænda og tekur því fullan þátt í umfjöllun og mótun landbúnað- armála. Það starfar í 8 félags- deildum sem allar hafa sínar sér- stöku stjórnir. Félagar eru um 350. Deildirnar eru þessar: Vestur-Skaftafellssýsla, Rang- árvallasýsla, Árnessýsla, starfs- svæði Hrossaræktarsambands Vesturlands, Vestur-Húnavatns- sýsla, Austur-Húnavatnssýsla, Skagafjarðarsýsla, Eyjafjarðar- og Þingeyjarsýslur. Aðalfundur félagsins er hald- inn í nóv.-des. Þar mæta kjörnir fulltrúar deildanna, 3-5 eftir fjölda félagsmanna í hverri deild. Kjörnir fulltrúar einir hafa at- kvæðisrétt en allir félagsmenn hafa málfrelsi og tillögurétt. Fundurinn kýs 5 manna aðal- stjórn og5 til vara. Aðalstjórnina skipa nú: Einar E. Gíslason, Syðra Skörðugili í Skagafirði for- maður, Leópold Jóhannesson, Hraunbæ Borgarfirði gjaldkeri, Grímur Gíslason, Blönduósi rit- ari, og meðstjórnendur eru þeir Kjartan Georgsson, Ólafsvöll- um, Árnessýslu og Þórir ísólfs- son, Lækjamóti í Vestur- Húnavatnssýslu. Stjórnin skipar 5 manna markaðsnefnd sem vinnur að einstökum málum f samráði við stjórnina. Formaður nefndarinnar er sr. Halldór Gunnarsson, Holti undir Eyja- fjöllum. í febrúar ár hvert er útbúin söluskrá yfir reiðhross. Þar er að finna upplýsingar um hrossið, fæðingarstað, aldur, kyn, lit og ætt, ásamt gæðum og verðflokki. Er skráin miðuð jafnt við inn- lenda sem erlenda kaupendur. Ákveðið lágmarksverð er á ætt- bókarfærðum hryssum og stóð- hestum og er forsenda fyrir út- flutningsleyfi. Félagið hefur tekið að sér að safna útflutnings- hrossum saman, sér um gæslu á þeim og útskipun. Til þess að geta tekið á móti hrossunum og annast þau hefur félagið samið við eigendur jarðarinnar Litla- Saurbæjar í Ölfusi um aðgang að jarðnæði og afnot af hesthúsi, sem félagið sá um innréttingu á. Sams konar aðstöðu hefur félagið á Kröggólfsstöðum í Ölfusi. Hrossunum er skipað út í Þor- lákshöfn. - nihg K.S. Sauðárkróki Haustslátrun nam 42.648 Haustslátrun sauðfjár hjá Kaupfélagi Skagfirðinga lauk þann 16. okt. Alls var lógað 43.003 fjár. Meðalþungi dilka var 14,534 kg á móti 14,243 kg haust- ið áður. Alls komu til innleggs 36.537 dilkar. Nam fallþungi þeirra 530 tonnum. Auk þess var lógað 6.111 kindum fullorðnum. Af þeim komu til innleggs 2.133 kindur en 1.451 kind var lógað vegna leigu og kaupa á fullvirðisrétti á vegum fram- kindum leiðnisjóðs og vegna fækkunar- samninga, og 2.452 kindum vegna riðuniðurskurðar. Mis- munurinn, 75 stk., var heimtekið og sjúkt. Samkvæmt lögum frá 1985 ber að greiða innleggjendum 75% af haustgrundvallarverði eigi síðar en 15. okt. Nam sú greiðsla fyrir ofangreint innlegg viðskipta- manna Kaupfélagsins rúmlega 111 milj. kr. Hefur það fé nú ver- ið fært inn í viðskiptareiknin innleggjanda. - mhg Æskulýðsfulltrúi Verði raðinn á Vestijöiðuni „Hliðstætt embætti er nú til á Austfjörðum. Verður því ekki trúað að óreyndu að Alþingi geri svo upp á milli þessara lands- hluta, að hafna óskum þjóðkirkj- unnar um sambærilegt embætti á Vestfjörðum.“ Svo segja Kirkjuþingsfulltrúar Vestfirðinga, sr. Lárus Þ. Hall- dórsson og Gunnlaugur Finns- son, en þeir fluttu tillögu á Kirkjuþingi um að í samráði við Samstarfsnefnd Alþingis og þjóðkirkjunnar, verði stofnað embætti æskulýðsfulltrúa á Vest- fjörðum, með aðsetri á ísafirði. Bent er á að eðlilegt sé að æsku- lýðsfulltrúar út um land vinni undir yfirstjórn æskulýðsfulltrúa Þjóðkirkjunnar á Biskupsstofu og að þeim, hverjum fyrir sig, verði falin afmörkuð störf í þágu æskulýðsmála landsins alls. Kirkjuþing samþykkti til- löguna. - mhg 6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Mi&vikudagur 25. nóvember 1987

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.