Þjóðviljinn - 08.12.1987, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 08.12.1987, Blaðsíða 3
Handbolti Island hafnaði í 3. sæti Konráð Olavsson var markahæstur fslendinganna með 10 mörk. Handbolti/U-21 árs Vantaði tvö mörk ísland komst ekki áfram eftir tap gegn Ungverjum. Skellurinn gegn Sovétmönnum dýrkeyptur Það vantaði sorglega lítið uppá að Isiendingar hefðu komist áfram í milliriðii á Heimsmeistar- amótinu í handknattleik U-21 árs. Islendingar mættu Ungverjum í síðasta leik og máttu tapa með einu marki. Það gekk þó ekki því Ungverjar sigruðu 30-33. „Það er óneitanlega ferlega svekkjandi að falla svona út og ástæðan er að sjálfsögðu stóra tapið gegn Sovétmönnum,“ sagði Einar Einarsson fyrirliði U-21 árs liðsins eftir leikinn gegn Ungverj- um. Lokastaðan f 3. riðll: Sovétríkin.....3 3 0 0 79-57 6 Noregur........3 1 0 2 63-68 2 Ungverjaland...3 1 0 2 78-85 2 Island.........3 1 0 2 70-80 2 „Það er alltaf hægt að segja ef, en Héðinn og Jón hefðu án efa getað breytt þessu. Okkur vant- aði tilfinnanlega fleiri menn og vont að geta ekki skipt þegar við vorum orðnir þreyttir.“ Byrjun leiksins lofaði góðu. ís- lendingar áttu í fullu tré við Ung- verjana og leikurinn var jafn framan af. Ungverjar leiddu þó í leikhléi, 12-14. Það gekk hinsvegar ekki jafn vel í síðari hálfleik. Ungverjar náðu fimm marka forskoti 16-21 og mestur varð munurinn sjö mörk, 21-28. íslendingartóku við sér í lokin, en vantaði töluvert uppá að ná að minnka muninn í eitt mark. Það var reyndar mark- maðurinn Guðmundur A. Jóns- son sem skoraði síðasta markið, yfir allan völlinn. „Það er hræðilegt að skora 30 mörk, en tapa samt,“ sagði Frið- rik Guðmundsson fararstjóri ís- lenaka liðsins. „Við eigum þó þrjá leiki eftir sem við ætlum að standa okkur í. Við mætum A- Þjóðverjum, S-Kóreu og Kuwait. Þetta eru sterkar þjóðir, en við ætlum okkur sigur í þessum leikjum." Mörk islands: Konráö Olavsson 10, Stefán Kristjánsson 6, Árni Friðleifsson 4, Gunnar Beinteinsson 3, Sigurður Sigur- jónsson 3, Skúli Gunnsteinsson 2, Einar Einarsson 1 og Guðmundur A. Jónsson 1. -Jbe íslendingar leiddu nær allan leikinn, en tókst ekki að hrista Norðmenn af sér. í hálfleik var munurinn eitt mark 13-12. íslendingar héldu 2-3 marka mun í síðari hálfleik, en á loka- rnínútunum gekk ekkert upp og norskur sigur því staðreynd. íslendingar léku ágætlega, en það var sem sigurviljann vantaði. Lítil barátta var í liðinu. Sóknar- leikurinn var þokkalegur, en gekk að mestu út að skytturnar. fslendingar fóru illa með góð færi og misnotuðu t.d. þrjú hraða- upphlaup í síðari hálfleik. Vörn- in, sem lék framarlega, var hins- vegar ekki sannfærandi og Norð- menn gengu þar nokkuð frjáls- lega í gegn. Páll Ólafsson átti góðan leik og var á fullri ferð allan leikinn. Kristján Arason og Alfreð Gísla- son áttu einnig ágætan leik, eink- Evrópukeppni Oruggt hjá Itölum Sigruðu varalið Portúgal Vinningstölur 5. desember 1987 Heildarvinningsupphæð: Kr. 5.451.823,- 1. vinningur var kr. 2.729.176,- Þar sem enginn fékk fyrsta vinning, færist hann yfir á fyrsta vinning í næsta útdrætti. 2. vinningur var kr. 818.532,- og skiptist hann á 477 vinningshafa, kr. 1.716,- á mann. 3. vinnlngur var kr. 1.904.115,- og skiptist á 10.405 vinningshafa, sem fá 183 krónur hver. Tvöfaldur 1. vinningur næsta laugardag! im%§532 Upplýsingasimi: 685111. ítalir sigruðu varalið Portúg- ala, 3-0, í leik þjóðanna í 2. riðli Evrópukeppninnar. Leikurinn hafði enga þýðingu því ítalir höfðu þegar tryggt sér sæti í lok- akeppninni í V-Þýskalandi á næsta ári. Með þessum sigri geta ítalir þó verið vissir um að hafna í 2. styrkleikaflokki þegar dregið verður í riðla. Það leit reyndar ekki út fyrir svo stóran sigur. Gianluca Vialli náði forystunni fyrir Ítalíu á 8. mínútu. Þannig var staðan allt þartil tveimur mínútum fyrir leikslok. Þá skoraðu Ítalír tvö mörk á tveimur mínútum. Þar voru að verki Giuseppi Giannini og Luigi de Agostini. Porto lék án Paulo Futre og sjö leikmanna úr liði Evrópumeistar- anna, Port. Þeir gáfu ekki kost á sér, enda á lið þeirra mikilvægan leik fyrir höndum gegn Penarol frá Uruguay. Síðan Azeglio Vicini tók við ít- alska liðinu, eftir heimsmeistar- akeppnina 1986, hefur liðið leikið þrettán leiki og aðeins tap- að einum leik. Staðan f 2. riðli: Italía.............8 6 1 1 16-4 13 Svíþjóð.............8 4 2 2 12-5 10 Sviss................8 1 5 2 9-9 7 Portúgal.............7 1 4 2 5-8 6 Malta................7 0 2 5 4-20 2 -Ibe/Reuter J 10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 8. desember 1987 Frá Baldri Pálssyni, fréttamanni Þjóðvilj- ans í Noregi: Það vantaði ekki mikið uppá að íslendingar höfnuðu í 2. sæti í Lottó-mótinu í Noregi. Til þess hefðu þeir þurft að sigra Sviss með fímm marka mun. Það leit lengi vel út fyrir að það tækist, en óheppni á lokamínútunum gerði út um um þann möguleika. Leiknum lauk með sigri Islands, 24-21, en Sviss hafnaði í 2. sæti. Það er vart hægt að segja að heppnin hafi verið með Islend- ingum í tveimur síðustu leikjum mótsins. Fyrsta tap gegn Norð- mönnum og svo sigur yfir Sviss, en ekki nógu stór. Það leit vel út í upphafi. íslend- ingar náðu þriggja marka for- skoti og þrátt fyrir að Svisslend- ingar næðu að minnka muninn annað slagið var hann þrjú mörk í leikhlé, 12-9. Síðari hálfleikurinn lofaði góðu framan af. Þá gekk mjög vel. Vörnin small saman og hraðaupphlaupin gengu snuðru- laust fyrir sig. Á þessum kafla náðu íslendingar sex marka for- skoti. Það stóð þó ekki lengi því Svisslendingar lifnuðu við og minnkuðu muninn í eitt mark, 18-17. Þá komu tvö mörk frá ís- lendingum og munurinn því þrjú mörk, 20-17. íslendingar héldu þriggja marka mun og náðu að bæta marki við. Þegar skammt var til leiksloka var staðan 24-20, ís- lendingum í vil og þeir með bolt- ann. Sóknin gekk ekki upp og eftir langa sókn skoruðu Sviss- lendingar. Þá voru aðeins fimm sekúndur eftir og úrslitin ráðin. íslenska liðið lék þokkalega, en eins og í svo mörgum leikjum mótsins var eins og vantaði að- eins meiri kraft. Liðið lék á Handbolti Tap gegn Norðmönnum Sigurmarkið á lokasekúndunum Frá Baldri Pálssyni, fréttamanni Þjóðvilj- ans í Noregi: Það benti flest til þess að íslend- ingar myndu vinna sannfærandi sigur yfir Norðmönnum í næst síðasta leik Lottó-mótsins í Nor- egi. Þegar fímm mínútur voru til leiksloka var staðan 23-21, ís- lendingum í vil, en eftir það náðu þeir ekki að skora, en Norðmenn skoruðu þrjú mörk og sigruðu 24- 23. Síðasta markið kom á loka- sekúndum leiksins og fögnuður Norðmanna mikill. um þó í fyrri hálfleik. Þá var Geir Sveinsson sterkur í vörninni. Mörk íslands: Páll Ólafsson 7, Krlstján Arason 6, Alfreð Gíslason 5, Guðmundur Guðmundsson 2, Bjarni Guðmundsson 2 og Þorgils Óttar Mathiesen 1. köflum mjög vel, en þess á milli komu slæmir kaflar þar sem ekk- ert gekk upp. Alfreð Gíslason átti mjög góð- an leik og skoraði 11 mörk. Einar Þorvarðarson varði vel í fyrri hálfleik og Þorgils Óttar Mathie- sen átti einnig góðan leik. Mörk íslands: Alfreð Gíslason 11, Guð- mundur Guðmundsson 3, Þorgils Óttar Mathiesen 3, Bjarni Guðmundsson 2, Kristján Arason 2, Páll Ólafsson 1, Jakob Sigurðsson 1 og Atli Hilmarsson 1. Körfubolti Ömggur sigur Vals Tveir góðir kaflar tryggðu Valsmönnum öruggan sigur yfír IR, 73-50. Leikurinn var jafn, en fímmtán stig í röð frá Vals- mönnum gerðu útslagið. Leikurinn var jafn og ótrúlega Valshúsiö 6. desember Valur-ÍR 73-50 (34-28) 3-0, 9-4, 18, 23-12, 25-21, 32-23, 34-28,36-28,40-30,40-36,55-36,55- 40, 59-44, 72-44, 73-50. Sttg Vals: Leifur Gústafsson 16, Torfi Magnússon 14, Tómas Holton 13, Bjöm Zoega 10, Jóhann Bjama- son 8, Einar Ólafsson 5, Svali Björg- vinsson 5 og Páll Arnar 2. Stig (R: Björn Leósson 16, Kristinn Jörundsson 12, Björn Steffensen 6, Karl Guðlaugsson 6, Jón örn Guð- mundsson4, Björn Bollason2, Halldór Hreinsson 2 og Vignir Hilmarsson 2. Dómarar: Jóhann Dagur Björnsson og Kristbjörn Albertsson - þokkalegir. Maður lelksins: Torfi Magnússon, Val. hraður. Boltinn gekk á milli svo minnti helst á borðtennis! Hittni var slök og sést það best á hálf- leikstölunum, 34-28. Það var svo um miðjan síðari hálfleik að Valsmenn tóku við sér. Þeir breyttu stöðunni úr 40- 36 í 55-36 og segja má að þarmeð hafi úrslitin verið ráðin. Vals- menn tóku svo annan svona sprett og skoruðu þá þrettán stig í röð. Sú örlitla spenna sem eftir var hvarf þá með öllu. Valsmenn léku á köflum þokkalega, en gerðu mikið af mistökum. Torfi Magnússon átti góðan leik og einnig Leifur Gúst- afsson. Tómas Holton stóð sig einnig vel þrátt fyrir að vera nokkuð mistækur. Hjá ÍR voru það helst Björn Leósson og Kristinn Jörundsson sem stóðu uppúr. -Ibe Pólmar Slgurðsson og Matthías Einarsson léku báðir vel í leiknum, en Pálmar hrósaði sigri að lokum. Mynd: Atli. Körfubolti Spenna í Haukasigri Sigruðu KR-inga með einu stigi Þrátt fyrir slaka hittni beggja liða var leikur Hauka og KR einn af þeim betri sem þessi lið hafa sýnt. Leiknum lauk með sigri Hauka, 71-70, en það var ívar Webster sem skoraði sigurkörf- una tólf sekúndum fyrir leikslok. Það stefndi allt í öruggan sigur Hauka. Þeir höfðu þrettán stiga forskot þegar fimm mínútur voru til leiksloka, 66-53 og eftir hitt- ninni í öðrum hluta leiksins var ekki við því að búast að KR- ingum tækist að vinna þennan mun upp. Það gerðu þeir þó og þegar rúmar tvær mínútur voru til Íeiksloka var staðan 68-68. Birgir Mikalesson kom KR-ingum yfir 70-69 þegar mínúta var til leiks- loka, en þegar tólf sekúndur voru til leiksloka skoraði ívar eftir vel útfærða sókn Hauka. KR-ingar höfðu því tólf sekúndur til að jafna, en létu taugarnar fara með sig og voru ekki sérlega nálægt því að nái að jafna. Þessi lið hafa ekki leikið jafn vel og búist var við. Bæði hafa þau fengið lykilmenn að nýju, Haukar fengu ívar Webster og KR-ingar Birgi Mikaelsson, en þrátt fyririþað er eins og neistann vanti. Bæði liðin léku þó þokkalega, Hafnarfjörður 5. desember Haukar-KR 71-70 (36-29) 2-5, 6-6, 18-12, 31-24, 36-29, 44- 42,51 -50,66-53,68-58,68-68,69-68, 69-70. 71-70. Stig Hauka: Pálmar Sigurðsson 21, Henning Henningsson 14, Sveinn Steinsson 12, Trvggvi Jónsson 11, Ivar Webster 7 og Ivar Ásgrimsson 6. Stlg KR: Birgir Mikaelsson 23, Guðni Guðnason 15, Matthías Einars- son 12, Ástþór Ingason 7, Símon Ól- afsson 6, Jón Sigurðsson 4, Árni Blöndal 2 og Guðmundur Jóhannsson 1. Dómarar: Kristinn Albertsson og Sigurður Valgeirsson - góðir. Maður leiksins: Pálmar Sigurðs- son, Haukum. en ekki meira en það. Varnirnar voru sterkar, en sóknarleikurinn frekar vandræaðalegur og hittni í lágmarki. Pálrnar Sigurðsson lék með Haukum þrátt fyrir að vera ekki búinn að ná sér að fullu eftir meiðsli. Hann stóð sig mjög vel og hefur greinilega mjög góð áhrif á liðið. ívar Webster og Tryggvi Jónsson áttu einnig góð- an leik og Sveinn Steinsson stóð sig mjög vel. Birgir Mikaelsson var atkvæð- amestur KR-inga. Hann lék vel og er greinilega sterkari eftir að hafa leikið í Bandaríkjunum. Guðni Guðnason átti einnig góð- an leik, en hefði mátt sjást meiri og Matthías Einarsson stóð sig mjög vel. Þessi lið koma líklega til með að berjast um sæti í úrslitakeppn- inni og þessi sigur Hauka því mjög mikilvægur. -Ibe E&varft Þór Eövarftsson á fullri ferð í baksundi. hann vann besta afrek mótsins. MyndtAtli. Sund Ægir bikarmeistari Sigraði eftir spennandi keppni við Vestra. Eðvarð og Ragnheiður unnu bestu afrekin. Tvö íslandsmet í boðsundi Þessi tvö lið voru í neðstu sætunum frá upphafi, en vantaði ekki mikið úppá að ná í skottið á Njarðvíkingum sem höfnu- ðu í 4. sæti. Þar munaði mikið um Eð- varð Þór Eðvarsson og Ragnheiði Run- ólfsdóttir. f stað HSK og Bolungarvík koma SH og KR, en þessi lið höfnuðu i efstu sætum þegar keppt var í 2. deild um þarsíðustu helgi. Ægir sigraði í Bikarkeppni Sunds- ambands íslands um helgina, eftir spennandi keppni við bikarhafana, Ve- stra. Keppt var eftir nýju kerfi og jók það spennuna, en árangur var ágætur, m.a. tvö Islandsmet í boðsundi. Keppni var skemmtileg og mjög spennandi á köflum. Samkvæmt nýju stigakerfi er það tíminn sem gildir og ekki aðeins röð einstaklinga. Þá má hver keppandi aðeins keppa í þremur grein- um. Það er því frekar spurning um mestu breiddina, en bestu einstakling- ana, þó þeir hafi haft mikið að segja. Ægir náði forystunni strax í upphafi, eftir mjög góða byrjun og eftir fyrri dag- inn munaði rúmlega 1100 stigum á Ægi og Vestra. Þessi munur hélst allan tím- ann, en ekki mátti miklu muna og þegar tvær greinar voru eftir átti Vestri enn möguleika á að endurheimta titilinn. Það tókst þó ekki. HSK og Bolungarvík féllu í 2. deild. Tvö Islandsmet Það var ekki fyrr en í tveimur síðustu greinunum að íslandsmetin litu dagsins ljós. Þá var keppt í boðsundsgreinum. A-sveit Vestra setti íslandsmet í 4x100 metra fjórsundi kvenna. Þær syntu á 4.41.61 mínútum, en gamla metið var 4.41.96 mínútur. Strax í næsta sundi á eftir kom annað íslandsmet. A-sveit Ægis setti ísland- smet í 4x100 metra skriðsundi á 3.44.71 mínútum. Þá voru einnig sett tvö drengjamet og eitt telpnamet. Ársæll Bjarnason Ægi setti drengjamet í 200 metra skriðsundi á 2.03.11 mínútum og í 100 metra skrið- sundi á 56.92 seúndum. Björg Jónsdóttir, UMFN setti telpna- met í 100 metra baksundi á 1.11.79 mín- útum. Eðvarð Þór Eðvarðsson átti besta afr- ek mótsins í karlaflokki. Hann synti 100 metra baksund á 58.32 sekúndum. Það gefur 849 stig, samkvæmt alþjóðlegum mælikvarða. Ragnheiður Runólfsdóttir náði besta árangri kvenna. Hún synti 100 metra bringusund á 1.13.97 mínútu og það gaf 788 stig. Lokastaðan 1. Ægir............................25.489 2. Vestri. .. 3. lA..... 4. UMFN.... 5. HSK..... 6. Bolungarvík ...24.335 ...23.714 ...20.623 ...18.564 ...17.285 -4be V-Þýskaland Bremen á toppnum í jólafrí Hefur tveggja stigaforskot og leik tilgóða. Óvœntur sigur Kaiserslautern. Uerdingen ífallsœti silíumaðurinn Tita sem átti stærstan þátt Frá Jóni H. Garðarssyni, fréttamanni Þjóðviljans I V-Þýskalandi: Werder Bremcn getur slakað á í jól- afriinu eftir sigur yfír Karlsuhe, 0-2 á útivelli. Bremen er í efsta sæti með tveggja stiga forskot og leik til góða. Það hjálpaði þeim mikið að Kaiserslautern kom mjög á óvart með yfirburðasigri yfir Köln, 3-0. Sigur Bremen var mjög öruggur, þrátt fyrir að liðið hafi aðeins skorað tvö mörk. Það var Frank Neubarth sem skoraði bæði mörkin, en Karlsruhe náði aldrei að ógna marki Bremen. Kaiserslautern hefur gengið mjög vel eftir að liðið rak þjálfara sinn. Sigur þeirra yfir Köln kom á óvart, enda hefur Köln verið í efstu sætunum á meðan Kaiserslautern hefur blandað geði við botnliðin. Harald Kohr náði forystunni fyrir Kauserslautern með laglegri hæl- spyrnu og þeir Frank Hartmann og Sergio Allievi bættu tveimur mörkum við. Það gengur hinsvegar ekkert hjá Uer- dingen þrátt fyrir að þjálfari liðsins hafi verið rekinn. Liðið tapaði nú fyrir Gla- dbach, 2-4. Uwe Rahn lék með Glad- bach, öllum að óvörum, en fæstir áttu von á því að hann færi á fætur fyrir jól eftir slæm meiðsli. Hann skoraði tvö mörk fyrir Gladbach og Hans Jörg Cri- ens skoraði einnig tvö mörk. Það voru svo bræðurnir í liði Uerdingen, Wolf- gang og Frieden Funkel sem minnkuðu muninn. Stuttgart tapaði fyrir Núrnberg, 0-1 í jöfnum leik. Það var fyrst og fremst frá- bær markvarsla Andreas Köppke sem hélt Núrnberg á floti. Hann varði meistaralega, en það var Dieter Ecks- tein sem skoraði mark Núrnberg. Það voru aðeins 36.000 áhorfendur á leik erkifjendanna Hamburg SV og Ba- yern Múnchen sem lauk með jafntefli, 2-2. Það hefur verið uppselt á leiki þess- ara liða, en liðin hafa ekki náð sér á strik. Það var Klaus Augenthaler sem náði forystunni fyrir Bayern. Hann fékk bolt- ann á miðjum vellinum og lék á rangs- töðugildru HSV og skoraði auðveld- lega. Thomas Von Heesen og Thomas Kroth komu HSV yfir, en Lothar Matt- haus jafnaði fyrir Bayern á 75. mfnútu. Leverkusen hélt sér í efri hluta deildarinnar með heppnissigri yfir Homburg, 2-1. Það var sem fyrr Bra- í sigri Leverkusen. Hann skoraði fyrra markið beint úr aukaspyrnu, en Falko Götz skoraði sfðara markið. Pólverjinn Wojoricki minnkaði muninn fyrir Homburg sem sótti stíft síðustu mínút- urnar. Úrslit i Bundesligunni: Dortmund-Mannheim... 0-1 Kaiserslautern-Köln 3-0 Bochum-Frankfurt 1-0 Uerdingen-Gladbach... 2-4 Stuttgart-Nurnberg 0-1 Hamburg SV-Bayern Munchen.... 2-2 Karlsruhe-WerderBremen... 0-2 Leverkusen-Homburg.. 2-1 Hanover-Schalke 3-1 Bremen .. 18 13 4 1 32-9 30 Köln .. 19 11 6 2 32-14 28 Bayern Múnchen .. 19 13 1 5 44-27 27 Gladbach .. 19 12 2 5 41-28 26 Núrnberg .. 19 9 6 4 30-16 24 Stuttgart .. 19 8 5 6 41-28 21 Leverkusen .. 19 6 7 6 27-27 19 HamburgSV .. 19 6 6 7 34-42 18 Frankfurt .. 19 7 3 9 30-29 17 Mannhelm .. 19 5 7 7 22-30 17 Karlsruhe .. 19 6 4 9 23-37 16 Kaiseriautern .. 19 6 3 10 30-37 15 Hanover .. 19 6 3 10 27-34 15 Dortmund .. 18 4 5 9 29-30 13 Bochum .. 18 4 5 9 23-32 13 Schalke .. 18 5 3 10 25-40 13 Uerdingen .. 19 5 3 11 25-35 13 Homburg .. 19 3 7 9 25-39 13 Þrlftjudagur 8. desember 1987 ÞJÓOVILJINN - SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.