Þjóðviljinn - 26.01.1989, Síða 1
póði
í*1** „..-.fe'Ssíí
Breyli-Sf f/g'ir. Á"“^1,pphal,'i‘‘rJíto W"a '
ssS&sS^feSæfc1
Utgerðarbankastjóri
Fimmiuda&tjr 26. ianúar 1989 18. tólublað 54. árgangur
Sverrir
.. fuL
Ogurvík
Launavísitala
ASÍ á móti
Torveldar samningsgerð
án þess að létta skulda-
byrði
Miðstjórn Alþýðusambands ís-
lands þingaði í gær og voru fyrir-
hugaðar breytingar á lánskjara-
vísitölu efstar á baugi. Miðstjórn-
in mótmælti því einróma að ríkis-
stjórnin skuli ætla að tvöfalda
vægi launa í lánskjaravísitölu.
Asmundur Stefánsson segir að
ef af hinum boðuðu nýmælum
verði muni þau verða þrándur í
götu samningsgerðar en ekki til
að losa um þau skuldabönd sem
alþýða manna er reyrð í.
Sjá síðu 3
a
Sverrir Hermansson banka-
stjóri Landsbankansvarsíð-
ast um áramótin að senda frá
sér undirritaða pappíra í nafni
Ögurvíkurhf.
Skrifaði sem stjórnarformaður undir
tilkynningu til Hlutafélagaskrár um
hlutafjáraukningu Ögurvíkur í lok
desember sl. Sýnir að náverandi
stjórnarformennska Sverris erekki
eingöngu slóðahœtti að kenna. Þórður
Ólafsson: Höfum allar nauðsynlegar
upplýsingar frá Hlutafélagaskrá
ins og Þjóðviljinn grcindi frá
sl. þriðjudag er Sverrir Her-
mannsson, bankastjóri Lands-
bankans, enn stjórnarformaður
Ögurvlkur hf. og sem slíkur skrif-
aði hann undir tilkynningu til
Hlutafélagaskrár um að hlutafé
fyrirtækisins hefði þann 31. des-
ember 1988 verið aukið úr 14
miijónum gamalla króna í 119
miljónir nýkróna. Sýnir það að
Sverrir er í reynd virkur stjórn-
arformaður Ögurvíkur, enda
hefði Hlutafélagaskrá gert at-
hugasemdir ef einhver annar
hefði skrifað undir tilkynninguna
þar sem Sverrir er í gögnum
Hlutafélagaskrár skráður sem
stjórnarformaður.
Eins og Þjóðviljinn benti á sl.
þriðjudag fær ákvörðun stjórnar-
fundar hlutafélags ekki löggild-
ingu fyrr en tilkynnt hefur verið
Hlutafélagaskrá og því hefur
ákvörðun stjórnarfundar Ögur-
víkur frá því í maí sl., er Sverrir
sagði af sér sem stjómarformað-
ur Ögurvíkur, ekki lagalegt gildi.
Lögformlega er Sverrir því í and-
am»‘ “r
Þjóðviljinn
^ýr^j frá þVj ý þriðjudag
skráður
stöðu við 13. grein bankalag-
anna, sem kveður á um að banka-
stjórum sé óheimil þátttaka í at-
vinnurekstri utan bankans.
Undirskrift hans sem stjórnarfor-
manns Ögurvíkur sýnir glöggt að
hann er virkur í því hlutverki og
að ekki er um að kenna gleymsku
eða slóðaskap hans sjájfs eða
annarra stjórnarmanna í Ögurvík
hf. að hann er í beinni andstöðu
við bankalög.
Þjóðviljinn bar þessar fréttir
undir Þórð Ólafsson, forstöðu-
mann Bankaeftirlitsins, og spurði
hvort þessi vitneskja um virkni
Sverris sem stjórnarformanns
breytti hugsanlega einhverju um
athugun Bankaeftirlitsins. Þórð-
ur vildi lítið tjá sig um málið, en
sagði að Bankaeftirlitið hefði all-
að Sverrir væri ennþá
stjórnarformaður Ógurvíkur hf.
ar nauðsynlegar upplýsingar frá
Hlutafélagaskrá til að geta tekið
ákvörðun í málinu. Bankaeftir-
litið skoðaði svör Sverris við fyr-
irspurn stofnunarinnar í gær og
má búast við að þau liggi fyrir
fljótlega, jafnvel strax í dag.
Viðurlög við brotum á við-
skiptabankalögum geta varðað
sektum eða varðhaldi, nema
þyngri refsing liggi við samkvæmt
öðrum lögum. Viðurlög við van-
rækslu á tilkynningaskyldu til
Hlutafélagaskrár geta varðað
sektum eða varðhaldi. Hins veg-
ar mun algengt að stjórnir
hlutafélaga trassi slíkar tilkynn-
ingar þrátt fyrir þung viðurlög, en
öllu óalgengara er að 13. grein
viðskiptabankalaganna sé brotin
á þennan hátt. phh
JóhannlKarpov
Laugar-
dagur
Skoðanaeinokun
Moipnblaðið lokar á
umræðu um Palesbnu
Björn Bjarnason aðstoðarritstjórifrábiður sér allt aðsent efni um Palestínu og
segir blaðamenn sína einfœra um að sinna því
Blaðamenn Morgunblaðsins
fjalla svo mikið um þau mál
sem efst eru á baugi fyrir botni
Miðjarðarhafs að mér finnst ekki
þörf á aðsendum greinum um efn-
ið.
Þannig segir Björn Bjarnason
aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins
í svarbréfi til Elíasar Davíðs-
sonar, organista og ritara Félags-
ins ísland Palestína, sem dagsett
er 22. desember síðastliðinn.
Bréfið er svar við bréfi Elíasar frá
1. des. s.l., þar sem hann sendi
Morgunblaðinu gögn um ástand
mannréttindamála í Palestínu
ásamt með tilboði um að skrifa
grein í blaðið er varpað gæti sögu-
legu ljósi á þær deilur sem þar
hafa staðið síðastliðin 40 ár.
Þjóðviljinn birtir í dag sýnis-
horn þess efnis um Paiestínu, sem
Morgunblaðið vill ekki að komi
fyrir augu lesenda sinna. Þar er
fjallað um staðreyndir í sögu Pal-
estínu sem í einföldu máli bregða
óþægilegu ljósi yfir þau frétta-
skrif um Palestínu sem tíðkast
hafa í Morgunblaðinu á undan-
förnum árum. Þegar fréttastefna
biaðsins stenst ekki ljós stað-
reyndanna er nú gripið til gamal-
kunns ráðs sem best hefur þótt
2tlar0im:l>lntúö
atsar
Elíasar Davíðssonar.
duga meðal óskafjandmanna
blaðsins. Hvenær kemur glast-
nost á Morgunblaðinu? -ólg.
Sjá síðu 6
til lukku
Einvígi skákmeistaranna
hefst á lukkudegi
þjóðsagnanna. Helgi
Olafsson verður okkar
maður í Seattle
Á morgun fer fram opnunar-
hátíð skákeinvígis þeirra Jóhanns
Hjartarsonar og Anatólíjs Karp-
ovs I Seattleborg í Bandaríkjum
vestur.
Viðureign þeirra félaga er sem
kunnugt er fjórðungur fjórðungs-
úrslita áskorendakeppninnar um
réttinn til þess að fá að etja kappi
við Garríj Kasparov
heimsmeistara. Um krúnuna.
Á opnunarhátíðinni verða
keppendur kynntir og dregið
verður um liti, það er að segja um
það hvor þeirra félaga stýri hvíta
liðsaflanum I fyrstu skák. Hún
verður þvínæst tefld daginn eftir
eða á laugardag. Einsog alþjóð
veit er dagur sá iðulega mörland-
anum til lukku, einkum ef hann
glímir við þungar þrautir fjarri
fósturmoldinni!
Okkar maður í Seattle verður
vitaskuld hinn valinkunni og
gamalreyndi stórmeistari og
skákskýrandi Helgi Ólafsson.
Vegna mikils misræmis I tíma
Reykjavíkur og Seattle (þeir I
vestri eru hvorki meira né minna
en 8 klst. á eftir okkur) verður
ekki unnt að birta skákir strax
daginn eftir viðureign en þær fá
inni við fyrstu hentugleika.
-ks.