Þjóðviljinn - 26.01.1989, Blaðsíða 6
Elías Davíðsson:
Lítil saga frá Landinu helga
Hvernig palestínska bœnum var breytt í skemmtigarð
Bærinn Emwas (Emmaus) í
Palestínu er þekktur úr Lúk-
asarguðspjalli. Þar segir frá því
er Kristur birtist þeim Símoni og
Kleófasi skömmu eftir krossfest-
inguna og þáði með þeim kvöld-
máltíð. Síðan varð Emwas pila-
grímsstaður kristinna manna um
margar aldir og íbúar bæjarins,
sem voru kristnir, urðu þekktir
fyrir gestrísni sína. En þeir sem
koma til Emwas í dag flnna enga
gestrisni lengur. Þeir finna heldur
Elías Davíðsson
ekki neinn bæ, og engan kristinn
söfnuð. Saga Emwas er sú sama
og 385 annarra byggðarlaga Pal-
estínumanna, sem hafa verið
jöfnuð við jörðu. Bærinn Emwas
hefur verið þurrkaður út af
landabréfinu, íbúarnir hafa verið
reknir á brott og yfir rústunum
hefur verið ræktaður skemmti-
garður sem ætlaður er góðborg-
urum til útivistar um helgar.
Þegar fsraelsríki var stofnað
1948 lenti Emwas innan landa-
mæra hins nýstofnaða ríkis. Ekki
fór öðrum sögum af bænum en að
þar gengi allt mannlíf með tiltölu-
lega eðlilegum hætti þar til árið
1967, þegar ísrael réðist á ná-
grannaríki sín og hernam stór
landsvæði þriggja nágrannaríkja.
Þá var kveðinn upp sá dómur í
hernaðarráðuneytinu í ísrael að
Emwas og tvö önnur þorp, Beit
Núba og Jalú, væru til trafala. Því
var ákveðið að reka alla íbúana á
brott og jafna þorpin við jörðu.
Þetta gekk hratt fyrir sig. Þeir
sem höfðu ekki hraðann á dóu
undir húsarústunum. Hinir voru
leiddir burt eins og búpeningur
og reknir yfir landamærin.
Myndirnar sem fylgja þessari
grein sýna okkur betur en nokkur
orð hvað þarna gerðist. Elsta
myndin er frá 1958. Þá var Emw-
as blómlegur palestínskur bær
með 5000 íbúum. Önnur myndin
var tekin á sama stað árið 1968,
ári eftir að þorpinu var eytt. Þar
stendur vart steinn yfir steini, en
grasið grær yfir rústirnar. Síðan
söfnuðu kanadískir gyðingar
gjafafé til þess að gera mætti
skemmtigarð á svæðinu. Síðasta
myndin sýnir okkur árangur
skógræktarinnar. Garðurinn
heitir Canada Park, og góðborg-
arar frá Tel Aviv fara þangað
gjarnan um helgar með börnin
sín til þess að skemmta sér.
íbúar Emwas mega hins vegar
ekki snúa aftur til sinna fyrri
heimkynna. Þeir mega ekki einu
sinni jarða gamla íbúa bæjarins í
gamla kirkjugarðinum í jaðri
Canada Park. Slíkt telja ísraelsk
stjórnvöld „ógnun við tilveru ís-
raelsríkis“. Frá 1967 hafa íbúar
Emwas búið í hrörlegum flótta-
mannabúðum, sem eru ekki til
sýnis fyrir ferðamenn.
Saga Emwas er ósköp venjuleg
og hversdagsleg saga úr nútíman-
um frá Landinu helga. Því þetta
er einnig saga 385 annarra þorpa
og bæja í Palestínu, sem ísraelar
jöfnuðu við jörðu um leið og þeir
Myndin sýnir bæinn Emwas (Em-
maus) árið 1958. Þetta er blóm-
legur bær byggður 5000 manna
kristnum söfnuði. Bæjarbúar
voru rómaðir fyrir gestrisni sína
allt frá því að Kristur þáði þar
kvöldmáltíð upprisinn og bærinn
var áfangastaður kristinna píla-
gríma um aldir.
Árið 1968: bærinn Emwas hefur
verið jafnaður við jörðu, íbúarnir
reknir í flóttamannabúðirog gras-
ið grær yfir rústirnar. Ef vel er að
gáð má sjá að húsarústin fremst
á myndinni er sú sama.
ráku íbúana, um eina miljón
manns, í útlegð, svo að þeir gætu
stofnað sitt sértrúarríki. Og þeg-
ar þú, lesandi góður, heyrir í
fréttum hvernig ísraelsmenn hafa
breytt eyðimörk í aldingarð, þá
skaltu muna eftir Emwas og hin-
um 385 byggðarlögunum, sem
voru iögð í eyði í Palestínu, og þá
skaltu líka leiða hugann að þeim
bræðrum okkar og systrum, sem
fá hvorki að iifa né deyja í ætt-
landi sínu.
f fjörutfu ár hafa Palestínu-
menn nærst á reiði, biturleika og
hatri vegna þessa óréttlætis. En
þeir Palestínumenn sem vilja
sigrast á uppgjöf og neikvæðum
tilfinningum taka undir orð Jesa-
ja spámanns: „Avöxtur réttlætis-
ins skal vera friður“. Við sem
erum friðarins menn og tökum
undir boðskap Kærleikans verð-
um að stuðla að réttlæti í Palest-
ínu, svo það leiði til friðar og kær-
leika.
Fyrrverandi íbúar Emwas hafa
myndað með sér félagsskap, sem
vinnur að því að fá að endurreisa
þorpið. Félagið hefur aðsetur í
Sviss, og það hefur óskað eftir
siðferðislegum og efnislégum
stuðningi hvaðanæva úr heimin-
um. Væri það ekki verðugt verk-
efni fyrir okkur að sýna íbúum
Emwas samúð í þeirri viðleitni að
byggja samfélag sitt upp á nýjan
leik?
Elías Davíðsson
Árið 1978: bærinn Emwas heitir
nú Canada Park og þar er kom-
inn skemmtigarður ræktaður fyrir
gjafafé kanadískra gyðinga.
Húsatóftin fremst á myndinni
sést ennþá. En hvað er orðið um
íbúana?
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 26. janúar 1989