Þjóðviljinn - 26.01.1989, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 26.01.1989, Blaðsíða 4
þJÓÐVILJINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkaiýðshreyfingar KLIPPT OG SKORIÐ vinnandi manns Þessa dagana berast fregnir um atvinnuleysi víða að. „Því miður sýnist okkur ekkert nema svartnættið fram- undan,“ segir sveitarstjórinn á Stöðvarfirði í samtali við Þjóðviljann. Atvinnuleysi er vaxandi á Egilsstöðum, ástandið „vægast sagt ömurlegt" á Ólafsfirði og „með versta móti“ á Hvammstanga. Frá vinnumálaskrifstofu félagsmálaráðuneytisins berast þær fréttir að atvinnu- leysisdögum hafi fjölgað um 41% árið 1988 frá árinu áður. Að vísu varð skattlausa árið 1987 þjóðinni nærri því banabiti, svo hastarlega hamaðist hún við að vinna sér inn skattfrjálsa aura. Enda má sjá af auglýsingum frá Háskólahappdrættinu að hugmynd íslendinga um himnaríki er að þar séu laun há og skattar engir. Grannþjóðir okkar ýmsar hafa langa reynslu af atvinnuleysi en við höfum sem betur fer verið á öðrum báti. Þrátt fyrir vaxandi atvinnuleysi og jafnvel yfir 2000 atvinnulausa í desember síðastliðnum að meðaltali verður það ekki nema 1.7% af vinnufærum mönnum á landinu. Það þætti sjálfsagt eðlilegt ástand víða annars staðar. En blikur eru á lofti og ástæða til að skoða málin áður en kemur í óefni. Menn bera sig best á stöðum þar sem atvinnulíf er fjölbreytt, á Sauðárkróki og í Neskaupstað til dæmis, en þar sem allt byggist á einu frystihúsi geta sveiflurnar orðið stórar milli þess að allir hafi næga atvinnu eða enga. Skólar og verkalýðsfélög ættu að tryggja að fólk viti um rétt sinn til bóta ef það verður atvinnulaust. í góðæri hugsar fólk sjaldnast um til hvers verkalýðsfélög eru. Vísast að margir hugsi sem svo að þetta séu bara peningaplokkarar sem taki til sín hluta af launum sem aldrei eru nógu há. Heyrst hefur líka um vinnuveitendur sem semja um hærra kaup gegn því að launþeginn gangi ekki í stéttarfélag. Svo skiptir fólk um vinnu, þvælist úr umdæmi eins félags í annað, hirðir ekki um kvittanir og vottorð, rétt eða skyldur vegna þess að atvinna er næg og engu að kvíða. Svo kreppir að, fyrirtæki draga saman seglin og fólk stendur frammi fyrir því að það gengur ekki lengur beint í vinnu í næsta húsi. Þá er farið að glugga í pappíra - ef þeim hefur ekki verið fleygt - og athuga hvert maður á að sækja peninga til að lifa af. Þá tregðast kerfið við og ýtir á undan sér þeim sem eiga vafasaman rétt á bót- um, og fólk þarf að hafa bein í nefinu og röksemdir á takteinum í þeirri baráttu. Þar geta skólar undirbúið fólk miklu betur en nú er með kennslu í rétti og skyldum launþega. En þó í Ijós komi að menn hafi fullan bótarétt er ekki allt fengið. Sem betur fer er ekki mikið um að fólk hér á landi sé atvinnulaust mánuðum og árum saman. En íhugunarefni ersamt hvernig lög um atvinnuleysisbæt- ur eru hjá okkur. Fólk fær bætur í 36 vikur, svo tekur við 16 vikna bótalaust tímabil. Á hverju er ætlast til að það lifi þá ef enga atvinnu er að hafa? í grannlöndum okkar hafa menn sums staðar glímt við þessa vofu lengi og þar eru alls staðar þar sem upplýsingar fengust um greiddar bætur í miklu lengri tíma í einu, þó að reglurnar séu að öðru leyti flóknar og erfitt að alhæfa um þær. Vinnumálaskrifstofa félagsmálaráðuneytisins og Þjóðhagsstofnun ætla að vinna sameiginlega könnun- á atvinnuhorfum á landinu sem verður fróðlegt plagg. Jafnframt ætti að athuga lög um atvinnuleysisbætur og athuga hvort þau þurfa ekki endurbóta við. -sa FRETTIR Lánskjaravísitalan Umdeildar breytingar Steingrímur Hermannsson: Villafnema allar vísitölur en ersáttur við þessa breytingu. Skipt á vísitölunni Það var svo sannarlega með óvæntari tíðindum þegar ríkis- stjórnin skipti á lánskjaravísitöl- unni yfir nóttina eftir margra mánaða japl og jaml og fuður þarsem útlit var helst fyrir að sig- urvegarinn yrði að lokum Gamla, Góða Lánskjaravísitalan, sem sumum virðist vera í svipuð eftir- sjá og kærum heimilisvim. Misjöfn viðbrögð við nýju vísi- tölunni, þarsem laun vega þriðj- ung á við framfærslu- og bygginga- vísitölu (og raunar mun meira þarsem launakostnaður er óbeinn hluti af hinum þriðjung- unum), sýna vel að klassísk hagsmunasamtök spegla engan- veginn andstæðurnar í þeim mikilvægu peningamálum sem hafa verið æ meira inntak í pólitík hér síðustu misseri. Vinnuveitendasambandið veit varla hvert það á að snúa sér. Þar innanstokks eru fjöidamörg fyrir- tæki sem fjármagnskostnaðurinn er að sigla í strand -en þar ráða auðvitað ferðinni stöndug stór- fyrirtæki sem halda tugmiljóna stórafmæli í kreppunni miðri og eiga mikil ítök í gráa markaðn- um. Verkalýðshreyfíngin er í svip- líkri stöðu. Vísitölubreytingin léttir talsvert skuldabyrði félags- manna, en staða margra forystu- manna verkalýðshreyfingarinnar sem oddvita í lífeyrissjóðum kemur þeim til að bregðast við ókvæða. Og hafa áhyggjur af af- komu Alþýðubankans, sem „sér um sína“ með sömu hávöxtunum og annarstaðar (heldur skárri þó en einkabankarnir). Hvaða hagsmunir? Hvað sem gerist í framtíðinni þýðir breytt Iánskjaravísitala núna nákvæmlega það fyrir venjulegt fólk sem Mogginn lýsti svo í fyrirsögn í gær: „Skuldir við Húsnæðisstofnun 230 milljónum lægri en ella“, og undirfyrirsögn: Ríkisskuldabréf hækka 95 milljónum minna.“ Þeir sem skulda skulda heldur minna en ella, þeir sem eiga sparifé fá held- ur minni ávöxtun en ella. Og hvað sem líður skoðunum manna um lánskjaravísitölur verður að segjast einsog er: það er kominn tími til að forystumenn í verkalýðshreyfingunni fari hver fyrir sig að meta það hverjir hags- munir að baki þeim skipta mestu. Raunar sýnist kominn tími til þess fyrir löngu að í kringum líf- eyrissjóðina spretti upp spurn- ingar um það af hverju þeir eigi að standa sömu megin og grái markaðurinn í öllum umræðum um peningamál. Auðvitað hafa sjóðirnir sínar miklu skyldur við lífeyrisþega framtíðarinnar -okk- ur sem nú erum í fullu fjöri- en lÓryson: Verið að slá á verkalýðshrevfirv, ■^nnií ^n '"rasam‘ AlltHC eigum við þá ekki að reyna að skammast til að borga nokkrar krónur í viðbót til að gefa þeim sem geyma fyrir okkur þessa pen- inga svigrúm til að virða sam- tímahagsmuni okkar og stuðla að því á fjármagnsmarkaðnum sem forystumenn launamannasam- taka hvetja til í barátturæðum: að vextir séu teknir niðrúr okurstig- inu? Það er að minnsta kosti ekki sannfærandi að sjá forystumenn stéttarfélaga tala langt mál um kröpp lífskjör í einum fréttatíma og róa síðan með hávöxtunum í næsta fréttatíma. Miðstjórn ASÍ fundar , 'SLHerm Litábr. A ályktun sem 7“ í,efui már ■.w. aö þcim Þ-^kýen ekkil þessi nýja vfeitall fyrir þau. Fyrir ut launahækkanir ve taka & sig aukinn f vegna þess að 1 hserri lánskjaravíi Sigurður segir sé ótrúlega skai þar sem fómað o«m fólk var fari 'annsson: ItvtvstlP^femmaS^] Yfirlýsing Þorsteins Auðvelt er að skilja þau mót- mæli leiðtoga launamanna sem byggjast á því að skammt sé í samninga og hin nýja áhersla á launaþáttinn í vísitölunni geti tor- veldað kröfur um hækkun. Þau mótmæli bliknuðu þó heldur í hugum þeirra sem horfðu á umræðuþáttinn í sjónvarpinu í fyrrakvöld, þar sem Þorsteinn Pálsson lýsti því yfir að stefna Sjálfstæðisflokksins til að bjarga atvinnulífinu væri stórfelld gengisfelling og meiriháttar kjaraskerðing. Þetta þýðir að ef stjórnarskipti yrðu hér á næstunni er senni- legast að Sjálfstæðisstjórn endur- tæki kjaraskerðingarleikinn frá 1983, -þegar misgengiskynslóðin varð til sællar minningar. Það skortir hvorki rök né mót- rök um vísitölubreytinguna. Og ein rökin mæla bæði með og móti: Þetta veldur ólgu á fjármagns- markaðnum, segja áhyggjufullir peningamenn. Og ólga á pen- ingamarkaði er einsog allir vita vond í sjálfu sér. Eða kannski að- allega fyrir þá sem stjórna pen- ingamarkaðnum? Þessi hugsanlega hættulega ólga stafar hinsvegar af því að með breytingu sinni tók ríkis- stjórnin lánskjaravísitöluna af háaltarinu í dómkirkju peninga- hyggjunnar. Menn voru farnir að telja það algildan sannleik að þessi vísitala mældi óyggjandi lánskjör -að þessi vísitala hefði einmitt verið að sveima einhvers- staðar á þeim slóðum sem ár var alda þaðs ekki var, og síðan verið í dægilegu kompaníi við allífíð. Björn Grétar Sveinsson á Höfn er einn fárra leiðtoga launa- manna til að ræða um þessa af- guðun gömlu lánskjaravísitöl- unnar. Hann segir þetta í Morg- unblaðsviðtali: „Ég lít þannig á, að fyrst ríkisstjórnin er nú farin að hringla í lánskjaravísitölunni, hljóti hún að vera samningsatriði í næstu samningum. Nú er búið að opna allar þessar reglur, og nú hlýtur verkalýðshreyfingin í framtíðinni að reyna að hafa í samningum áhrif á hvemig þau mál þróast.“ Engin fiff! Menn hafa verið að spá í það hvað ríkisstjórninni gangi til með breytingunni. Sjálfsagt margt -hún er væntanlega einsog flestar ákvarðanir ráðherra einhvers- konar málamiðlun, ef til vill milli þess að hreyfa ekkert við þeirri gömlu góðu (Jón Sig. ?) og þess að þeyta burtu öllum þessum „helv...“ vísitölum (Steingrímur Hermannsson í Þjóðviljanum í gær). Og fleira spilar sjálfsagt inní. Hvernig kemur þetta inní Borg- araviðræðurnar? Sjálfsagt hefur það líka vegið eitthvað í hugum sumra ráðherr- anna að þessi breytta vísitala gæti haldið aftur af kaupkröfum í samningunum í vor. Sjávarút- vegsráðherrann hefur til dæmis verið óspar síðustu mánuði á alls- kyns skrítnar yfirlýsingar í kjara- skerðingarátt. Og fær að launum að vera næstvinsælasti stjórn- málamaður landsins í svokölluð- um vinsældakönnunum. Fjármálaráðherra sagði það hinsvegar í sjónvarpi í fyrra- kvöld, í sama þætti og Þorsteinn talaði um kjaraskerðingu, að ríkisstjórnin stefndi að því að verja kaupmáttinn og að kjara- jöfnun. Þetta kemur út af fyrir sig ekki á óvart miðað við efnahags- ástandið. Og eftir er að sjá hvað Ólafur Ragnar og hans menn í ráðuneytinu meina með „kjara- jöfnun“. Hinsvegar er rétt að hvorki ráðherrar í ríkisstjórninni né líf- eyrissjóðastjórarnir gleymi því í hugleiðingum sínum um almenna efnahagsþróun, ríkisfjármál og vísitölur, að láglaunahóparnir, til dæmis hjá ríkinu, geta ekki sætt sig við nein fíff í samningunum í vor, eftir hálfs árs launafrystingu. Það er bæði þeirra nauðsyn og heildarinnar að gengið sé að því í alvöru að bæta ástandið neðst í launapíramídanum, helst á öllum mikilvægustu sviðum lífskjara í einu: á launaseðlinum, í verðlagi á nauðsynjavörum, við félagslega velferð -og í lánskjörum. Það ætti að vera verkefni félags- hyggjumanna og sósíalista í ríkis- stjórn og forystu verkalýðshreyf- ingar að ná um þetta einskonar „þjóðarsátt" af nýju tæi. Verði þetta ekki niðurstaðan er hætt við að Þorsteinn Pálsson hafi að lokum sitt fram. En það er enn í fullu gildi sem Alþýðu- bandalagsmenn hafa haldið fram undanfarin kjaraskerðingarmiss- eri að sú Sjálfstæðisleið að bæta efnahagsástandið með því að auka á eymdina í samfélaginu er bæði grimmdarleg og heimsku- leg. -m Þjóðviljinn Síðumúla 6-108 Reykjavík Sími 681333 Kvöldsími 681348 X Útgefandi: Útgáfufólag Þjóðviljans. Ritstjórar: Árni Bergmann, MörðurÁrnason, Silja Aðalsteinsdóttir. Fréttastjóri: Lúðvík Geirsson. Blaðamenn: Dagur Þorleifsson, Guðmundur Rúnar Heiðarsson, Heimir Már Pótursson, Kristófer Svavarsson, Magnús H. Gíslason, ólafurGíslason, Páll Hannesson, SigurðurÁ. Friðþjófsson(Umsjón- arm. Nýs Helgarb.), SævarGuðbjörnsson, ÞorfinnurÓmarsson(íþr.). Handrita-og prófarkalestur: Elías Mar, HildurFinnsdóttir. Ljósmyndarar: Jim Smart, Þorf innur Ómarsson. Útlitstelknarar: Kristján Kristjánsson, Kristberguró.Pótursson Framkvæmdastjóri:HallurPállJónsson. Skrifstofustjóri: Jóhanna Leópoldsdóttir. Skrifstofa: Guðrún Geirsdóttir, Kristín Pétursdóttir. Auglýsingastjóri: Olga Clausen. Auglýsingar: Guðmunda Kristinsdóttir, Unnur Ágústsdóttir. Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, ÞorgerðurSigurðardóttir. Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir. Húsmóðir: Anna Benediktsdóttir Útbreiðslu-og afgreiðslustjóri: Björn Ingi Rafnsson. Afgreiðsla: Halla Pálsdóttir, Hrefna Magnúsdóttir. Innheimtumaður: Katrín Bárðardóttir. Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn: Síðumúla 6, Reykjavík, símar: 681333 & 681663. Auglýsingar: Síðumúlaö, símar681331 og 681310. Umbrotog setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Verð f lausasölu: 70 kr. Nýtt helgarbla ð: 100 kr. Áskriftarverð á mánuði: 800 kr. 4 S(ÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 26. janúar 1989

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.