Þjóðviljinn - 26.01.1989, Side 2
FRETTIR
Póstur og sími
Herbílar í rannsókn
Strandgœslan leggur Símanum einnig til bíla við lóranstöðvarnar. Skráðir sem eign P&S en allt
greittafhernum. Guðmundur Björnsson aðstoðarforstjóri: Heppilegtfyrir báða aðila.
Málið komið til dómsmálaráðherra. Samgönguráðuneytið óskar eftir skýringum
Lögreglan í Keflavík hefur enn
ekki skilað umdæmisstjóra
Pósts og síma þar í bæ bifreið
þeirri sem tekin var úr umferð í
síðustu viku. Bifreiðin, sem skráð
var eign Pósts og síma í Keflavík,
er í raun í eigu bandaríska hers-
ins, en hana var hvergi að finna á
bifreiðaskrá.
Önnur slík bifreið sem Póstur
og sími hefur haft til afnota á her-
svæðinu á Miðnesheiði er þar enn
í notkun. Bifreiðarnar voru upp-
haflega á VL-númerum og nutu
allra tollfríðinda en við rannsókn
málsins hefur komið í ljós að
utanríkisráðuneytið heimilaði
umskráningu bifreiðanna yfir á J-
númer þótt þær séu enn í eigu
hersins. Lögreglan í Keflavík hef-
ur ákveðið að senda dómsmála-
ráðuneytinu málið til umsagnar.
Þá hefur samgönguráðherra ósk-
að skýringa yfirmanna Pósts og
síma á þessum bílasamskiptum
stofnunarinnar við bandarfska
herinn.
En það er ekki eingöngu á
Keflavíkurvelli sem Póstur og
sími er skráður eigandi bifreiða
hersins. Guðmundur Björnsson,
aðstoðarpóst- og símamálastjóri,
staðfesti í samtali við Þjóðviljann
í gær að í lóranstöðvunum við
Stokksnes og á Gufuskálum væru
starfsmenn Pósts og síma með
fjórar bifreiðar á J-númerum sem
væru í eigu bandarísku standgæsl-
unnar. Þetta hefði viðgengist um
’langan tíma og engar athuga-
semdir verið gerðar.
- Þetta er hagkvæmnismál
fyrir báða aðila. Við höfum mjög
takmarkað framkvæmdafé og
teljum ekki ráðlegt að eyða hluta
þess í að kaupa bflaflota til að
sinna þessum verkefnum og
strandgæslunni og hernum finnst
gjald fyrir bflaleiguþjónustu of
hátt. Því hefur þessi leið verið
farin að þeir útvega bflana og
standa allan straum af rekstri
þeirra.
Guðmundur sagði að Póstur og
sími hefði gefið samgönguráðu-
neytinu skýringar á þessum sam-
skiptum. - Þetta með bflinn í
Keflavík sem tekinn var þar og
fannst ekki á bifreiðaskrá, er
vandi sem við bjuggum ekki til.
Þarna hefur einhvers staðar orðið
handvömm í kerfinu.
Hann sagðist ekki telja að hér
væri um neitt mál að ræða sem
þafnaðist einhverrar athugunar
og rannsóknar. Rannsóknarlög-
reglan í Keflavík telur hins vegar
ýmsum spurningum ósvarað og
vill að dómsmálaráðuneytið ák-
veði um framhald málsins.
-«g-
. if. "'<*?’■»» •
Hafnarfjörður
Ný smá-
bátahöfn
að fæðast
Fyrsti áfangi tilbúinn í vor.
Fullbyggð með legurýmifyrir
hátt í 200 smábáta
Mýtt dýpkunarskip Dýpkunarfélagsins hf. frá Siglufirði
hamast nú við að moka upp eðju við Óseyri í Hafnar-
firði, þar sem framkvæmdir eru hafnar við gerð nýrrar
smábátahafnar.
Alls er áætlað að moka um 20 þús. rúmmetrum af
þessu svæði og á því verki að ljúka á næstu vikum. Áður
hefur nýja dýpkunarskipið, sem kom í stað systurskips
síns sem sökk út af Snæfellsnesi sl. haust, dýpkað úti fyrir
nýja Suðurbakkanum og mun einnig dýpka við Óseyrar-
bryggju framan við Fiskmarkaðinn.
Nýja smábátahöfnin sem verður innst í fjarðarbotnin-
um framan við gömlu Flensborg, mun fullbyggð getað
rúmað hátt í tvöhundruð smábáta. Áætlað er að taka
fyrsta áfanga hafnarinnar í gagnið þegar í vor.
-lg-
Nýja dýpkunarskipið er mjög afkastamikið og á ekki í erfið-
leikum með að moka upp eðjunni innst í fjarðarbotninum í
Hafnarfirði. Mynd-Jim Smart.
Handbolti
Tékkar í
Firðinum
Islendingar leika tvo
landsleiki gegn Tékkum
um helgina. Fyrsti leikur
Kristjáns Arasonar í
Hafnarfirði í fjögur ár
Lokaundirbúningur landsliðs-
ins fyrir B-heimsmeistarakeppn-
ina stendur nú yfir en hún hefst í
Frakklandi um miðjan febrúar.
Um helgina leika íslendingar tvo
landsleiki gegn Tékkóslóvakíu
hér á landi en Tékkar höfnuðu
sem kunnugt er í 6. sæti ólympíul-
eikanna í Seoul sl. haust.
Handknattleikssambandið
bryddar upp á þeirri nýbreytni að
láta annan leikjanna fara fram
utan Reykjavíkur en slíkt er mjög
sjaldgæft nema gegn „auðveld-
ari“ þjóðum. Leikið verður á
föstu- og laugardag og fer fyrri
leikurinn fram í íþróttahúsinu við
Strandgötu í Hafnarfirði kl. 20.30
en síðari leikurinn verður í
Laugardalshöll kl. 17.00 daginn
eftir.
íslenski landsliðshópurinn er
nú skipaður 21 manni en aðeins
16 þeirra fara með til Frakklands.
Hópinn skipa eftirtaldir:
Markverðir:
Einar Þorvarðarson, Valur.....211
GuðmundurHrafnkelsson, UBK.....66
Hrafn Margeirsson, (R..........16
LeifurDagfinnsson, KR...........3
Aðrir leikmenn:
ÞorgilsÓttarMathiesen, FH ....211
JakobSigurðsson, Valur........164
Bjarki Sigurðsson, Víkingur....43
ValdimarGrímsson, Valur........60
SigurðurGunnarsson, fBV.......164
Alfreð Gíslason, KR ..........160
Páll Ólafsson, KR.............185
GuðmundurGuðmundsson, Víkingur 207
KristjánArason.Teka...........200
GeirSveinsson, Valur..........153
Sigurður Sveinsson, Valur.....163
Héðinn Gilsson, FH.............31
Júlíus Jónasson, Valur........117
GuðjónÁrnason, FH...............3
BirgirSigurðsson, Fram.........13
KonráðOlavson, KR..............10
Júlíus Gunnarsson, Fram.........3
Athygli skal vakin á því að þeir
Páll Ólafsson og Sigurður Sveins-
son eru meiddir og leika varla
með um helgina. Þeir ættu hins
vegar að verða orðnir frískir fljót-
lega eftir helgi og eru því í undir-
búningshópnum.
Kristján Arason lék sinn 200.
landsleik gegn Búlgörum fyrir
skömmu og verður hann heiðrað-
ur sérstaklega vegna þessa fyrir
fyrri leikinn. Það fer vel á því að
Kristján leiki þennan heiðursleik
á æskustöðvum sínum í Hafnar-
firði en þar hefur hann ekki leikið
í tæp fjögur ár.
-þóm
vestjiroir
Atvinnuástandið viðunandi
Flosi Magnússon: Þurfum ekki að kvarta hér á Bíldudal. Ulfur Thoroddsen: Óvissuástand á Patreksfirði.
Ólafur Kristjánsson: Bolvíkingar bjartsýnir á að nœg atvinna haldist
Atvinnuástandið hér á Bíldudal
er með ágætum, mokveiði er á
rækju og togarinn aflar ágætlega.
Að vísu hefur gefið illa á sjó frá
áramótum, en það er að breytast,
sagði Flosi Magnússon sveitar-
stjóri á Bfldudal aðspurður um
hvernig atvinnuástandið væri.
Hann taldi að það væri eins og
það hefði verið undanfarin ár og
að hann sæi engar blikur á lofti
um að það myndi breytast.
Að dæma af þeim samtölum
sem Þjóðviljinn átti við menn á
Vestfjörðum í gær er atvinnu-
ástand þar viðunandi. Verst er
það á Patreksfirði. Þar hefur
starfsemi Hraðfrystihúss Pat-
reksfjarðar legið niðri frá því í
haust er leið. Ekkert bendir til
þess að þar verði hafin starfsemi
að nýju í bráð.
- Við höfum trú á því að takist
að hefja framleiðslu á ný í þessu
húsi. Ef ekki, er hætt við því að
hér verði langvarandi atvinnu-
leysi. Nú eru um 50 á atvinnu-
leysisskrá. Ef vetrarvertíðin
gengur vel, mun ástandið
eitthvað lagast, sagði ÚlfarThor-
oddsen sveitarstjóri á Patreks-
firði
Ef ekki berst nægilegur afli á
land á komandi vertíð, sem hefur
farið illa í gang vegna ótíðar, er
hætt við því að hluti af þeim sem
nú eru á atvinnuleysisskrá verði
tekjulausir þegar líða tekur á vor-
ið. Því þá hefur það fólk náð 36
vikna markinu sem kveðið er á
um í lögunum um atvinnuleysis-
bætur.
Á Þingeyri er næg dagvinna, en
þó svo sé er atvinnuástandið enn
ekki eins og menn hefðu viljað.
Rekstur Hraðfrystihúss Dýrfirð-
inga, sem er í eigu Kaupfélagsins
hefur gengið illa að undanförnu,
sem sést af því, að þar var öllum
fastlauna- samningum sagt upp
fyrir áramót. Einnig er þess
skemmst að minnast að húsinu
var lokað í vikutíma í fyrra vegna
vangoldins söluskatts.
Jónas Ólafsson sveitarstjóri á
Þingeyri sagði að allt væri í óvissu
með framhaldið. Að hans sögn
stendur rekstur togaranna undir
sér, en það sama verður ekki sagt
um fiskvinnsluna. Þrátt fyrir
tímabundna erfileika átti Jónas
ekki vona á öðru en að ástandið
myndi færast í eðlilegt horf innan
tíðar. Hraðfrystihúsið á Þingeyri
mun vera eitt af þeim húsum sem
eru í sérstakri skoðun hjá At-
vinnutryggingasjóði, en þannig
mun einnig vera ástatt fyrir Hrað-
frystihúsi Einars Guðfinnssonar í
Bolungarvík og fleiri hús á Vest-
fjörðum. - Frá áramótum hef-
ur verið mikil ótíð þannig að at-
vinnuástandið hér á Bolungarvík
er ekki gott sem stendur. En ég
hef ekki trú á öðru en að það
verði í lagi þegar gefur á sjó,
sagði Ólafur Kristjánsson bæjar-
stjóri á Bolungarvík. Hann sagði
að Bolvíkingar væru bjartsýnir á
að næg atvinna myndi haldast.
Svo virðist sem fáir
Vestfirðingar séu á atvinnuleysis-
skrá um þessar mundir. Þar getur
hins vegar orðið breyting á, ef
ekki tekst að leysa úr fjárhags-
vanda frystihúsanna sem víða eru
rekin með miklu tapi um þessar
mundir nánast allsstaðar annars
staðar á landinu.
-sg
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 26. janúar 1989