Þjóðviljinn - 03.05.1990, Page 6
ERLENDAR FRETTIR
Fvrsli mai
Róttækir storka Goitatsjov
ÓspektiríVestur-Berlín. Lögregluofbeldi íIstanbúl. Mikil þátttaka í Rómönsku Ameríku
Minna var um að vera í
Austur-Evrópu 1. maí en
vani hefur verið lengi, í Moskvu
létu stjórnarandstæðingar mikið
að sér kveða og í Berlín og Istan-
búl kom til óspekta. í Reuter-frétt
segir að kröfuganga róttækra
stjórnarandstæðinga í Moskvu á
hátíðisdegi verkalýðsins hafi ver-
ið alvarlegustu ávíturnar, sem
Míkhail Gorbatsjov hafi sætt af
almennings hálfu frá því að hann
kom til valda fyrir fimm árum.
En allt fór þar friðsamlega fram
og var mannskapurinn glaðvær.
Tugþúsundir tóku þátt í kröfu-
göngu þeirra róttæku inn á
Rauðatorg. Einna mest bar á í
göngunni andúð á KGB og sam-
úð með Litháum. Veifuðu margir
litháískum fánum og kröfðust
þess að aflétt yrði banninu á inn-
flutningi frá Sovétríkjunum til
Litháens. Þá voru stjórnvöld
sökuð um að hafa ekki gert nóg til
að hreinsa til eftir kjarnorkuslys-
ið í Tsjernobyl, tregðu í lýðræðis-
þróun, ódugnað í efna-
hagsmálum o.fl. Á Gorbatsjov
og öðrum leiðtogum mátti sjá, að
þeim var ekki skemmt, og eftir að
hafa staðið á leghöll Leníns í 25
mínútur gengu þeir á brott. f
Leníngrad og höfuðborgum
Eystrasaltslanda og Kákasus-
landa voru engar göngur eða
fundir að þessu sinni.
í Berlín var mikil þátttaka í
kröfugöngum og fundum, þannig
fór kílómetra löng ganga Áustur-
Þjóðverja um skarð á Berlínarm-
úr. Þar fór allt friðsamlega fram
lengi dags, en undir kvöld hófust
óspektir, eins og jafnan hefur
viljað verða undanfarin ár við
hátíðahöld þessi þar í borg. Verst
var það í Kreuzberg, borgarhluta
í Vestur-Berlín. Hundruð ung-
menna kveiktu þar elda, rændu
verslanir og hlóðu götuvígi gegn
lögreglu, sem beitti kylfum, tár-
agasi og vatnskanónum. Nokkrir
menn meiddust. Lögregla segir
að margir óspektaunglinganna
muni hafa verið Tyrkir, en það
þjóðerni er fjölmennt í Kreuz-
berg. Er þetta í fyrsta sinn, sem
verulega ber á þeim í óspektum
þar.
í Leipzig köstuðu vinstriung-
lingar og nýnasistar flöskum og
dósum hvorir í aðra, en Iögregla
gekk á milli áður en til alvarlegra
meiðinga kom. í Tyrklandi höfðu
stjórnvöld bannað öll hátíða-
höld, og í Istanbúl réðst lögregla
af miklum hrottaskap á fólk, sem
kom saman á fundi eigi að síður.
Allmargir særðust, þar á meðal
tveir af skotum lögreglu, og að
sögn lögreglu voru um 2.500
handteknir.
Á Kúbu voru hátíðahöldin
ekki síður vegleg en verið hefur
undanfarna þrjá áratugi og voru
um þrjár miljónir manna með í
þeim. í Managua hentu sandin-
istar og stuðningsmenn nýju
stjórnarinnar grjóti hvorir í aðra,
er kröfugöngur þeirra mættust,
en til alvarlegra átaka kom ekki. I
E1 Salvador, höfuðborg Salva-
dors, fóru tugþúsundir í kröfu-
göngu og bar þar mest á kröfum
um að endi yrði bundinn á borg-
arastríðið hryllilega þarlendis,
sem orðið hefur um 75.000
manns að grandi. í Hondúras og
Venesúelu var og fjölmenni í
kröfugöngum, þar sem mótmælt
var verðhækkunum á lífsnauð-
synjum og spamaðarráðstöfu-
num stjórnvalda, er komið hafa
illa niður á þeim fátækustu.
Um 3.000 panamskir verka-
menn mótmæltu harðlega innrás
Bandaríkjamanna í Panama í
des. s.l. í Argentínu vom að
sumra sögn tugþúsundir, að ann-
arra mati hundruðþúsundir á
fundum og í göngum, sem vinstri-
flokkar boðuðu til, og var þar
mótmælt lágum launum, sem
stjórn Menems forseta hefur
skammtað verkamönnum, og
einkavæðingu atvinnulífs, sem sú
stjórn hefur einnig ákveðið. í
Chile, þar sem menn vom frjálsir
að því að halda 1. maí hátíðlegan
að vild í fyrsta sinn síðan fyrir
valdaránið þar haustið 1973, var
og mikil þátttaka.
Reuter/-dþ
Litháen
Kohl og Mittmand miðli málum
Vytautas Landsbcrgis, forseti
Litháens, beindi í gær þeim
tilmælum til Helmuts Kohl, sam-
bandskanslara Vestur-Þýska-
lands og Francois Mitterrand,
Frakklandsforseta, að þeir
reyndu að telja ráðamenn í Mos-
kvu á að hefja viðræður við lithá-
ísku stjórnina. Las Landsbergis
tilmæli þessi til tveggja áhrifa-
mestu leiðtoga Vestur-Evrópu
upp á litháíska þinginu í gær.
Tilmæli Litháensforseta em
jafnframt svar við orðsendingu til
Litháensstjórnar, sem þeir Kohl
og Mitterrand sendu fyrir viku.
Fóru þeir í orðsendingunni fram
á „þolinmæði og varkámi“ af Lit-
háa hálfu í sjálfstæðisbaráttu
þeirra. í svari sínu segir Lands-
bergis meðal annars, að til greina
komi að Litháar slái á frest ýms-
um ráðstöfunum í framhaldi af
sjálfstæðisyfirlýsingunni 11. mars
s.l. Talskona upplýsingaskrif-
stofu litháíska þingsins sagði að
litháíska stjómin væri til viðtals
um allt við þá sovésku nema
sjálfa sjálfstæðisyfirlýsinguna.
Búist er við að þing LettlandS:'
fari að dæmi Litháa og lýsi yfir
sjálfstæði innan nokkurra daga,
en talsmenn lettnesku Alþýðij-
fylkingarinnar hafa tekið fram að
Lettar muni í því fara að með ýtr-
ustu gát í von um að ekki komj til
árekstra við sovésku stjórnipa.
Reuter/-dþ
Suður-Afríka
Fyrstu viðræður
stjómar og ANC
Könnunarviðræður hófust í
gær milli Suður-Afríku-
stjórnar og Afríska þjóðarráðsins
(ANC). Þykir þetta vera sögu-
legur atburður, þar eð hér er um
að ræða fyrstu viðræður þessara
aðila eftir fjandskap þeirra á milli
í næstum átta áratugi.
Viðræðurnar, sem fyrirhugað
er að standi í þrjá daga, fara fram
í Höfðaborg. F.W. de Klerk,
Suður-Afríkuforseti og Nelson
Mandela, leiðtogi ANC sem
látinn var laus í febr. s.l. eftir 27
ára fangelsisvist, létu báðir í ljós
bjartsýni við upphaf viðræðn-
anna, þó í hófi. Mandela talaði
við þetta tækifæri á afrikaans,
máli hollenskættaðra Suður-
Afríkumanna, og ber efalaust að
skilja það sem vináttubragð, því
að suðurafrískir blökkumenn
hafa yfirleitt hliðrað sér hjá því
að tala afrikaans, sem þeir kalla
mál kynþáttakúgara.
Reynt verður í viðræðunum að
ná samkomulagi um frekari við-
ræður til lausnar deilumálum.
Rúmlega 40 þingmenn íhalds-
flokksins, sem andvígur er sátta-
stefnu de Klerks, gengu af fundi
Suður-Afríkuþings í gær til að
leggja áherslu á óánægju sína
með viðræðurnar.
Reuter/-dþ
Finnland
Vinstri sameining
Mandela - bjartsýni í hófi.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför
Högna Helgasonar
Kópavogsbraut 97
Kristín Halldórsdóttir
Ketill Högnason Hildigunnur Davíðsdóttir
Hildur Högnadóttir
Haukur Högnason Marta Hauksdóttir
barnabörn og barnabarnabarn
Bifhjolamenn
hafa enga heimild
til að aka hraðar
en aðrir!
IUMFERÐAR
RÁÐ
Finnskir kommúnistar samein-
uðust um helgina í nýjan
stjórnmálaflokk, „Vinstra
bandalagið“ ásamt ýmsum öðr-
um vinstrisinnuðum stjórnmála-
samtökum.
Kommúnistaflokkur Finn-
lands er einn elsti kommúnista-
flokkur Evrópu. Hann var stofn-
aður árið 1918 og var upphaflega
einn stærsti kommúnistaflokkur
á Vesturlöndum.
Fljótlega eftir heimsstyrjöld-
ina síðari klofnaði flokkurinn í
tvær fylkingar sem hafa í raun
starfað sem tveir sjálfstæðir
flokkar. Kommúnistar tóku þátt í
flestum samsteypustjórnum í
Finnlandi eftir stríð þar til fyrir
rúmum áratug.
Kosningafylgi þeirra hefur
hraðminnkað á undanförnum
árum. Meirihlutaflokkurinn
ræður yfir sextán þingsætum af
tvö hundruð á finnska þinginu og
minnihlutaflokkurinn, sem er
mjög Sovéthollur, ekki nema
fjórum.
Bæði klofningsbrotin taka þátt
í stofnun nýja flokksins.
Reuter/rb
Mæðgin giýtt í hel
Cimiliano Chavez, einn foring-
ja perúönsku skæruliðahreyfing-
arinnar Ljómanda stígs, var
grýttur til bana s.l. laugardag í
fjallaþorpinu Huamaran, norður
af Lima. Voru þar að verki þorps-
búar, sem brugðust illa við er
Chavez kom til þorpsins þeirra
erinda að fá unga menn þar til að
ganga í skærulið Ljómanda stígs,
er játar maóíska hugmyndafræði.
Móðir Chavezar og systir, sem
báðar voru liðsmenn í hreyfing-
unni, komu daginn eftir til þorps-
ins, að sögn embættismanns eins
með hefnd í hug, en þorpsbúar
grýttu einnig þær í hel. Indíána-
bændur í Andesfjöllum eru í
slæmri klemmu milli skæruliða og
stjórnarliða og sæta hryðjuverk-
um af beggja hálfu. Um 17.000
manns munu hafa verið drepmr í
stríði stjórnvalda og maóista,
sem staðið hefur yfir í áratug.
Landsbergis-til viðtals um allt
nema sjálfstæðisyfirlýsinguna.
6 SIÐA - ÞJÓÐVILJINN
af sjúkrahúsi
Oskar Lafontaine, sambands-
kanslaraefni vesturþýskra jafn-
aðarmanna, útskrifaðist í gær af
sjúkrahúsi, þar sem hann hefur
legið frá því að honum var sýnt
banatilræði í s.l. viku. Mun hann
nú, að sögn annarra leiðtoga
jafnaðarmanna, taka á ný við for-
ustu í kosningabaráttunni fyrir
kosningar er fram eiga að fara í
des. n.k. Læknar hafa þó ráðlagt
Lafontaine að forðast alla
áreynslu á næstunni. Adelheid
Streidel, kona sú er stakk Lafont-
aine með hnífi, er nú í geðrann-
sókn, og óvíst er hvort hún verð-
ur leidd fyrir rétt eða send á geð-
veikrahæli.
Nýr Ungverja-
forseti
Fyrsta lýðræðislega kjörið þing
Ungverjalands síðan á 5. áratugi
aldarinnar kom saman í fyrsta
sinn í gær og var Arpad Goncz
kjörinn þingforseti og jafnframt
forseti lýðveldisins til bráða-
birgða. Fyrirrennari hans í emb-
ætti var Matyas Szuros í Sósíal-
istaflokknum, fyrrverandi
kommúnistaflokki sem breytti
sér í jafnaðarmannaflokk í okt.
s.l. Goncz, sem er 68 ára, er í
Bandalagi frjálsdemókrata.
Hann er rithöfundur og sat í fang-
elsi í sex ár eftir Ungverjalands-
uppreisnina 1956.
Ólétt böm
12 af hundraði einhleypra
kvenna í Venesúelu, er eyða láta
fóstri, eru 12 ára, að sögn þar-
lends embættismanns, sem hefur
með höndum mál mæðra á ung-
lingsaldri. Hann kennir foreldr-
um um, hve mikið er um það þar-
lendis að barnungar stúlkur verði
bamshafandi, þar eð þeir hirði
ekki um að fræða stúlkurnar um
kynlíf.