Þjóðviljinn - 08.05.1990, Qupperneq 2
FRETTIR
Birting
Stuðningur við Nýjan vettvang
Aðalfundur Birtingarsamþykkti að láta afhlutleysisínu íkomandi borgarstjórnarkosningum
Birting, félag jafnréttis og lýð-
ræðissinna, samþykkti á aðal-
fundi sínum á laugardaginn að
lýsa yfír stuðningi við framboð
Nýs vettvangs í borgarstjórnar-
kosningunum í vor. Áður hafði
félagið samþykkt að taka ekki af-
stöðu til þeirra framboða sem
komið hafa fram á vinstrikantin-
um.
í ályktun fundarins er lýst yfir
stuðningi við „sameiginleg fram-
boð jafnaðar- og félagshyggju-
manna um allt land“ og við fram-
boð „Alþýðubandalagsins og
annarra jafnaðarmanna þar utan
höfuðborgarinnar sem ekki tókst
samstaða vinstrimanna um eitt
framboð. í Reykjavík er fram-
boð Nýs vettvangs, H-listinn,
Alþingi
Níföld ósannindi
Hjörleifur Guttormsson: Iðnaðarráðherrafer
með níföld ósannindi þegar hann segir eitt
kíló afáli gefa jafn mikið og eitt kíló afþorski í
þjóðarbúið
í
umræðum um frumvarp iðn-
framkvæmdir í tengslum við
fyrirhugaða stóriðju á íslandi,
sagði Hjörleifur Guttormsson
Jón Sigurðsson fara með níföld
ósannindi þegar hann fullyrti ítr-
ekað að eitt kíló af áli gæfi jafn
mikið í þjóðarbúið og eitt kfló af
þorski.
Hjörleifur sagði iðnaðarráð-
herra hafa klifað á þessum full-
yrðingum í fjölmiðlum og á Al-
þingi og þannig reynt að sannfæra
þjóðina um ágæti fyrhugaðs ál-
vers. Samkvæmt fullyrðingum
ráðherrans ætti álver sem afkast-
aði 200 þúsund tonnum að gefa
samsvarandi hagnaði í þjóðarbú-
ið og 200 þúsund tonn af þorski
og þessi hvalreki ætti síðan að
verða enn meiri ef álverið yki af-
kastagetu sína í 400 þúsund tonn,
eins og heyrst hefði að til greina
kæmi.
„Hvernig í ósköpunum stendur
á því að Alþingi íslendinga og
ríkisstjómin hafa ekki uppgötvað
þennan stórasannleik fyrir lifandi
löngu?“ spurði Hjörleifur. Hann
sagðist hafa varað við þessum
staðhæfingum ráðherrans og
leyft sér að kalla þær hina mestu
fjarstæðu. Enda þurfi ekki
hyggjuvit til að sjá að eitthvað
vantaði upp á röksemdafærsluna.
Hjörleifur vitnaði síðan í grein í
DV þar sem blaðamaður hefði
reiknað dæmið út frá forsendum
Þjóðhagsstofnunar og komist að
þeirri niðurstöðu að iðnaðarráð-
herra væri nífaldur ósanninda-
maður í þessum efnum, eins og
þingmaðurinn orðaði það.
í greininni segir Hjörleifur að
komið hefði fram að nýtt 200 þús-
unda álver skilaði ekki sama tölu-
gildi í þorski, heldur aðeins sem
samsvaraði 22 þúsund tonnum af
þorski. Þannig myndi 400 þúsund
tonna álver skila sem svaraði til
45 þúsund tonnum af þorski. Það
þyrfti því að framleiða 9 kíló af áli
á móti hverju kflói af þorski.
Hvar er sómi ráðherrans í þessu
máli? spurði Hjörleifur. Hann
bætti því síðan við að skoða þyrfti
þessar tölur betur varðandi
kostnaðarhlutdeild erlendra að-
fanga útgerðar og fiskvinnslu, en
það breytti ekki þeirri grundvall-
arstaðreynd að samanburður iðn-
aðarráðherra væri langt frá raun-
veruleikanum.
Samkvæmt forsendum frum-
varps ráðherrans verða brúttó-
gjaldeyristekjur af álverinu um
20,5 milljarðar, að sögn Hjör-
leifs. 10,7 milljarðarfæru í erlend
aðföng og þá stæðu eftir 9,8
milljarðar. Afborganir og vextir
af fjárfestingum væru áætlaðir
5,9 milljarðar og þá væru 3,9
milljarðar eftir í brúttógjald-
eyristekjum. Vinnulaun til 645
starfsmanna og 36 viðbótarstarfs-
manna hjá Landsvirkjun væru
áætluð 1,3 milljarðar og þá stæðu
eftir 2,6 milljarðar, sem varla
gerðu meira en greiða raforku-
kostnaðinn.
Samkvæmt þessu sagði Hjör-
leifur vinnulaunin ein standa eftir
sem nettóhagnað í dæminu. Síð-
an héldi iðnaðarráðherra því að
þjóðinni að 1-2 milljarðar í þjóð-
arbúið jafngiltu 200 þúsund tonn-
um af þorski. -hmp
helsta andstöðuaflið gegn flokks-
ræði Sjálfstæðismanna. Framboð
H-listans hefur farið fram undir
svipuðum samfylkingarmerkjum
og Birtingarmenn hvöttu til í vet-
ur. Eitt þriggja félaga Alþýðu-
bandalagsins í borginni, ÆFR ...
tekur þátt í framboði H-listans,“
segir í ályktuninni og henni lýkur
á því að fundurinn „hvetur alla
Alþýðubandalagsmenn og jafn-
aðarmenn í höfuðborginni að efla
sigurlíkur H-listans á kjördag".
Ályktunin var samþykkt með 21
atkvæði gegn sjö en nokkrir sátu
hjá
Á fundinum var Birtingu kosin
ný stjórn sem er þannig skipuð:
Árni Páll Árnason, Hrafti Jökuls-
son, Kjartan Valgarðsson, Mar-
grét S. Björnsdóttir, Mörður
Árnason, Ragnheiður Gyða
Jónsdóttir og Svanfríður Jónas-
dóttir. Stjórnin hefur enn ekki
skipt með sér verkum en talið er
líklegt að Kjartan Valgarðsson
verði áfram formaður félagsins.
-ÞH
Forsœtisráðherra
Til fundar við
Arafat
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra lýsti yfir stuðningi
við friðartillögur Egypta í deilu
ísraelsmanna og Palestínumanna
í gær, en hann er nú staddur í
opinberri heimsókn í Egypta-
landi í boði forsætisráðherra
landsins. Þá er áformaður fundur
Steingríms með Yasser Arafat,
leiðtoga frelsissamtaka Pelest-
ínumanna í Túnis.
í Egyptalandi er meðal annars
ráðgert að Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra eigi
viðræður við Mubarak forseta
landsins.
-grh
Hótel Island
Rignir silkinærum í kvöld?
Tom Jones heldur fimm tónleika á íslandi á einni viku
Tom Jones, hjartaknjisarinn
mikli, er kominn til Islands.
Hann heldur fímm tónleika á Hót-
el íslandi ó einni viku, þeir fyrstu
eru í kvöld.
Tom Jones segir það af og frá
að áhorfendur hans séu
mestmegnis miðaldra konur. Á
tónleikana kemur fólk á öllum
aldri, segir hann. Eins og frægt er
orðið kasta æstar konur iðulega
nærfatnaði upp á sviðið þegar
kyntröllið dillar sér í gömlu góðu
lögunum. Tom Jones segir þetta
þó hafa verið tískubólu á sjöunda
áratugnum og lítið hafi borið á
slíku síðustu ár en það er aldrei
að vita upp á hverju íslenskir að-
dáendur hans taka.
Tom Jones er kominn af vel-
skum námuverkamönnum og
hefði Tom litli án efa fetað í fót-
spor forfeðra sinna ef hann hefði
ekki orðið berklaveikur, og ráð-
lagði heimilislæknirinn piltinum
frá því að stinga sér ofan í nám-
umar.
Tom Jones segist hafa sungið
frá unga aldri og með söngferli
sínum tókst honum að gera aðal-
áhugamál sitt að lifibrauði sínu.
Þrátt fyrir það mikla orð sem
fer af kvensemi kappans hefur
hann verið harðgiftur í meira en
30 ár. Hann býr ásamt konu sinni
í Kaliforníu en þau eiga að auki
hús í Wales. Sonur þeirra hjóna
Mark er nú umboðsmaður föður
síns og er hann í för með honum
hér.
Tom Jones verður fimmtugur í
Júni. Hann kveðst þó litlar
áhyggjur hafa af aldrinum. í húsi
sínu hefur hann komið fyrir lík-
amsræktarsal og æfir af kappi
þegar tími vinnst til.
Eins og áður sagði heldur Tom
Jones fimm tónleika hér á landi, í
kvöld, 9.10. ll.og 13.þessa mán-
aðar. BE
Tom Jones, hjartaknúsarinn mikli, á fundi með blaðamönnum í gær.
Mynd-Jim Smart.
Ólafur Árni Bjamason söngvari
ásamt undirleikaranum Olafi
Vigni Albertssyni.
Ungurtenór
Ólafur Árni Bjarnason, tenór,
heldur sína fyrstu opinberu tón-
leika hér á landi í íslensku óper-
unni í kvöld kl. 20.30. Undir-
leikari verður Ólafur Vignir Al-
bertsson. Ólafur Ámi hefur verið
ráðinn fyrsti tenór við óperuhús-
ið í Regensburg í Vestur-
Þýskalandi. Þar verður frumraun
hans að syngja hlutverk Don Jose
í Carmen eftir Bizet. Á efnis-
skránni í kvöld verða ítalskar ant-
ik aríur, íslensk og skandinavísk
lög, auk þýskra og ítalskra óperu-
aría. Tónleikamir í kvöld eru á
vegum Styrktarfélags íslensku
óperunnar.
Atvinnumöguleikar
kvenna hjá Sþ
Igor Vallye, fulltrúi ráðningar-
skrifstofu Sameinuðu þjóðanna,
heldur fyrirlestur í stofu 101 í
Lögbergi, í kvöld kl. 20. Fyrir-
lesturinn er um atvinnumögu-
leika kvenna hjá Sameinuðu
þjóðunum. Allsherjarþing Sþ.
hefur sett það markmið að í árs-
lok 1990 skuli 30% háskóla-
menntaðra starfsmanna stofnun-
arinnar vera konur, en 30. júní í
fyrra voru einungis 26,9% starfs-
manna í þessum flokki konur.
Námskeið í
skyndihjálp
Reykjavíkurdeild Rauða kross
íslands heldur námskeið í skyndi-
hjálp og hefst það í dag kl. 20 og
stendur í fimm kvöld. Námskeið-
ið er haldið að Fálkafeni 11, ann-
arri hæð, í nýju húsi deildarinnar.
Allir sem eru 15 ára og eldri geta
sótt námskeiðið. Skráning í síma
688188. Kennsludagar8., 9., 14.,
15. og 17. maí.
Orsakir
dreifðrar byggðar
Jörgen Ole Bærenholt landfræð-
ingur við Háskólann í Hróars-
keldu flytur fyrirlestur á fræðslu-
fundi Félags landfræðinga, í
Skólabæ við Suðurgötu 26 mið-
vikudaginn 9. maí kl. 20.30.
Fyrirlesturinn nefnist Orsakir
dreifðrar byggðar - um lífsform
og auðlindastjómun í sjávar-
þorpum við Norður Atlantshaf. í
fýrirlestrinum verða kynntar
hugmyndir um lífsform og svæða-
þróun á íslandi og Færeyjum og
komið inn á sömu atriði hvað
varðar Grænland og Norður Nor-
eg. Spurt verður hvaða hlutverki
atvinnan gegni í fiskverkunar-
verksmiðjunni, skipulagi fjöl-
skyldunnar og opinberri velferð-
arstefnu og hver séu hin stað-
bundnu menningartengsl.
Emstrur friðaðar
Landgræðsla ríkisins og sveitar-
stjórn Hvolshrepps í Rangár-
vallasýslu hafa gert með sér sam-
komulag um friðun afréttarsvæð-
isins á Emstrum. Samið var um
að ekki skyldi rekið eða flutt búfé
á afréttinn á næstu fimm árum.
Emstrur em landsvæði austan við
Markarfljót norðan Þórsmerkur-
svæðisins. Á undanförnum árum
hefur verið náin samvinna við
bændur í Hvolhreppi um beitar-
stjórn og upprekstur á Emstrurn-
Tveir létust í
mótorhjólaslysi
Tveir ungir menn létust í umferð-
arslysi á Suðurlandsvegi á móts
við Ölfusborgir á sunnudags-
kvöldið. Mennirnir vom á mótor-
hjóli og rákust aftan á langferða-
bíl, sem beygði út af Suðurlands-
vegi í átt að Olfusborgum. Menn-
irnir voru báðir látnir þegar kom-
ið var með þá á Borgarspítalann í
Reykjavík.
Vortónleikar
Tónlistarskólans
Vortónleikar Tónlistarskólans í
Reykjavík verða haldnir í Nor-
ræna húsinu í kvöld kl. 20.30.
Nemendur Tónlistarskólans
leika ásamt píanóleikurunum
Önnu Guðnýju Guðmundsdótt-
ur, Helgu Bryndísi Magnúsdótt-
ur og Sólveigu Önnu Jónsdóttur.
Á efnisskránni em verk eftir fjöl-
da tónskálda. Nemendur flytja
verkin bæði í einleik og samleik.
Aðgangur er ókeypis.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 8. maí 1990