Þjóðviljinn - 08.05.1990, Page 8
X-SEYÐISFJÖRÐUR
Jafnaðaimenn sameinaðir
Alþýðubandalagsmenn, Alþýðuflokksmenn ogóháðirsameinast um eitt framboð gegn íhaldi og framsóknarmönnum
Óháðir, félagshyggjumenn og
jafnaðarmenn tóku höndum sam-
an á Seyðisfirði og stofnuðu sam-
tökin Tindar þann 9. maí síð-
astliðinn með það fyrir augum að
steypa núverandi meirihluta sem
ríkt hefur í 16 ár.
Samtökin draga nafn sitt af
Þrítindum sem eru þrír tindar í
Strandatindi sem gnæfir yfir
Seyðisfjörð. Stofnun þeirra bygg-
ir á góðri reynslu af samstarfi
minnihlutans í bæjarstjóm síð-
astliðið kjörtímabil.
Ástandið í herbúðum vinstri-
manna er gjörólíkt því sem var
fyrir síðustu sveitarstjóraakosn-
ingar. Þá klofnaði Alþýðubanda-
lagið rétt fyrir kosningarnar og
hópur úr því bauð fram sér í sam-
starfi við óháða. Þrátt fyrir það
tókst Alþýðubandalaginu að
halda sínu og fá einn mann kjör-
inn eins og í næstu kosningum þar
á undan.
Magnús Guðmundsson 1. maður
á T-lista.
Á kjörskrá eru um 680 manns.
í síðustu kosningum fékk B-listi
Framsóknarflokks 183 atkvæði
og þrjá menn kjörna. D-listi
Sjálfstæðisflokks fékk 147 at-
Atvinnumál
höfuðmál kosninganna
Margrét Gunnlaugsdóttir 3. maður á T-lista er bjartsýn á að með
sameinuðuframboðifélagshyggju- og jafnaðarmanna takistað
hnekkja meirihluta íhalds og framsóknarmanna
Hér á Seyðisfirði hafa Fram-
sóknarflokkur og Sjálfstæðis-
flokkur farið með meirihluta í
bæjarstjórn á þessu kjörtímabili
sem senn lýkur. Ekki bara á síð-
asta kjörtímabili heldur síðustu
16 ár.
Við í Tindum, sem er nýstofn-
að félag þar sem óháðir
félagshyggju- og jafnaðarmenn
sameinuðust í sterku og lifandi
félagi, höfum sett okkur það
markmið að fella núverandi
meirihluta í næstu kosningum.
Við teljum góða möguleika á
að það takist sé miðað við þau
viðbrögð sem við höfum fengið
hjá bæjarbúum. Það er greinilegt
að eftir 16 ára stjórn Framsóknar
og Sjálfstæðismanna finnst fólki
kominn tími til að þeir fái að hvfla
sig.
Atvinnumálin
mikilvægust
Langstærstu mál á stefnuskrá
okkar eru atvinnumálin. Hér á
Seyðisfirði gerðist nýlega mikill
harmleikur í atvinnulegu tilliti.
Snemma í september á síðasta ári
varð fiskvinnslufyrirtæki, sem
var langfjölmennasti vinnustað-
urinn hér í bæ, gjaldþrota. Við
það misstu á annað hundrað
verkamenn vinnu sína.
Frá þeim tíma hafa 70 til 90
menn verið á atvinnuleysisskrá
hér í bænum, langflestir konur.
Það segir sig sjálft að úr þessu
verður að bæta áður en stórfelld-
ur fólksflótti verður úr bænum.
Þess vegna ætlum við vinna af
öllum mætti og með hverjum sem
vilja vinna með okkur að endur-
reisn fiskvinnslunnar og það sem
allra fyrst. Það þolir enga bið.
Við höfum nú þegar tapað allt
of löngum tíma. Þegar vá sem
þessi dynur yfir fámennt
sveitarfélag verða allir að taka
höndum saman. Af þessum
sökum eru atvinnumálin númer
1, 2 og 3 á okkar stefnuskrá.
Við leggjum líka áherslu á að
skaffa lóðir undir ýmiss konar
annan atvinnurekstur en fisk-
vinnslu til að auka fjölbreytni í
atvinnulífi staðarins. Við teljum
núverandi meirihluta ekki hafa
staðið við gefin loforð í þeim efn-
um frá síðustu kosningabaráttu.
Ofarlega á stefnuskrá okkar
eru umhverfis- og skipulagsmál. I
þeim málum er allt of margt ógert
sem við viljum bæta úr.
Kaupstaðurinn okkar verður
einnar aldar gamall árið 1995.
Fram að þeim tíma eru ótal mörg
verk að vinna ef við ætlum að
vera komin í sparifötin þegar sú
hátíð gengur í garð.
Við eigum hér á Seyðisfirði
mörg gömul og virðuleg hús sem
bæði hafa byggingarlegt og sögu-
legt gildi. Þar má nefna gömlu
Jónas Hallgrímsson fram-
kvæmdastjóri 1. maður á D.-lista
Sjálfstæðisflokks. Núverandi
forseti bæjarstjórnar.
Theodór Blöndal tæknifræðingur
1. maður á B. lista Framsóknar.
Sigrún Ólafsdóttir 2. maður á T-
listat
kvæði og tvo menn. A-listi Al-
þýðuflokks fékk 119 atkvæði og 2
menn. G-listi Alþýðubandalags
fékk 69 atkvæði og einn mann.
Og S-listi óháðra og Alþýðu-
Hallsteinn Friðþjófsson 4. maður
á T-lista.
bandalagsmanna fékk 86 atkvæði
og einn mann.
Framsóknarflokkur og Sjálf-
stæðisflokkur fengu samtals 330
atkvæði og fimm menn en AI-
Pétur Böðvarsson í baráttusæti
sem 5. maður T-lista.
þýðuflokkur, Alþýðubandalag
og óháðir 274 atkvæði og fjóra
menn. Samtökin Tindar ætla að
reyna að snúa þessum tölum við
nú í kosningunum.
símstöðina sem gegndi því sögu-
lega hlutverki að taka við fyrsta
sæsímastrengnum sem lagður var
til landsins 1906. Það hús hýsir nú
bæjarskrifstofurnar. Nauðsyn-
Iegt er að gera miklar Iagfæringar
á því.
Þegar lokið verður við smíði
nýs skólahúsnæðis, sem er tilbúið
að hluta, er áætlað að flytja
bæjarskrifstofurnar síðar í gamla
skólahúsið sem reist var árið
1907. Þetta gamla skólahús
þarfnast mikilla lagfæringa eins
og gamla símstöðin.
Okkur þykir hægt hafa miðað í
þessum málum og hyggjumst
bæta úr því.
Nefndarstörf
Við í Tindum teljum að nefnd-
arstörf innan bæjarstjórnarinnar
hafi verið í hálfgerðum dvala á
kjörtímabilinu. Nefndir hafa
ekki verið virkjaðar eins og þær
voru kjörnar til. Þar af leiðandi
hafa þeir sem í þeim áttu að starfa
ekki nýst sem skyldi.
Við viljum nýta nefndirnar
eins og til er ætlast en ekki setjast
á þær og halda starfi þeirra niðri
eins og núverandi meirihluti. Allt
starf verður lýðræðislegra ef
nefndimar fá að starfa eins og
þeim er ætlað.
Félagsmál
í félagsmálum er mikill akur
óplægður hér í bæ. Þann akur ætl-
um við að rækta betur en hingað
til hefur verið gert. Við mun
leggja meiri áherslu á starf aldr-
aðra. Um leið viljum við stórbæta
þjónustu við þá enda teljum við
þá eiga hana inni hjá samfé-
laginu.
Mat okkar er að núverandi
meirihluti hafi ekki gert sér nægi-
lega grein fyrir því hve stór hluti
bæjarbúa eru í hópi aldraðra og
að sá hópur verður sífellt stærri
hluti samfélagsins.
Það ber að sinna öldruðu fólki
betur en áður bæði með betri
þjónustu og stuðningi svo að það
njóti sín við ýmiss konar störf og
tómstundir. Með öðrum orðum
þá viljum við virkja aldraða í
þeirra eigin þágu.
Æskunni viljum við líka sinna
betur en núverandi meirihluti.
Við munum meðal annars leggja
Margrét Gunnlaugsdóttir 3. maður á T-lista: Félagshyggju- og jafnað-
armenn í félaginu Tindar ætla að fella núverandi meirihluta.
áherslu á að Ijúka gerð nýs íþrótt-
ahús. Unglingar hafa mjög tak-
markaða aðstöðu til að sinna
ýmsum áhugamálum sínum.
Starf í þeirra þágu hefur að okkar
mati verið ómarkvisst.
Loforð núverandi meirihluta
um leikvelli hafa enn ekki öll ver-
ið efnd. Þannig njóta einstæður
mæður, sem hafa börn sín hjá
dagmæðrum, ekki niðurgreiðslu
á dagvistunargjaldi frá sveitarfé-
laginu eins og fæst fyrir böm í
leikskóla bæjarins. Við teljum
þetta óréttlátt og viljum bæta úr
því.
í málefnum fatlaðra viljum við
gera meira en gert hefur verið.
Allvel hefur verið staðið að
íþróttamálum þeirra en við telj-
um þörf fyrir úrbætur á öðrum
félagslegum málum í þeirra þágu,
svo sem ýmiss konar tómstund-
astörfum.
8 SÍÐA - ÞJÖÐVILJINN
T-listinn
Framboðslisti Tinda, félags jafnaðar-
og vinstrimanna
1. Magnús Guðmundsson skrifstofumaður,
2. Sigrún Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur,
3. Margrét Gunnlaugsdóttir hárgreiðslumeistari,
4. Hallsteinn Friðþjófsson formaður verkamannafélagsins Fram,
5. Pétur Böðvarsson yfirkennari,
6. Hermann Vestri Guðmundsson verkamaður,
7. Jóhanna Gísladóttir kennari,
8. Þuríður Einarsdóttir húsmóðir,
9. Þorkell Helgason rennismiður,
10. Jón Halldór Guðmundsson aðalbókari,
11. Þóra Bergný Guðmundsdóttir arkitekt,
12. Egill Sölvason forstöðumaður félagsheimilis,
13. Stefán Smári Magnússon verkamaður,
14. Hilmar Eyjólfsson vélvirki,
15. Ragnhildur Billa Árnadóttir verkakona,
16. Einar Jens Hilmarsson vélstjóri,
17. Ingbjörg Hallgrímsdóttir fóstra,
18. Emil B. Emilsson kennari.