Þjóðviljinn - 21.06.1990, Side 5
Emir, plasthús, plöntur, fræðsla
Úthlutað er til ólíkustu verkefna úr Pokasjóði Landverndar
í Nýju Helgarblaði Þjóðviljans
um síðustu helgi var skýrt frá
Pokasjóði Landverndar og að
samtals hefði nú verið úthlutað
tæpum 18 miljónum króna á einu
ári frá því að honum fóru að ber-
ast tekjur af plastpokasölu í versl-
unum. Margir hafa áhuga á því
að vita hvers konar verkefni eru
talin styrkhæf af faglegum ráð-
gjöfum Landverndar og stjórn
hennar.
Á árinu 1990 var úthlutað til 73
verkefna. Þjóðviljinn birtir því
listann f heild sinni og kennir þar
margra grasa. Styrkveitingunum
er skipt í fimm meginflokka: 1.
Friðun, landgræðsla og skóg-
rækt, 2. Fræðsla, 3. Vegagerð og
göngustígar, 4. Rannsóknir, 5.
Ymis verkefni.
Um næstu áramót verður á ný
auglýst eftir umsóknum um
styrkveitingar, en þeir sem áhuga
hafa geta lagt þær inn strax til
skrifstofu Landverndar og verður
þá tekin afstaða til þeirra á sínum
tíma.
Friðun,
landgræðsla,
skógrækt
SUÐ VESTURL AND:
Skógrœktarfélag Nosfellsbœjar
Verkefni: Skógrækt á svæðum félags-
ins í Hamrahlíð og Pormóðsdal.
JC Nosfellsbœr
Verkefni: Framhaldsverkefni á sviði
trjáræktar og umhverfismála.
Rotafyklúbbur Nosfellssveitar
Verkefni: Skógrækt og uppgræðsla
lands í Mosfellsbæ.
Lionskl. Ásbjörn í Hafnarfirði
Verkefni: Kaup á plöntum til að
gróðursetja fyrir ofan Sléttuhlíð.
Starfsmannafélag Raunvísindastofn-
unar
Verkefni: Gróðursetning í landi
Straums og Þorbjarnarstaðar.
Lionsklúbur Grindavíkur, Kvenfélag
Grindavíkur, Ungmennafélag Grind-
avíkur, Slysavarnasveitin Þorbjörn,
Skógrœktarfélag Grindavíkur, Fe-
grunarfélag Grindavíkur
Á Hellissandi sjá ferðalangarnir m.a. gömlu sjóbúðina Þorvaldarbúð.
Sumarferð ABR á Snœfellsnes
Dulræn og pólitísk áhrif
, Jökullinn læknaði mig af gigt
á sínum tíma, þegar ég fór á Snæ-
fellsnes, svo ég hef talsverða trú á
áhrifamætti þessarar orkustöðv-
ar,“ sagði Guðrún Kr. Óladóttir,
sem hefur ásamt öðrum undirbú-
ið Jónsmessu-sumarferð Alþýðu-
bandalagsins í Reykjavík á Snæ-
fellsnes nú um helgina.
„Lagt verður af stað á laugar-
dag kl. 10 frá Hverfisgötu 105 og
þetta verður eflaust að öllu leyti
fyrsta flokks ferðalag, veðrið gott
ög leiðsögumennirnir gagnkunn-
ugir, Skúli Alexandersson al-
þingismaður frá Hellissandi og
séra Rögnvaldur Finnbogason á
Staðastað, sem aukinheldur ætlar
að segja okkur frá nýlegri ferð
Verkefni: Uppgræðsla á Þorbjarnar-
felli við Grindavík.
VESTURLAND
Skógrœktarfélag Eyrarsveitar
Verkefni: Girðing og plöntukaup.
Laxárdalshreppur og Skógrœktarfé-
lag Dalasýslu
Verkefni: Skjólbeltaræktun við Búð-
ardal.
Skógræktarfélag Skilmannahrepps
Verkefni: Kaup á plöntum til að
gróðursetja í skógr. girðingu félags-
ins.
Reykholtsstaður, Borgarfirði
Verkefni: Gróðursetning.
Rafnhildur Árnadóttir og Guðmund-
ur Guðjónsson, Akranesi
Verkefni: Skógrækt á landi sem við-
komandi hafa fengið úthlutað hjá
Akranesbæ.
Skógræktarfélag Borgarfjarðar
Verkefni: Skógrækt í landi Grafark-
ots í Norðurárdal.
Skógræktarfélag Stykkishólms
Verkefni: Girða land og planta í og
við Vatnsdal í Helgafellssveit í landi
Drápuhlíðar (Selskógur).
VESTFIRÐIR
Magnús Guðlaugsson, Mánastíg 3,
Hafnarfirði
Verkefni: Girða land til friðunar í
Mórudal á Barðaströnd.
Héraðsskólinn að Núpi, Dýrafirði
Verkefni: Girðingarkostnaður vegna
skógræktar.
Skógrœktarfélag Bolungarvíkur
Verkefni: Ræktun í Traðarhyrnu
fyrir ofan og norðan Bolungarvflt.
Golfklúbbur ísafjarðar
Verkefni: Uppgræðsla við golfvöllinn
í Tungudal.
Zofonías Þorvaldsson, Guðbjört Sig-
mundsdóttir, Læk í Dýrafirði
Verkefni: Girðingaframkvæmdir
vegna tilraunaeldis á sem flestum
trjátegundum og kvæmum og vegna
trjáræktar.
Skógrœktarfélag Patreksfjarðar
Verkefni: Átak í skógrækt og sáningu
lúpínu í landi Patrekshrepps.
Áhugafólk um hreinsun og fegrun
Hornstranda
Verkefni: Hreinsun á fjörum og
endurbygging varða á gönguleiðum á
Hornströndum - Aðalvík, Rekavík,
Látur, Hlöðuvík, Hornvík.
NORÐURLAND VESTRA
Litlu grœningjarnir
sinni til Palestínu. Gist verður í
Gimli á Hellissandi og síðan taka
við leiðsögn á sunnudaginn félag-
arnir í Grundarfirði, sem unnu
eftirminnilegan kosningasigur í
vor.“
„Það er fjöldamargt athyglis-
vert að sjá á Snæfellsnesi annað
en Jökulinn og Grundfirðing-
ana,“ segir Guðrún, „og ástæða
til að hvetja bæði unga og aldna
til að slást í förina. Þetta er ódýr
ferð, kostar 2800 kr. og hægt að
tilkynna sig á skrifstofu Alþýðu-
bandalagsins í síma 17500 til há-
degis á morgun, föstudag, eða í
símana sem tilgreindir eru í
auglýsingu frá okkur í Þjóðviljan-
um.“ ÓHT
Verkefni: Skjólbeltagerð við Reykja-
skóla í Hrútafirði.
íþróttafélagið Leiftur, Ólafsfirðifl
Verkefni: Uppgrœðsla í og við skrið-
urnar sem féllu á Ólafsfjörð í ágúst
1988.
Skógræktarfélag Ásahrpps, A- Hún.
Verkefni: Plöntukaup fyrir reit fél-
agsins að Hofi í Vatnsdal.
Lionskl. Liljur á Blönduósi
Verkefni: Uppgræðslaí hvömmunum
norðan Blöndu gegnt Hrútey.
Skógræktarfélag Skagastrandar
Verkefni: Góðursetning á svæði fél-
agsins í útjaðri Skagastrandar.
Húnavallaskóli
Verkefni; Gróðursetning við Húna-
vallaskóla.
Skógræktarfélag V-Hún.
Verkefni: Viðhald girðinga, plöntu-
kaup, auglýsingar, vinna o.fl. á úti-
vistarsvæði í Kirkjuhvammi ofan
Hvammstanga.
Skógrœktarfélag Skagfirðinga
Verkefni: Framhald Reykjahólsverk-
efnis.
NORÐURLAND EYSTRA
Kvenfélag Ljósvetninga
Verkefni: Kaup á trjáplöntum, plant-
að innan girðingar við Stórutjarna-
skóla.
Skógræktarfélag Suður-Þingeyinga
Verkefni: Grisjun og umhirða í
Fossselsskógi.
Golfklúbbur Húsavíkur
Verkefni: Trjárækt og uppgræðsla á
svæði Golfklúbbsins í Kötlum við
Húsavík.
Árskógshreppur
Verkefni: Skógrækt og umhverfismál
í Árskógshreppi.
Presthólahreppur
Verkefni: Umhverfisbætur á Kópa-
skeri, flutningur á mold og skít.
Brynjar Skarphéðinsson, Akureyri
Verkefni: Girðing til að friða fágætt
landsvæði sem nær 100 m. frá sjó og
uppundir Vaðlaheiðarbrún til þess að
gera athugun á trjágróðurleifum og
kvæmatilraunir.
Skógræktarfélag Eyfirðinga,
- í samstarfi við umhverfisnefnd Ak-
ureyrar og Landgræðslu ríkisins.
Verkefni: Girðing, stíga- og slóða-
gerð og plöntur.
Grýtubakkahreppur
Verkefni: Kaup á trjáplöntum til
gróðursetningar á Grenivík.
Kvenfélagið Freyja, Raufarhöfn
Verkefni: Kaup á fræi og áburði til að
græða upp land í nágrenni Raufar-
hafnar.
AUSTURLAND
Búlandshreppur
Verkefni: Gerð göngulýsingarkorts
af því svæði sem unnið er að upp-
græðslu á á tanganum utan við Djúp-
avog.
Skógræktarfélag Neskaupstaðar
Verkefni: Skjólbeltagerð, skipulagn-
ing útivistarsvæðis, framkvæmda við
gömlu skógræktina, uppgræðslu rofa-
barða, uppgræðsla umhverfis flugvöll
1.
Skógræktarfélag Reyðarfjarðar
Verkefni: Landgræðsla og skógrækt í
landi sveitarfélagsins.
Skógrœktarfélagið Nýgræðingur,
Stöðvarfirði
Verkefni: Girðing vegna uppgræðslu
og skógræktar.
Skógrœktarfélag Breiðdæla
Verkefni: Gróðursetning á opnu
svæði í Breiðdalsvíkurþorpi og við
íþróttavöllinn á Staðarborg.
SUÐURLAND
Skógræktarfélagið Mörk, Kirkju-
bœjarklaustri
Verkefni: Kaup á plöntum til að
gróðursetja í skógræktargirðingum
félagsins, fjármagna þátttöku félags-
ins í átaki 1990 á Stjórnarsandi, til
tilraunaræktunar á skjólbeltum á
Stjórnarsandi.
Eyrarbakkahreppur
Verkefni: Uppgræðsla lands, fegrun
og snyrting á opnum svæðum, sem
skemmdust af völdum sjávarflóða 9.
jan. sl.
Sumarheimili templara
Verkefni: Girðing, trjárækt og
áburðargjöf í Galtarlækjarskógi.
Hestamannafélagið Ljúfur, Hverag-
erði og Ölfusi
Verkefni: Uppgræðsla á skemmdum
eftir jarðvegsskriðu í Reykjakots-
landi.
Golfklúbbur Selfoss
Verkefni: Kaup á trjáplöntum til
gróðursetningar á svæði klúbbsins á
Svarfhólsvelli í Laugardælum.
Skógræktarfélag Rangæinga
Verkefni: Girðingar í Skógum, Múl-
akoti og Réttarnesi, lagning brauta
um skógræktarland í Bolholti og
Réttarnesi, laun verkstjóra, plöníu-
kaup, áburður.
Póstmannafélag íslands
Verkefni: Girðing og skógrækt á jörð
félagsins að Rauðabergi II Mýrum,
A-Skaft.
Sólheimar í Grímsnesi
Verkefni: Bygging þriggja plasthúsa
fyrir trjáplöntuuppeldi.
Kvenfélag Eyrarbakka
Verkefni: Lúpínusáning vestan við
Eyrarbakka.
Sameignir skólanna á Laugarvatni -
Tjaldmiðstöð
Verkefni: Kaup á trjáplöntum til að
prýða og skýla tjaldsvæðum á
Laugarvatni.
Vegagerö og
göngustígar
Hríseyjarhreppur
Verkefni: Að bæta gönguleiðir í Hrís-
ey.
Skógræktarfélag Garðabæjar
Verkefni: Leggja akfæran veg, koma
upp bflastæðum og útbúa göngustíga í
landi félagsins Smalaholti við Vífilss-
taði.
Skógræktarfél. A ustur-Hún vetninga
Verkefni: Vegagerð í landi félagsins
að Gunnfríðarstöðum í Svínavatns-
hreppi.
Slysavarnasv. Skagjirðingasveit
Verkefni: Merking á leið norðan
Hofsjökuls.
Náttúruverndarráð
Verkefni: Stígagerð í Skútustaðagíg-
um. Móttaka sjálfboðaliða í þjóð-
görðunum.
Útivist
Verkefni: Gerð göngustígs upp á
Réttarfell, Goðalandi.
Eigendur jarðanna Hamragarða og
Seljalands
Verkefni: Ýmsar framkvæmdir,
göngustígar og tröppugerð við Seljal-
andsfoss til að sporna við frekari
gróður- og landspjöllum þar.
Ferðafélag íslands
Verkefni: Gerð göngustíga og lag-
færa bflastæði til uppgræðslu.
Fræðsla
Námsgagnastofnun
Verkefni: Gerð myndbands til um-
hverfisfræðslu 9 til 13 ára nemenda.
Rannsóknir
Ólafur Eggertsson, Lunds Universitet
Verkefni: Rannsókn á hvaða veður-
farsþættir hafa mest áhrif á breidd ár-
hringa birkitrjáa I Hallormsstaða-
skógi.
Magnús Jóhannsson og Þóra Ellen
Þórhallsdóttir
Verkefni: Könnun á áhrifum sinu-
bruna á gróður og jarðveg.
Sigurður Greipsson, University of
East Anglia
Verkefni: Rannsókn á ýmsum eigin-
leikum melgresis með hliðsjón af því
að geta aukið notagildi þess til land-
græðslu á íslandi.
Ása L. Aradóttir, Texas A&M Uni-
versity
Verkefni: Rannsóknir á vistfræði
birkis og notkun þess til landgræðslu.
Fuglaverndarfélag íslands
Verkefni: Könnun á fuglalífi á lítt eða
óröskuðum votlendissvæðum í
Árnes- og Rangárvallasýslum.
Ýmis verkefni
Ungmennahreyfing Rauða Kross ís-
lands
Verkefni: Norrænt trjáræktar - og
menningarverkefni 29.6 - 15.7 1990.
Eigendur Hreðavatns
Verkefni: Ýmsar framkvæmdir til
náttúruverndar á jörðinni og til hag-
ræðis fyrir ferðamenn.
hreppsnefnd Skeiðahrepps
Verkefni: Viðnám við eyðingu á
gróðurlendi vegna ágangs Þjórsár,
Hvítár og Stóru-Laxár.
Fuglaverndarfélag íslands
Verkefni: Verndun á íslenska arnar-
stofninum.
Sjálfboðaliðasamtök um Náttúru-
vernd
Verkefni: Greiðsla á ferðakostnaði
vegna vinnuferða.
Fimmtudagur 21. júní 1990 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
Landbúnaður og
GATT-viðræðumar
Umræður um Uruguayviðræð-
ur aðildarríkja GATT-samkomu-
lagsins settu mikinn svip á þing
IFAP, Alþjóðsamband búvðru-
framnleiðenda, sem lauk í Þránd-
heimi fyrir skemmstu. Þær við-
ræður sem nú standa yfir meðal
aðildarríkja GATT-samkomu-
lagsins (AlþjóðatoIIabandalags-
ins) og kenndar eru við Uruguay
snerta þjónustu og viðskipti með
landbúnaðarvörur. Niðurstaðna
er að vænta í desember nk.
í tillögum þeim sem IFAP-
þingið samþykkti að leggja fyrir
ríkisstjórnir aðildarríkja Álþjóð-
asambandsins felst m.a. eftirfar-
andi: í GATT-viðræðunum
verður að taka tillit til þeirra
stuðningsaðgerða við landbúnað
sem hafa bein áhrif á alþjóða-
markað. Kapp skal lagt á að
hverfa frá eða draga úr þeim að-
gerðum sem stuðla að offram-
leiðslu og birgðasöfnun.
Öll ríki verða að aðlaga land-
búnaðarstefnu sína og/eða draga
úr stuðningsaðgerðum samhliða
og kostnaður því samfara verður
að dreifast jafnt á milli landa.
Taka verður tillit til þeirra landa
sem þegar hafa breytt framleiðslu
sinni, annað hvort með pólitísk-
um aðgerðum eða markaðsvæð-
ingu. Enn fremur ber að samhæfa
peningastefnu allra viðkomandi
ríkja og síðast en ekki síst að sam-
ræma reglur um heilbrigðis- og
hollustuvernd.
Matvælaöryggi
Matvöruverð á alþjóðamark-
aði er nátengt birgðasöfnun.
Nægar varabirgðir eru víða álitn-
ar nauðsynlegar til að tryggja ör-
uggt matvælaframboð. Ekki ber
samt að hlaða upp of miklum
birgðum. Þegar útlit er fyrir slíkt
verða útflutningslönd að nýta
innanlandsbirgðir eða losa sig við
þær á annan hátt, án þess að það
hafi áhrif á alþjóðaviðskipti.
Jafnframt verður að draga úr
framleiðslu þannig að hún sé í
samræmi við markaðinn. í helstu
útflutningslöndum ætti að meta
hvaða hámarksbirgðir séu
nauðsynlegar til þess.
GATT ætti að hafa opinbert eft-
irlit með birgðasöfnun helstu út-
flytjenda og vekja athygli
stjórnvalda viðkomandi landa á
umframbirgðasöfnun. Þau ættu
síðan að leggja tillögur fyrir
GATT um hvernig má draga úr
birgðum svo sanngjarnt jafnvægi
náist.
Afnám viðskipta-
takmarkana
Innflutningslönd verða að
geta treyst því að öruggt framboð
sé tryggt með nægilegum birgð-
um og að samkomulag sé meðal
útflutningslanda í GATT um það
að viðskiptahömlur verði ekki
settar á. Eins verða útflutnings-
lönd að hafa tryggingu fyrir því
að markaðir þeirra lokist ekki
skyndilega.
Stuðningsaðgerðir við land-
búnað í hverju landi ætti að taka
til umfjöllunar í GATT-
viðræðunum ef um það er að
ræða að þær hafi áhrif á alþjóða-
viðskipti. Kapp skyldi lagt á að
leggja niður eða draga úr stefnu
eða aðgerðum sem hafa stuðlað
mest að umframframleiðsu og
haft sem óhagstæðust áhrif á al-
þjóðleg viðskipti eða heft þau.