Þjóðviljinn - 24.07.1990, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 24. júlí 1990. 135. tölublað 55. árgangur.
fbúar höfuöborgarsvæðisins sáu stóran loftbelg sigla um háloftin s.l.
laugardag. Þetta var liður í Ferðamálaári Evrópu 1990. Upphaflega
átti belgurinn að takast á loft frá Laugardalsvelli kl. 11 árdegis og
ætlaði Steingrímur J. Sigfússon samgönguráðherra að vera um borð.
Af því varð þó ekki því veðurskilyrði voru slæm. Var þá farið með
loftbelginn til Hafnarfjarðar og síðdegis á laugardag lyftist hann frá
jö.ðu. Steingrímur var þó fjarri góðu gamni því hann þurfti að fara út á
!and. Belgurinn flaug svo tignarlegur til Reykjavíkur. Mynd Kristinn.
Þjóðarsáttin
Allt stefnir í
óðaverðbólgu á ný
Félagsdómur úrskurðar BHMR 4,5 prósenta hœkkun frál.júlí. ASÍog
BSRB: Gerum tilkall tilþess sama. HalldórÁsgrímsson: Vil ekki bera
ábyrgð áþvíað verðbólgafari úr böndunum á ný. PállHalldórsson: Mér
var alltaf Ijóst að dómur yrði okkur í hag
Mér var alltaf ljóst að félags-
dómur myndi úrskurða okk-
ur í hag. En það er leiðinlegt að
þurfa að fara fyrir félagsdóm til
þess að fá úrskurð um svo
augljóst atriði sem þetta. Nú ætti
að vera hægt að halda áfram
störfum að mati á launamun okk-
ar og háskólamanna á almennum
markaði, sagði Páll Halldórsson,
formaður BHMR, eftir að félags-
dómur hafði dæmt félags-
mönnum BHMR 4,5 prósent
launahækkun frá 1. júlí.
Viðbrögð aðila vinnumarkað-
arins við úrskurði félagsdóms eru
öll á einn veg. Ásmundur Stef-
ánsson, forseti ASÍ, og Ögmund-
ur Jónasson, formaður BSRB,
segjast munu sækja sambærilegar
launahækkanir fyrir sína félags-
menn og ljóst er að verð-
lagsmarkmið samninganna frá í
febrúar eru þar með brostin.
Jafnframt virðist ljóst að
BHMR mun gera tilkall til allra
hækkana sem aðrir fá, enda er
ákvæði um það í samningi
BHMR og ríkisins. Þannig leiðir
launahækkun eins til launahækk-
unar annarra og svo koll af kolli.
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri VSÍ, líkir þessu við
púðurkerlingu og segir að ef
þetta gangi eftir verði þjóðarsátt-
in eins og skammvinn lygasaga.
„Ef allt fer aftur af stað hefur
ríkisstjórnin svikið eigin mark-
mið um að ná niður verðbólgu,“
segir Þórarinn. Hann segist þó
ekki vilja gefa ríkisstjórninni ráð
um hvernig bregðast skuli við.
Halldór Ásgrímsson, starfandi
forsætisráðherra, segir ríkis-
stjórnina hafa staðið í þeirri trú
að fyrsta grein samningsins við
BHMR myndi koma í veg fyrir þá
stöðu sem nú er komin upp.
Hann segist ekki geta sagt um
hvernig ríkisstjórnin muni bregð-
ast við.
„En ég vil ekki bera ábyrgð á
því að verðbólgan fari aftur úr
böndunum,“ segir Halldór.
Hann vildi ekki segja til um
hvort þessi orð þýddu að ríkis-
stjórnin myndi segja af sér ef
verðbólgan færi aftur úr böndun-
um.
Ásmundur Stefánsson segist
ekki vilja nota þau orð að þjóðar-
sáttin hafi verið rofin með úr-
skurði félagsdóms.
„En það hefur alltaf verið ljóst
að við munum gera tilkall til
sömu hækkana og aðrir fá. Það er
skýrt kveðið á um það í forsend-
um samningsins frá í febrúar.
Mér finnst ólíklegt að atvinnu-
rekendur reynist reiðubúnir til
þess að semja við okkur um þessa
kauphækkun án þess að verð-
lagsforsendur verði endurskoð-
aðar.
En stóra málið í þessu sam-
hengi er ekki hvort við fáum 4,5
prósent hækkun heldur hvort
BHMR mun gera tilkall til sömu
hækkunar aftur og svo koll af
kolli," segir Ásmundur.
Hann gerir ráð fyrir að krafist
verði sömu hækkunar í prósent-
um en ekki í krónutölu.
Ögmundur Jónasson segist
engu vilja spá um framhaldið að
öðru leyti en því að BSRB mun
krefjast sömu hækkana þegar
kemur að endurskoðun samn-
ingsins í haust.
„Við munum aldrei sætta okk-
ur við aukið misrétti í launakerfi
hins opinbera. BHMR og ríkis-
stjórnin byggðu inn í sinn samn-
ing ákvæði sem gefur BHMR
kröfu á allt sem við kunnum að fá
auk þessara svokölluðu leiðrétt-
inga. Þennan hnút þarf einhvern
veginn að leysa,“ segir Ögmund-
ur.
Engin ákvæði eru um sjálf-
krafa hækkanir í samningi
BSRB, en samninginn má endur-
skoða í haust og honum má segja
upp í nóvember.
-gg
Heimsleikar fatlaðra
Ólafur setur heimsmet
Olafur Eiríksson varð fyrstur í heimsmeti 2:13.21 mínútum á Sverrisson hafnaði í 15. sæti í
200 metra skriðsundi á nýju heimsleikum fatlaðra í gær. Geir sama sundi. Þá varð Lilja M.
Snorradóttir í öðru sæti í 200 m
Skattsvik
Meint misferli uppá 55 miljónir króna
Benco hf. grunað um að hafa svikið tugi miljóna króna undan skatti. Framkvœmdastjóri
fyrirtœkisins ífarbannifráþvífyrirjól vegna gruns um bókhaldsmisferli.
Samkvæmt athugun, sem ný-
lokið er á vegum embættis
Ríkisskattstjóra, leikur grunur á
að fyrirtæki eitt í Reykjavík hafí
svikið umtalsverða fjármuni
undan skatti á síðustu árum, eða
um 55 miljónir króna. Sam-
kvæmt áreiðanlegum heimildum
Þjóðviljans er hér um að ræða
fyrirtækið Benco hf. sem er skráð
í eigu einnar og sömu fjölskyld-
unnar. Þá fékk Þjóðviljinn stað-
fest að stjórnarformaður og
framkvæmdastjóri fyrirtækisins
hafí verið í farbanni meðan á
rannsókn málsins hefur staðið
vegna gruns um bókhaldsmis-
ferli.
Guðmundur Guðbjarnason,
skattrannsóknarstjóri, sagðist í
samtali við Þjóðviljann í gær
hvorki geta gefið upp nafn fyrir-
tækisins né staðfest farbannið að
svo stöddu. Hann sagði þó að
rannsóknin hefði náð til ríflega
tveggja ára á bókhaldsgögnum
fyrirtækisins og snérist um
meintan söluskattsstuld og tekju-
skattssvik. Aðspurður hvort mál-
ið yrði sent til
rannsóknarlögreglunnar, sagðist
Guðmundur hvorki geta né vilja
upplýsa það að svo stöddu, en
það væri þó venja að gera þegar
um væri að ræða meiriháttar
meint skattsvikamál.
Samkvæmt upplýsingum frá
Sakadómi var farið fram á heim-
ild til handtökuskipunar á hendur
framkvæmdastjóranum þann 13.
desember s.l. Þá barst Sakadómi
beiðni þann 18. sama mánaðar
um að hann væri settur í farbann
vegna gruns um bókhaldsbrot.
Beiðni um framlengingu á farb-
anni barst síðan Sakadómi 7. fe-
brúar og aftur var krafist fram-
lengingar á farbanninu 28. mars
s.l.
Samkvæmt upplýsingum úr
Hlutafélagaskrá var Benco stofn-
að 25. júní 1988 og skráð með
aðsetur í Lágmúla. Fyrirtækið
hafði m.a. umboð fyrir og seldi
tjaldvagna, síma og talstöðvar. í
nóvember s.l. seldi fyrirtækið
vörulager sinn fyrirtækinu Titan
hf. sem er til húsa á sama stað og
Benco var. Að sögn Sigfúsar
Sverrissonar hjá Titan hf. er þeim
viðskiptum að fullu lokið.
Eftir því sem næst verður kom-
ist er Benco hf. ekki starfrækt í
dag nema að nafninu til. Hlutafé-
lagaskrá hefur ekki borist til-
kynning um slit félagsins né um
aðseturskipti. Þá fékk Þjóðvilj-
inn þær upplýsingar hjá Borgar-
fógetaembættinu í gær að hvorki
hafi verið farið fram á greiðslu-
frest eða gjaldþrotameðferð á
fyrirtækinu.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
tókst ekki að ná tali af fram-
kvæmdastjóranum né öðrum
skráðum stjórnarmönnum fyrir-
tækisins.
-rk
skriðsundi kvenna, en í fyrsta
sæti var stúlka frá Kanada.
Lilja varð einnig önnur í 100 m
baksundi og í 50 m skriðsundi á
sunnudag. Rut Sverrisdóttir lenti
einnig í öðru sæti í 100 m flugs-
undi á sunnudag.
Á sunnudag var einnig keppt í
200 m hlaupi og lenti Haukur
Gunnarsson í þriðja sæti. Sigrún
Pétursdóttir varð í 5. sæti í 50 m
baksundi, Ólafur Eiríksson í 6.
sæti í 50 m skriðsundi og Halldór
Guðbergsson í 7. sæti í 100 m
flugsundi.
A laugardag varð Ólafur
Eiríksson í 4. sæti í 200 m fjór-
sundi, Halldór Guðbergsson í 5.
sæti í 200 m skriðsundi, Rut
Sverrisdóttir í 6. sæti í 200 m
skriðsundi, Lilja M. Snorradóttir
í 7. sæti í 200 m fjórsundi og Geir
Sverrisson í 14. sæti í 200 m fjör-
sundi.
í dag keppa Halldór Guð-
bergsson og Rut Sverrisdóttir í 50
m skriðsundi og 200 m fjórsundi
og Kristín R. Hákonardóttir í 100
m bringusundi. -Sáf