Þjóðviljinn - 24.07.1990, Blaðsíða 3
FRÉTTIR
Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra opnar fyrstu flöskuna af óáfengu kampavíni. Mynd: Jim Smart.
/
Fjármálaráðuneyti og A TVR
Óáfeng borðvín
í ríkinu
Komið til móts við óskir viðskiptavina sem
vilja geta boðið óáfeng vín. Stefna íopinber-
um veislum að bjóða upp á óáfeng vín
samhliða áfengum
r *
Igær hófst sala í útsölum ATVR
1 áfengislausum vínum. Þetta
er í fyrsta sinn sem hægt er að fá
óáfeng borðvín i verslunum
ÁTVR, en þau hafa hingað til
fengist í matvöruverslunum.
Ástæða þessa er að verið er að
koma til móts við óskir margra
viðskiptavina, sem vilja á einfald-
an hátt geta boðið gestum jafnt
áfenga og óáfenga drykki af
sambærilegri gerð og verslað í
sömu versluninni.
Það var fjármálaráðherra sem
fór fyrir nokkru fram á að þessi
kostur yrði kannaður og hefur
ÁTVR nú á boðstólum fjórar
gerðir af óáfengu borðvíni frá
Frakklandi og Þýskalandi. Boðið
er upp á 2 tegundir af rauðvíni, 2
tegundir af freyðivíni, 2 tegundir
af hvítvíni, en aðeins 1 tegund af
rósavíni. Upphaflega áttu einnig
að vera 2 tegundir af rósavíni, en
einhvers staðar á flutnings-
leiðinni hurfu nokkrir kassar og
vildu bæði Ólafur Ragnar Gríms-
son fjármálaráðherra og Hösk-
uldur Jónsson forstjóri ÁTVR,
koma þeim skilaboðum til þeirra
sem hafa nú þessa kassa undir
höndum, að þeir séu með óáfengt
vín. Það sé óþarfi fyrir þá að
reyna að drekka þetta vín í þeim
tilgangi að finna á sér.
Að sögn Ólafs Ragnars Gríms-
sonar er þessi nýbreytni í sam-
ræmi við þá þróun sem átt hefur
sér stað hérlendis að undanförnu.
Hófsemi og bindindi hefur eflst í
áfengismálum, og jafnframt hafa
siðvenjur við víndrykkju breyst
nokkuð. Bæði hefur virðing vax-
ið fyrir góðvínum og hömlulaus
neysla sterkra drykkja þykir ekki
jafn sjálfsögð og áður. Því hefur
verið reynt síðustu ár að hafa já-
kvæð áhrif á þessa þróun með
verðlagningu ATVR. Hlutfalls-
legur verðmunur léttra vína og
sterkra hefur aukist og er áætlað
að framhald verði á því.
Ólafur Ragnar sagði að það
væri stefna stjórnvalda, að í
veislum sem haldnar eru á vegum
þeirra, væri boðið upp á óáfeng
vín samhliða áfengum. Ekki
þyrfti að biðja um slíkt sérstak-
lega.
Þessi vín sem hafin er sala á nú,
eru raunveruleg vín sem sneydd
hafa verið vínandanum. Þau eru
að styrkleika um 0,5% að áfeng-
ishlutfalli. Verð á þessum vínum
er á bilinu 320-560 krónur flask-
an.
ns.
Leiktœkjasalir
Tralli mætir enn andstöðu
Tralliflytur úr Mjódd íHafnarstrœti. Alþýðubandalag og Kvennalisti
á móti veitingu leyfis. Framsókn sat hjá
Lögreglan
Ólátabelgir
á myndband
Lögreglan er farin að beita ný-
stárlegum aðferðum við að hafa
hendur í hári ólátabelgja. Á
nokkrum stöðum í miðbæ
Reykjavíkur hefur t.a.m. verið
komið fyrir myndbandsupptöku-
vélum á völdum útsýnisstöðum til
að fylgjast með hegðun borgar-
anna er kvölda tekur og Bakkus
fer að láta á sér kræla. Þetta var
eitt andsvar lögreglunnar við vax-
andi ofbeldi í miðbænum í vetur.
„Lögreglan getur ekki verið
með augun alls staðar svo við
gripum til þess bragðs að koma
fyrir mönnum með myndbands-
upptökuvélar á „útsýnispóstum“
í miðbænum. Þeir eru í talstöðv-
arsambandi við lögregluna og
láta vita ef þeir verða varir við
eitthvað óeðlilegt og taka atburði
upp á myndband ef þeim þykir
ástæða til. Þetta hefur verið gert í
hálft ár og reynslan af þessu er
nokkuð góð,“ sagði Sturla Þórð-
arson fulltrúi lögreglustjórans í
Reykjavík.
Lögreglan á ísafirði hefur
einnig tekið myndbandstæknina í
sína þjónustu og tekið upp á band
mannlíf fyrir utan öldurhúsin
Krúsina og Sjallann þar í bæ.
„Við prófuðum þetta í gamni
eina helgi, ákváðum að gera
þessa tilraun vegna þess að við
höfum hvað eftir annað verið
truflaðir þarna þegar við höfum
haft afskipti af ölvuðu fólki. Ekki
veit ég hvort framhald verður á
þessu en þetta reyndist vel, m.a.
sáum við eina líkamsárás á band-
inu og eins þegar maður réðst á
lögreglubílinn og reif upp hurð-
ina meðan við vorum að hlynna
að slösuðum manni“ sagði Jón-
mundur Kjartansson aðstoðar-
yfirlögregluþj ónn.
-el
Eg hef ekkert á móti Tralla sem
slíkum. En mér finnst fyrir
neðan allar hellur að opna
leiktækjasal þar sem unglingum
er ekki boðin nein önnur aðstaða,
segir Guðrún Ögmundsdóttir,
áheyrnarfulltrúi Kvennalistans í
borgarráði. Hún og nafna hennar
Ágústsdóttir, Alþýðubandalagi,
Starfsfólk á Mógilsá sendi í gær
frá sér mótmæli til Steingríms
J. Sigfússonar landbúnaðarráð-
herra vegna nýrrar reglugerðar
um rannsóknarstöð Skógræktar
ríkisins og vegna vals fulltrúa í
fagráð.
I mótmælabréfinu segir að í
reglugerðinni sé rannsóknarstöð-
in sett beint undir vald skógrækt-
arstjóra í óþökk þeirra sem skrifa
undir. Þá sé rannsóknarstöðin
svipt fjárforráðum og faglegt
sjálfstæði tekið af sérfræðingum.
„Við undirrituð viljum kvarta
yfir því sinnuleysi landbúnaðar-
ráðuneytisins að hafa ekki ennþá
kynnt okkur efni nýrrar reglu-
gerðar. Við viljum einnig mót-
mæla því að hafa ekki fengið
formlegt boð frá landbúnaðar-
voru andvígar opnun nýs
leiktækjasalar Tralla í Hafnar-
stræti.
Fjórir borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins voru meðmæltir
veitingu leyfis fyrir leiktækjasal-
inn Tralla í Hafnarstræti 17, en
Sigrún Magnúsdóttir sat hjá.
Fulltrúi Nýs vettvangs, Kristín Á.
ráðherra um að kjósa fulltrúa í
fagráð rannsóknarstöðvarinnar.
Að auki mótmælum við því að
fulltrúi okkar hafi ekki verið for-
mlega boðaður á væntanlegan
fund í fagráði,“ segir orðrétt í
bréfinu.
Þá er því lýst að skógræktar-
stjóri hafí haft símasamband við
einn af undirrituðum á sunnudag
og beðið starfsmenn um að kjósa
fulltrúa á fund fagráðs, sem halda
átti í gær. Skógræktarstjóri á að
sögn að hafa lagt til að Þórarinn
Benedikz yrði valinn fyrir hönd
starfsmanna.
„Við mótmælum þessum af-
skiptum skógræktarstjóra af vali
starfsmanna á fulltrúa í fagráð.
Sitji Þórarinn Benedikz þennan
fund, þá gerir hann það ekki sem
fulltrúi starfsmanna, heldur sem
Ólafsdóttir segist ekki andvíg
leiktækjasal á þessum stað.
Tralli rekur leiktækjasali við
Skúlagötu og í Mjódd. Vegna
andstöðu foreldra og skólayfir-
valda í Breiðholti hafa eigendur
Tralla ákveðið að loka salnum í
Mjódd, en salurinn í Hafnar-
stræti kemur í stað hans.
sérstakur fulltrúi skógræktar-
stjóra. Það vekur ekki trú á hlut-
leysi fagráðs gagnvart stjórnend-
um Skógræktar ríkisins þegar
skógræktarstjóri hefur bein áhrif
á val fulltrúa í fagráði.“
í lok bréfsins segir að því miður
komi þessi vinnubrögð landbún-
aðarráðherra ekki á óvart. „Við
viljum þó mótmæla væntanlegum
fundi fagráðs. Við lýsum gerðir
fundarins fyrirfram marklausar
þar eð starfsmenn áttu þess ekki
kost að velja sér fulltrúa á fund-
inn,“
Undir þetta rita sex starfs-
menn, þau Úlfur Óskarsson, Þór-
bergur H. Jónsson, Karl Gunn-
arsson, Kristján Þórarinsson,
Sigurlaug Jónsdóttir og Oddný
Snorradóttir.
Guðrún Ögmundsdóttir segist
telja ófært að leyfa leiktækjasal í
miðbænum á meðan unglingar í
Þingholtunum hafa enga félags-
aðstöðu og engin slík aðstaða er
fyrir hendi í miðbænum.
-gg
Grímsneshreppur
Kærandinn
komst í
hreppsnefnd
Hclga Hclgadóttir efst i maður á
F-lista sem kærði kosningarnar í
Grímsneshrepp fyrr í vor, komst í
hreppsnefnd á laugardaginn þeg-
ar kosningarnar voru cndurtekn-
ar.
í-listinn sem leiddur var af
Böðvari Pálssyni hreppstjóra hélt
meirihluta sínum en hann fékk
þrjá menn kjöma. Þá fékk H-
listinn einn mann kjörinn en sá
listi var boðinn fram af starfs-
mönnum við Sogn. E-listinn sem
fékk mann kjörinn í júní missti
sinn mann til F-listans. -Kjör-
sókn var mjög góð að sögn Bö-
vars Pálssonar hreppstjóra, 911
alls neyttu ,89% atkvæðisþærra
manna kos|ingaréttarsins og er
það mjög s ípað og var f kosning-
unum fyrr i vor.
—«g
-Sáf
Mógilsá
Reglugerð mótmælt
Starfsfólk mótmælir nýrri reglugerð um Mógilsá og afskiptum Skóg-
rœktarstjóra af vali fulltrúa starfsmanna í fagráð
Þriðjudagur 24. júlí 1990 ÞJÓÐVILJINN - SlÐA 3