Þjóðviljinn - 24.07.1990, Page 6
___________________ERLENDAR FRÉTTIR___________________________________
ítatta
„Hið sænska tré verður höggvið ..."
Ítalíuforseti hvetur til rannsóknar vegna sjónvarpsþátta, þarsemgefið
var í skyn að CIA hefði átt hlut að hryðjuverkum og morðinu á Palme
gegn stjórnendum Rásar 1 ef það
sem gefið var í skyn í þáttunum
reyndist ekki á rökum reist. Kom
þetta af stað umræðu sem heldur
áfram af miklum hita. Fagna
sumir frumkvæði forsetans og
saka sjónvarpið um ábyrgðar-
leysi, en aðrir, þar á meðal stétt-
arsamband blaðamanna, láta í
ljós áhyggjur út af að málsrann-
sókn og málshöfðun geti leitt til
þess að þrengt verði að fjölmiðla-
frelsi.
Reuter/-dþ.
Mikið fjaðrafok er á Ítalíu
þessa dagana út af dagskrár-
þáttum sem Rás 1 í sjónvarpinu
þar sendi út kringum s.l. mán-
aðamót. Var í þáttum þessum
haft eftir manni, sem að eigin
sögn er fyrrverandi starfsmaður
bandarísku leyniþjónustunnar
CIA, að sú stofnun hefði átt hlut
að hryðjuverkum á Ítalíu á átt-
unda áratug og þar á ofan að
morðinu á Olof Palme, forsætis-
ráðherra Svíþjóðar, 1986.
f sjónvarpsþáttunum var því
haldið fram að CIA hefði í þessu
haft samstarf við frímúrararegl-
una P-2. Tekið var upp efni úr
bók, sem kom út s.l. ár. í bókinni
er því haldið fram að þremur
dögum fyrir morðið á Palme hafi
Licio Gelli, fyrrum forsprakki P-
2, sent aðstoðarmanni þáverandi
varaforseta Bandaríkjanna, Ge-
orge Bush, svohljóðandi sím-
skeyti: „Hið sænska tré verður
höggvið.“
I P-2 voru m.a. sumir helstu
atvinnurekenda og fjármála-
manna Ítalíu, stjórnmálamenn
og menn háttsettir í hernum.
Þingnefnd sem rannsakaði at-
hafnir stúku þessarar komst að
þeirri niðurstöðu að hún væri
„glæparíki í ríkinu." Urðu niður-
stöður rannsóknarinnar til þess
að stúkan var bönnuð. Er þetta
eitt mestu hneykslismála á Italíu
á síðari áratugum og varð það til
þess að ríkisstjórn varð að segja
af sér 1981.
Francesco Cossiga Ítalíuforseti
hefur hvatt til rannsóknar við-
víkjandi umræddum þáttum
sjónvarpsins og málshöfðunar
Suður-Kórea
Andstöðuþingmenn segja af sér
Stjórnarandstöðuþingmenn
Suður-Kóreu sögðu allir af sér
þingmennsku í gær, að einum
óháðum þingmanni undantekn-
um. Talsmaður stjórnarflokks-
ins, sem nefnist Frjálslyndi lýðr-
æðisflokkurinn, sagði að stjórnin
myndi hafa afsagnirnar að engu.
Hart hefur verið deilt á Suður-
Kóreuþingi síðustu vikur og þing-
menn stundum slegist.
Þingmenn þeir er sögðu af sér
eru 80 talsins, 70 í Friðar- og Iýð-
ræðisflokknum undir forustu
Kim Dae-jungs, átta í flokki sem
heitir einfaldlega Lýðræðisflokk-
ur og tveir óháðir. Þeir hafa und-
anfarið krafist þess að kosningar
verði látnar fram fara innan
Snúa sér í staðinn að alþingi götunnar. Krefjast kosninga þegar í stað
skamms, en stjórnin segir það
stjórnarskrárbrot að kosningar
fari fram fyrr en 1992.
Meðal stjórnarandstæðinga
var lengi hver höndin upp á móti
annarri, en nú hafa þeir lagt
ágreiningsefnin á hilluna og hefur
Kim Dae-jung gefið til kynna að
þeir muni á næstunni standa fyrir
útifundum til að krefjast nýrra
kosninga. Verði þess gætt að allt
fari þar friðsamlega fram. Sá
fyrsti af slíkum fundum var hald-
inn skammt frá Seúl á laugardag,
og mættu þar um 200.000 manns
til að hylla Kim og fleiri stjórnar-
andstöðuleiðtoga enda þótt helli-
rigning væri.
Stjórnarflokkurinn hefur 218
af 299 þingsætum og saka stjórn-
Kim Dae-jung - 200.000 á útifundi.
arandstæðingar hann um að nota ' ljóst sé að mikil andstaða sé við
meirihluta sinn til að koma í meðal almennings.
gegnum þingið frumvörpum, sem
Reuter/-dþ.
Maghreb
ToElabandalag 1995
Búlgaría
350.000 fylgdu
Dimitrov
til grafar
Um 350.000 manns fylgdu Ge-
orgi Dimitrov, fyrrum leiðtoga
búlgarskra kommúnista og ráða-
manns í Komintern, til grafar í
gær. Var aska hans þá jarðsett í
helsta kirkjugarði höfuðborgar-
innar Soflu.
Dimitrov lést 1949 og var lík
hans þá smurt og lagt í leghöll í
miðborg Sofíu. Þaðan var það
tekið og brennt í s.l. viku að
kröfu stjórnarandstæðinga, og
skyldi það vera táknrænt fyrir af-
nám einsflokksræðis í Búlgaríu.
Yfir 250.000 manns voru í
fimm km langri líkfylgd frá Alex-
ander Nevskíj-dómkirkju til
kirkjugarðsins, þar sem um
100.000 manns í viðbót höfðu
safnast saman. Áberandi margt
eldra fólk var við þessa geysifjöl-
mennu jarðarför. Fremstir í lík-
fylgdinni fóru leiðtogar Sósíal-
istaflokksins, sem áður hét
Kommúnistaflokkur, þeirra á
meðal Andrei Lukanov forsætis-
ráðherra og fyrrum forseti Petar
Leiðtogar Maghrebbandalags-
ins, sem nýlokið hafa tveggja
daga ráðstefnu I Algeirsborg,
lýstu því yfir í gær að aðildarríki
bandalagsins ætluðu að koma á
tollabandalagi sín á milli í síðasta
lagi 1995. í Maghrebbandalaginu
eru Alsír, Líbýa, Máritanía,
Marokkó og Túnis.
Bandalagið er á sviði efnahags-
og viðskiptamála og var stofnað í
febrúar 1989 með hhðsjón af Evr-
ópubandalaginu. Viðskipti Mag-
hrebríkja innbyrðis eru sáralítil,
en aðalviðskiptavinur þeirra Evr-
ópubandalagið. Maghrebríkin
eru að Líbýu undanskilinni stór-
skuldug erlendis, atvinnuleysi er
þar mikið og tekjur af útflutningi
óvissar eða fara minnkandi.
I lokasamþykkt fundarins var
lögð áhersla á aukin og bætt sam-
skipti við Evrópubandalagið.
Óttast Maghrebríkin að viðskipti
þeirra við EB muni dragast sam-
an að miklum mun er innri mark-
aðurinn verður kominn til sög-
unnar í Evrópu eftir rúmlega tvö
ár.
íbúar Maghreblanda eru um 65
miljónir og árleg verg þjóðarf-
ramleiðsla þeirra er yfir 100 milj-
arðar dollara. Reuter/-dþ.
Suður-Afríka
„Súlúastríðið nýja“
til Jóhannesarborgar
Mladenov.
Höfundur köngu-
lóarkonu látinn
Á sunnudaginn lést í Cuerna-
vaca í Mexíkó argentínski rit-
höfundurinn Manuel Puig, 57 ára
að aldri. Þekktastur varð hann
fyrir skáldsögu, sem kvikmyndin
Koss köngulóarkonunnar (Kiss
of the Spider Woman) var gerð
eftir. Greinir þar frá samskiptum
tveggja fanga í Suður-
Ameríkulandi, sem hafðir eru
saman í klefa, og er annar hommi
en hinn byltingarmaður. Með að-
alhlutverk fóru William Hurt,
sem fékk Academy Award 1985
fyrir frammistöðu sína í mynd-
inni, og Raul Julia.
Fylgismönnum Afríska þjóð-
arráðsins (ANC) og súlúa-
flokksins Inkatha laust saman á
sunnudag í Sebokeng, borgarh-
luta blökkumanna skammt frá
Jóhannesarborg, með þeim af-
leiðingum að 18 menn voru vegn-
ir, sumir segja fleiri. Er þetta
blóðugasta viðureign þessara að-
ila hingað til utan Natals, sem er
aðalvettvangur vígaferla þeirra,
er kölluð hafa verið „súlúastríðið
nýja“.
Bardagi tókst eftir útifund sem
Inkatha hélt og áttust menn við
með vopnum bæði nýs og gamals
tíma, spjótum, bensínspreng-
jum, kylfum, byssum og grjóti.
Hvor aðilinn um sig segir hinn
hafa byrjað. Að sögn ANC réð-
ust Súlúar á andstæðinga sína
með vitund og vilja lögreglunnar,
en lögreglan segir átök hafa hafist
með því að grjóthríð hafi verið
gerð á Inkathamenn á heimleið af
fundinum. Einnig hafi verið kast-
að í þá bensínsprengjum. Meðal
þeirra sem drepnir voru var lög-
Egii Aarvik, formaður norsku
nóbelsnefndarinnar sem ár-
lega veitir friðarverðlaun nóbels,
lést á fimmtudag s.l., 77 ára að
aldri. Hann hefur verið í nó-
belsnefndinni, þar sem fimm
menn alls eiga sæti, síðan 1974.
Meðal þeirra, sem nefndin hef-
ur verðlaunað síðan eru Lech
reglumaður, sem lagður var
spjóti.
Inkatha vill að hætt sé að beita
Suður-Afríku viðskiptabanni og
er einnig á móti þeirri stefnu
ANC að heyja skæruhernað gegn
Suður-Afríkustj órn.
Reuter/-dþ.
Walesa, leiðtogi pólsku Sam-
stöðu (1983), Móðir Teresa frá
Kalkútta (1979) og Dalai Lama,
leiðtogi Tíbeta, sem fékk friðar-
verðlaunin s.l. ár.
Egil Aarvik fylgdi Kristilega
þjóðarflokknum að málum og
var félagsmálaráðherra um skeið
á sjöunda áratugnum.
Formaður nóbelsnefndar látinn
Bush - Godmanis fékk ekki
áheyrn.
Bandaríkin
Bush ræðir
ekki við
Godmanis
Ivars Godmanis, forsætisráð-
herra Lettlands, sem staddur er í
Washington, sagði frétta-
mönnum I gær að Hvíta húsið
hefði hafnað beiðni hans um að
ræða við Bush forseta. Talsmað-
ur forsetaembættisins sagði að
Bush hefði ekki haft tök á að hafa
viðræðufund með Godmanis en
hefði óskað þess að þjóðarörygg-
isráðunautur hans, Brent Scowc-
roft, ræddi við lettneska forsætis-
ráðherrann.
Godmanis lét í ljós undrun yfir
að beiðni hans um að ræða við
Bush sjálfan skyldi vera hafnað.
Bush ræddi við Kazimieru Prun-
skiene, forsætisráðherra Lithá-
ens, 3. maí s.l. er hún var í Was-
hington. Var þá látið svo heita af
hálfu Bandaríkjastjórnar að hún
hefði verið þar í einkaheimsókn.
Stjórnir Eistlands, Lettlands
og Litháens leitast nú við að sam-
ræma aðgerðir í sjálfstæðisbar-
áttu ríkja þessara þriggja og leita
í því sambandi m.a. eftir stuðn-
ingi erlendis.
Reuter/-dþ.
„Heldur
vil ég
deyja
Tvær breskar stúlkur, Karyn
Smith 18 ára og Patricia Ann Ca-
hill 17 ára, eiga yfir höfði sér lífs-
tíðar fangelsi I Taflandi eftir að
þarlend lögregla fann rúmlega 30
kfló af heróíni í farangri þeirra.
Voru þær þá á leið um borð í
flugvél, sem þær ætluðu að fara
með til Amsterdam.
Þær segjast vera saklausar og
ekki hafa haft hugmynd um að
heróín var í farangri þeirra. Taí-
lenska lögreglan telur ekki
óhugsandi að heróínsalar hafi
fengið þær til að taka með sér
böggla, án þess að þær hafi vitað
hvert innihaldið var. Stúlkurnar
voru í Taílandi í sinni fyrstu ferð
erlendis.
„Ég vil heldur deyja en að fá
lífstíðar dóm,“ sagði Karyn
Smith við fréttamann. „Ég yrði
orðin 43 ára er ég slyppi út. Ég
gæti ekki gifst, ekki eignast börn.
Eg gæti ekki afborið það.“
Reuter/-dþ.
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 24. júlí 1990