Þjóðviljinn - 24.07.1990, Page 7
Sjálfsvígafaraldur meðal unglinga
Einn er ég í köldum heimi
Víða um lönd verða menn þess
varir að æ fleiri börn og unglingar
stytta sér aldur. Ástæðurnar eru
margar til færðar: sjálfhverfir for-
eldrar, ástleysi, ótti við að standa
sig ekki í heimi harðrar sam-
keppni, sú tilfinning að unglingur-
inn sé óþarfur og utanveltu.
Hér er um alþjóðlegt fyrirbæri
að ræða eins og að líkum lætur.
En í þessari samantekt hér er
mest stuðst við grein í þýska viku-
ritinu Spiegel um sjálfsvíg ung-
linga þar í iandi.
Enginn veit
hve margir
Þau eru mörg. Um fjórtán
hundruð á ári stytta sér aldur í
Vestur-Þýskalandi einu saman.
Meðal unglinga á aldrinum 16-20
ára eru sálfsvíg orðin næstút-
breiddasta dánarorsökin þar í
landi - í fyrsta sæti eru umferð-
arslysin.
Hér ber að hafa í huga að opin-
ber skýrslugerð er mjög ófull-
komin. Ættingjar hafa yfirleitt
tilhneigingu til að fela sjálfsvíg
með ýmsum ráðum, og einkum á
þetta við um sjálfsvíg ófullveðja
unglinga. Sérfræðingar telja að á
móti hverju sjálfsvígi komi 10-20
tilraunir til sjálfsmorðs - þeir eru
reyndar til sem segja að eins megi
gera ráð fyrir hlutfallinu einn á
móti hundrað.
Ég féll á prófinu...
Sálfræðingar og félagsfræðing-
ar hafa að vonum spreytt sig á að
leita svara við þessari dapurlegu
þróun. Þegar talað er við þá ung-
linga, sem gert hafa tilraunir til
að stytta sér aldur en bjargast,
virðast ástæðurnar sem þeir fyrst
nefna einatt lítilfjörlegar. Ástar-
sorg, slæmar einkunnir, vinam-
issir vegna þess að fjölskyuldan
hefur flutt. Hinar dýpri orsakir
koma ekki fram fyrr en rækilegar
er að gáð: samskiptaleysi sem yfir
vofir eða er þegar orðið að veru-
leika (til dæmis vegna skilnaðar
Sjálfsvíg skólapilts: ef mér líkar ekki
veilum. Menn geti ekki skilið
hvað er á seyði nema þeir átti sig
fyrst á því, að það nægir að saman
komi nokkrir erfiðir og neikvæðir
þættir félagslegir til þess að „hver
sem er“ geti í alvöru hugleitt að
fyrirfara sér.
Til hvers að lifa?
Sérfræðingar segja að kveðju-
bréf unglinga sem stytta sér aldur
og samtöl við þá sem í slíkum
hugleiðingum eru leiði einatt í
ljós ótrúlegan kulda, niðurlæg-
ingu, afskiptaleysi og ástleysi í
U ÍZ> ■ P* fUmSi
'llili!
I lí M
Til hvers er ég hingað kominn ...
foreldra), einsemd, skólastreita,
misþyrmingar heima fyrir, kyn-
ferðisleg misnotkun.
Þeir sem ræða við fólk í sjálfs-
morðshugleiðingum leggja mikla
áherslu á að uppræta þann út-
breidda misskilning að sjálfs-
vígshneigð sé mjög tengd geð-
nánasta umhverfi þeirra. Ung-
lingunum finnst að þeir séu
óþarfir (ekki ólíklegt að þeinv
hafi beinlínis verið sagt að þeir
hafi aldrei átt að fæðast) - eitt
algengasta tilsvarið í samtölum er
einmitt þetta hér: „Ekki veit ég til
hvers ég lifi“.
myndin, þá þurrka ég hana út...
Haft er eftir formanni þýska
barnavemdarráðsins, Walter
Barsch, að í mörgum dæmum'
megi rekja þessa tilfinningu ung-
linga (að þeir séu öllum framandi
og óþarfir) til vaxandi sérgæsku
foreldranna. Foreldrar séu helt-
eknir af hinni nýju sjálfshyggju
(,,Ég-æði“) þar sem allt snýst um
það, að þeir missi nú ekki af
neinu í frama og skemmtun
(venjulega er þessi tilhneiging
falin undir einhverri jákvæðri
formúlu á borð við þá, að foreldr-
arnir þurfi að láta allt koma fram
sem í þeim býr, ná fullum persón-
uþroska).
Ef þú stendur
þig ekki...
Þetta kemur fram í því að börn
og unglingar eru afskipt, þau fá
beint og óbeint að vita það, að
þau sé til trafala, taki of mikinn
tíma, tefji fyrir sjálfsþroskanum
merkilega sem foreldrarnir eru á
höttum eftir. Önnur afleiðing
getur svo verið sú, að þegar for-
eldrar líta á börn sín fyrst og
fremst sem framlengingu á eigin
tilveru, þá yfirfæra þau einatt af
hörku metnaðardrauma sína yfir
á þau. Með öðrum orðum: þau
leggja hart að börnunum að þau
víki hvergi af námsbraut sem
flýtir fyrir þeim á framabraut.
Þau mega ekki láta sér mistakast.
Þau verða að standa sig.
í samantekt Spiegels er einmitt
lögð mikil áhersla á það, hve
rækilega unglingar kunna að taka
inn á sig þessar kröfur foreld-
ranna um góð próf og aðra sigra -
einatt leiði þetta til hugarfars sem
kenna má við allt eða ekkert: ef
ég kemst ekki í tiltekið nám í
samkeppnisprófi, nú þá er ég
hættur þessu, hættur að lifa. Gera
má ráð fyrir, að þessi þrýstingur
sé misjafn eftir löndum. Hvergi
munu sjálfsmorð unglinga út-
breiddari en í mikla samkeppnis-
þjóðfélaginu Japan. Unglingar
sem geta ekki lifað þá skömm
(sem þeim finnst vera) að hafa
ekki látið metnaðardrauma for-
eldranna rætast á sér.
Stundum leitar unglingur sér að
öryggi í ástarsambandi, í ástinni
einu sem er tryggt hæli í vondum
heimi -ogef eitthvað fer þá úr-
skeiðis í þeim æskuástum, þá
verður það dropinn sem fyllir
mælinn: Öllum er sama um mig.
Líka Honum (Henni).
Stúlkur á aldrinum 14-17 ára
gera þrisvar sinnum oftar tilraun
til sjálfsvígs en piltar á sama aldri.
En tilraunin „tekst“ þrisvar sinn-
um oftar hjá piltum. Hér verður
sú karlmennskuhugsjón, að mað-
ur eigi að ráða fram úr öllu einn
og sjálfur, til þess að magna lífs-
háskann. Unglingar hafa líka séð
það svo oft í kvikmyndum, að
menn eiga að vera töff og svalir.
Eða eins og haft er eftir einum
skólapilti sem kvaðst líta á líf sitt
eins og hvert annað myndband:
„Ef ég kann ekki lengur við
myndina þá þurrka ég hana bara
út“.
Við vissum ekkert...
Foreldrar barna og unglinga
sem sjálfsvíg hafa framið eru
mjög sakbitnir, eins og að líkum
lætur: meðal þeirra rís ný hreyf-
ing þar sem þeir hjálpa hver öðr-
um í stuðningshópum. Mjög oft
kemur það fram í máli þeirra að
þeir hafi ekki haft hugmynd um
það sjálfir, hvað var að gerast,
hve sterkum tökum einsemdar-
kennd og örvæntingarfullt ráð-
leysi var að ná á bömum þeirra.
Ein kona sérfróð um þessi mál
segir á þessa leið: Þegar ég heyri í
fjölskyldum, sem alltaf em að
leggja áherslu á að hjá þeim sé
allt í lagi með börnin, og ekkert
skorti á gagnkvæman skilning og
annað það sem til þarf - þá fæ ég
strax illan grun....áb t6k saman.
Rótleysi
Almennt rótleysi leggur sitt til
þess að unglingum finnst þeir ein-
ir og yfirgefnir: fólk flytur mun
oftar milli borga og landshluta,
skiptir oftar um vinnu og maka.
Vinningstölur laugardaginn
21. júlí ‘90
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 2 4.905.621
Z. 4af5^fjp| 3 284.849
3. 4af5 326 4.521
4. 3af 5 9.683 355
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
15.577.100 kr.
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002
Þriðjudagur 24. júlí 1990 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7