Þjóðviljinn - 24.07.1990, Qupperneq 11
í DAG
Hvað er bamið
að hugsa?
Þessi mynd var tekin þegar sól-
in var hér syðra og má meðal ann-
ars líta á hana sem hvítagaldur,
hermigaldur: við birtum svona
mynd í hjátrú, til að kalla á sólina
aftur.
f leiðinni minnir hún á það að
við hvert fótmál er eitthvað
skemmtilegt að gerast, sem getur
sætt nokkrum tíðindum ef við
kærum okkur um.
Reyndar er ekkert dularfullt
við þetta atriði úr hinum guð-
dómlega gleðileik sem myndin
sýnir. Allt liggur nokkuð ljóst
fyrir. Þyrfti eiginlega ekki að hafa
mörg orð um það.
En þegar maður horfir á
smellna ljósmynd þá fer kannski
af stað löngun til að leggja per-
sónum á myndinni orð í munn.
Það er leikur sem auðvelt er að
hafa gaman af, enda eru mögu-
leikarnir svo geypilega margir.
Eigum við að reyna við þessa
mynd hér?
Að vísu er það ekkert mjög
freistandi að leggja freistaranum
brosandi með ísinn orð í munn.
Einhvernveginn finnst manni að
við vitum allt um hann fyrirfram.
Við þekkjum kauða. Hvort sem
við erum nú pabbar eða afar eða
barasta eldri bræður.
Aftur á móti væri gaman að
vita hvað barnið er að hugsa.
Það gæti verið eitthvað á þessa
leið:
- Heldurðu að ég líti við svona
hvunndagsís?
- Veistu ekki að á okkar tímum
er hverjum barnsæmandi ís dýft
ofan í súkkulaði?
- Ég veit þú ætlar bara að éta
hann sjálfur.
- Nei takk, ég er á makrófæðu
hjá mömmu.
- Hvað heldurðu að mamma
segði ef hún sæi þetta...
Og svo getur hver og einn
tekið við að vild....
Ljósmynd: Jim Smart.
Magnús H. Gíslason skriffar
r
A FÖRNUM VEGI4.
Fyrir rúmri viku lauk tuttug-
asta landsmóti Ungmennafélags
íslands. Það var að þessu sinni
haldið í Mosfellsbæ. Lofsorði var
lokið á mótssvæðið en veður
hefði mátt vera heppilegra.
Ungmennafélögin á íslandi
eiga sér orðið langa sögu og
merka. Tvíllaust má telja, að
ekki hafi önnur fél-
agsmálahreyfing mótað íslenskt
þjóðlíf meir á fyrstu áratugum
þessarar aldar en ungmennafé-
lögin. Margir munu telja að sam-
vinnuhreyfingin og verkalýðs-
hreyfingin hafi átt meiri hlutdeild
i þeirri þróun. Svo kann að virð-
ast, fljótt á litið. En þá ber þess að
gæta, að margir merkustu og fars-
ælustu forvígismenn þessara
hreyfinga beggja hlutu sitt félags-
lega uppeldi í ungmennafélögu-
num og mótuðust af viðhorfum
þeirra. sem birtust í kjörorðun-
um: „Islandi allt“ og „ræktun lýðs
og lands“.
Gamall ungmennafélagi leit
inn til mín skömmu eftir lands-
mótið. Hann hafði að sjálfsögðu
fylgst með því og þótti mikið til
um fjölda þátttakenda og þau af-
rek sem þar voru unnin. Og hann
fór að rifja upp minningar frá
þátttöku sinni í ungmennafélags-
skapnum.
- Ég er utan af landi, sagði
hann, - og hef lengstaf alið aldur
minn þar. í heimasveit minni var
starfandi athafnasamt ung-
mennafélag. Ég var ekki nema 11
ára þegar ég mætti fyrst á fundi
hjá því. Ég var þá enn of ungur til
þess að mega ganga í félagið. Var
því einskonar óreglulegur félagi
fyrstu þrjú árin. Að vetrinum hélt
félagið fundi ekki sjaldnar en á
þriggja vikna fresti. Eitthvað
sjaldnar að sumrinu. Ekkert sam-
komuhús var þá í sveitinni svo
fundirnir voru haldnir til skiptist
á heimilum félagsmanna. Þeir
hófust ævinlega með söng. Síðan
var fundur formlega settur af
fundarstjóra, sem skipaður hafði
verið á næsta fundi á undan.
Hann tilnefndi svo fundarritara.
Síðan var lesið upp handskrifað
félagsblað, en um útgáfu þess sá
sérstök ritnefnd, sem endurnýjuð
var á hverjum fundi. Þá voru og
tilnefndir tveir móðurmálsverðir.
Hlutverk þeirra var að hripa nið-
ur hjá sér ankannalegt orðalag og
„slettur“, sem fundarmönnum
kynni að verða á að nota og
benda jafnframt á annað betra.
Einhverjir tveir höfðu jafnan ver-
ið til þess kvaddir að hafa fram-
sögu á hverjum fundi. Gátu þeir
sjálfir valið sér umræðuefni, ef
þeim sýndist svo. Var umræðu-
efni næsta fundar jafnan kynnt í
fundarlok hverju sinni. Þátttaka í
umræðum var almenn þótt nýlið-
ar væru eðlilega hlédrægir til að
byrja með. En þegar þeir höfðu
einu sinni haft framsögu var ísinn
brotinn. Fundinum lauk svo með
söng en síðan tóku við ýmiss kon-
ar íþróttaæfingar utan húss, ef
þannig viðraði og tíminn leyfði.
Oftast var efnt til a. m. k. einnar
opinberrar skemmtisamkomu að
vetrinum. Þar var að sjálfsögðu
dansað en auk þess stundum
sýndir leikþættir, lesið upp eða
þá að einhver flutti 15-20 mín-
útna erindi. Að sumrinu var
gjarna farið í. eins til tveggja daga
skemmtiferðir og þá yfirleitt á
hestum.
Þýðing ungmennafélaganna
var þannig margþætt og hefur svo
jafnan verið. í þeim æfðu menn
ritleikni og ræðumennsku, stuðl-
uðu að málvöndun, glæddu
áhuga á íþróttum, efldu sam-
kennd og félagsþroska, gerðu
meðlimi sína að betri og nýtari
þjóðfélagsþegnum.
Fyrir kemur að maður heyrir
talað um „ungmennafélagsanda“
og þá gjarna í niðrunartóni.
Þannig talar raunar það fólk eitt,
sem ekkert þekkir til félagsskap-
arins og lítur gjarna stærra á sjálft
sig, en efni standa til. En sem
betur fer lifir ungmennafélags-
andinn ennþá góðu lífi með þjóð-
inni. Um það ber þátttakan í ný-
afstöðnu landsmóti og þeir tugir
þúsunda, sem að því stóðu, ljós-
astan vott.
Þannig mælti hinn aldni ung-
mennafélagi og bætti við: Sá, sem
einu sinni hefur verið ung-
mennafélagi verður það alltaf,
sem betur fer fyrir hann sjálfan
og þessa þjóð, sem kannski hefur
aldrei fremur þurft á hugsjónum
félaganna að halda en nú um
stundir.
-mhg.
ÞJOÐVIUINN
FYRIR50 ÁRUM
Gertaka Danmerkur eyðilagði
„ölfrumvarpið". Danska
áfengisauðvaldið var að koma
fram á Alþingi frumvarpi um
leppfyrirtæki sitt.
Stjórnarflokkarnir höfðu allir rætt
máliðáleynifundum.
Háttstandandi stjórnarbroddar
áttu að vera „hluthafar" áódýran
hátt.
24. júlí
þriðjudagur. 205. dagurársins.
Sólarupprás í Reykjavík kl. 4.07-
sólarlag kl. 22.59.
Viðburðir
Mussolini tekinn af lífi 1943.
1 Vinstri stjórn tekur við taumunum
'1956.
DAGBOK
APOTEK
Reykjavfk: Helgar- og kvöldvarsla
lyfjabúða vikuna 20. til 26. júlí er í
Holts Apóteki og Laugavegs Apóteki.
Fyrmefnda apótekið er opið um helgar
og annast næturvörslu alla daga kl. 22 til
9 (til 10 á fridögum). Síðamefnda apó-
tekið eropið á kvöldin kl. 18 til 22 virka
daga og á laugardögum kl. 9 til 22 sam-
hliöa hinu fynmefnda.
LOGGAN
Reykjavik................« 1 11 66
Kópavogur................« 4 12 00
Seltjamames..............» 1 84 55
Hafnarflörður............» 5 11 66
Garðabær..................« 511 66
Akureyri.................» 2 32 22
Slökkvilið og sjúkrabílar
Reykjavík................» 1 11 00
Kópavogur..................« 1 11 00
Seltjamames.............rr 1 11 00
Hafnarfjörður.............« 511 00
Garðabær..................* 511 00
Akureyri..................« 2 22 22
L€KNAR
Læknavakt fyrir Reykjavik, Seltjamar-
nes og Kópavog er í Heilsuvemdarstöð
Reykjavíkur alla virka daga frá kl. 17 til 8,
á laugardögum og helgidögum allan sól-
arhringinn. Vitjanabeiðnir, símaráðlegg-
ingar og timapantanir (« 21230. Upplýs-
ingar um lækna- og lyfjaþjónustu eru
gefnar i símsvara 18888. Borgarspítal-
inn: Vakt virka daga frá kl. 8 til 17 og fyrir
þá sem ekki hafa heimilislækni eða ná
ekki til hans. Landspitalinn: Göngudeild-
in er opin frá kl. 20 til 21. Slysadeiid
Borgarspitalans er opin allan sólarfiring-
inn, « 696600.
Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæslan,
53722. Næturvakt lækna, « 51100.
Garöabær: Heilsugæslan GarðaflöL
n 656066, upplýsingar um vaktlækna,
* 51100.
Akureyri: Dagvaktfrá kl 8 til 17 á Lækna-
miðstöðinni,« 22311, hjá Akureyrar
Apóteki, rr 22445. Nætur- og helgidaga-
vakt læknis frá kl 17 til 8 985-23221
Keflavík: Dagvakt, upplýsingar I
« 14000.
Vestmannaeyjan Neyöarvakt lækna,
«11966.
SJUKRAHUS
Heimsóknartímar Landspitallnn: Alla
daga kl. 15 til 16 og 19 tii 20. Borgar-
spítalinn: Virka daga kl. 18:30 til 19:30,
um helgar kl. 15 til 18 og eftir samkomu-
lagi. Fæðingardeild Landspítalans: Alla
daga Id. 15 til 16, feðratimi kl. 19:30 til
20:30. Fæðingarfieimili Reykjavikur
v/Eiriksgötu: Almennurtími kl. 15-16 alla
daga, feðra- og systkinatími kl. 20-21 alla
daga. Öldrunaríækningadeild Land-
spitalans, Hátúni 10B: Alla daga kl. 14 til
20 og eftir samkomulagi. Grensásdeild
Borgarspítala: Virka daga kl. 16 til 19, um
helgarkl. 14 til 19:30. Heilsuvemdar-
stöðin við Barónsstíg: Alla daga kl. 15 til
16 og 18:30 til 19:30. Landakotsspítali:
Alla daga kl. 15 til 16 og 18:30 til 19.
Bamadeild: Heimsóknir annarra en for-
eldra Id. 16 til 17 alla daga. St Jósefs-
spitali Hafnarfirði: Alla daga kl. 15 til 16
og 19 til 19:30. Kleppsspítalinn: Alla
daga kl 15 til 16 og 18:30 til 19. Sjúkra-
hús Vestmannaeyja: Alla daga kl. 1513
16 og 19 til 19:30. Sjúkrahús Akraness:
Alla daga kl. 15:30 til 16 og 19 til 19:30.
Sjúkrahúsið Húsavík: Alla daga kl. 15 til
16 og 19:30 til 20.
YMISLEGT
Hjálparstöð RKl: Neyðarathvarf fyrir
unglinga, Tjamargötu 35, « 622266, opiö
allan sólarhringinn.
Samtökin 78: Svarað er i upplýsinga- og
ráðgjafarsima félags lesbía og homma á
mánudags- og fimmtudagskvöldum Id. 21
til 23. Símsvari á öðmm tímum.
« 91-28539.
Sálfræðistöðin: Ráðgjöf I sálfræðilegum
efnum,« 687075.
Lögfræöiaðstoð Orators, félags
laganema, erveittísima 11012 milli kl.
19:30 og 22 á fimmtudagskvöldum.
MS-félagiö, Álandi 13: Opið virka daga
frá kl. 8 til 17,« 688620.
„Opiö hús" fýrir krabbameinssjúklinga
og aðstandendur jjeina í Skógarhlið 8 á
fimmtudögum kl. 17 til 19.
Samtök áhugafólks um alnæmisvand-
ann sem vilja styðja smitaða og sjúka og
aðstandendur þeirra í« 91-2240 og þar
er svaraö alla virka daga.
Upplýsingar um eyðni:« 622280, beint
samband við læknWijúkrunarfræðing á
miðvikudögum Id. 18 til 19, annars sim-
svari.
Samtök um kvennaathvarf:« 21205,
húsaskjól og aðstoð við konur sem beittar
hafa verið ofbeldi eða orðið fýrir nauögun.
Kvennaráðgjöfin Hlaðvarpa, Vesturgötu
3: Opiö þriðjudaga kl. 20 til 22, fimmtu-
daga kl. 13:30 til 15:30 og kl. 20 til 22,
« 21500, simsvari.
Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið hafa
fyrir sifjaspellum:« 21500, simsvari.
Vinnuhópur um sifjaspellsmál:
« 21260 alla virka daga kl. 13 til 17.
Stigamot, miðstöð fyrir konur og böm
sem orðiö hafa fyrir kynferðislegu ofbeldi.
Ráðgjöf, ffæðsla, uppiýsingar, Vestungötu
3,« 91-626868 og 91-626878 allan
sólathringinn.
Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu:
« 27311. Rafmagnsveita: Bilanavakt I
» 686230.
Rafveita Hafnarfjarðar. BilanavakL
« 652936.
GENGIÐ
20. júlí 1990 kl. 9.15
KAUP SALA TOLLGENGI
Dollar 58.490 58.650 59.760
Pund 106.355 106.646 103.696
Kan.dollar 50.696 50.834 51.022
Dönsk kr. 9.3824 9.4081 9.4266
Norsk kr. 9.2974 9.3228 9.3171
Sœnsk kr. 9.8468 9.8737 9.8932
Fi.mark 15.2556 15.2973 15.2468
Fra.franki 10.6355 10.6646 10.6886
Belg.frank 1.7325 1.7373 1.7481
Sviss.franki 41.6684 41.7824 42.3589
Holl.gyllini 31.6753 31.7619 31.9060
V-þ.mark 35.6788 35.7764 35.9232
Ít.líra 0.04872 0.048850.04892
Aust.sch. 5.0751 5.0889 5.1079
Port.escudo 0.4069 0.4080 0.4079
Spá.peseti 0.5827 0.5843 0.5839
Jap.yen 0.39309 0.39417 0.38839
írskt pund 95.716 95.978 96.276
SDR 78.7153 78.9306 74.0456
ECU 73.9811 74.1835 73.6932
KROSSGÁTA
Lárétt: 1 kyndill 4 lá 6
ástfólginn 7 hási 9
skelfa12sálin14
málmur15þræta16
brúðu 19 kvabb 20 fugl
21 slota
Lóðrétt: 2 lána 3 birta
4sefi5hamingja7ill-
gjam8ás10vælal1
ama 13 ábreiðu 17 súld
18slóttug
Lausn á síðustu
krossgátu
Lórétt: 1 saug4fáti6
áll 7 vist 9 ósár 12 talin
14svo 15ein 16rómar
19sekk20urga21
auðra
Lóðrétt: 2 ami 3 gátt 4
flói 5 tjá 7 vísast 8 stor-
ka10snerra11 rangar
13lím 17óku 18aur
Þriðjudagur 24. júlí 1990 ÞJÓÐVILJINN — S(ÐA 11