Þjóðviljinn - 18.08.1990, Side 11

Þjóðviljinn - 18.08.1990, Side 11
í DAG Glæsilegur tennis- völlur Þróttara Nokkur tonn afsandifrá Sahara borin í völlinn Þróttardagurinn 1990 verSur haldinn á morgun og verður há- punktur dagsins vígsla hins nýja og glæsiiega tennisvallar félags- ins. Logi Úlfljótsson, fram- kvæmdastjóri Þróttar, segir að unnið hafi verið við völlinn síðan í fyrrasumar og sé heildarkostn- aður 14 miljónir króna. - Svæðið er lagt gervigrasi ofan á nokkur mismunandi þykk og gróf lög af malar- og sandefnum. Ofan í gervigrasið eru síðan borin nokkur tonn af sandi frá Sahara eyðimörkinni í Afríku, um 40 kíló af sandi á fermetra. Afhverju sandur frá Sahara? - Hann fýkur ekki eins og ís- lenski sandurinn og loðir ekki við boltann þegar rignir. Sandurinnl er mjög mjúkur og sker því ekki I trefjar gervigrassins og eykur þannig endingu þess. Völlurinn er allur mun mýkri en malbikaðir vellir eða venjulegt gervigras, t.d eins og í Laugardalnum. Þar er bara malbik undir gervigrasinu og ekkert borið ofan í völlinn. Geta allir komið og spilað á vellinum? - Já, fólk getur gengið í félagið eða keypt staka tíma. Árgjaldið er 12 þúsund fyrir einstaklinginn og 16 þúsund fyrir alla fjölskyld- una. Við viljum fá sem flesta inn í félagið, þá getur fólk komið og spilað hvenær sem er og það verður á allan hátt ódýrara og skemmtilegra. Klukkutími á vell- inum fyrir fólk utan félagsins kostar 1000 krónur. Verður hœgt að spila árið um kring? - Það eru hitalagnir undir vell- inum og hér er skjólsælt, vellirnir eru girtir með grófri girðingu og innan á henni er fínt net sem dregur verulega úr vindinum. Það ætti því að vera hægt að leika hér mestan hluta ársins nema veður sé þeim mun vitlausara. Þetta er vœntanlega mikil lyfti- stöng fyrir tennisíþróttina á ís- landi? - Já, þetta er tvímælalaust fullkomnasta aðstaða á landinu og verður vonandi til að fjölga iðkendum. Margir byrja að stunda tennis erlendis en gefast upp þegar heim er komið vegna aðstöðuleysis. Eru fleiri framkvæmdir í deiglunni hjá Þrótti? - Við erum núna að vinna við svæðið kringum vellina, reyna að gera það huggulegt. Eins á að setja upp flóðlýsingu á tennisvöl- linn en við erum nú þegar með flóðlýsingu á malarvellinum. Draumurinn er síðan að setja gervigras ofan á malarvöllinn. Það er mikill uppgangur í fé- laginu og á næsta ári verður von- andi lokið við stúkuna við gras- völlinn. Við látum byggingu iþróttahúss hinsvegar bíða. Dagskrá Þróttardagsins hefst kl. 14:00 á morgun og munu for- vígismenn félagsins og íþrótta- hreyfingarinnar flytja stutt ávörp. Á eftir hefst síðan vígslu- leikur vallarins og munu tveir af fremstu tennisleikurum landsins leika, þeir Atli Þorbjörnsson og Christian Staub. Að leiknum loknum verður kaffisamsæti og knattspyrnuleikir hjá yngri flokk- um félagsins. Kl. 16:20 hefst svo stórmerkilegur blakleikur á tenn- isvellinum og mun blaklið félags- ins etja kappi við knattspyrnu- menn. Á sama tíma og blakl- eikurinn fer fram heyja drengir í 4. flokki vítaspymukeppni og mun Guðmundur Erlingsson, markvörður meistaraflokks, standa í markinu. Að lokum leika svo leikmenn 3. flokks Þróttar og aðalstjórn félagsins. el ________í VIKULOKIN____ í sumarfrii heima Jæja. Sumarfríið búið og flestir komnir til vinnu aftur. Eðlilegt ástand að skapast á ný á vinnustöð- um og lífið gengur sinn gang. Sumir búnir að vera í útiöndunum og brúnkan þegar farin að föina; budd- an tóm. Aðrirfóru bara í sumarbústað stéttarfélags- ins í viku og eyddu hinum vikunum tveimur heima við. Kynntust börnunum sínum aftur, sem annars eyða megninu af sínum vökutíma hjá dagmömmum og fóstrum. Litlu krúttin, sem eru svo sæt þegar þau sofa, reyndust kannski ívið fyrirferðarmeiri en okkur minnti frá sumarfríinu í fyrra og það tók tíma að venjast þeim aftur. Merkilegt annars, hve mikil orka getur búið í svo litlum kroppum. Dagurinn hefst á því að ræsa foreldrana í bítið og drösla þeim í eldhúsið svo þeir geti útbúið morgun- matinn. Púlsverk út af fyrir sig, hjá sumum a.m.k. Síðan, þegar morgunverðarborðið er rutt, í orðanna fyllstu merkingu, er hlaupið út og oftar en ekki á hvað sem fyrir verður svo það þarf að hlaupa inn aftur, gráta svolítið, fá plástur og koss á meiddin. Út aftur (sandkassann eða rólurnar, inn aftur að sækja vatn í fötuna til að drullumalla fínar kökur. Út með vatnið, æ, það sullaðist aðeins niður. Mamma þurrkar upp, pabbi ygglir sig. Úti er hundur eða stórir krakkar að hrekkja og segja Ijótt, inn aftur að klaga og láta hugga sig. Út á ný, inn aftur, „aðeins að ná í srnádót.1' Mamma stingur upp á að útihurðin verði baratekin af hjörun- um, það virðist hvort sem er enginn vita til hvers hún er lengur og erum við að hita upp allan heiminn, eða hvað?! Börnin í næsta húsi reynast eiga ótrúlega geðgóða og gjafmilda foreldra sem eru alltaf að splæsa ís og nammiblandi (poka og þá verða allir að fá. „Annars er órétt!" Laugardagsnammið dettur úr gildi í sumarfríinu, annað er ekki hægt. „Eruð þið ekki góðari en pabbinn hennar Möggu?! Hún fékk frostpinna áðan!" Svo koma sólardagarnir langþráðu og pabbi og mamma, sem ekki áttu aur fyrir útlendri brúnku, fara út í garð með teppin, grillið og sóltjaldið og bækurn- ar sem lengi hefur staðið til að lesa. Krakkarnir hvessa augun á hvíta skankana á foreldrunum sem komnir eru á stuttbuxunum á yfirráðasvæði þeirra. „Pabbi, þú situr á eldidótinu mínu, ég var að gera sullimall þarna!" Ógn og skelfingar utan dyra eru fleiri en áður var vitað. Auk hunda, stórra krakka og annarra hremm- inga í nágrenninu, eru stórar hrossaflugur og rand- aflugur á sveimi og börnin veina af skelfingu þegar saklaus kónguló trítlar eftir húsvegg. „Hvuss lags!" stynur pabbi mæðulega og kremur hrossaflugur og önnur skrímsli af skordýraætt í óða önn til að bjarga lífi erfingjanna. Litla systir er bara þriggja og kann ekki neitt segir sú stóra sem byrjar í skóla í haust og stingur af í snú-snú með stelpunum í næsta húsi. Þær reynast óttaleg kvikindi og vilja ekki lofa henni að sjá barna- tímann á Stöð 2 heima hjá sér. „ Af hverju er allt bilað í barnatímanum hjá okkur?!" spyr hún gremjulega eftir að haf a reynt að horfa á ruglaða teiknimynd inni í stofu. Litla systir ullar, tínir stjúpmæður ( næsta garði fyrir mömmu, og skvettir vatni á nýju hjólabuxurnar hennar stóru systur. Mamma gengur á milli og lofar að tala aldrei aftur um hvað dagmamman hefur góð laun, hún á þau örugglega skilin... Háttatímar allir í rugli, það er bjart úti og allir ennþá úti að leika og pabbinn hennar Möggu er víst góðari en þið! Undir lokin í fríinu eru allir farnir að venjast og það gerir ekki svo mikið til þótt (búðin líti út eins og vígvöllur. „Við erum í fríi," segir mamma og brosir blítt þegar konan uppi kíkir í kaffi og virðir undrandi fyrir sér fótsporin á gólfinu, leikfangahrúgurnar á ganginum og leirtauið í vaskinum. Bráðum hefst vinnan á ný, dagmamman hringdi í gær, skólinn byrjar eftir mánuð og svolítill söknuður fyllir hjörtu lúinna foreldra þegar litið er inn (barnaherbergið um miðnættið. Þau eru svo sæt þegar þau sofa, ekki satt? -vd. ÞJ0ÐVILJINN FYRIR 50 ÁRUM Almennarkosningartil þjóðþinga Eystrasaltsríkjanna þriggja, Eist- lands, Lettlandsog Litháensfóru fram 14. og 15. júlí. Samkvæmt bráðabirgðatölum unnu alþýðu- fylkingar landanna stórsigur í öllum ríkjunum. í Eistlandi fékk alþýðufylkingin 92,9% greiddra atkvæða, í Lettlandi hlaut hún 90,6% og í Litháen 90,9%. 18. aprfl laugardagur. 230. dagurársins, 18. vikasumars. Sólarupprás í Reykjavík kl. 5.24- sólarlag kl. 21.34. Viðburðir Reykjavík fær kaupstaðarréttindi 1786 og er því 204 ára. J DAGBÓK APÓTEK Reykjavík: Helgar- og kvöldvarsla lyfla- búða vikuna 10. til 16. ágúst er I Lyfja- bergi og Ingólfs Apóteki. Fyrmefnda apótekið er opið um helgar og annast næturvörslu alla daga kl. 22 til 9 (til 10 á fridögum). Síðamefnda apó- tekið eropið á kvöldin kl. 18 til 22 virka daga og á laugardögum kl. 9 til 22 sam- hliða hinu fyrmefnda. LOGGAN Reykjavik......................n 1 11 66 Kópavogur...................« 4 12 00 Seltjamames..................® 1 84 55 Hafnarljörður.............» 5 11 66 Garðabær..................n 511 66 Akureyri.................. * 2 32 22 Slökkvilið og sjúkrabílar Reykjavik......................n 1 11 00 Kópavogur...................« 1 11 00 Seltjamames....................w 1 11 00 Hafnarfjöröur............« 5 11 00 Garðabær.......................« 5 11 00 Akureyri.....................n 2 22 22 LCKNAR Læknavakt fyrir Reykjavfk, Seltjamar- nes og Kópavog er I Heilsuvemdarstöö Reykjavíkur alla virka daga frá kl. 17 til 8, á laugardögum og helgidögum allan sól- arhringinn. Vitjanabeiðnir, símaráðlegg- ingar og timapantanir [ n 21230. Upplýs- ingar um lækna- og lyfjaþjónustu eni gefriar f simsvara 18888. BorgarspítaL mn: Vakt virka daga ffá kl. 8 til 17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilislækni eða ná ekki til hans. Landspítalinn: Göngudeild- in er opin frá kl. 20 til 21. Slysadeild Borgarspltalans er opin allan sólarhring- inn, n 696600. Hafnarfjöröur: Dagvakt, Heilsugæslan, « 53722. Naeturvakt lækna,« 51100. Garðabær Heilsugæslan GarðaflöL n 656066, upplýsingar um vaktlækna, n 51100. Akureyri: Dagvakt frá kl 8 til 17 á Lækna- miðstöðinni, n 22311, hjá Akureyrar Apóteki, n 22445. Nætur- og helgidaga- vakt læknis ftá kl 17 til 8 985-23221 (farsimi). Keflavfk: Dagvakt, upplýsingar ( n 14000. Vestmannaeyjar. Neyðarvakt lækna, n 11966. SJÚKRAHÚS Heimsóknartímar Landspftalinn: Alla daga kl. 15 til 16 og 19 til 20. Borgar- spftallnn: Virka daga W. 18:30 til 19:30, um helgar kl. 15 til 18 og eftir samkomu- lagi. Fæðlngardelld Landspítalans: Alla daga Id. 15 til 16, feðratími kl. 19:30 til 20:30. Fæðingarheimili Reykjavfkur v/Eiriksgötu: Almennurtfmi kl. 15-16 alla daga, feðra- og systkinatfmi kl. 20-21 alla daga. Öldrunariækningadeild Land- spitalans, Hátúni 10B: Alla daga kl. 14 til 20 og eftir samkomulagi. Grensásdeild Borgarspltala: Virka daga kl. 16 til 19, um helgar kl. 14 til 19:30. Heilsuvemdar- stöðin við Barónsstig: Alla daga kl. 15 til 16 og 18:30 til 19:30. Landakotsspítali: Alla daga kl. 15 til 16 og 18:30 til 19. Bamadeild: Heimsóknir annarra en for- eldra kl. 16 til 17 alla daga. SL Jósefs- spftali Hafnarfirði: Alla daga Id. 15 til 16 og 19 til 19:30. Kieppsspitalinn: Alla daga kl 15 til 16 og 18:30 til 19. Sjúkra- hús Vestmannaeyja: Alla daga kl. 15 til 16 og 19 til 19:30. Sjúkrahús Akraness: AJIa daga kl. 15:30 til 16 og 19 til 19:30. Sjúkrahúsið Húsavfk: Alla daga kl. 15 tð 16 og 19:30 0 20. ÝMISLEGT Hjálparstöð RKÍ: Neyðarathvarf fyrir unglinga, Tjamargötu 35, n 91-622266, opiö allan sólarhringinn. Samtökin 78: Svarað er I upplýsinga- og ráðgjafarsíma félags lesbía og homma á mánudags- og fimmtudagskvoldum kl. 21 til 23. Simsvari á öðrum tlmum. « 91-28539. Sálfræðistöðln: Ráðgjöf I sálfræðilegum efnum, n 91-687075. Lögfræðiaðstoð Orators, félags laganema, erveitt I sima 91-11012 milli kl. 19:30 og 22 á fimmtudagskvöldum. MS-félagið, Álandi 13: Opið virka daga frá Id. 8 til 17, » 91-688620. „Opiö hús" fyrir krabbameinssjúklinga og aðstandendur þeirra í Skógartilíð 8 á fimmtudögum Id. 17 til 19. Samtök áhugafólks um alnæmlsvand- ann sem vilja styðja smitaða og sjúka og aðstandendur þeina f» 91-22400 og þar er svarað alla virka daga. Upplýsingar um eyðni: n 91-622280, beint samband við íækni/hjúkrunarfræð- ing á miðvikudögum kl. 18 0 19, annars slmsvari. Samtök um kvennaathvarf:» 91- 21205, húsaskiól og aðstoð við konur sem beittar haía verið ofbeldi eða orðið fýrir nauðgun. Kvennaráðgjöfin Hlaðvarpanum, Vestur- götu 3: Opið þriðjudaga Id. 20 til 22, fimmtudaga Id. 13:30 til 15:30 og kl. 20 til 22, n 91-21500, sfmsvari. Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið hafa fyrir sifiaspellum: n 91-21500, slmsvari. Vinnuhópur um siQaspellsmál: W 91-21260 alla virka daga k). 13 til 17. Sfa'gamót, miðstöð fyrir konur og böm sem oröið hafa fyrir kynferðislegu ofbeldi. Ráðgjöf, fræðsla, upplýsingar, Vesturgötu 3, * 91-626868 og 91-626878 allan sólarhringinn. Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu: n 27311. Rafmagnsvefta: Bilanavakt I tr 686230. Rafveita Hafnarfjarðar BilanavakL « 652936. GENGIÐ 14. ágúst 1990 Sala Bandarikjadollar.............57,18000 Steriingspund...............107,81300 Kanadadollar.................49,85000 Dönsk króna...................9,49910 Norsk króna...................9,36230 Sænsk króna...................9,86710 Finnskt mark.................15,38540 Franskur franki...............10,79780 Belgískurfranki...............1,76160 Svissneskur firanki..........43,44980 Hollenskt gyflini............32,18600 Vesturþýskt mark..............36,25760 Itölsk lira...................0,04937 Austumskur sch................5,15530 Portúgalskur escudo.......... 0,41150 Spánskur peseti...............0,59060 Japansktjen...................0,38214 Irskt pund...................97,30000 KROSSGÁTA Lárótt: 1 ritfæri 4 áfall 6 vökvi 7 birta 9 mið 12 tæpt14brún15bók16 staðfesti 19gabb20 stétt 21 söngli Lóðrétt: 2 kvendýr 3 þreytta 4 dökk 5 fugla- hópur7losna8kari- mannsnafn 10þáttur 11 flát 13 planta 17 munda18mál Lausn á sfðustu krossgátu Lárétt: 1 fall4bása6 æsi7rist9sina12kis- an 14 tau 15 nag 16 tvist 19 afli 20 óaöi 21 atvik Lóðrótt: 2 ami 3 Iæti4 bisa5son7roðnar8 skutla10inntak11 at- geir13sái17vit18sói Laugardagur 18. ágúst 1990 ÞJÓÐVIUINN — SÍÐA11

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.