Þjóðviljinn - 03.10.1990, Blaðsíða 11
LESANDI VIKUNNAR
í DAG
Sonja B. Jónsdóttir
dagskrárgerðarmaður
Mynd: Jim Smart
Hvað ertu að gera núna?
Við erum fjögur sem stöndum
að kvikmyndafélaginu Nýja Bíói
og við framleiðum sjónvarpsþætti,
kynningar-, heimildar- og fræðslu-
myndir. Þessa dagana erum við að
senda frá okkur íýrstu fræðslu-
myndina okkar sem fjallar um ör-
uggara kynlíf. Við tókum frum-
kvæðið sjálf að gerð myndarinnar,
framleiddum hana á eigin kostnað
og vonumst til að hún eigi eftir að
koma fyrir augu sem flestra. For-
eldrar horfí t.d. fyrst á hana sjálfír
og síðan með bömum sínum sem
eru á þeim aldri að þau þurfi
fræðslu um öruggara kynlíf. Síðan
er ég að þýða leikrit úr ensku og að
skrifa handrit fyrir Rauða Kross ís-
lands, en handritið er fyrsta skrefið
að kynningarmynd um starfsemi
hans. Að auki geri ég einn og einn
þátt um fólkið í landinu fyrir Ríkis-
sjónvarpið.
Hvað varstu að gera fyrir tíu
árum?
Þá átti ég þess kost að vera
með dóttur minni sem var tíu ára
þá, en skil ég það fyrst til fulls nú
hvað það var mér mikils virði að fá
að hafa hana hjá mér. Ég var þá í
þann veginn að ljúka námi i heim-
speki við Háskólann og átti auð-
Heimurinn hrundi
veldara með að eiga tíma með
henni en oft áður. Seinna vann ég
mjög mikið, þannig að þetta voru
dýrmæt ár. Ég las alltaf heima, en
ekki á lesstofu, þegar ég var í Há-
skólanum, þannig að við vorum
mikið saman.
Geturðu þá ekki umgengist
hana núna?
Nei, hún fórst í bílslysi 15. júní
1989, þannig að ég get það ekki
beint. Én mér finnst að hún lifi og
ég vil að hún lifi þó hún sé ekki
hér. Ég trúi á framhaldslíf og jafh-
vel endurholdgun, kannski enn
meira vegna þess að ég vil trúa því
að hún fái einhvem tíma að lifa
heilt líf. Hún var mikill sálarþekkj-
ari og sýndi skilning sem fáum er
gefinn. Ég sakna trúnaðarsam-
bands okkar mikið, það var mjög
gefandi, en líka margs annars.
Hefði viljað eiga meiri tíma með
henni þegar hún var yngri, en lífs-
baráttan hér krefst oft tvöfaldrar
vinnu, sérstaklega meðan maður er
að festa kaup á húsnæði og þetta
gerir það að verkum að bömin
verða að bíða. En samfélagið okk-
ar býður ekki upp á annað en að
bömin bíði.
Þessa rúmu 15 mánuði sem
liðnir eru frá þvi hún dó hef ég gert
lítið annað en að vinna úr sorginni
og býggja sjálfa mig upp á nýjan
leik. Heimurinn hrundi bókstaf-
lega, og það vantar enn talsvert
upp á hjá mér. Það vantar mikil-
vægustu manneskjuna. Ég er að
reyna að vinna með sorgina, hún
fer ekkert og ég verð að læra að lifa
með harminn. Það er t.d. ekki
nema vika síðan ég fann í fyrsta
sinn einhverja gleði í að sinna
vinnunni, sköpunargleði. En gleð-
in er líka öðmvísi núna, hún er
blandin trega. Þegar ég sé t.d.
mikla fegurð, þá hugsa ég um það
af hveiju þessi fegurð sé til fyrst
hún fær ekki að sjá hana. Stundum
hef ég óskað þess að ég hefði feng-
ið að deyja í staðinn, en ég ræð víst
engu um það.
Hvað gerirðu í frístundum.
Ég les, fer oft á bíó og horfi
mikið á sjónvarp, hef mikinn
áhuga á þeim Qölmiðli. Ég hef les-
ið mikið um framhaldslíf undan-
farið, er að leita að svari um hvort
það sé til, og ég hef lesið það sem
ég hef náð í um sorg og sorgarvið-
brögð í leit minni að hjálp. Annars
les ég mjög gjaman góðar skáld-
sögur, ég les líka alls konar
kvennabókmenntir, bæði skáld-
sögur og fræði tengd feminisma.
Það er liður í því að halda þreki
til að takast á við lífið að fara dálít-
ið i göngutúra. Ég bý úti á Nesi, og
það eru ákveðin forréttindi að geta
verið komin úr byggð svo að scgja
á þremur mínútum. Þar er náttúr-
legt umhverfi, kyrrð og ffiður.
Fjaran, þar sem hún er hrein, er
yndisleg, og auðvitað Snæfellsjök-
ull. Ég er aftur á móti ódugleg að
nota nýja fjallahjólið mitt, en það
er á dagskrá. íþróttamanneskja er
ég ekki, en ég viðurkenni nauðsyn
hollrar hreyfingar. Að auki hef ég
gaman af að ferðast og hlusta á
tónlist.
Hver er uppáhaldsbarna-
bókin þín?
Anna í Grænuhlíð. Sjálfstæði
hennar heillaði mig og rauða hárið.
Hvaða bók ertu að lesa
núna?
Hún heitir Women and Love
og er eftir Shere Hite. Bókin er um
konur, lífskjör þeirra, ástarsam-
bönd og fjölskylduhagi. Hún
byggir á viðtölum við nokkur þús-
und bandariskar konur og gefur
forvitnilega mynd af stöðu kvenna
í dag og því sem þær eru að takast
á við, bæði í einkalífinu og at-
vinnulífinu. Það væri gaman að
lesa svipaða greinargerð um hagi
íslenskra kvenna. Nýlega las ég
Temple of My Familiar eftir Alice
Walker sem hreif mig mjög, og
aðra bók er ég með í takinu núna
sem heitir The Full Circle og er um
fólk sem hefúr staðið við dyr dauð-
ans en lifað af. Sú bók er enn einn
liður í þessari leit minni.
Hvers minnistu heist úr
Bibiíunni?
Það sem þér viljið að aðrir
menn gjöri yður það skuluð þér og
þeim gjöra. Móðir mín vitnaði oft í
þessi orð og þetta var grunntónn-
inn í því uppeldi sem við systkinin
fengum.
Hver er uppáhaldsmaturinn
þinn?
Spínatbaka.
Hvaða eiginleika þinn viltu
helst vera laus við?
Letina.
Hvaða eiginieika þinn finnst
þér skrítnast að aðrir kunni ekki
að meta?
Ég þarf alltaf minn tíma til
allra hluta, sumir halda að það sé
leti.
Hvert langar þig helst til að
ferðast?
Ég vil skoða Island betur og þá
helst hálendið. Við eigum svo fal-
legt land og þó ég gleðjist yfir
átakinu til að hefta landeyðingu þá
ég vil ekki sjá landið okkar skógi
vaxið milli Éjalls og fjöru. Ég vil
hafa útsýn til hafsins.
Hvaða ferðamáti á best við
Þig?
Mér finnst gaman að ferðast í
lest.
Hverju viltu breyta í íslensku
þjóðfélagi?
Ég vil að íslenskir ökumenn
geri sér grein fyrir því hvað þeir
eru að gera og dragi úr hraðanum.
Að þeir skilji hvað lífið er brothætt
og hvað það þarf lítið til að ástvin-
ir hverfi. Ef ökumenn hefðu kær-
leikann með sér undir stýri og
hugsuðu með sér að þeirra böm em
lika einhvers staðar á götunum þá
held ég umferðarmenningin væri
betri.
Auk þess vildi ég gjaman sjá
það að konur fengju sömu laun og
karlar og sömu atvinnutækifærin.
Það mætti koma á hagstæðari
verkaskiptingu, bæði úti á vinnu-
markaðnum og inni á heimilunum.
Af hverju ert þú að vinna að
ainæmisvörnum?
Ég fór að pæla i alnæmisvöm-
um vegna þess að ég átti ungling.
Ég vildi geta frætt hana sjálf um
þennan sjúkdóm. Svo kynntist ég
lífi alnæmissjúklings og sá hvaða
hörmungar dundu yfir hann. Fyrir
utan að missa heilsuna, missti hann
vinnuna og þar með tekjur, hann
missti jafnvel vini og mátti þola fé-
lagslega einangmn. Síðan kynntist
ég þessum vanda enn betur í starfi
með Samtökum áhugafólks um al-
næmisvandann. Ég sá að það vant-
aði fræðslu, bæði til þess að koma
í veg fyrir að fleiri smitist og einn-
ig til þess að eyða fordómum gagn-
vart þeim sem þegar hafa tekið
veiruna.
Guðrún
ÞJÓÐVILJINN
FYRIR 50 ÁRUM
Hljóðfæraleikarar vinna fullan
sigur í kaupdeilunni. Hótel Is-
land nefur þó enn ekki látið
undan. Mikill flöldi fólks flutt
burt ftá Berlín vegna loftárás-
anna. Erlendar kartöflur koma
bráðlega á markaðinn. Með
því móti verður komið í veg
fýrir okur stríðsbraskaranna.
Komvara og sykur lækkar í
verði. Verður Franco neyddur
til þátttöku í styrjöldinni?
3. október
miðvikudagur. 276. dagur árs-
ins. Sólarupprás í Reykjavík
kl. 7.41 -sólariag kl. 18.51.
Viðburðir
Stephan G. Stephansson
skáld fæddur árið 1853.
DAGBÓK
APÓTEK
Reykjavík: Helgar- og kvöldvarsla lyfja-
búða vikuna 28. sept til 5. október er i
Ingótfs Apóteki og Lyijabergi.
Fyrmefnda apótekið er opiö um helgar
og annast næturvörslu alla daga kl. 22 til
9 (til 10 á frídögum). Síðamefnda apó-
tekið er opið á kvöldin kl. 18 til 22 virka
daga og á laugardögum kl. 9 til 22 sam-
hliða hinu fyrmefnda.
LOGGAN
Reykjavík.......................« 1 11 66
Kópavogur.......................« 4 12 00
Seltjamames.....................« 1 84 55
Hafnarflörður................« 5 11 66
Garðabær........................« 5 11 66
Akureyri........................« 2 32 22
Siökkvilið og sjúkrabðar
Reykjavík...................« 1 11 00
Kópavogur...................« 1 11 00
Seltjamames.................« 1 11 00
Hafnarfjörður................» 511 00
Garðabær....................« 5 11 00
Akuneyri....................« 2 22 22
LÆKNAR
Læknavakt fyrír Reykjavík, Seltjamar-
nes og Kópavog er i Heilsuvemdarstöð
Reykjavíkur alla virka daga ffá kl. 17 til 8,
á laugardögum og helgidögum allan sól-
arhringinn. Vitjanabeiðnir, símaráðlegg-
ingar og tímapantanir I« 21230. Uppiýs-
ingar um lækna- og lyfjaþjónustu eru
getnarí simsvara 18888. Borgarspital-
inn: Vakt virka daga ffá kl. 8 til 17 og fyrir
þá sem ekki hafa heimilislækni eða ná
ekki til hans. Landspitalinn: Göngudeild-
in er opin frá kl. 20 til 21. Slysadeild
Borgarspítalans er opin allan sólarhring-
inn,« 696600.
Hafnarljörður: Dagvakt, Heilsugæslan,
« 53722. Næturvakt lækna,« 51100.
Garöabæn Heilsugæslan Garöaflöt
« 656066, upplýsingar um vaktlæk
” 51100.
Akureyri: Dagvakt frá kl 8 til 17 á Lækna-
miöstööinni, « 22311, hjá Akureyrar
Apóteki, « 22445. Nætur- og helgidaga-
vakt læknis frá Id 17 til 8 985-23221
(farslmi).
Keflavík: Dagvakt, upplýsingar I
n 14000.
Vestmannaeyjar. Neyðarvakt lækna,
«11966.
SJÚKRAHÚS
Heimsóknartímar Landspítalinn: Alla
daga kl. 15 til 16 og 19 til 20. Borgar-
spitalinn: Virka daga kl. 18:30 til 19:30,
um helgar kl. 15 til 18 og eftír samkomu-
lagi. Fæðingardeild Landspítalans: Alla
daga Id. 15 til 16, feðratími kl. 19:30 til
20:30. Fæðingarheimili Reykjavikur
v/Eiríksgötu: Almennur timi M. 15-16 alla
daga, feðra- og systkinatími kl. 20-21 alla
daga. Öldrunaríækningadeild Land-
spitalans, Hátúni 10B: Alla daga kl. 14 til
20 og eftir samkomulagi. Grensásdeild
Borgarspltala: Virka daga kl. 16 til 19, um
helgar kl. 14 til 19:30. tteilsuvemdar-
stöðln við Barónsstig: Alla daga Id. 15 til
16 og 18:30 til 19:30. Landakotsspítali:
Alla daga kl. 15 til 16 og 18:30 til 19.
Bamadeild: Heimsóknir annarra en for-
eldra kl. 16 til 17 alla daga. SL Jósefs-
spítali Hafnarfirði: Alla daga kl. 15 til 16
og 19 til 19:30. Kleppsspítalinn: Alla
dagakl 15til 16 og 18:30 til 19.Sjúkra-
hús Vestmannaeyja: Alla daga kl. 15 til
16 og 19 til 19:30. Sjúkrahús Akraness:
Alla daga Id. 15:30 til 16 og 19 til 19:30.
Sjúkrahúsið Húsavik: Alla daga kl. 15 til
16 og 19:30 til 20.
ÝMISLEGT
Rauða kross húsið: Neyðarathvarf fýrir
unglinga, Tjamargötu 35, ® 91-622266,
opið allan sólarhringinn.
Samtökin 78: Svarað er i upplýsinga- og
ráðgjafarsíma félags lesbía og homma á
mánudags- og fimmtudagskvöldum kl. 21
til 23. Símsvari á öðrnm timum.
« 91-28539.
Sálfræðistöðin: Ráðgjöf (sálfræðilegum
efnum,« 91-687075.
Lögfræðiaðstoð Orators, félags
laganema, er veitt I sima 91-11012 milli
kl. 19:30 og 22 á fimmtudagskvöldum.
MS-félagið, Álandi 13: Opið virka daga
frá kl. 8 til 17,« 91-688620.
„Opið hús" fyrír krabbameinssjúklinga
og aöstandendur þeirra i Skógartrlíð 8 á
fimmtudögum Id. 17 til 19.
Samtök áhugafólks um alnæmisvand-
ann sem vilja styðja sm'itaða og sjúka og
aöstandendur þeirra í« 91-22400 og þar
er svarað alla virka daga.
Uppiýsingar um eyðni:« 91-622280,
beint samband við lækni/hjúkmnarfræð-
ing á miðvikudögum kl. 18 til 19, annars
símsvari.
Samtök um kvennaathvarf:« 91-
21205, húsaskjól og aðstoð við konur
sem beittar hafa verið ofbeldi eða orðið
fyrir nauðgun.
Kvennaráðgjöfin Hlaðvarpanum, Vestur-
götu 3: Opið þriðjudaga Id. 20 til 22,
fimmtudaga kl. 13:30 til 15:30 og kl. 20 til
22,« 91-21500, slmsvari.
Sjálfshjálparhópar þeirra sem oröið hafa
fyrir sifjaspellum:« 91-21500, slmsvari.
Vinnuhópur um sifjaspellsmál:
« 91-21260 alla virka daga kl. 13 til 17.
Stigamót, m'iðstöð fyrir konur og böm
sem orðið hafa fyrir kynferðislegu ofbeldi.
Ráðgjöf, fræðsla, upplýsingar, Vestungötu
3,« 91-626868 og 91-626878 allan
sólarhringinn.
Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu:
* 27311. Rafmagnsveita: Bilanavakt í
« 686230.
Rafveita HafnarQarðar: Bilanavakt
n 652936.
GENGIÐ
2. október 1990 Sala
Bandaríkjadollar.............56,480
Steriingspund...............106,397
Kanadadollar.................48,943
Dönsk króna...................9,4805
Norsk króna...................9,3464
Sænsk króna...................9,8406
Finnskt mark.................15,2711
Franskur franki.............10,8189
Belgiskurfranki.............. 1,7598
Svissneskur franki..........43,5366
Hollenskt gytlini...........32,1503
Vesturþýskt mark............36,2528
itölsk líra..................0,04843
Austumskur sch...............5,1533
Portúgalskur escudo.......... 0,4091
Sþánskur peseti...............0,5791
Japanskt jen.................0,41278
Irsktpund....................97,295
KROSSGÁTA
Lárétt: 1 far4skora6
málmur7 skrafi 9 iburð-
ur12orðrómur14
hljóm 15 efja 16 ólyktar
19hamingju20kven-
mannsnafn21 angraði
Lóðrétt:2blása3
þvengur 4 vaxa 5 um-
brot 7 borða 8 svima 10
æki11 gafflar 13 spil 17
vesöl18miskunn
Lausn á síðustu
krossgátu
Lárétt: 1 stag4basl6
óði 7 tákn 9 stór 12 Ein-
ar14kæn15ögn16
næman 19 leið 20 muni
21 ragir
Lóðrétt:2tjá3góni4
bisa5sló7tókall8
kennir10trönur11
rangir13nám 17æða
18ami
Miðvikudagur 3. október 1990 ÞJÓÐVILJINN _ cfr)A 11