Þjóðviljinn - 31.10.1990, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 31.10.1990, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 31. október 1990 — 205. tölublað 55. árgangur Fiskiþing Aöild að EB ekki á dagskrá Fjórðungsþing hinna einstöku fiskideilda á móti beinni eða óbeinni aðild að Evrópubandalaginu. Varað við óhefium fiárfestingum útlendinga i íslenskum sjávarútvegL Einar K. Guðfinnsson: Höfum sterka samningsstöðu og óþarfi að fara á taugum Við þurfum ekki að bera neina minnimáttarkennd gagnvart Evrópubandalaginu og aiveg óþarfi að fara á taug- um, enda er samningsstaða okkar sterkari en margan grunar. Mörg EB ríkjanna eru nefnilega orðin svo háð inn- flutningi héðan á ferskum fiski að það mundi skapa verulegan pólitískan þrýsting á fulltrúa Bretlands og Þýskalands ef við drægjum úr honum til Hull, Humbersvæðisins og þess sem er í kringum Cuxhaven," sagði Einar K. Guðfinnsson frá Bol- ungarvík í framsöguræðu sinni um Evrópubandalagið á Fiski- þingi í gær. I umræðum þingfulltrúa um Evrópubandalagið kom skýrt fram að bein eða óbein aðild að bandalaginu er ekki á dagskrá og hið sama er að finna í ályktunum hinna einstöku fiskideilda um málið. I sinni framsögu sagði Ein- ar K. Guðfinnsson að íslendingar ættu að halda áfram þátttöku sinni í viðræðum EB og EFTA um evr- ópskt efnahagssvæði, en einnig taka Frakklandsforseta á orðinu Ríkisstofnanir Skagamenn vilja sameigin- legt átak Bœjarstjórn Akraness: Kaupstaðir vinni sam- an að þvi að fá ríkis- stofnanir út á land Bæjarstjórn Akraness hefur áhuga á að skipa sameiginlega vinnunefnd stærstu kaupstaða ut- an Reykjavíkursvæðisins til þess að móta heildarstefnu um flutn- ing opinberra stofnana út á land. Samþykkt um þetta var gerð á fundi bæjarstjómar Akraness í síð- ustu viku. Samþykktin gerir ráð fyr- ir að Gísli Gíslason bæjarstjóri leiti hugmyndinni fylgis i öðrum kaup- stöðum. Þar er jafnframt lögð áhersla á að nýjar ríkisstofnanir sem koma þarf á fót verði staðsettar utan höf- uðborgarsvæðisins. Bæjarstjóm lýsti einnig stuðningi við þá hug- mynd að alþjóðleg rannsóknamið- stöð um umhverfi Norður-Atlants- hafs verði sett niður á Akureyri. Flutningur ríkisstofhana út á land hefur lengi verið baráttumál sveitarstjómarmanna utan höfuð- borgarsvæðisins. Fjölgun starfa á Iandinu hefur á undanfömum árum nær eingöngu orðið í þjónustu og opinberri starfsemi. -gg um tvíhliða viðræður milli ís- lands og EB. Einar K. sagði að erfítt væri fyrir íslenska fiskvinnslu að keppa á jafnréttisgrundvelli innan EB um hráefnið vegna tollamúra og mikilla niðurgreiðslna og styrkja þess til eigin fiskvinnslu. Sem dæmi mætti nefna að á ámn- um 1986-1989 greiddu íslending- ar hátt í fjórða miljarð króna í tolla til EB vegna útflutnings þangað á sjávarafúrðum. Einar K. sagði að þessa upphæð hefði ís- lensk fiskvinnsla getað notað til að hækka fiskverð til sjómanna og laun fiskvinnslufólks í landi. Ami Benediktsson fram- kvæmdastjóri sagði að það yrði myndarlegt af Fiskiþingi ef það tæki afdráttarlausa afstöðu til Evrópubandalagsins á þinginu. Sjálfúr væri hann þeirrar skoðun- ar að aðild að bandalaginu kæmi ekki til greina. Ami sagði að heimsviðskiptin sæktu fram til æ meira frelsis og þar ættu íslend- ingar heima með sínar sjávaraf- urðir. Meðal samþykkta hinna ein- stöku fjórðungsþinga og deilda fyrir Fiskiþingið var ein frá Fjórðungsþingi Fiskideilda í Austfirðingafjórðungi um að ekki komi til greina að Island gerist aðili að Evrópubandalaginu né af- sali sér veiðiheimildum í skiptum fyrir tollalækkanir. Austfirðingar hvetja til þess að fúllrar varúðar verði gætt við að leyfa útlending- um að fjárfesta óheft í íslenskum sjávarútvegi og komast þannig bakdyramegin inn í íslenska fisk- veiðilandhelgi. Fjórðungsþing Fiskideildanna á Vestfjörðum samþykkti að brýnt væri að vinna að nýjum við- skiptasamningi við EB, en vita- skuld kæmi ekki til greina að ríki innan þess fengju fiskveiðiheim- ildir við landið. -grh „Láttu ekki deigan síga,“ gæti þessi sfungi öldungur vera að segja við félaga sinn þar sem þeir sátu á bekk (veðurbllðunni sem rlkti á höfuð- borgarsvæðinu í gær. Varla hefur þá skort umræðuefnin, þv( af nógu erað taka í þjóðmálunum þessa dagana. Mynd: Jim Smart Akurevri Þúsundir fermetra ónýttir Heimir Ingimarsson: Atvinnumálanefnd œtlar að kanna hve mikið er af ónýttu atvinnuhús- nœði í bœnum. Tökum öllum sem hingað vilja koma tveim höndum AAkureyri er mikið af illa nýttu eða ónýttu atvinnu- húsnæði. Heimir Ingimarsson, formaður atvinnumálanefndar bæjarins, segir þetta húsnæði samanlagt skipta þúsundum fermetra. Atvinnumálanefnd samþykkti á fundi sínum í gær að láta fara fram úttekt á því hversu mikið af atvinnuhús- næði væri falt eða til leigu í bænum og hvert væri meðai- verðið á því í sölu eða ieigu. í samtali við Þjóðviljann sagði Heimir að nefndin léti gera þessa könnun svo menn vissu sínu viti í þessum efnum og hefðu allar upplýsingar á einum stað. A fúndi atvinnumálanefndar i gær var einnig rætt um erindi Fínullar í Mosfellsbæ, sem sýnt hefur áhuga á að flytja starfsemi sína norður til Akureyrar. Heimir sagði nefndina ætla að skoða erindi Fínullar betur og ræða við forráðamenn fyrirtækis- ins. „Við tökum öllum góðum að- ilum tveim höndum sem vilja koma hingað með atvinnutæki- færi,“ sagði Heimir. Hitt væri síð- an annað mál að bærinn gæti kannski ekki borgað fyrirtækjum stórfé fyrir að koma norður. Varð- andi Fínull væri enn ekkert farið að ræða málin alvarlega en eðli- lega settu menn fram hugmyndir um einhveija aðstoð eða tíma- bundna eftirgjöf á opinberum gjöldum. Það kostaði peninga að rífa fyrirtæki upp með rótum og flytja á milli byggðarlaga. Flutn- ingur sem þessi getur þó verið fyrirhafharinnar virði, að mati Heimis. Vinnuafl á Reykjavíkur- svæðinu sé til að mynda óstöðugt í ýmsum atvinnugreinum eins og landsmenn vita. Hann teldi að tíu til fimmtán störf sköpuðust með komu Fínullar til Akureyrar, ef af yrði. -hmp

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.