Þjóðviljinn - 29.11.1990, Blaðsíða 5
MINNING
Vigfús Guðmundsson
frá Aðalbðli á Selfossi
Fœddur 16. september 1903 - Dáinn 22. nóvember 1990
Þann 22. nóvember lést á
sjúkrahúsi í Reykjavík Vigfús
Guðmundsson lengst bifreiðar-
stjóri á Aðalbóli á Selfossi. Verð-
ur hann jarðsunginn frá Selfoss-
kirkju í dag. Vil ég minnast þessa
vinar míns hér nokkrum orðum
þegar hann er nú horfinn sjónum
okkar.
Vigfús Guðmundsson fæddist
að Neðridal í Biskupstungum
þann 16. september 1903. Þar
bjuggu þá foreldrar hans um
skeið, þau Guðmundur Vigfússon
af ætt Ófeigs ríka Vigfússonar í
Fjalli og Þórunn Runólfsdóttir frá
Skálmarbæ í Alftaveri. Arið 1911
brugðu foreldrar hans búi og
fluttu til Reykjavíkur. Fór þá Vig-
fús til vandalausra, fyrst 2-3 ár að
Hlíð í Hrunamannahreppi til
Karls Bemhöft og konu hans Þór-
eyjar Eyjólfsdóttur, en síðan fór
hann aftur í Tungumar og var 9 ár
á Felli hjá foðursystur sinni, Sig-
rúnu Vigfúsdóttur, og manni
hennar Sveini Erlendssyni. Vel
fór um Sigfús á báðum þessum
stöðum, en hann taldi að með
réttu hefði hann byrjað að vinna
fyrir sér sjö ára gamall. Skóla-
fræðslu fékk hann enga, þótt
fræðslulög væm þá komin, en
enginn fékkst þá farkennarinn í
Tungumar. En þrátt fyrir þennan
menntunarmissi komst Vigfús vel
til manns. Hann sagði mér að
mjög ungur hefði hann verið
sendur til fjalls, en fjallkónginum
hefði þótt hann vera lítill fyrir
mann og vildi gera hann aftur-
reka. „Þá fékk ég í fyrsta sinn að
reyna hvemig það er að standa
einn uppi í veröldinni. Eg einsetti
mér að láta ekki minn hlut eftir
liggja - og reif kjaft. Og þá fóm
aðrir að leggja mér lið...“ Það þarf
ekki að rekja þetta lengra. Vigfús
lét ekki aftra sér oftar frá því að
framkvæma það sem aðrir töldu
honum ekki fært.
Vigfús hélt til Reykjavíkur
haustið 1922. Hann stundaði þar
fyrst akstur með hestum, en tók
bílpróf árið 1925 og fór að keyra
um vorið hjá B.S.R. Þar var hann
á Gamla-Ford og lenti strax í
langferðum, fór þá austur að Sel-
fossi og jafnvel austur í Fljóts-
hlíð. Hann fór þá að keyra ýmsan
vaming fyrir Egil Thorarensen
kaupmann á Selfossi, fékk sér
brátt Chevrolet-vömbíl, og haust-
ið 1928 var hann kominn austur
fyrir fullt og allt og hélt heimili
sitt í Tryggvaskála. Þetta vom
uppgangsár og Vigfús keyrði fyr-
ir Egil efni í nýbyggingar eins og
Flúðaskóla, Brautarholtsskóla,
Laugarvatnsskólann og Mjólkur-
bú Flóamanna. Á þeim tíma kom
líka Laxárbrúin. Flutningavegim-
ir lengdust og miklu víðar vom
framkvæmdir um sveitir. Mikill
vinskapur var með þeim Agli
Thorarensen sem entist meðan
báðir lifðu. Ferðimar vom ærið
misjafhar og var mikið bæði á
Vigfús og bíla hans lagt. Frægt
dæmi var það er hann flutti
„þurrkarann mikla" frá Reykjavík
út í Þorlákshöfn. Þurrkari þessi
var 11 m langur og vóg hálft sjö-
unda tonn. En Fúsa sjálfum var
sagt að hann væri rúmlega þtjú
tonn svo hann ákvað að leggja
þetta á tveggja og hálfs tonns bíl.
Allt gekk þetta vel niður að
Hrauni og varð þá að leggja á
Þorlákshafnarsandinn óvegaðan í
kolamyrkri. Lá þá við að Fúsa
féllust hendur, en áfram var þó
haldið og var þetta kvöld síðast
fært út í Höfn þann veturinn. I
annan tíma var Vigfús að flytja
hey suður. Þá dettur grindin á
bílnum sundur á miðri leið. En
Fúsi komst til Reykjavíkur og fór
að gera við. Egill hringdi í hann
og var orðinn óþolinmóður. En
Fúsi kvaðst hafa svarað: „Það er
nú von að ég hafi tafist, því bíll-
inn datt í sundur. Afturparturinn
liggur uppi á Fjalli, en ég keyrði á
framhjólunum og húsinu til
Reykjavíkur.“ Fúsi sagði að þessu
hefðu þeir trúað fyrir austan.
„Þeir héldu að það væri hægt að
komast allt - bara ef mótorinn
væri í lagi.“
Vigfús varð fastamaður hjá
Mjólkurbúi Flóamanna og Kaup-
félagi Ámesinga frá 1931-1933.
Hætti hann þá þessu mikla ver-
aldarvolki, enda heilsan farin að
bila. Næstu sex árin vann hann á
bíl sínum hjá Vegagerð ríkisins
sem þá var komin með útibú á
Selfossi undir stjóm Jóns Ing-
varssonar. En mestu þáttaskil í Iífi
Vigfúsar urðu þann 19. desember
1931 er hann gekk að eiga Guð-
rúnu Jónsdóttur frá Melshúsum á
Eyrarbakka. Bjó hún honum af-
bragðs gott heimili, fyrst í austur-
endanum á Ingólfi, síðan í Þórs-
hamri við Austurveg, en á stríðs-
ámnum byggðu þau Vigfús og
Guðrún mikið íbúðarhús ennþá
austar í plássinu. Það nefndu þau
Aðalból og heyrði ég tvennt nefnt
húsinu til framdráttar: Það var allt
á einni hæð sem var þá nýlunda á
Selfossi - og það hýsti fyrstu vet-
uma hluta af Bamaskólanum.
Þeim Vigfúsi og Guðrúnu
varð fimm sona auðið. Elstur er
Eggert sem lærði bifvélavirkjun
og er nú slökkviliðsstjóri á Sel-
fossi. Næstur er Guðni, seinast
umsjónarmaður á Nesjavöllum í
Grafningi, en búsettur í Reykja-
vík. Þá er Þór, hagfræðingur að.
mennt, nú skólameistari Fjöl-
brautaskóla Suðurlands. Næstur
er Jón skipstjóri hjá Eimskip, bú-
settur í Reykjavík. Yngstur sona
þeirra er Öm mjólkurfræðingur í
Reykjavík. Konu sína missti Vig-
fús þann 18. júlí 1950. Seinni
kona hans er Jóhanna Stefáns-
dóttir frá Haga í Gnúpveija-
hreppi. Böm þeirra em Guð-
mundur Stefán og Guðmunda.
Bjó Jóhanna Vigfúsi ágætt heim-
ili á Seltjamamesi síðustu áratugi
og vom þau þar seinast í íbúðum
aldraðra, þar sem vel fór um þau.
Eg hygg að bestu ár Vigfúsar
Guðmundssonar hafi verið árin
frá 1930-1950. Hann var í blóma
lífsins og færðist oft mikið í fang.
Stéttvís var hann og vissi að hann
hafði unnið sig úr fátækt og átti
því að geta hjálpað öðmm. Brann
þá á honum að breyta mætti þjóð-
félaginu í meiri jafnaðarátt og
skipaði sér því lengst til vinstri í
stjómmálum. Fór svo að Vigfús
varð merkisberi verkalýðshreyf-
ingarinnar á Selfossi, en hann var
kjörinn fyrsti formaður Verka-
lýðsfélagsins Þórs á framhalds-
stofhfundi þess 5. janúar 1941. Þá
var mikil Bretavinna hafín í Kald-
aðamesi. Verkamönnum á Sel-
fossi og í Sandvíkurhreppi öllum
fannst sem Eyrbekkingar fleyttu
þar rjómann og félagið var stofn-
að til að vemda hag heimamanna.
Var Vigfús einnig fyrsti fulltrúi
félagsins á Alþýðusambandsþingi
árið 1942. Vigfús taldi sjálfur að
séra Gunnar Benediktsson sem þá
bjó á Eyrarbakka hefði teflt sér
fram til fomiannskjörs. „Hann
hefur verið í verkalýðsfélagi og er
svolítið félagsvanur,“ sagði
Gunnar. En formannsstöðunni
gegndi Vigfús til ársins 1944.
Þá var hann líka kominn í
hreppsnefnd og var einn þeirra
síðustu er gegndu hreppsnefndar-
störfum í Sandvíkurhreppi hinum
eldri. Þangað var Vigfús kosinn
1942 og sat fram að hreppaskipt-
um, 1. janúar 1947. Faðir minn
sat öll þau ár í hreppsnefnd með
honum og minntist hann oft á það
hve skemmtilegur félagi Vigfús
hefði verið, bæði samvinnuþýður
og sanngjam. Þá var oddviti
Bjöm Sigurbjamarson bankafé-
hirðir í Fagurgerði og færði
fúndagerðimar sjálfúr með sínu
fomytra lagi. Ekki hefur Vigfús
atvinnu sinnar vegna getað mætt
á öllum fundum og því bókaði
Bjöm eitt sinn er ekki náðist í alla
hreppsnefndannenn: „Vigfús er á
víðavangi“. í svo snjallri og
stuttri bókun fólst fullgild afsök-
un.
Vigíús vann stuttan tíma hjá
hemum. „Þettsa var ekkert nema
þrældómur og peningar,“ sagði
hann mér. En þegar hann nefndi
orðið „peningar" rifjaðist upp fyr-
ir mér lítil orðræða sem ég heyrði
sem bam. Bíll kom akandi fram-
hjá Sandvík utan úr Kaldaðamesi.
Heimamenn stóðu úti á stétt og
einhver sagði: „Þetta er hann Vig-
fús, hann er víst orðinn miljóna-
mæringur." Þetta vom stór orð í
þá tíð og mörgum áratugum síðar
spurði ég Fúsa hvað hæft væri í
þessum orðum um þáverandi for-
mann Verkalýðsfélagsins Þórs á
Selfossi. Hann kvaðst halda að
hér væri átt við stóra akkorðið
sem hann tók á því að tyrfa kring-
um herspítalann mikla í Kaldað-
amesi. Torfíð átti að taka í
Látinn er fyrir aldur fram
Milutin Kojic heiðursræðismaður
Júgóslavíu á íslandi og verður út-
for hans gerð frá Dómkirkjunni í
Reykjavík í dag. Milutín kvæntist
Guðrúnu Óskarsdóttur, Halldórs-
sonar útgerðarmanns árið 1954 og
settust þau að í Reykjavík nokkr-
um ámm síðar.
Heiðursræðismaður lands síns
varð hann árið 1967.
Samskipti íjarlægra smáþjóða
vilja verða tilviljunarkennd cg
háð áhuga og framtaki einstak-
linga. Það varð hlutverk Milutíns
að vinna að auknum kynnum og
samskiptum landanna tveggja.
Brautryðjendur í slíku starfi skilja
eftir sig spor sem aðrir geta fylgt.
Þannig varð Milutin raunvemleg-
ur sendiherra lands síns í bestu
merkingu þess orðs. Hann stóð
traustum fótum í báðum löndun-
um, stundaði sjálfur viðskipti og
greiddi fyrir öðram, vann með
Breiðumýri við Eyrarbakkaveg-
inn og Fúsi var beðinn að taka
verkið að sér í fyrsta lagi af því að
hann var formaður verkalýðsfé-
lagsins og gat því útvegað marga
menn - og í öðm lagi af því að
hann hafði verið ökumaður með
hesta. Gerði hann þá svimandi
hátt tilboð. Vissi auðvitað ekkert
að hverju hann gengi.
Svo fengust hvorki menn né
hestar. Torfskurðarmenn litu ekki
við tilboði Vigfúsar. Hann hélt
sjálfur að 40 hesta þyrfti til verks-
ins, en fáir fengust. Loks komu
þeir sem vildu skera torfið og
reyndist þá tilboð Vigfúsar það
hagstætt að þeir komust á klukku-
tíma í fúll daglaun. En lausnin á
flumingavandamálinu var þessi:
Vigfús var þá að smiða Aðalból.
Hann átti þar væna spermkjálka.
Hann lét smiðina smíða sleða úr
þeim, 4-6 metra á lengd. Fékk svo
vin sinn Sigfús Öfjörð til að lána
sér mann og dráttarvél sem dró
sleðana með torfinu upp á þjóð-
veg. Gekk þetta allt í logandi
hvelli eins og Ameríkanar vildu
hafa það. Reyndar gekk verkið
svo fljótt fyrir sig að samningar
vom aldrei settir á blað, aðeins
handsalað. Ég spurði svo Fúsa
hvað hann hefði haft upp úr verk-
inu og hann svaraði: „Eins og bíl-
verð var þá held ég að ég hafi get-
að keypt eins og tvo bíla þegar
allt var upp gert.“
Svona sögur þyl ég nú ekki
meira um vin minn, Vigfús Guð-
mundsson. Hann var frásagna-
meistari og fór alltaf vel með all-
ar sögupersónur sínar. Því átti
hann vísar vinsældir og vann fyr-
ir hina ólíkustu menn á hinum
ólíklegusm stöðum á landinu.
Hann var þrautseigur - óbilandi í
hverri raun. Eftir stríð hélt hann
sér mest við vömbílaakstur og
rútuútgerð og tók síðustu ár sín á
Selfossi að sér sorphreinsun fyrir
staðinn. Árið 1963 lá leiðin aflur
suður og nú settist hann að á Sel-
tjamamesi sem fyrr er sagt. Þá
var hann nær sextugu, en vílaði
ekki fyrir sér að gerast togarasjó-
maður hjá útgerð Tryggva
Ófeigssonar. En síðast átti hann
róleg ár þama á Nesinu, og eitt
sinn er fundum okkar bar saman
skák- og íþróttafólki, listafólki,
verktökum, ferðamálaaðilum og
mörgum fleirum. Minnisstætt er
samstarf hans við rithöfundinn og
félagsfræðinginn Stevan Maj-
storovic sem er sá maður júgó-
slavneskur sem hvað mest hefúr
fjallað um ísland þar syðra í bók-
þá sagðist hann vera kominn frá
því að spila bridds. Það gerði
hann tvisvar í viku „til að halda
við heilasellunum“.
Ég hygg að Vigfús Guð-
mundsson hafí alltaf verið sveita-
maður hvert sem Ieið hans lá ann-
ars. Tvennt kemur mér síðast í
hugann í þessum dreifðu minn-
ingum. Vigfús var einn af skipu-
leggjendum fjárflutninganna
miklu milli Suðurlands og Þing-
eyjarsýslu haustin 1952 og 1953.
Fyrirfram var talinn ógjömingur
að hægt væri að flytja féð á bílum
alla þessa leið. Helst var rætt um
að reka allan hópinn suður
Sprengisand og hafa bíla á eftir til
að hirða það sem gæfist upp. En
Vigfús og félagar h'ans sýndu með
skipulagsgáfu sinni að þetta var
gerlegt og tókst hið besta. Vel
man ég það kvöld er fjárfluting-
unum lauk haustið 1952 og Vig-
fús kom heim fagnandi sigri. Þá
var hvað léttast yfir honum sem
ég hefi séð.
Rösklega hálfsextugur fór
Vigfús að stunda fjallferðir. Það
gerði hann af lífi og sál. Fór mörg
haust á fjall með Flóamönnum og
komst lengst í það eitt haustið að
vera 32 daga á hestbaki. Mark-
miðið hjá honum eins og fleiri var
að komast í lengstu leitina - inn í
Amarfell undir Hofsjökli. Það var
svipað hlutverk eins og fyrir kaþ-
ólska að komast til Rómarborgar.
Við Vigfús fómm saman haustið
1960 og áttum reyndar ekki að fá
það, annar of ungur, 23 ára, hinn
of gamall, 57 ára. En þar sýndi
Vigfús mikla þrautseigju og
óvenju rnikla kunnáttu á afréttin-
um. I laumi sagði hann mér svo
frá síðar, að þá hafi hann verið
búinn að fara um allan Holta-
mannaafrétt og auðvitað búinn að
sjá oft út yfir Þjórsá og kynnast
þar ömefnum.
I þessari ferð reyndi ég það af
Vigfúsi og fleiram að kynslóða-
bilið hættir um leið og vináttan
myndast. Ég man hann líka i Am-
arfellsbrekkunni í síðsumarssól-
inni og vil vita af honum núna í
jafn sígrænum sólarlöndum. Eða
þannig held ég að bamatrú okkar
beggja sé.
Páll Lýðsson.
um, greinum og fyrirlestmm.
Löndin tvö standa í þakkar-
skuld við Milutin Kojic fyirir hans
góðu verk og mikilvæga brauð-
ryðjandastarf sem aðrir verða nú
að taka við. Þekking og kynni
milli þjóða er sérkennilegur auður
sem erfitt er að festa hönd á, en
getur verið uppspretta margra
góðra hluta.
Sá sem hér heldur á penna
þakkar ánægjuleg kynni og um-
hyggju á námsámm í Belgrad og
löngum síðar. Sú stund er mér
minnisstæð þegar Kojic fjöl-
skyldan birtist á dýrafræðideild-
inni við Stúdentatorgið i Belgrad
haustið 1963 til að kynnast hög-
um íslendingsins sem þar hafði
komið sér fyrir um skeið. Það var
upphaf að löngum kynnum.
Guðrúnu, dætmnum fjómm
og fjölskyldu Kojic í Zakutu í
Serbíu sendi ég einlægar samúð-
arkveðjur. Stefán Bergmann.
Milutin Kojic
heiðursræðismaður
Fœddur. ló.febrúar 1922 - Dáinn 19. nóvember 1990
Fimmtudagur 29. nóvember 1990 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5