Þjóðviljinn - 23.01.1991, Blaðsíða 9
ERLENDAR FRETTIR
Eftirmálar „ofbeldisædisins“
Öryggisráðið, Bandaríkjastjórn og Evrópuríki brugðust öll, hver með sínum hætti, í viðleitninni til að leitafrið-
samlegrar lausnar á deilunni um Kuveit, segir Zbigniew Brzezinski, fyrrverandi öryggismálaráðgjafi Jimmy Carters í
viðtali við Der Spiegel
Það hefði verið hægt að koma
í vejg fyrir stríð við Persa-
flóa ef Oryggisráðið hefði geflð
meira svigrúm til samninga.
Málið hefði líka getað tekið
aðra stefnu ef stefna Bandaríkj-
anna hefði tekið mið af sam-
komulagi í stað þess að beinast
fyrst og fremst að því að koma í
veg fyrir málamiðlun.
Evrópuríkin hefðu líka getað
náð meiri árangri í leit að lausn án
valdbeitingar ef þau hefðu ekki
beðið með frumkvæði sitt til síð-
ustu stundar.
Þannig kemst Brzezinski fyrr-
verandi öryggismálaráðgjafi
Jimmy Carters Bandaríkjaforseta
að orði í nýlegu viðtali við þýska
vikuritið Der Spiegel.
Mistök
Brzezinski segir að Banda-
ríkjastjóm hafi skjátlast þegar hún
vonaðist eftir að geta niðurlægt
Saddam Hussein án þess að til
stríðs myndi koma.
Hann segist þeirrar skoðunar,
að langvarandi viðskiptabann
hefði getað náð tilætluðum ár-
angri, en segir jafhffamt að þessi
skoðun hans verði ekki lengur
sönnuð.
„Ég tel hins vegar að við-
skiptabann hefði betur samrýmst
nýrri skipan öryggismála og sam-
vinnu þjóða í heiminum."
Aðspurður um möguleika di-
plómatískrar lausnar eftir að stríð-
ið hefúr brotist út segir Brzez-
inski, að ef stríðið verði ekki til
lykta leitt fljótlega eflir fyrsta of-
beldisæðið þá verði vopnahlé
hugsanlegt í tengslum við upp-
tekna samninga á breiðari grund-
velli.Blaðamaður Der Spiegel
segir augljóst að George Bush sjái
fyrir sér nýja heimsskipan undir
forystu Bandaríkjanna sem eina
risaveldisins i heiminum og spyr
hvort sigur yfír Irak muni greiða
fyrir slíkri skipan, eða hvort
Bandaríkjamenn séu kannski
orðnir leiðir á því að gegna hlut-
verki alheimslögreglu.
Brzezinski segir, að ef afger-
andi sigur vinnist fljótlega muni
einangrunarstefna í Bandaríkjun-
um ekki ná fram að ganga. En
slíkur sigur muni heldur ekki
skapa neina nýja heimsskipan.
Um yrði að ræða alþjóðlegt kerfí
sem byggðist á yfirburðum eins
stórveldis. Þá muni einnig þurfa
að horfast í augu við þá undarlegu
þversögn sem fólgin sé í tröllauk-
inni valdbeitingu gagnvart yfir-
gangi íraka í Kúveit annars vegar
og tiltölulega hófsömum við-
brögðum við sovéskri valdbeit-
ingu í Litháen hins vegar.
Brzezinski segir aðspurður að
í rauninni séu hin tiltölulega
veiku viðbrögð stjómarinnar í
Washington við atburðunum í
Lettlandi það verð sem Washing-
ton greiði Moskvu fyrir samvinn-
una í Persaflóastríðinu og að það
ALÞYÐIJBANDALAGTÐ
ABR
Fundur í Borgarmálaráði
Fundur í borgarmálaráði ABR í dag, miðvikudag 23. janúar kl. 17.15
(flokksmiðstöðinni Laugavegi 13.
AB Selfoss og nágrenni
Félagsfundur
Félagsfundur verður hald-
inn laugardaginn 26. janúar
( húsi félagsins að Kirkju-
vegi 7 kl. 10 til 12 árdegis.
Dagskrá:
ír,T«nÞ“9n“^,yrt, Anna Kristln
ingar og stjórnmálaviðhorfið. Margrét Frímannsdóttir og Anna
Kristín mæta á fundinn.
Kaffi á könnunni.
Stjórnin
AB Akranesi
Fjáhagsáætlun Akranesbæjar 1991
Bæjarmálaráð heldurfund I Rein mánudaginn 28. janúar kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Fjárhagsáætlun Akranesbæjar og stofnana 1991.
2. Atvinnumál.
3. Önnur mál.
Fulltrúar Alþýðubandalagsins í nefndum hvattir sérstaklega til að
mæta. Allir velkomnir.
Nefndin
AB Keflavlk/Njarðvlk
Félagsfundur
Félagsfundur verður haldinn i Iðnsveinafélagshúsinu Tjarnargötu
7, sunnudaginn 27. janúar kl. 14.
Dagskrá:
1. Húsakaup félagsins.
2. Önnur mál.
Félagar og stuðningsmenn fjölmennið. Stjórnin
Alþýðubandalagið I Kópavogi
Þorrablót ABK verður haldið
9. febrúar.
Á boðstólum verður hinn sivinsæli þorramatur og siðan verður stig-
inn dans.
Alþýðubandalagsmenn I Reykjanesi sérstaklega boðnir velkomnir.
Nánar auglýst siðar
Stiórn ABK
sé útbreidd skoðun almennings í
A-Evrópu að á bak við þetta
standi leynilegt samkomulag
Moskvu og Washington. „Það að
þessir atburðir skuli gerast sam-
tímis er siðferðilega niðurlægj-
andi,“ segir Brzezinski.
Verndari eða drottnari
Varðandi mögulega lausn
deilunnar segir Brzezinski að
stríðið ætti að leiða til nýs svæðis-
bundins öryggiskerfis í
Mið-Austurlöndum, er skapaði
grundvöll fyrir sameiginlega ör-
yggishagsmuni, þar sem ekkert
eitt land byggi við hemaðarlega
yfirburði. Þannig yrði Iíka að gera
út um deilu ísraelsríkis og Palest-
ínumanna í eitt skipti fyrir öll. Ar-
angurinn muni fara eftir því
hvemig styijöldinni lyktar. Ráðist
úrslitin fljótt ætti að verða auðvelt
að ná slíku samkomulagi.
Lokaspuming blaðamanns er
sú, hvort afleiðingar stríðsins
gætu ekki leitt til þess, að ríkis-
stjómum þeirra arabaríkja sem
Bandaríkin hafa leitað skjóls hjá,
myndu falla.
Svar: „Þá yrðu Bandaríkin til-
neydd að hverfa úr hlutverki hins
velkomna vemdara og setjast þess
í stað að til Iangframa sem hið
óvelkomna lögregluvald.“
ólg/Der Spiegel
Umburðarbréf páfa
Múslímum
séleyft að
kristnast
Jóhannes Páll páfi annar
sendi í gær frá sér umburðar-
bréf, þar sem hann skorar á
íslömsk ríki að afnema lög, sem
banna múslímum að snúast til
annars átrúnaðar.
„Viss ríki banna kristniboðum
landvist,“ stendur í bréfinu, sem
nefnt er Redemptoris missio eftir
upphafsorðum sinum á latínu,
samkvæmt fomri hefð. „í öðmm
ríkjum er ekki aðeins að kristni-
boð sé bannað, heldur er einnig
bannað að taka aðra trú (en íslam)
og jafnvel að iðka kristna guðs-
dýrkun."
Páfi nefnir engin ríki í bréf-
inu, en vitað er að stjómvöld
margra íslamsríkja líta kristniboð
illu auga og hafa gert ýmsar ráð-
stafanir því til hindmnar. Einna
mest er umburðarleysið í þeim
efnum í Saúdi-Arabíu, þar sem
bannað er að nokkur merki sjáist
um önnur trúarbrögð en íslam.
Samkvæmt lögmáli íslams er litið
á hvem þann sem dauðasekan,
sem kastar þeirri trú.
Ennfremur segir í páfabréfi
þessu að kaþólska kirkjan virði að
vísu öll trúarbrögð, en telji sig
skylduga að flytja öllu fólki boð-
skap guðspjallanna. Páfi hafnar
og í bréfinu þeirri skoðun að öll
trúarbrögð séu jafngóð, það sé
rangt viðhorf guðffæðilega séð.
Kristnir menn í heimi hér em
alls taldir vera um 1,6 miljarðar,
þar af um 880 miljónir kaþólikka.
Talið er að múslímar séu um 900
miljónir.
Reuter/-dþ.
J>Á;
f. - ' 's 1
Ki m m
Zbigniew Brzezinski: Atburðimir f Lettlandi em siðferðileg niðurlæging
fyrir málstað Bandaríkjanna.
Köfun ekki heimil á Þingvöllum
Óheimilt er að stunda köfun í gjám innan þjóðgarðsins á
Þingvöllum og í vatninu fyrir landi þjóðgarðsins.
Þingvallanefnd
22. janúar 1991
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Auglýsing um
styrki tsl fjarkennsluverkefna
Framkvæmdanefnd um fjarkennslu auglýsir hérmeð eftir umsókn-
um um styrki til að vinna fjarkennsluverkefni. Einkum er um að
ræða fjarkennsluverkefni til notkunar í endurmenntun.
Umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar fást hjá fullorðins-
fræðsludeild ráðuneytisins.
Umsóknarfrestur er til 20. febrúar nk.
Menntamálaráðuneytið
22. janúar 1991
fcgl Fjórðungssjúkrahúsið
—J á Akureyri
Læknaritarar
Lausar eru stöður læknaritara, læknafulltrúa I og
læknafulltrúa II frá 1. febrúar nk.
Upplýsingar veita Ingi Björnsson, framkvæmda-
stjóri, og Vignir Sveinsson, skrifstofustjóri.
Skriflegar umsóknir sendist Inga Björnssyni fyrir 26.
janúar nk.
ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9