Þjóðviljinn - 26.01.1991, Síða 3

Þjóðviljinn - 26.01.1991, Síða 3
FRETTIR Dagsbrúnarkosningin h átttaka Þrastar Ólafssonar ~ í stjórnarkjörinu í Dags- brún hefur mælst mjög mis- jafnlega fyrir meðal Alþýðu- flokksmanna í Reykjavík, en Þröstur er kosningastjóri stjórnarinnar auk þess sem hann tekur þátt í prófkjöri Al- þýðuflokksins í Reykjavík og stefnir þar á þriðja eða ljórða sæti. Ahrifamaður í Alþýðuflokkn- um í Reykjavík sagði við Þjóð- viljann í gær að flokksmenn væru almennt mjög óánægðir með þessa tengingu eins frambjóðand- ans í prófkjörinu við deilur innan Dagsbrúnar. Hann sagði flokks- menn óttast að flokkurinn gæti dregist inn í leiðindamál vegna þessa. Þá benti hann á að for- mannsefni mótframboðsins væri vel þokkaður Alþýðuflokksmað- ur. Frambjóðendur mótfram- boðsins hafa einnig gagnrýnt að- ild Þrastar að stjómarkjörinu í Dagsbrún og segja að með þessu sé verið að gera það að flokkspól- itísku máli. Þeir benda á að Þröst- ur sé aðstoðarmaður Jóns Bald- vins Hannibalssonar utanríkisráð- herra, auk þess sem kosninga- skrifstofa stjómarinnar sé í Al- þýðuhúsinu. „Mér fmnst mjög að mér veg- ið með þessu,“ sagði Jóhannes Guðnason, formannsefni mót- framboðsins, sem verið hefur virkur félagi í Alþýðuflokknum, m.a, varaformaður Sambands ungra jafnaðarmanna árið 1981. „Við höfúm heimildir fyrir því að Birgir Dýrfjörð, ffam- kvæmdastjóri Alþýðuflokksins, og Jón Baldvin formaður standi á bak við Þröst i þessu. Reynist þetta rétt mun ég segja mig úr Al- þýðuflokknum því það er fárán- legt að flokkurinn sé að blanda sér í þetta stjómarkjör,“ sagði Jó- hannes. Auk þess sagði hann að sér fyndist siðlaust að maður á fúll- um launum hjá utanríkisráðherra tæki að sér kosningastjóm fyrir Dagsbrúnarstjómina. Þröstur vísar þessum ásökun- um á bug og segir ekkert óeðlilegt við það að hann taki að sér kosn- ingastjóm fyrir stjóm Dagsbrún- ar. „Ég er bara að vinna fyrir Dagsbrún. Ég þekki félagið vel og er vanur að taka þátt í kosn- ingabaráttu. Þetta er ekkert á veg- um flokksins að öðm leyti en því að ég er félagi í Alþýðuflokkn- um,“ sagði Þröstur. Þröstur sagðist hafa fengið vikulangt leyfi frá störfúm í utan- ríkisráðuneytinu til þess að sjá um kosningabaráttuna. Síðdegis í gær höfðu um 400 manns greitt atkvæði í stjómar- kjörinu en alls em um 3.500 á kjörskrá. Kosning hófst kl. 13 og lauk kl. 20 i gær. í dag verður kosningunni fram haldið frá kl. 10 til 19 og henni lýkur svo á sunnudag en þá er hægt að kjósa frákl. lOtil 17. -Sáf Kosning til stjórnar Dagsbrúnar hófst á hádegi I gaer og um fimmleytið höfðu um 400 manns kosið. Mynd: Jim Smart. Eistland Ekki pólitísk morð Ráðstefnu norrænu og eistnesku verkalýðssam- takanna aflýst vegna morða á tveim sœnskum verkalýðsforingjum Við höfum fengið það nánast staðfest hjá eistnesku verkalýðs- samtökunum að hin hörmulegu morð á tveim sænskum verka- lýðsforingjum í fyrradag hafi ekki verið af pólitískum ástæð- um, heldur hafi hér verið um hrein auðgunarmorð að ræða, sagði Ásmundur Stefánsson for- seti ASÍ í samtali við Þjóðviljann ígær. Sú ákvörðun var hins vegar tekin af norrænu verkalýðssamtök- unum í gærmorgun í samráði við þau eistnesku, að aflýsa fyrirhug- aðri ráðstefnu þessara aðila, sem átti að hefjast í Tallinn næstkom- andi mánudag. Ástæða frestunarinnar er í fyrsta lagi harmur yfir fráfalli sænsku verkalýðsforingjanna og í öðru lagi vilja menn endurskoða áhættuna af svona samkomum, sagði Ásmundur og bætti við að upplausnarástand eins og nú rikti í Eystrasaltsríkjunum hefði meðal annars þau áhrif að auka almenna glæpatíðni. Tilgangur ráðstefnunnar í Tall- inn átti að vera að meta það hvem- ig verkalýðshreyfing í umbreyt- ingaþjóðfélagi eins og því eist- neska ætti að bregðast við og hveiju hún þyrfii að breyta í starf- semi sinni. Eistlendingamir hafa verið í sambandi við norrænu verkalýðssamtökin áður og áttu þau frumkvæði að boðun ráðstefn- unnar, sem nú hefúr verið frestað um óákveðinn tíma. Hinir myrtu Svíar vom Bertil Whinberg formaður sambands sænskra byggingarverkamanna og Ove Fredriksson formaður sænskra timburverkamanna. -ólg > Skjálfti hjá krötum Þröstur Olafsson sakaður um að gera stjórnarkjörið að flokkspólitísku máli. Þröstur: Vísa þessu á bug. Jóhannes Guðnason: Segi mig úr Alþýðuflokknum efhann stendur á bak við stjórnina Landsvirkiun Hagnaður af orkusölu Halldór Jónatansson, forstjóri Landsvirkjunar: Landsvirkjun grœddi á viðskiptum við ÍSAL 1969-1990 U alldór Jónatansson, for- stjóri Landsvirkjunar, full- yrðir að hagnaður hafi verið af orkusölunni til ÍSAL síðan orkusamningurinn tók gildi ár- ið 1969. Hann hefur hins vegar ekki tiltækar tölur um hver hagnaðurinn hefur orðið. Að sögn Halldórs vom tekjur Landsvirkjunar af orkusölu til ÍSAL 19 miljarðar króna á ámn- um 1969-1990. Afborganir og vextir af lánum vegna ffarn- kvæmda við Búrfell og fleiri mannvirkja sem tengjast orkusöl- unni til ISAL vom hins vegar um 12 miljarðar á sama tímabili. Báð- ar tölumar em að sögn Halldórs á verðlagi í desember 1990. - Við höfum ekki tölur um hagnaðinn af þessari orkusölu, en það er alveg ljóst að það hefúr orðið hagnaður af henni, segir Halldór við Þjóðviljann. í svari við fyrirspum Guðrún- ar J. Halldórsdóttur, þingmanns Kvennalistans, um þetta efni kemur ekki ffarn hver hagnaður Landsvirkjunar af viðskiptum við ÍSAL varð á ámnum 1980 til 1989. í svari iðnaðarráðherra við fyrirspum Guðrúnar segir að ekki hafi verið hægt að greina frá hagnaði Landsvirkjunar af ein- stökum þáttum orkusölunnar, enda séu mörg álitamál varðandi slíka skiptingu. Hins vegar kemur fram í svarinu að rekstrarhagnað- ur Landsvirkjunar á þessu tíma- bili varð samtals um 836 miljónir króna. Á sama tímabili greiddi ÍSAL tæplega 1200 miljónir króna í framleiðslugjald, að frá- dregnum kostnaði vegna eftirlits með álverinu. Rekstrarhagnaður Landsvirkjunar og skattgreiðslur ÍSAL nema því samtals rúmlega tveimur miljörðum króna. Á þessu tímabili greiddu ís- Iendingar hins vegar samtals 3,36 miljarða króna í afborganir og vexti af lánum sem tekin voru vegna Búrfellsvirkjunar og ann- arra framkvæmda vegna álversins í Straumsvík. Mismunurinn er vel á annan miljarð króna á þessu tíu ára tímabili. -gg ÞJÓÐVILJINN — SlÐA 3 Alþingi Bannað að selja Páll Pétursson, Frfi., hefur lagt fram á þingi frumvarp til laga þess efnis að fjármála- ráðherrra sé óheimilt að selja fasteignir ríkisins, hlutabréf eða eignarhluti í félögum, skip eða fiugvélar, listaverk eða aðrar eignir án þess að hafa til þess sérstaka heimild í almennum lögum eða á ijárlögum. I greinargerð með frumvarpinu bendir flutningsmaðurinn á að fjármálaráðherra sé óheimilt að selja fasteignir ríkissjóðs og því sé eðlilegt að hið sama gildi um ofan- nefnda hluti. Páll er þingmaður í Norður- landskjördæmi eystra og hefur harðlega gagnrýnt sölu fjármála- ráðherra Olafs Ragnars Grímsson- ar á Þormóði ramma hf. Siglufirði. Augljóslega beinist þetta frumvarp gegn slíkri sölu hlutabréfa, því fyr- ir jól lagði sami þingmaður ásamt Pálma Jónssyni, Sjfl., fram frum- varp til laga þess efnis að fjármála- ráðherra væri óheimilt að selja hlutabréf ríkisins í Þormóði ramma hf. Frumvarp þetta varð ekki útrætt á haustþinginu. -gpm HELGARRÚNTURINN ÞORRINN er genginn í garð þótt ekki sé þorralegt um að litast, að minnsta kosti ekki á höfúðborgarsvæðinu. Eflaust munu margir blóta Þorrann nú um helgina. Þeir sem ekki gera það með félagasamtökum eða vinnufélögum sínum geta haldið sín einka Þorrablót í heimahúsum. Eða ef pyngjan þolir það þrátt fyrir þjóðarsátt og timburmenn plastjóla: mörg veitingahúsanna bjóða upp á þorramatseðil. Og í Kringlunni er sérstök Þorrakynning í dag og síðan alla næstu viku. ÞEGAR blótgestir vakna útkýldir af feitu súrmeti á sunnudag er ekki úr vegi að skreppa með Ferðafélagi íslands til Þingvalla. Þetta er fyrsta af fjórum árstíðaferðum Ferðafélagsins á Þingvelli. Lagt verður af stað kl. 11 frá Umferðarmiðstöðinni, austanmegin. Gengið verður með strönd Þingvallavatns frá Vellandkötlu um Vatnskot og Lambhaga að Þingvalla- kirkju, en þar mun séra Heimir Steinsson þjóðgarðsvörður taka á móti hópnum og flytja stutta helgistund og segja frá sögu staðarins. Heim- koma er kl. 16.30. Þátttaka kostar kr. 1000, en frítt fyrir böm. Þá verður ferð að Heklu norðan megin frá, og er lagt af stað kl. 8 árdegis á sunnu- dag ef aðstæður leyfa. FÆREYSKI leikhópurinn Leikapettið sýnir ævintýraleik fyrir böm í Norræna húsinu á morgun, sunnudag, kl. 16. Leikritið heitir Kraddarin og hefur fengið mjög góða aðsókn i Færeyjum. Höfúndar em Súsanna Tórgarð og Birita Mohr. Söngtextar em eftir Axel Tórgarð, en tónlistin eftir Hans Pauli Tórgarð og Egi Dam. Leikstjóri er Birita Mohr og fer hún jafnframt með aðalhlutverkið. Leikritið byggir á gamalli færeyskri þjóðsögu, en Kradarin myndi kallast Nirfillinn á íslensku. IRIS Elfa Friðriksdóttir opnaði í gær sína fyrstu einkasýningu í Nýlista- safninu við Vatnsstíg. Á sýningunni em verk unnin í jám og polyester. Níels Hafstein opnaði einnig sýningu í Nýlistasafninu í gær, en þar birtir hann niðurstöður formrannsókna sinna og em verkin unnin í tré og málma. Myndir af venjulegum stöðum er yfirskrift ljósmyndasýningar ívars Brynjólfssonar í Gallerí 11 við Skólavörðustíg sem opnuð var í gær. HAFNFIRÐINGAR geta notið Vínarstemmningar á Fjömkránni um þessar mundir. Tilefnið er 200 ára dánarminning Mozarts og er boðið upp á austurriskan mat, en Austurríkismaður aðstoðar kokkana. Þá er boðið upp á Vínartónlist og klassískan söng. Dagur harmónikunnar er í dag og verður hann haldinn hátíðlegur í Tónabæ þar sem Stórsveit Harm- onikufélags Reykjavíkur spilar ásamt minni hópum og einstaklingum. Sérstakur gestur dagsins er Garðar Olgeirsson frá Hellisholtum í Hmna- mannahreppi. Dagskráin hefst kl. 15 og henni lýkur kl. 17. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Sigríður Ella Magnúsdóttir verður með ljóða- tónleika í Gerðubergi á morgun^unnudag, kl. 16, en ekki kl. 20.30 eins- og misritaðist í Nýju Helgarblaði.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.