Þjóðviljinn - 08.03.1991, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 08.03.1991, Blaðsíða 16
Sylvía skrifar heim Á Litla sviði Þjóðleikhússins er verið að sýna leikrit um banda- rísku skáldkonuna Sylvíu Plath sem fæddist í Boston árið 1932 og lést þijátíu árum seinna í London. Bréf frá Sylvíu heitir verkið og er byggt á bréfurn sem Sylvía skrif- aði móður sinni og bróður effir að hún fór að heiman. Ég vissi ekki mikið um Sylv- íu Plath áður en ég sá þessa sýn- ingu og var ekki í aðdáendahópi hennar sem skáldkonu. Þó hefur hana ekki skort aðdáendur, og eft- ir sýningu Þjóðleikhússins skil ég hvers vegna. Fyrir utan hvað hún er magnað skáld og mikill sjáandi er hún afar spennandi persóna, í senn svo dæmigerð fyrir sinn tíma og svo sérstök. Áratugur Sylvíu var sá sjötti, þegar æskan tók völdin og heimt- aði ffelsi. Dásamleg ár segja þeir sem horfa á þau með Grease- gler- augum. Unglingar eignuðust sín sérstöku attribút: rokkið, gallabux- umar, lausu skyrtumar, stóru peys- umar og hringskomu pilsin sem vöfðust um mjaðmir stúlknanna þegar þær tjúttuðu. Unglingar urðu til sem sérstakur hópur og fundu mikið til sín. En í opinbera lífinu var kalda striðið í algleymingi, og í einkalíf- inu var pillan ekki enn komin til sögunnar. Frelsið strandaði á skeri kynlífsins. Aldrei hefur tvískinnungurinn í samskiptum kynjanna verið meiri en á sjötta áratugnum, ekki síst í hópi ungra listamanna og menntafólks, bóhemanna, þar sem ffelsinu var fagnað af mestri ákefð. Karlar og konur áttu í orði kveðnu að hafa jafnan rétt til hins ffjálsa lífs, en guð hjálpi þeim konum sem reyndu það. Þær guldu þess margar að líkami þeirra var fijór og komust að því hvað þá var stutt í fordæminguna. Og ofar öllu ffelsishjali var boðorðið um að kona ætti að vera eiginkona fyrst og listamaður eða menntamaður svo. Annars var líf hennar einskis virði. Sylvía Plath var bam þessa tíma og gott dæmi um hann. Hún naut þess hvað ungt fólk var mikið í sviðsljósinu, enda metnaðarfullur listamaður ffá unga aldri. Hún var ffábær námsmaður og hlaut enda- laus verðlaun og styrki alla sína tíð. En hún er líka venjuleg stelpa og upptekin af strákum. Segir mömmu sinni vel sniðnar róman- tískar sögur af draumaprinsum sem bara vilja tala og dansa og fullvissar hana um að hún fari var- lega í kynlífinu. Þegar Sylvía var tuttugu og þriggja ára fékk hún Fulbright- styrk til að fara til Englands til náms. Henni finnst ofsalega gam- an, en stundum má sjá að henni finnst hún orðin hálfgerð pipa- ijómfrú. Ég get ekki komið heim afhir fyrr en ég er búin að gifta mig, skrifar hún. Svo eignast hún mann og böm og lífsskilyrði kvenna á sjötta ára- tugnum er uppfyllt. Er þá ekki kerling ánægð? Það er hún ekki vegna þess að hér er bara ytra byrði Sylvíu lýst, eins og hún væri venjuleg mann- eskja og saga hennar raunsæ ffá- sögn sem fólk getur mátað líf sitt við. Innan í þessari raunsæju per- sónu er önnur, ennþá meira spenn- andi. Sú sem aldrei átti möguleika á að verða dæmigerð fyrir eitt eða neitt þó að svo virtist á yfirborð- inu. Bak við fegurð og hæfileika bjó sál sem þráði hamingju og heilt líf en náði aldrei jafnvægi. Sylvía missti pabba sinn, þýska lífffæðinginn Otto Plath, þegar hún var átta ára. Út úr ffá- sögn Aurelíu, móður Sylvíu sem var austurrísk, má skilja að heimil- islífið hafi verið erfitt. Mikill ald- ursmunur var á hjónunum og Otto settist kirfilega ofan á sína gáfuðu ungu konu strax eftir giftinguna. Ekki þori ég að segja neitt um samband Sylvíu við pabba sinn, en ömurleg veikindi hans, sífellt meiri einangrun og loks kvalafull- ur dauði hafa skilið eftir djúp sár í vitund hennar. Og kannski ekki síður viðbrögð móðurinnar, sem hældi sér af að hún hefði ekki látið bömin sjá á sér sorg eftir að mað- urinn hennar dó. Hann skildi henni ekki eftir lífeyri og Sylvía bannaði henni að giftast aftur, svo að hún sá sína sæng uppreidda. Hún fór að vinna fyrir bömunum sínum tveimur, fómaði sér fyrir þau eins og sagt er, og lifði fyrir fegurð og ffama sinnar efnilegu dóttur. Þetta vissi Sylvía og eftir að hún fer að heiman býr hún í bréfiim til mynd af lífi sínu sem hún heldur að móð- irin vilji sjá. Sú mynd er að hálfu login, enda segir maður engum allt og síst móður sinni. Smám saman verður blekkingin óþægilegri uns Sylvía hættir að þola mömmu sína. Sylvía hamast eins og ofvirki alla tíð, lærir, vinnur, skrifar, skemmtir sér. Alls staðar verður hún að vera ffemst, enda kann móðirin best að meta hana þá. Hún hefur mikið úthald en engan sveigjanleika. Þegar hún einu sinni fær ekki það sem hún vill - aðgang að ritlistamámskeiði hjá frægum rithöfundi — þá eru við- brögð hennar svo sterk að þau em út í hött, nema undir lúri lævís og sterk sjálfseyðingarhvöt. Það er eins og hún hafi beðið eftir þessu: Sjáiði bara! I raun og vem er ég einskis virði! Og notar tilefhið til að gera alvarlega sjálfsmorðstil- raun sem þó mistekst. Það er eins og innra með þessari björtu stúlku sé ginnungagap sem gleypi allt gott, og ekkert óttast hún eins mik- ið og það. Lengi vel trúði Sylvía því samt að ef hún bara fyndi almenni- legan karlmann og eignaðist með honum heimili og böm þá myndi tómið fyllast. Sannanir þess blöstu við alls staðar í kringum hana, í máli og myndum. Maður getur ímyndað sér örvæntingu hennar þegar ekkert breyttist, þó að hún eignaðist gáfaðan og skáldmæltan mann og með honum tvö óska- böm. Tómið gapti jafnstórt og áð- ur. Það var dýpra en svo að upp- fylling óskmynda hversdagsfólks fyllti það. Hún orti egghvöss ljóð þennan síðasta sprett sem birta skynjun hennar í trylltum mynd- um, en loks gafst hún upp, stakk höfðinu í gasofhinn og skrúfaði ffá - sameinaðist tóminu. Sylvía var flókin persóna og margslungin, og það er dýrmætt að mega eiga kvöldstund með henni f félagsskap Guðbjargar Thorodd- sen og Helgu Bachmann á Litla sviðinu. ivjdrtaíí í 47 ár Kjartan Guðjónsson með tvær sýningar í einu Kjartan Guðjónsson list- málari er með tvær sýningar um þessar mundir, sölusýn- ingu á nýjum verkum í List- húsinu, Vesturgötu 17, og yfir- litssýningu í Hafnarborg, Hafnarfirði, undir heitinu „Yfirlit 1943-1990“. Margar eldri myndanna hef- ur Kjartan aldrei sýnt áður og stiklað er á stóm á tímabilinu í uþb. 60 olíumálverkum. „Næst jarðarfor er yfirlitssýning eitt- hvert hið alvarlegasta sem hægt er að taka sér fyrir hendur", seg- ir Kjartan í sýningarskrá, þar sem hann áfellist reykvísk yfir- völd fyrir að úthýsa myndlistar- mönnum af Kjarvalsstöðum og varar við áformum um að gera staðinn að „gráfhýsi yfir Erró“. Hins vegar hælir Kjartan Hafn- firðingum á hvert reipi fyrir ffamsýni og dugnað í málefnum listanna, ekki síst menningar- miðstöðvamar Hafharborg og Kjartan Guðjónsson: Loksins frjáls. Mynd: Jim Smart. Straum. En í Straumi fékk Kjart- an aðstöðu og vinnustofu til að undirbúa sýningamar að þessu sinni. Og segir: „Aldrei hefur mér líkað' lífið betur en í elli minni. Allar klíkur og listrænar hindranir að baki. Gamall listamaður er loksins fijáls“ ÓHT Ekkert kæruleysi lengur r Islenska hljómsveitin flytur vönduð nútímatónverk í Langholtskirkju á sunnudaginn Því er ekki að neita að menn hafa hingað til verið fuil kærulausir í vali á nútímatón- verkum til flutnings hérlendis, segir Hákon Leifsson hljóm- sveitarstjóri, sem stjórnar ís- lensku hljómsveitinni á tón- leikum hennar í Langholts- kirkju kl. 17 á sunnudaginn. - Það hefur fullt af froðu verið skrifað á 20. öldinni, og á tónleikum hérlendis hefur verk- efnavalið verið afskaplega til- viljanakennt. Ur þessu reynum við nú að bæta smávegis, flytj- um verk eftir Varése, Hans Abrahamsen, Boulez, Hróðmar Sigurbjömsson og Atla Heimi Sveinsson, allt vönduð og skemmtileg verk sem fá suma til að segja: „Vaá, er þetta nútíma- verk, — geta þau verið svona fal- leg?“ - Martial Nardeau er með einleik á flautu í verki Varése, en Martial er fágætur, hógvær snill- ingur. í íslensku hljómsveitinni er geysigott fólk, margt af því er líka í Sinfóníuhljómsveitinni. Hljómsveitin hefur fema tón- leika í vetur og fjóra stjómendur, þá Öm Óskarsson, Guðmund Óla Gunnarsson og Guðmund Emilsson, auk mín. Sjálfur er ég organisti á Höfn í Homafirði núna, þjóna tveimur kirkjum og líkar vel. ÓHT Hákon Leifsson, hljómsveitar- stjóri. Edda endar Þagnarmálum, sýningu Eddu Jónsdóttur í Norræna húsinu, lýk- ur núna um helgina. Edda sýnir 47 vatnslitamyndir og opið er dag- lega kl. 14-19 ffam á sunnudagskvöld. Kristján og dulhyggjan Kristján Kristjánsson sýnir nokkur eldri verk sín í gallerí B12, Baldursgötu 12 (Nönnu- götumegin), undir heitinu „Bak við tjöldin". Sýningin spannar að sögn listamannsins 10 ára hugleiðing- ar og leit Kristjáns „um lönd dul- hyggjunnar að tíðarbera tilveru og tilgangs. A þessari leið sinni um krókótta vegi draums og vemleika hefur hann meðal ann- ars rekið sig á að tíminn sem eig- ind sé ekki til, heldur lifi hann sem mynd í hugarheimi okkar". Sýningin í B12 er opin dag- lega kl 12-16 og um helgar frá 14-18, til 24. mars. ÓHT 16 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 8. mars 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.