Þjóðviljinn - 09.03.1991, Side 20

Þjóðviljinn - 09.03.1991, Side 20
AUGLÝSINGASÍMAR ÞJÓÐVILJANS 681310 og 681331 Jón Baldvin í feluleik með yfirmenn hersins Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra hefur í tveim fyrirspurnatímum á Alþingi ekki viljað viðurkenna að yfir- maður bandaríska hersins á íslandi og staðgengill hans eigi sæti í alíslenskri nefnd sem heitir skipulagsnefnd um ör- yggis- og varnarmál. Varnarmálaskrifstofa utanríkisráðu- neytisins hefur staðfest það við Þjóðviljann að Thomas Hall aðmíráll og Donald Perkins offursti eigi formlega sæti í nefndinni. Báðir hafa setið fundi nefndarinnar sem tók til starfa 1. nóvember síðastliðinn. A G. Pétur Matthíasson skrifar í svari við fyrirspum Hjörleifs Guttormssonar, Alþýðubandalagi, frá 31. janúar, um hverjir ættu sæti í nefndinni taldi Jón Baldvin upp sex íslenska aðila en lét ekki getio hinna bandarísku neíhdarmeðlima. I fyrirspurnatíma á fimmtudag svaraði hvorki hann né Oli Þ. Guð- bjartsson dómsmálaráðherra því hvort útlendingar ættu sæti í nefndinni. Aðspurður eftir fyrir- spumatímann í janúar sagði utan- ríkisráðherra að hann hefði talið upp alla nefndarmeðlimina í svari sínu. Róbert Trausti Árnason, skrifstofustjóri varnarmálaskrif- stofunnar, er formaður nefndarinn- ar. Þar með lýkur þó ekki vand- ræðagangi ráðherranna með þessa nefnd því hvorki dómsmálaráð- herra né utanríkisráðherra vilja viðurkenna að hafa átt frumkvæðið að stofnun skipulagsnefndar um öryggis- og vamarmál. Það em þó þeirra ráðuneyti sem hafa stofnað nefndina án þess að það hafi verið lagt fyrir ríkisstjómina. Nefndin hefur meðal annars það hlutverk að samræma áætlanir sem varða vamar- og liðsdreifing- aráætlanir herliðsins á Miðnesheiði og vamir hemaðarlega mikilvægra staða, auk samræmingar á t.d. stuðningsáætlunum viðtökulands og neyðaráætlunum Almannavama ríkisins. Hjörleifur telur að hugmyndin að þessari nefnd sé komin frá aðal- stöðvum Nató í Brussel og bendir hann á rit öryggismálanefndar eftir Albert Jónsson sem ber titilinn „Iceland, NATO and the fCcflavík Base“ sem kom út 1989. I bókinni er vitnað til skýrslu frá höfuð- stöðvum Nató þar sem Islendingar eru hvattir til að auka stuðning sinn við herliðið eða auka það sem heitir á ensku „host nation sup- port“ eða „stuðningur viðtöku- lands“ á íslensku. í íyrirspumatíma á fimmtudag sagðist Hjörleifur telja að þetta væri hin raunverulega ástæða þess að nefndin var sett á laggimar. í fyrirspurnatímanum í lok janúarmánaðar sagði Jón Baldvin Hannibalsson að nefndin hefði ver- ið skipuð að frumkvæði dóms- málaráðherra. Oli sagði hinsvegar á fimmtudaginn að það væri heldur sterkt að orði kveðið og benti á að 29. maí i fyrra hefði á viðræðu- fundi verið rædd tillaga frá vamar- málaskrifstofú utanríkisráðuneytis- ins um skipan öryggismála, auk þess sem bréf hefði komið frá sömu skrifstofu þar sem lagt væri til aukið samstarf aðila með stofn- un nefndarinnar. Þetta var ítreljað með öðm bréfi 7. ágúst, sagði OIi. Því hafi svarbréf dómsmálaráðu- neytisins frá 6. september ekki ver- ið að frumkvæði ráðuneytisins, einsog utanríkisráðherra hafi hald- ið fram, heldur staðfesting. Jón Baldvin sagði þá að orð sln um frumkvæði dómsmálaráðherra hefðu ef til vill orkað tvímælis en að bæði hann og dómsmálaráð- herra teldu nefndina eðlilega'og nauðsynlega. Jón Baldvin sagði hlutverk nefndarinnar vera að samræma áætlanir og framkvæmd á sviði ör- ggis- og varnarmála svo sem ostur væri og ákveða hlutverka- skipti og úrlausn verkefna þannig að ekki rækjust á áætlanir herliðs- ins og Almannavama. Þetta verður ekki gert án samráðs við yfirmenn hersins, sagði Jón, en Hjörleifur gagnrýndi í bæði skiptin harkalega að hér væri verið að setja á lagg- imar nefnd þar sem sæti ættu full- trúar herliðsins á Keflavíkurflug- velli, OIi tók undir orð Jóns og taldi það þjóðþrifamál að styðja sam- ræmingu neyðaráætlana. Hjörleifur og Kristín Einars- dóttir, Kvennalista, gagnrýndu á fimmtudag að hér væri verið að festa í sessi bandaríska herinn á sama tíma og í Evrópu væri unnið að friði og afvopnun. Fer ekki á ströndina í bráð A Bergdfs Ellertsdóttir skrifar Grá Herkúles- flutningavél millilenti á Keflavíkurflug- velli í gær. Inn- anborðs voru sólbrenndir og þreytulegir bandarískir hermenn á leið heim frá Persaflóa. Samtals lentu 16 vélar á Vell- inum í gær með 438 hermenn úr flutnjngadeild bandaríska hers- ins. I gömlu flugstöðinni voru fjölmargir landar þeirra saman komnir til að fagna hetjunum. Grátandi konur féllu um háls blá- ókunnugum hermönnum og sögðust vera stoltar af þeim. „Við studdum ykkur 100 prósent, guð blessi ykkur.“ Enginn þeirra hermanna sem komu ringlaðir inn í gömlu flug- stöðina undir húrrahrópum og klappi komst nokkurn tímann í hann krappan við Persaflóa. Bill, sem blaðamaður tók tali um leið og hann steig út úr vélinni og tók ofan eyrnahlífarnar, sagðist þó einu sinni hafa orðið hræddur egar Scud-flaug var skotið á orgina Riyad, þar sem hann var staddur. Lengstum leiddist mér þó hræðilega og var heitt, sagði Bill. Ed, stór og glaðbeittur flug- maður, sagðist ekki geta farið á ströndina í bráð. Eg er orðinn hundleiður á sandi, sagði hann. Gloria, eina konan í hópnum, sagðist mest af öllu hlakka til að koma heim og fara í heita sturtu. Það var aðeins einu sinni heitt vatn hjá okkur allan þennan tíma og það var á jólunum. Hún sagði að það hefði verið mun auðveld- ara en hún hafði ímyndað sér í fýrstu að vera ein af fáum kven- hermönnum á staðnum. Mike Herman sagði tímann hafa verið lengi að líða, en það var þess virði. Hjá stríðinu varð ekki komist og þeir sem stjórn- uðu herjum bandamanna unnu mikið og gott starf að mínu mati. Fáir létu lífið og stríðið tók frem- ur stuttan tíma,sagði hann. Flestir hermannanna voru sammála um að stríðinu hefði lokið fyrr en þeir ætluðu. Þeim hafði verið sagt að stríðið gæti staðið í a.m.k. ár. Gloria sagði fljótt hafa komið í Ijós að fjöl- þjóð^herinn hafði yfirhöndina. Þótt Irakir hefðu verið ljölmennir réðu þeir ekki yfir jafngóðum vopnum. Hún sagðist hafa vonast til að vera komin heim í apríl. Sú ósk hennar hefur ræst. Hermennimir fengu einungis klukkustundar stopp í Keflavík. Eiginkonur kollega peirra á Vell- inum höfðu drekkhlaðið langborð með heimabökuðum kökum og samlokum. Þeim gafst þó lítiö tóm til að bragða á góðgætinu því að blaðamenn og glaðir land- ar þeirra vildu fá að ræða við þá. Hermennimir tóku böm í fangið og gáfu eiginhandaráritanir. Síð- an var haldið heim á leið í faðm fjölskyldna og ástvina. Tveir þreyttir hermenn frá Persaflóa taka í fang ungan son kollega síns á Vellinum í gær. Mynd: Jim Smart. vegagerð í Laugardal Vilja stöðva Laugardalshójpurinn hefur skrifao Davíð Oddssyni borgar- stjóra bréf þar sem hopurinn óskar cftir þvi að vegalögn frá Suðurlandsbraut að Langholts- vegi verði stöðvuð. Hópurinn heídur fund um málið í aag. I bréfinu til borgarstjóra segist hópurinn telja það ákaflega óheppilegt að raska þeirri ró sem Laugardalurinn býr yfir í dag. Hópurinn telur að með því að leggja veg þvert yfir dalinn muni bílaumferð margfaldast og valda annarri röskun í friðsælu umhverfi dalsins. Skipulag að svæðinu var aug- lýst rneð eðlilegum hætti á sínum tíma. Laugardalshópurinn telur þó að fólk hafi þá ekki gert sér grein fyrir hve afdrifaríkar skipulagstill- ögur hafi verið um að ræða og að þess vegna hafi þeim ekki verið mótmælt. Hópurinn lýsir sig reiðubúinn til viðræðna við borgarstjórann, en Stjórn Skipstjóra- og stýri- mannafélagsins Öldunnar krefst þess að sjómenn fái sambærilega hækkun launa eins og aðrir launamenn hafa fengið. Félagið krefst þess að fiskverð, sem er ákveðið af Verðlagsráði sjávarútvegsins hækki um 2,8% í stað 2,5% frá 1. mars. Eins og leggur eindregið til að fram- kvæmdir verði þegar í stað stöðv- aðar og að leitað verði skynsam- legri lausna á skipulagi helsta úti- vistarsvæðis Reykvíkinga. -gg kunnugt er hafa aðrir launamenn en sjómenn fengið 0,3% hækkun launa til viðbótar frá síðustu mán- aðamótum vegna bættra viðskipta- kjara. Að mati stjórnar Öldunnar er viðbúið að þessi viðbótarhækkun fari forgörðum hjá sjómönnum yfir nánast alla vetrarvertíðina, verði ekkert að gert. -grh Sjómenn skildir útundan

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.