Þjóðviljinn - 14.03.1991, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 14.03.1991, Blaðsíða 11
SMÁFRÉTTIR Full Circle á Púlsinum Ein fórvitnilegasta jasssveit Bandarikjanna um þessar mundir, hljómsveitin Full Cirde, heldur tvenna tónleika f Púisin- um, í næstu víku, fimmtudag- inn 21. mars og föstudaginn 22. mars. Bassaleikari nljóm- sveitarínnar er Isiendingurinn Skúli Sverrisson, sem nýlokið hefur BA prófi frá Berklee tón- listarháskólanum. Þriðja breið- skífa hljómsveitarlnnar er ný- komin út. Auk Skúla skipa sveltina hljómborðsieikarinn Kari Lundberg sem jafnframt semur flest það sem hljóm- sveitin leikur, Phiiip Hamilton er söngvarl og ásláttarieikari, Sví- inn Anders Boström leikur á flautu og Dan Relser á tromm- ur. Tónlistin er bræðingur af jassi og rokki meö brasilísku YIÐHOIF og afrlkönsku riþmavafi. Það er Jazzvakning sem stendur fyrir tónleikunum. Spiiakvöld í Kópavogi Þriðja og síöasta spilakvöldið í þriggja kvölda keppni Félags eldri borgara í Kópavogi verður annað kvöld ki. 20.30 aö Auð- brekku 25. Allir velkomnir. Dans ð eftir að venju. Þjóðernisdeilur og öryggismál Evrópu Dr, J.D.Sandole heldur fyrir- lestur f boði Alþjóðamálastofn- unar Háskóla íslands um efnið Evrópu", (stofu 1°0l7od(ja á morgun ki. 15.30. Rætt verður um pjóðernisdeiiur f Austur- Evrópu og Sovétríkjunum, mögulegar hættur sem af þeim geta stafað fyrir samskipti Evr- opurfkja og mögulegt hlutverk Atiantshafsbandalagsins, Evr- ópubandalagsins og Ráðstefn- unnar um öryggi og samvinnu I Evrópu til að hnnalausn á slík- um deilum. Dr. Sandoie er dós- ent í alþjóðastjórnmálum við George Mason háskólann f Bandaríkjunum, Sérsvið hans er samningar og lausnlr deílu- mála milli rikja. Hann kemur hingað I boðl Menningarmála- stofnunar Bandaríkjanna. Fyrir- iesturinn eröilum opinn. Lúðrasveitartónleikar í Háskólabíóí Luðrasveit Reykjavíkur og Lúðrasveit Akurevrar halda sameiginlega tónleika f Há- skólabiöi nk. laugardag kl. 16. Efnisskráin er fjölbreytt. Sveit- irnar spila í sitthvoru lagi og síðan saman. Samtals eru 70 hljóðfærarleikarar f þessum tveimur lúðrasveitum. Eiríkur G. Stefensen er stjórnandi Reykjavíkursveitarinnar og Atli Guðlaugsson stjómandi Akur- eyrarsveitarinnar. íslensk tónlist í Vaskinn Samtök höfunda, flytjenda og hijómplötuframleiðenda munu halda ráðstefnu á sunnudag kl. 14 undiryfirskriftínni „fslensk tónlist f Vaskinn". Á fundinum halda Svavar Gestsson menntamálaráðherra og Ólafur Ragnar Grlmsson fjármálaráð- herra erindi. Ennfremur ávarp- ar Jakob Magnússon fundinn. Síðan verða pallborðsumræð- ur. íslensk tónlist verður fiutt af íslenskum tónlistarmönnum á milli erinda. Ráðstefnan verður f húsakynnum F.f.H. að Rauða- gerði 27. . Guðmundur Tómas Ámason skrifar Að loknu Persaflóastríði Frá sjónarhóli bandamanna séð lauk stríðinu eins og bandariskri spennumynd; illmennin lágu sundur- skotin í valnum á meðan hetjurnar hrósuðu sigri. Stríðsvél íraka, þessari miklu ógn við heimsfriðinn, hafði verið gjör- eytt í 100 klukkustunda landhemaði. Þrjóturinn Saddam hafði fengið ær- lega ráðningu, og hinir friðelskandi Kúvætar voru aftur orðnir herrar í eigin landi. Siðferðileg útkoma striðsins virtist vera augljós; Réttlæt- ið hafði sigrað. En er málið svona einfalt? Af mannkynssögunni er hægt að draga tvenns konar lærdóm um stríðsrekstur, annars vegar eru strið háð vegna eiginhagsmuna, og hins vegar beita leiðtogar hinna stríðandi þjóða öllum tiltækum áróðursbrögð- um til að breiða yfír þá staðreynd og klæða stríðsreksturinn í búning há- leitra hugsjóna. Þannig má í vissum skilningi segja að sannleikurinn sé fyrstj fomarlamb stríðsinu. Á grundvelli þessara lærdóma væri kannski réttast að beina sjónun- um að öðru striði, en það er áróðurs- stríðið gegn írökum, sem háð hefur verið af bandamönnum í gegnum hina vestrænu fjölmiðla. Stríð þetta er ekki síður mikilvægt en sjálfur hemaðurinn, því eins og Víetnam- striðið sýndi fram á eiga lvðræðis- þjóðir í mesta basli með að íeggjast í víking án þess að styðjast við vissu almennings um réttlæti málstaðarins og hatur almennings á óvininum. í áróðursstríðmu hefur einkum verið hamr^ð á tvennu: annars vegar á glæpum Iraksstjómar gegn eigin þjoð, Kúrdum, og hins vegar hemað- arbrölti hennar og útþenslu.stefnu gegn öðrum þjóðum, einkum Iran og Kúvæt. Því verður ekki neitað að Sadd- am Hussein er fantur sem liggur vel við höggi, en sé mannkynssagan aft- ur höfð til hliðsjónar virðist hann eiga sér hinar frainbærilegustu fyrir- myndir í vesturheimi. Meðferð hans á Kúrdum má þannig líkja við með- ferð Breta á Skotum og Irum, fjölda- morðum Frakka á mótmælendatrúar- hópum, og útrýmingarstefnu Banda- ríkjamanna gegn frumbyggjum Am- eríku. Hvað útþenslustefnuna varðar þá hafa allar vestrænar þjóðir sem ógæfúmenn em aflimaðir eða hýddir opinberlega. Og hvað um Kúvæta sjálfa, sem öllu bfóðinu hefúr verið úthellt fyrir? Emírinn af Kúvæt er einræðisherra af spilltustu gerð, og auk þess em Kúvætar í miklum mmnihluta meðal landsmanna. Meðferð þeirra á öðmm Hemaðarstefna íraka er þannig ekki, og verður ekki, annað en máttleysisleg vasaútgáfa af nýlendubrölti Breta og Frakka og stórveldispólitík Bandaríkjamanna vettlingi geta valdið stimdað hana af kappi j gegnum tíðina. Hernaðar- stefna Iraka er þannig ekki, og verð- ur ekki annað en máttleysisleg út- gáfa af nýlendubrölti Breta og Frakka og stórveldispólitík Banda- ríkjamanna. Nú kunna menn að segja sem svo að samanburður þessi sé ekki réttmætur. Þessi hegðun vesturlanda heyri fortíðinni til, og í dag hafi þau náð allt öðrum og meiri siðferðis- þroska. Við skulum því gefa okkur þá forsendu að vesturlönd hafí náð slíku siðferðisstigi að þau geti leyft sér að leika siðgæðisvörð og alheim- slögreglu fyrir önnur lönd. Að þessu gefnu blasir sú spum- ing við hvort herir vesturlanda eigi að láta staðar numið i írak, því að í miðausturlöndum virðist vera nóg af skúrkum til að taka í lurginn á. Tök- um til dæmis Sýrland, nýjasta vin vesturlanda. Þar ræður ríkjum grimmur einræðisherra að naíni Ass- ad, sem brytjað hefur niður andstæð- inga sína i tugþúsundatali, kynt undir blóðugt borgarastríð i Líbanon svo ámm skiptir, og stutt við bakið á al- þjóðlegum hryðjuverkamönnum á borð við hinn illræmda Carlos. Eða alræðisrikið Saudi-Arabía, þar sem einráð konungsfjölskylda ræour ríkj- um, konur eru kúgaðar meira en dæmi þekkjast til annars staðar, og íbúum landsins líkist mjög kúgun hvíta minnihiutans á blökkumönnum Suður-Afríku, nema þá helst að í Suður-Afriku búa hinir hvítu þó við lýðræði. Nýjustu fréttir herma svo að hin friðelskandi ljúfmenni sem bandamenn hafa hjálpað að endur- heimta land sitt hafi látið það verða sitt fyrsta verk eftir frelsun Kúvæts að ráða leigumorðingja til að myrða baráttumenn fyrir lýðræði í landinu. Geta menn í ljósi þessara stað- reynda, kinnroðalaust haldið því fram að eðlismunur sé á stjóm Sadd- am Hussein og stjórnum þessara landa? Það er annars merkilegt hvemig Bandaríkjamenn einfalda alla hluti. Ágreiningur þeirra við önnur lönd er þannig aldrei ágreiningur við þjóð ímar sjálfar, heldur er dæmið sett upp þannig að Bandaríkjamenn sem heila séu að deila við vitfirrt ill- menni, sem einhverja hluta vegna hafa náð æðstu völdum og afvega- leitt þjóð sína. Lausnir Bandaríkjamanna hafa verið eftir þessu. Deiluna við Pan- ama átti þannig að leysa með því að stinga Noriega hershöfðingja í stein- inn, deiluna við Lýbíu með þvi að sprengja Khadaffi í loft upp, og deil- una við Irak m,eð því að steypa Saddam af stóli. Á meðan bandarísk- ir flugmenn sprengdu íraskar vatn- sveitur, rafmagnsveitur, verksmiðjur, olíuhreinsunarstöðvar, auk karla, kvenna og bama í loft upp tönglaðist Bush Bandarikjaforseti þannig á því að Bandaríkjamenn hefðu ekkert ut á írösku þjóðina að setja, heldur ein- göngu leiðtoga hennar. Haldi Bandaríkjamenn að allt falli í ljúfa löð með falli Saddams, þá verða þeir fyrir sárum vonbrigðum, því hatrið á vesturlöndum, sem menn eins og Saddam nærast á, og sem gerir þeim kleift að halda völdum, er nú meira en nokkm sinni íýrr. Auk þess em bandamenn nú að vakna upp við þann vonda draum að eina rauniiæfa andstaðan gegn Sadd- am og Baathflokki hans er rekin af bókstafstrúuðum Shítum. Shítar þessir em öfgafyllstir allra araba, og stefna að íslamskri byltingu að ír- anskri fyrirmynd. Israelar hafa þegar lýst því yfír að þá vilji þeir heldur halda í Saddam, því honum er að minnsta kosti treystandi til að halda trúaröfgum í skefjum, auk þess sem stjóm hans hefúr að mörgu leyti haft vesturlönd sem fyrirmynd, t.a.m. hvað varðar hina tiltölulega sterku stöðu íraskra kvenna. Stríðið er búið. Olíuhagsmunum vesturlanda, sem allt snerist um, er borgið í bili. Einræðisherra Kúvæts situr aftur að völdum. Irak hefúr ver- ið lagt í rúst, tugþúsundir Iraka hafa verið drepnir, efnahagslífið mun ekki ná sér á strik í áratugi, og í landinu geisa farsóttir og borgarastríð. Hatur araba á vesturlöndum hefur sjaldan verið meira, og óstöðugleiki i mið- austurlöndum er meiri en hann hefur verið í áraraðir. Umhverfismengunin er gífurleg. Israelsmenn sitja sem fastast á her- numdu svæðunum, og Saddam Hussein situr enn við völd. Geta menn nú, þegar öldur stríðsins hafa lægt og evðileggingin komið i ljós, komist hjá pví að spyria sig hvort þetta hafi verið þess virði? Höfundur er hcimspekinemi í Háskóla íslands. . Guðmundur Helgi Þórðarson skrifar Hverjir eiga að annast vinnuvernd? Undirritaður vakti at- hygli á því í nokkr- um blaðagreinum á síðasta ári, að svo- kölluð heilsuvemdar- starfsemi á vinnu- stöðum væri farin að þróast með öðrum hætti en æskilegt getur talisf og öðruvísi en lög gera ráð fyrir. I stað þess að vera heilsuvemdarstarf- semi á vegum heilbrigðiskerfisins undir stjóm Vinnueftirlits ríkisins, væm þetta að verða fyrirtækjalækn- ingar, sem hefðu engin tengsl við heilbrigðiskerfið, en viðkomandi læknar væm alfarið á vegum fyrir- tækjanna og ábyrgir fyrir þeim ein- um. Það ætti ekki að þurfa að eyða mörgum orðum að þessu, þar sem til eru Tög um þessa pjónustu og stórt og dýrt ríkisapparat til staðar, sem á að sjá til þess að þessum lögum sé framfýlgt. En það virðist erfiðleikum bundið að framfylgja þessum ákvæðum, og virðist líka vera erfitt að fá ábyrga aðila til að úttala sig um málið. Það er mikið talað um sið- ferði í opinberri stjómsýslu. Maður gæti kannski leyft sér að spyrja, hvort það sé siðferðislega vio hæfi að taka að sér stjómun á mikilvæg- um verkefhum fyrir þjóðfélagið, láta au leka útúr hönaunum á sér og egja svo þunnu hljóði, þegar reynt er að vekja umræður um máTið? Meiningin er, að það er ekki sama, hver annast þessa þjónustu. Það er ekki sama hver er ráðningar- aðili og launagreiðandi þeirra lækna og annars heilbrigðisstarfsfólks, sem annast heilsuvemd á vinnustöðum. Það er ekki sama, hvort það er opin- ber starfsmaður eða hvort hann er sjarfsmaður viðkomandi fýrirtækis. Á það hefur verið bent, að það sé ekki við hæfi, að sami læknir annist trúnaðarlækningar fyrir fyrirtæki sjá um ffamkvæmd laganna, hreyfa sig ekki. Ef megináherslan í þessari þjón- ustu er lögð á heilsuvemdarstarfið, þ.e. að vemda starfsmanninn gegn þeirri heilsuvá, sem honum kann að stafa af vinnunni eða vinnustaðnum, á ber lækninum að benda á sam- andið milli vanheilsu starfsmanns- Þar sem þessi þróun hefur gengið lengst, fjárfesta fyrirtækin í „heilsuræktarstöðvum" til að sinna þessum verkefnum. Streituþjakaðir starfsmenn þéna sem hráefni fyrir þessar heilsuræktarfabrikkur annars vegar og heilsuvemd á vinnu- stað hjá sama fýrirtæki hins vegar. Fyrirtækið, sem ráði lækninn, greiði honum kaupið og geti sagt honum upp, ef hann er því ekki að skapi, raoi því i höfuðdráttum, hverjar áherslur em í starfi hans. Við heilsu- vernd á vinnustað verða oft hags- munaárekstrar milli launþega og (yr- irtækis. Sá læknir eða annar heil- brigðisstarfsmaður, sem er hags- munalega háður öðrum aðilanum, getur átt erfitt með að taka faglega, hlutlausa afstöðu, og á það einkum við um fyrirtækin, sem em sterkari aðilinn i flestum tilvikum. Þeir, sem sömdu lögin um vinnuvemd, gerðu sér grein fyrir þessu og settu undir þennan leka með ákvæðum í lögun- um, en þeim ákvæðum er ekki fram- fylgt. Þeir, sem hafa tekið að sér að ins og vinnuaðstæðnanna og krefjast úrbóta. Starfsemi hans á að ganga út á það eitt að vaka yfir því, að vinnan valdi ekki sjúkleika hjá starfsmann- inum, það eitt er vinnuvemd. Þær umbætur, sem hann kann að krefjast á vinnustað, geta hins vegar haft í for með sér kostnað fyrir fyrirtækin, sem þau em ekki alltaf hrifin af. Það er þess vegna, sem atvinnurekendur vilja gjaman, að um þessi mál fialli læknir sem er þeim háður og peir geta losað sig við, ef hann er þeim ekki að skapi. Fyrirtækin vilja ekki, að athyglin beinist of mikið að vinnustaðnum, þegar fjallað er um hugsanlega at- vinnusjúkdóma. Það á að ganga út frá því, að atvinnusjúkdómar séu vandamál starfsmannsins, og þeir skuli meðhöndlast á þeim forsend- um, án kostnaðar fyrir íyrirtækin. Ef starfsmaður kvartar um las- leika, á því ekki endilega að fara að athuga vinnustað, vinnutíma, vinnu- hraða eða yfirleitt vinnuaðstöðu við- komandi manns. Það á að senda manninn í nudd eða láta hann fara i tækin hjá sjúkraþjálfara. Það sakar ekki að taka úr nonum blóð, rann- saka kólesterólið, láta meta hann, segja honum að hætta að reykja eða megra sig. Flest af þessu er tiltölu- lega meinlaust eða jákvætt. En það kemur bara atvinnusjúkdómum og vinnuvemd ekkert við. Síðan er viðkomandi gerður ábyrgur fyrir vanheilsu sinni, og hann er látinn greiða kostnaðinn af þessari „vinnuvemd“ sjálfúr, annað nvort úr eigin vasa eða gegnum al- mannatryggingar eða sjukrasióð verkalýðsfélaganna. Fyrirtækin sleppa við ábvrgðina á atvinnusjúk- dómnum og kostnaðinn. Vinnuað- staðan heldur áfram að vera heilsu- spillandi af því að það var of kostn- aoarsamt að laga hana. Þar sem þessi þróun hefúr geng- ið lengst, fjárfesta fyrirtækin í „heilsuræktarstöðvum“ til að sinna þessum verkefnum. Streituþjakaðir starfsmenn þéna sem hráefni, fyrir þessar heilsuræktarfabrikkur. Ágóð- mn af starfseminni rennur svo inn í fýrirtækin aftur. Hringurinn lokast. Höfundur er heilsugæslulæknir Hafnarfírði Síða 11 ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 14. mars 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.