Þjóðviljinn - 14.03.1991, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 14.03.1991, Blaðsíða 16
Páll Halldórsson, formaður BHMR, hafði I mörg horn að llta I gær, þegar niðurstaða í dómi undirréttar lá fyrir. Hún hefur valdið félögum í BHMR miklum vonbrigð- um og margir þeirra telja niðurstöðu dómsins ekkert annað en pólitíska aðför að samningsréttinum. Mynd: Jim Smart. Bæjarþing sýknar ríkið af kröfum BHMR ^ gær var kveðinn upp dómur í bæjarþingi Reykjavíkur þar Isem ríkið var sýknað af kröfum Bandalags háskólamennt- aðra ríkisstarfsmanna. Málið var höfðað til að hnekkja ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að ógilda samnings- bundnar launahækkanir til BHMR-félaga með bráða- birgðalögum sl. sumar. Páll Halldórsson, formaður BHMR, segir að niðurstaða dómsins sé veruleg vonbrigði og ekki aðeins áfall fyrir BHMR heldur einnig öll stéttarfélög í landinu. Ólafar Ragnar Grímsson fjármálaráðherra segir mikilvægt að þessum áfanga sé lokið og nú þurfi báðir aðilar að takast á við sameiginleg viðfangsefni. Forseti frestar og fer heim Guðrún Helgadóttir, forseti sameinaðs þings, frestaði klukk- an þrjú í fyrrinótt fundi þar sem þingsályktunartillaga um álmál- ið var til umræðu. Hún fór þá úr húsinu og heim. Viðstaddir átt- uðu sig ekki alveg á því hvað var að gerast og kölluðu á Salome Þorkelsdóttur varaforseta sem var á heimleið. Hún kom á káp- unni og sleit fundinum. Guðrún hafði hugsað sér að fresta fundinum til að ræða málið áfram seinna þennan dag en vegna þessa misskilnings var álmálið hreint ekki á dagskrá fundar í gær til að byrja með. Seinna um daginn var þó búið að koma álmálinu á dagskrá nýs fundar og stóð til að ræða það í gærkvöldi. Þegar Guðrún lýsti þeirri dag- skrártilhögun um sjöleytið í gær- kvöldi lýsti Hjörleifur Guttormsson því yfir að hann vildi sjá alla ráð- herra ríkisstjómarinnar viðstadda umræðuna þar sem öll ríkisstjómin virtist leggja mikla áherslu á þetta mál. Hjörleifur hefur lýst því að hann þurfi nokkurn tíma til að ræða þetta mál. Sama á við um Kvennalistinn. Annars stendur til að ljúka um- ræðu um málið og senda til nefnd- ar þótt ræða þurfi mestaila nóttina. Álmálið stendur einnig í ríkis- stjóminni að því leyti að erfiðlega gengur að koma lánsfjárlögum saman þar sem íjármálaráðherra vill setja það sem skilyrði fyrir lán- töku Landsvirkjunar vegna undir- búningsframkvæmda að raforku- samningur verði tilbúinn. -gpm Það var Bjarnheiður Guð- mundsdóttir í Félagi íslenskra nátt- úmfræðinga sem höfaði mál gegn ljármálaráðherra fyrir hönd ríkis- sjóðs og menntamálaráðherra fyrir hönd rannsóknadeildar fisksjúk- dóma við Tilraunastöð Háskóla Is- lands í meinafræðum. Málið var þingfest 4. október 1990, dómtekið 29. janúar 1991, endurupptekið 11. febrúar sl. og dómtekið á nýjan leik 25. febrúar sl. I niðurstöðum dómsins segir að bráðabirgðalögin brjóti ekki í bága við stjómarskrána og „að löggjaf- * anum sé heimilt undir vissum kringumstæðum, svo sem við framkvæmd efnahagsstefnu, að skerða samningsbundin laun manna án þess að bætur komi fyr- ir“. Dóminn kváðu upp þeir Frið- geir Bjömsson, Allan V. Magnús- son og Jón L. Amalds. Málskostn- aður var felldur niður. Olafur Ragnar Grímsson fjár- málaráðherra sagði að BHMR- málið hefði verið erfitt og við- kvæmt mál. Þessvegna væri það mikilvægt að niðurstaða dómsins er mjög skýr í öllum aðalatriðum. Þar kemur fram að bráðabirgðalög- in eru í fullu samræmi við stjómar- skrá og réttarreglur. „Hinsvegar finnst mér mest um vert á þessari stundu að haldið verði áfram þeim viðræðum sem ég hef átt á undan- fömum mánuðum við forystumenn einstakra félaga innan BHMR til að leita leiða sem hægt er að fara til að ná árangri. Lífið heldur áfram og við höfum öll lært af þessari reynslu. Hún hefur verið erfið en hún skilar öllum einhverj- um lærdómi," sagði Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra. í ályktun stjómar BHMR um dómsniðurstöðuna er lýst furðu á dómi undirréttar sem þýðir að stjómvöld á hverjum tíma geta tek- ið af launamönnum löglega gerða kjarasamninga ef þeir henta ekki markmiðum stjómmálamanna. Þar með sé samningsréttur stéttarfé- laga að engu orðinn. Stjóm BHMR telur að við það verði ekki unað. Undir þessa ályktun tekur stjórn Hins íslenska kennarafélags. Þar segir ennfremur: „Ríkisvaldið hef- ur brotið allan trúnað við starfs- menn sína og er erfitt að sjá hvem- ig þar geti gróið um heilt“. Páll Halldórsson, formaður BHMR, sagði að niðurstaða dóms- ins væri sér mikil vonbrigði og ekki aðeins áfall fyrir BHMR held- ur öll stéttarfélög í landinu. Hann sagði að með dómnum hefði verið staðfest að kjarasamningar væru ekki virði þess pappírs sem þeir væru skrifaðir á, ef þeir væru ekki í samræmi við efnahagsstefnu rík- isstjórnarinnar á hverjum tíma. Páll sagðist ekkert vilja fullyrða um það hvort dómurinn væri pólit- ískur dómur en það væri hinsvegar ljóst að bæjárþingið hefði ekki haft þrek til að standa gegn fram- kvæmdavaldinu í þessu efni. Engin ákvörðun hefur verið tekin um það hvort dómi bæjar- þings Reykjavíkur verður áfrýjað. -grh Sjálfstæðis- menn leita a naoir Steingríms Furðulegar fléttur eiga sér stað í sölum og skúmaskotum Alþingis þegar dregur nær þinglausnum á vorin. Ein slík flétta varð næstum að óleys- anlegum hnút í efri deild í gær. Meiri hluti fjárhags-og viðskiptanefndar hafði komist að samkomulagi um að breyta frumvarpi til laga um efna- hagsaðgerðir, sem er fylgi- frumvarp frumvarps um Byggðastofnun. Breytingin felur í sér að Byggðastofnun yrði óheimilt að skuldbreyta lánum atvinnu- tryggingadeildar, sem stofna á samkvæmt frumvarpinu, eða breyta þeim á annan hátt án samþykkis Ríkisábyrgðarsjóðs. Meirihluti nefndarinnar vill ekki gefa Byggðastofnun leyfi til að breyta lánum í þeim tilvikum þegar þau standa illa og eru tryggð hjá Ríkisábyrgðarsjóði, án þess að sá sjóður hafi hönd í bagga. Þessu undu Sjálfstæðismenn 1 efri deild ekki og fóru sam- kvæmt heimildum Þjóðviljans til Steingríms Hermannssonar forsætisráðherra og báðu hann um að grípa inn í málið. Hugs- anlega var honum hótað mál- þófi en hann leggur áherslu á að þessi frumvörp um Byggða- stofnun verði að lögum. Þá gekk Steingrímur í það að reyna að breyta breytingartillögu meirihlutans til að sætta stjóm- arandstöðuna og olli það mikilli reiði nefndarmeirihlutans sem vitanlega undi því illa áð for- sætisráðherrann væri farinn að vinna með stjómarandstöðunni. Seint í gærdag virtist lausn málsins vera í sjónmáli. Hún er fólgin í því að Byggðastofnun þyrfti að leita umsagnar forsæt- is- og fjármálaráðuneytis áður en atvinnutryggingadeild stofn- unarinnar yrði heimilt að skuld- breyta lánum eða breyta vöxtum á þeim. -gpm Flugleiðir á vænejum hagnaoarins Hagnaður af reglulegri starf- semi Flugleiða varð 362 miljón- ir króna í fyrra en árið 1989 var tap á rekstri félagsins um 459 miljónir króna. Auk þess varð í fyrra 348 miljóna króna hagn- aður af sölu eigna félagsins, fyrst og ffemst að sölu Fokker- flugvélanna. Tekjur félagsins hækka um 6,1% á milli áranna ef þær em bomar saman á meðalverðlagi ársins 1990 og kostnaður lækk- ar um 2,2% á sama verðlagi. Rekstrarafkoman batnar því um 625 miljónir króna á föstu verð- lagi. Velta Flugleiða í fyrra varð um 12 miljarðar króna. Á stjómarfundi félagsins á þriðjudag var samþykkt að leggja fyrir aðalfund að heimil- að yrði að auka hlutafé um 400 miljónir króna að nafnvirði, en gert er ráð fyrir að markaðsverð þeirra gæti orðið um einn mil- jarður króna. -Sáf

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.