Þjóðviljinn - 22.05.1991, Side 2

Þjóðviljinn - 22.05.1991, Side 2
Fjármagn eöa fólk Nú hefur verið ákveðið að hækka vextina. Það er ekki afleiðing af neinu öðru en stefnu ríkis- stjórnarinnar. Hún lýsti því yfir á fyrsta degi sínum að vextir yrðu að hækka. Vextir af spariskírteinum ríkissjóðs hækka um allt að 2%. Vextir af skuldbindingum í bönkunum hækka annað eins. Húsbréfakerfið er hrunið: Afföllin eru nú 22%. Vaxtaskrúfan er komin af stað. Afleiðingarnar eru: verðbólga, gjaldþrot, atvinnu- missir og að ávinningur þjóðarsáttartímans verður að engu gerður á örstuttum tíma. Þannig hefur fjármagnið fengið sitt. Vaxtahækkun upp á 1% jafngildir sömu upphæð í beinum peningum og launahækkanir yfir línuna upp á 1,6%. 2% vaxta- hækkun jafngildir í rauninni hærri upphæð en sérstök kaupbreyting vegna viðskiptakjarabata sem verka- lýðshreyfingin telur nú að ætti að vera kringum 2,4%. Á sama tíma og ríkisstjórnin hefur frumkvæði að því að afhenda þeim sem fjármagnið eiga stórauknar tekjur svo nemur miljörðum króna tekur hún þátt í því að neita samtökum launafólks um launabreytingar vegna viðskiptakjarabatans. Þannig afhjúpar ríkis- sjórnin innra eðli sitt. Hún tekur fjármagnið fram yfir fólkið; stefna hennar viðurkennir ekki þá grundvallar- staðreynd að fólkið skapar öll verðmæti þjóðarinnar með vinnu sinni. Án vinnu er engin verðmætasköpun. Með stefnu sinni tekur ríkisstjórnin undir þau viðhorf sem einu sinni heyrðust að peningarnir yrðu til með peningunum í einskonar hlutlausum sjálfsgetnaði pen- ingaseðlanna hver með öðrum. Samtök launafólks hafa nú sett fram kröfur sínar um hlutdeild í viðskiptakjarabatanum. Þar er gert ráð fyrir 2,4% launahækkun um næstu mánaðarmót auk þeirra hækkana sem samningsbundnar eru og þeirra hækkana sem verðlag hefur farið fram úr áætlunum. Vinnuveitendasambandið neitar. Þess vegna neitar ríkisstjórnin. Þar ræður Sjálfstæðisflokkurinn för. Al- þýðuflokkurinn ræður engu. Hann gengur á bak orða sinna í kosningabaráttunni er hann lofaði því að launafólk ætti að fá hlutdeild í ávinningi þjóðarsáttar- innar. Alþýðuflokkurinn er fangi Sjálfstæðisflokksins og Vinnuveitendasambandsins. ( síðustu ríkisstjórn réð Alþýðubandalagið úrslitum um það að vextir lækkuðu. Við töldum að vextir væru þá samt of háir. Enginn sagði í kosningabaráttunni að flokkur viðkomandi frambjóðanda myndi láta það verða sitt fyrsta verk eftir kosningar að hækka vextina. Þannig er komið aftan að kjósendum nú eftir kosning- ar. Vaxtahækkunarmennirnir voru alltaf í stjórnarand- stöðu í síðustu ríkisstjórn. Jón Sigurðsson var sendi- sveinn þessara afla inni í ríkisstjórninni. Hann hélt verndarhendi yfir bönkum og vaxtahækkunum.Hann barðist gegn frekari vaxtalækkunum. Hann hefur nú gerst ráðherra í ríkisstjórn þar sem vald vaxtahækkun- arinnar er upphaf og endir alls. Vélgengislögmálin, eins og Ögmundur Jónasson, hefur kallað þau, hafa tekið völdin um sinn. En ekki er öll nótt úti: Það er óþarfi fyrir samtök launafólks að una afarkostum af hendi ráðamanna rík- isstjórnar og atvinnurekenda. Það á að stilla upp and- stæðum launavinnu og fjármagns, og samtök launa- fólks tala öruggleg fyrir hvern einasta launamann í landinu þessa dagana sem mótmælir vaxtahækkun en krefst kauphækkana. Launamennirnir EIGA nefni- lega peningana sem ríkisstjórnin er nú að afhenda fjármagnseigendunum. Stjórnarherrar sem taka fjár- magnið fram yfir fólkið eiga ekki að sitja lengi. Það er vont fyrir litla þjóð. s. Þióovh.iinn Málgagn sóslalisma þjóöfrelsis og verkalýðshreyfingar Síðumúla 37 — 108 Reykjavík Sími: 681333 Símfax: 681935 Útgefandi: Útgáfufélagið Bjarki h.f.. Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson. Rltstjórar: Ámi Bergmann, Helgi Guðmundsson Fréttastjóri: Sigurður Á. Friðþjófsson. Ritstjóm, skrifstofa, afgreiösla, auglýsingar: Síðumúla 37, Rvík. Auglýsingar: 681310, 681331. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Oddi hf. Verö f lausasölu: 100 kr. Nýtt Heigarblað: 150 kr. Áskríftarverö á mánuöi: 1100 kr. Hvað vill kjósandinn elskulegur? Félagsvísindastofnun hefur gert fróðlega athugun á viðhorfum almennings til þess, hver ættu helst að vera verkefni nýrrar ríkisstjóm- ar (og þegar könnunin var gerð var ekkert um það vitað hvemig sú rikisstjóm mundi líta út). Að vísu er það svo að flestar viðhorfakannanir hafa i sér ein- hveija innbyggða vankanta sem ekki er auðvelt að losna við. Til dæmis að taka: fólk er spurt að þvi hvort það vilji leggja „mikla áherslu" á breytta fiskveiðistefnu. Hér er spurt um eitt það mála sem mestu varðar um hag landsmanna í bráð og lengd, en nú ber svo við að innan við helmingur þeirra sem spurðir em vilja Ieggja „mikla áherslu“ á það mál og hér er og um að ræða einna stærstan hóp þeirra sem vilja leggja „litla áherslu“ á stórmál (27,5%) Þetta þýðir að líkindum (eins og könnun sem sýndi ótrúlega mikið fylgi við nú- gildandi kvótastefnu) að ríkjandi ástand verður eins og óumflýjan- legt í hugum margra - um leið og n.".:ð er það flókið að fáir hafa í huga sér einhvem valkost sem þeir gætu hugsað sér að mæla með í spjalli við náungann. Allt er vænt sem vel er grænt En það em margar skemmti- legar vísbendingar í þessari könn- un. Ekki síst sú sem felst í því að fólk setur umhverfisvemd efst á blað af öllum málaflokkum (86,3% vilja leggja „mikla áherslu“ á þau mál). Við skulum vona að þessi niðurstaða bendi til einhverskonar vitundarvakningar, hvemig sem okkur mun nú ganga að koma þeirri vakningu í jákvæð verk. Hér getur líka annað komið til greina: umhverfisvemd er eitt þeirra mála sem allir em fyrirfram sammála um í stórum dráttum. Allir em meira en fúsir til að „tala grænt“ eins og það heitir. AUir em sam- mála um að „þessir Andskotar“ (hinir) eigi ekki að fá að svína allt út og eitra fyrir mig og mín böm og drekkja öllu í msli. Þegar svo almennt er spurt komast menn ekki að því hver alvara býr á bak við umhverfisvemdaráhugann. Og rifj- ast þá upp fyrir Klippara könnun sem gerð var í Hollandi fyrir síð- ustu þingkosningar þar. Þar var fólk beinlinis að því spurt, hvort það væri tilbúið að fallast á skert lífskjör (þ.e.a.s. minni neyslu) ef það fengi í staðinn vemlega um- hverfisbót. Og svo merkilega vildi til að meira en helmingur Hollend- inga svaraði játandi, enda mjög að þeirri þjóð þrengt í þrengslum og efhafræðisukki á ræktuðu landi og úrgangssukki í ánum. Skipta flokkar máli? Það er líka fróðlegt að skoða niðurstöður könnunarinnar eftir fylgi þeirra sem svara við pólitíska flokka. Að sönnu gerist það í ýms- um málum öðmm en umhverfis- vemdarmálum, að það em vissir hlutir sem sjálfsagt þykir að taka undir (hvað svo sem menn meina með því í reynd). Til dæmis: þegar spurt er að þvi hvort Ieggja eigi „mikla áherslu" á jöfnun lífskjara, þá er að sönnu umtalsverður mun- ur á stuðningsfólki Alþýðubanda- lagsins (91,9%) og Kvennalista (94,4%) annarsvegar og stuðnings- fólki Sjálfstæðisflokksins (79,8% játuðu spumingunni úr þeim hópi). En munurinn milli flokka er engu að síður fremur lítill: það er blátt áfram fastur hryggjarliður í um- ræðunni _á íslandi að vilja jafna lífskjör. í þeim sklingini emm við allir í ,jafnaðarmennskunni“ og að líkindum í ríkari mæli en flestar þjóðir aðrar. Kannski vegna þess ekki síst að við emm fá og vitum betur hvert af öðm en menn gera i stærri samfélögum. En hinn pólit- íski ágreiningur um jöfnuð, hann kemur ekki fram fyrr en menn fara að spytja um það hvemig fara eigi að því að jafna lífskjör í landinu. Hvernig jafna skal... Nokkrar spurningar koma reyndar inn á það mál, beint og óbeint. Mest pólitískt mark er þá takandi á spumingunni um sérstak- an hátekjuskatt. Þar verður (eins og í ýmsum dæmum öðmm) tölu- verð fylgni milli fylgis Kvennalist- ans (75,9%) og Alþýðubandalags- ins (72,1%), en á hinum endanum em fylgismenn Sjálfstæðisflokks- ins, þeir em minnst hrifnir af sér- stökum hátekjuskatti, þó eru 37,5% þeirra fylgjandi honum með „mikilli áherslu". Það þarf svo ekki að koma á óvart, þótt þessu fylgi samsvarandi munur á fylgj- endum Sjálfstæðisflokks og Al- þýðubandalags þegar að því er spurt, hvort menn vilji leggja sína miklu áherslu á að „hækka ekki skatta“. Þar em Sjálfstæðismenn langefstir (86,1%) en Alþýðu- bandalagsmenn langneðstir (53,2%) og er það rökrétt sem fyrr segir: ef menn vilja sérstakan há- tekjuskatt þá geta þeir ekki haft á móti því að einhverjir skattar hækki. Dagvistarmál sýna og svipað mynstur: Alþýðubandalagsfólk og Kvennalista er þar efst á blaði í áherslum (73,2%) en Sjálfstæðis- fólk neðst (51,7%). Alþýðuflokksfólk er næst Sjálfstæðisfólki Þégar allt kemur saman virðist allgreinilegur munur staðfestur milli Alþýðubandalags og Kvenna- Iista annarsvegar (þar er „vinstr- ið“) og Sjálfstæðisflokks hinsveg- ar. Fylgismenn Alþýðuflokksins em í sínu hugsanamynstri ein- hversstaðar þar á milli en þó miklu nær viðhorfamynstri Sjálfstæðis- manna. Samkvæmt þessu er stjóm- in nýja með vissum hætti rökrétt. Framsóknarflokkurinn er svo um margt greinilega miðjuflokkur, eins og hann vill vera. Hvergi kemur þessi munur greinilegar fram en í afstöðu til orkuffekrar stóriðju. Það em að- eins 5,2% af stuðningsfólki Al- þýðubandalagsins og 7,5% af Kvennalistafólki sem vill leggja „mikla áherslu" á þann málaflokk. Aftur á móti er nær helmingur Sjálfstæðismanna (48,2%) mjög á þessu máli og Alþýðuflokksmenn fylgja fast á eftir eins og að líkum lætur (44,3%). Framsóknarflokkur- inn dólar sér svo á miðjunni með 23% eindreginna áhugamanna á þessu sviði. Það er reyndar fleira merkilegt í þessu stóriðjumáli en mjög greinilega misjöfn afstaða til þess eflir flokkum. Það kemur reyndar á óvart eftir mikinn gauragang í um- ræðu um þetta mál, að það er næst- neðst á blaði á lista könnunarinnar um þau stórmál sem almenningur vill leggja mikla eða litla áherslu á. Það eru reyndar aðeins 33,3% þeirra sem spurðir er sem vilja leggja ,jnikla áherslu“ á orkuffeka stóriðju, þeir sem leggja „litla áherslu“ (lengra leyfir spuminga- listinn mönnum ekki að fara niður í áhugaleysi eða andstöðu) á þau mál eru fleiri en í nokkru máli öðru eða 33,4%. Ögn fleiri en hinir stór- iðjufúsustu! ÁB ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 22. maí 1991 Síða 2

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.