Þjóðviljinn - 22.05.1991, Síða 3

Þjóðviljinn - 22.05.1991, Síða 3
ÍBAG 22. maí er miðvikudagur. Imbrudagar. 142. dagur ársins. Sólarupprás í Reykjavík kl. 3.52 - sólarlag kl. 22.59. Viðburðir Norðurreið Skagfirðinga 1849. Þjóðviljinn fyrir 50 árum Þjóðviljinn bannaður. fyrir 25 árum X-G. Kosið um borgarmál. Kosiö um kjaramál. Kosið um landsmál. Kosið um reisn. Ár- angurinn í kvöld fer eftir starfi okkar í dag. (haldið smeykt við Sigurjón og Guðrúnu. Sá spaki Munurinn á leikhúsi og kirkju er aöallega sá að leikhúsið viðurkennir hreinskilnislega og heiðarlega hvað það er en kirkjan er hinsvegar leikhús sem á allan máta og að hluta óheiðarlega reynir að fela það sem það er. (Sören Kirkegaard) MÍN SKOÐUN á greiðslu til launafólks vegna viðskiptakjara- batans Bjöm Grétar Sveins- son, formaður Verka- lýðsfélagsins Jökuls á Höfn í Hornafirði í fyrsta lagi er enginn ágreining- ur um að þessi efnahagsbati er til staðar. I öðru lagi er enginn ágreiningur um að hann gangi til launafólks á samningstímanum. Um hvað er þá deilt? Það er hægt að deila um hvort hækkun vegna viðskiptakjara á að vera 2 pró- sent eða 6 prósent. Atvinnurekendur og ríkisstjóm eiga það saineiginlegt um þessar mundir að vilja þvæla þessu máli út og suður. Þeir eru einnig sam- mála um að hækka skattfijáls laun fjármagnseigenda um tugi prósenta með vaxtahækkunum. Ef þeir telja að þetta sé rétta leið- in til þess að undirbúa næstu samninga í september, þá em þeir úr takt við alla umræðu sem á sér stað hjá því fólki sem skap- aði þessar aðstæður. Og nú er komið að því að greiða fyrir ,diöfundarréttinn“. HÆ! VióSALÍeAALA'. ÞAO E.ÍNA ÍEM MiS VANTAR NÚNA ER A€>ÞÓ,BRe6ejR. FRÁ S.VO EG G.ETV VERiO HAMhHAFI EDR- SETA.WIt»t»,> AHiörleifur Guttormsson skrifar Ríkisstjómin varð ekki til á 4 dögum Hægri stjórnin er að stíga sín fyrstu spor. Aðdragandinn að myndun hennar er enn i umræðu manna á meðal. Hin opin- bera söguskýring sem guðfeður stjórnarinnar, Jón og Davíð, reyna að halda á lofti er að stjórnin hafi verið mynduð af þeim snillingunum úti í Viðey á tæpum fjórum sólar- hringum. Ekkert er fjær sanni. í grein DV sem birtist 15. mai sl. leiddi ég líkur að þvi að þeir félagar hafi svarist í fóstbræðralag, áður en Davíð ákvað að bjóða sig fram til formennsku í Sjálfstæðisflokknum. Á Alþingi sl. vetur sáust um það mörg teikn, að hveiju dró um stjómar- myndun. Á því var vakin athygli fyrir þingrof. Til vitnis um það er m.a. ræða sem undirritaður flutti 13. mars 1991 í umræðu um þingsályktun um álbræðslu á Keilisnesi. Sú ræða varð nokkuð rómuð vegna lengdar í flutn- ingi, en lítið heíur verið greint ffá innihaldi hennar. Ekki stendur til að bæta úr því í þessari grein að því er varðar álmálið. Hins vegar tel ég rétt vegna þess sem síðan hefúr gerst að vekja athygli á upphafi hennar og þeim vamaðarorðum sem ég þá lét falla um líklega framvindu mála. Fylgt er útskrift Alþingis af munnleg- um flutningi, en felldar em inn i milli- fyrirsagnir lesendum til glöggvunar. „Ég vil áður en ég kem að málinu sjálfij aðeins vekja athygli á því sem gerðist áðan á þingfúndi sem er nokk- uð sérstætt. Þar var staðhæft að það væri samkomulag um það hér að halda áfram umræðu um þetta mál. Svo reyndist ekki vera. Það hafði að- eins verið gert samkomulag við annan stjómarandstöðuflokkinn um að taka mál þetta til umræðu. Hér kom upp formaður þingflokks Sjálfstæðis- flokksins, Olafiór G. Einarsson, og greindi frá því að hann hefði orðið við tilmælum og gert samkomulag um það að umræða um þetta mál mætti fara ffarn hér í kvöld. (Ólafúr G. Ein- arsson: „Fyrir mig“). Fyrir sig og hann treysti því að það mundu aðrir háttvirtir þingmenn Sjálfstæðisflokks- ins fylgja og styðja það samkomulag sem hann hefði gert fyrir hönd þing- flokksins. Af hveiju er ég að vekja athygli á þessu? Vegna þess, virðulegur forseti, að þessi atburður sýnir okkur inn í ákveðið baksvið þess máls sem hér er til umræðu. Sjálfstæðisflokkurinn, forysta Sjálfstæðisfiokksins hér í þinginu, gerir samkomulag um að þessu umræða megi hér fram fara, sem er mjög óvenjulegt eins og háttar starfsemi í þinginu og fúndahaldi að undanfömu, en svo ríkan skilning hef- ur forusta Sjálfstæðisflokksins á því að þetta mál hæstvirts iðnaðarráðherra fái hér framgang, að þeir eru reiðu- búnir að halda hér einn kvöld- og næt- urfúndinn enn. Ég tel að þetta sé vísbending um það sem er í geijun í baksviði stjóm- málanna á íslandi. Það eru þær þreif- ingar sem eru í gangi á milli eins stjómarflokksins, Alþýðuflokksins hins vegar um möguleika á myndun landsstjómar eftir komandi kosningar. Hér eram við að fjalla um stórmál í aðdraganda kosninga, en það eru fleiri stórmál sem við ræðum hér. Annað mál var raunar á dagskrá Sam- einaðs þing í dag, skýrsla hæstvirts ut- anríkisráðherra um viðræður um Evr- ópskt efnahagssvæði. Þar fer Alþýu- flokkurinn einnig með fomstu af hálfú ríkisstjómarinnar. Þar er um að ræða ennþá stærra mál heldur en það sem við ræðum hér, þó að skyldleiki sé um viðskiptaráðherra vom slegnir gullhamramir að hálfu Sjálfstæðis- flokksins. Vissulega þarf þetta ekki að koma okkur mjög á óvart sem höfúm fylgst með stefnu Alþýðuflokksins innan núverandi rikisstjómar í mikils- verðum málum og stefiiu Sjálfstæðis- flokksins og máttleysi í stjómarand- stöðu, þegar um er að ræða mál sem Alþýðuflokkurinn öðrum fremur ber .__fyrir bijósti. Ég tel nauðsynlegt að vekja at- hygli á þessu baksviði þess stóra máls sem við ræðum hér og ég undrast það mjög, virðulegur forseti, að aðrir flokkar í ríkisstjóm landsins skuli ekki ganga með opin augun hvað þetta varðar, horfast í augu við þetta tilhugalíf sem þama er í uppsiglingu af fúllum krafli og bregðast við þvi með þeim hætti sem nauðsynlegt er, eigi það ekki að gerast að þessi öfl í þjóðfélaginu, í Alþýðuflokki og Sjálf- stæðisflokki, sem þar fara með for- ustu, nái saman í kjölfar komandi al- þingiskosninga. Hvers vegna beitir ekki Fram- sóknarflokkurinn sínu afli til að opna augu þjóðarinnar fyrir þessari hættu sem blasir hér við og hvers vegna ger- ir Alþýðubandalagið ekki meira af því að vara við þeirri hættu sem þama er í uppsiglingu en leyfir hæstvirtum iðn- „íslensk þjóð þarf á öðru að halda en lognmollu og óljósum skilum í pólitík" með báðum þessum málum. Og þar hefúr það komið ffarn, og vefst ekki fyrir þeim sem hafa fylgst með þess- um málum báðum, að tengslin á milli stefnu Alþýðuflokksins annars vegar og Sjálfstæðisflokksins hins vegar í báðum þessum málum em svo rík, að líkumar á því að þessir flokkar leiti samstarfs eftir komandi alþingiskosn- ingar em dagvaxandi. Það er ekki að- eins í sambandi við þessi tvö stóm mál, heldur kemur þetta einnig fram í skyldum málum sem varða eftiahags- starfsemi í landinu og minni ég á þá umræðu sem fór hér fram um vaxta- mál og þróun vaxta í þjóðfélaginu. Þar heyrðu menn tilhugalífið, þar urðu menn varir við það hvemig hæstvirt- aðarráðherra að leggja hér fram skýrslur og tillögur af því tagi sem um er að ræða í álmálinu og reynir þar með að draga aðra flokka, þessa sam- starfsflokka í rikisstjóminni með sér út á svellið og gera þá samseka í þess- um stóru málum? íslensk þjóð þarf á öðru að halda en lognmollu í óljósum skilum í pólit- ík, jafnstór og afdrifarik mál og nú em uppi i þjóðmálum, þar sem em tengsl- in við Évrópu og þeir samningar sem hæstvirtur utanríkisráðherra er að undirbúa og þeir samningar sem hæst- virtur iðnðarráðherra fer með umboð fyrir hönd ríkisstjómar í sambandi við byggingu risaálbræðslu sem hann fyr- irhugar að verði staðsett á Keilisnesi. Þessi mál til samans mynda uppi- stöðuna í landsmálapólitíkinni og horfúnum varðandi pólitíkina á Is- landi, ekki aðeins á næstu mánuðum, ffarn yfir kosningar, heldur á næstu árum. Og svo er víst sem tvisvar tveir em fjórir, að ef Alþýðuflokkurinn nær ffam þessum hugðarefnum sínum, þá ætlar hann sér, hvemig svo sem þessar samningaviðræður þróast að bindast samtökum við hvem þann sem getur tryggt ffamgang þeirra hér á Alþingi og í komandi rikisstjóm. Það er enginn flokkur í landinu sem er jafnblindur í sambandi við þá stóm hagsmuni sem hér er um að ræða, sem gengur svo fortakslaust ffam án þess að horfa til hægri eða vinstri í þessum efnum eins og Al- þýðuflokkurinn. Þó að Sjálfstæðis- flokkurinn hafi nú fengið nýja forustu þá er mér fúllkunnugt um það að í þeim stóra flokki em býsna margir sem væm hikandi við að skrifa upp á þá stefnu sem þama er á ferðinni, al- veg sérstakfega varðandi hið Evr- ópska efúahagssvæði, að ekki sé nú talað um áhugamál forastu Sjálfstæð- isflokksins í sambandi við Evrópu- bandalagið, að tengjast þar enn fastar en i gegnum Evrópskt efhahagssvæði, sem litið er á aðeins sem fyrsta skref inn í þessa stóm ríkjasamsteypu, það stórríki sem þama er í undirbúningi. Hvers vegna taka ekki flokkar f landinu, sem hafa staðið fyrir annað, fastar á í þessum efnum, Framsóknar- flokkurinn og Alþýðubandalagið? Og hvemig stendur á því að Kvennalist- inn, sem tekur hér með heiðarlegum og einörðum hætti þátt í að afhjúpa þann gjöming sem hæstvirtur iðnaðar- ráðherra stendur hér fyrir í sambandi við álmálið, er að tæpa á því að Sjálf- stæðisflokkurinn geti „allt eins“ verði vænlegur til fylgilags að kosningum loknum, eins og við höfúm alveg ný- lega heyrt ffá fyrsta frambjóðanda Kvennalistans í væntanlegum alþing- iskosningum hér í Reykjavík? Ég er að nefna þetta hér, virðuleg- ur forseti, vegna þess að við verðum að skoða þessi mál sem við emm að ræða hér í samhengi.“ Flutt á Alþingi að kvöldi dags 13.mars 1991. Síða 3 ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 22. maí 1991

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.