Þjóðviljinn - 22.05.1991, Side 9

Þjóðviljinn - 22.05.1991, Side 9
Íþróttie Sparkvertíðin hafin Einbeitlngin skin úr andlitum leikmanna er þeir kljást um knöttinn. Mynd: Jim Smart Fyrsta umferð Samskipadeild- arinnar eins og íslandsmótið í knattspyrnu heitir þetta tímabilið hófst í gær. Alls voru skoruð 24 mörk, í þeim fimm leikjum er fram fóru í deild- inni. Grasvellir hafa viða komið vel undan vetri, þrátt fyrir það var á tveimur stöðum leikið á möl þessa fyrstu umferð. FH - VfKRÍGUR 2:4 Fyrsti leikur Islandsmótsins byij- aði suður í Hafnarfirði er Víkingar heimsóttu FH-inga í Kaplakrikann. Það var Júgóslavinn Tomislav Bosjnak sem skoraði íýrsta mark Víkings og Is- landsmótsins á 11. mínútu leiksins. Bosjnak skallaði knöttinn í netið eftir góða fyrirgjöf ffá Atla Einarssyni. Víkingar bættu öðru marki við um miðjan fyrri hálfleik og var þar á ferð- inni gamla kempan Guðmundur Steinsson. Guðmundur komst inn f sendingu milli vamarmanna FH og þakkaði fyrir sig með skemmtilegu skoti í markið. FH-ingar fengu í byrjun seinni hálfieiks vítaspymu er Izudin Dervic var felldur innan vítateigs Víkinga. Hörður Magnússon tók spymuna, en með snilldartöktum varði Guðmundur Hreiðarsson markvörður Víkinga. Guðmundur Steinsson bætti öðm marki sínu við og þriðja marki Víkinga þegar tíu mínútur vom eftir af leiktím- anum í einni af skyndisóknum Vík- inga. FH-ingar minnkuðu muninn strax mfnútu síðar er Hörður Magnús- son skoraði með þrumuskoti fram hjá Guðmundi Hreiðarssyni. Tveimur mínútum fyrir leikslok skoraði vara- maðurinn Hólmsteinn Jónasson fjórða mark Víkinga, en hann kom inn sem varamaður í seinni hálfieik. A síðustu mínútu leiksins skoraði Guðmundur Valur Sigurðsson fyrir FH og lokast- aða leiksins 4-2 var staðreynd. FRAM - UBK 3:3 Sá leikur er kom einna mest á óvart f deildinni á mánudaginn var sjálfsagt leikur Fram við UBK. Á sjöttu mínútu leiksins skoraði Steinar Guðgeirsson fyrsta mark leiksins eftir sendingu ffá Jóni E. Ragnarssyni. Tveimur mínútum síðar fékk Baldur Bjamason boltann við vitateig UBK og skoraði með fallegu bogaskoti i homið hjá Blikunum. Aðdáendur Fram-Iiðsins litu björtum augum á gang mála með svona góðri byijun, en á 13. mínútu leiksins minnkaði Grétar muninn fyrir Breiðablik og aukin spenna færðist í leikinn. Um miðjan fyrri hálfleik skoraði hinn margreyndi leikmaður Fram Pétur Ormslev þriðja mark liðsins og hagur Framara vænkaðist aftur. Á seinustu sekúndum fyni hálfieiks var darraðar- dans rétt inn fyrir vítateig Fram-liðs- ins. Kristján Jónsson var óheppinn er hann féll við og lenti með hendumar á boltanum, dómari leiksins benti um- svifalaust á vítapunktinn og úr vítinu skoraði Steindór Elísson af öryggi. Seinni hálfleikur var í meira jafn- vægi en sá fyrri og komu Blikamir æ meira inn í leikinn eftir því sem leið á hann. Á seinustu mínútu seinni hálf- leiksins tókst Steindóri að skjótast inn á milli vamamanna Fram og skora jöfhunarmark Breiðabliks. KA - ÍBV 2:3 Vestmannaeyingar sigrðu KA- menn á mánudaginn, þegar þeir heim- sóttu Akureyringa norðan heiða. ÍBV átti meira í leiknum sem leikinn var á malarvelli, og var sigur Iiðsins sann- gjam. Það var því þvert á gang leiksins er Akureyringar skoruðu fyrsta markið á sjöundu mínútunni. Tékkinn Pavel Vandas skallaði knöttinn i mark eyja- manna eftir homspymu. Þrátt fyrir það að Vestamannaey- ingar réðu lögum og lofum á vellinum vom það KA- menn sem bættu öðm marki sínu við strax i upphafi síðari hálfieiks er Ormarr Örlygsson skoraði í mark eyjaliðsins. I síðari hálfleiknum spiluðu Akureyringar vamarleik svo Vestmannaeyingar fengu mikið næði til að athafna sig með boltann. ÍBV uppskar laun erfiðisins um miðbik hálfieiksins er Leifur Hafsteinsson skoraði fyrsta mark Vestmannaeyinga. Á 82. mínútu leiksins jafnaði Martin Eyjólfsson fyrir eyjamenn er boltinn hraut af vamavegg þeirra norðan- manna, en ÍBV hafði átt aukaspymu rétt fyrir utan vítateig þeirra. Martin fékk boltann við markteiginn, svo lítið annað var að gera en að renna honum í markið. Eyjamenn skomðu svo sigur- mark sitt þegar fimm mínútur vom til leiksloka. Ormarr Örlygsson greip f peysu Sindra Grétarssonar er Sindri var að sleppa inn fyrir vöm Akureyr- inganna. Vítaspyma var dæmd um- svifalaust og úr henni skoraði Hlynur Stefánsson af öryggi. STJARNAN - VALUR 0:3 Leikur Stjömunnar og Vals fór ffam á malarvelli í Garðabænum. Mörk Valsmanna vom frekar af ódým gerðinni, nema þá kannski fyrsta mark þeirra, sem Baldur Bragason skoraði effir fallega sendingu inn fyrir vöm Stjömumanna. Valsmenn bættu öðm marki sínu við um miðjan hálfleikinn er Anthony Karl Gregory náði að ýta boltanum ffam hjá markverði Stjöm- unnar. Valsmenn drógu sig eftir annað markið í vöm, svo Stjaman komst meira inn í leikinn. Besta tækifæri Stjömunnar var úr aukaspymu sem Ingólfur Ingólfsson tók. Ingólfur skaut fimaföstu skoti yfir vamarvegg Vals, en Bjami Sigurðsson markmaður náði að henda sér í boltann á síðustu stundu. Valsmenn innsigluðu svo sigur sinn undir lok leiksins er Gunnar Más- son potaði boltanum inn, eftir að mark- vörður þeirra Garðbæinga hafði misst hann úr höndum sér. VÍÐIR - KR 0:4 KR-liðið haföi algera yfirburði í þessum leik, og greinilegt er að þeir mæta mjög sterkir til leiks i þessu Is- landsmóti. Fyrsta markið kom þó ekki fyrr en á 19. mínútu er Gunnar Odds- son skoraði eftir skemmtilega send- ingu ffá Rúnari Kristinssyni. Það vom ekíd liðnar nema þijár mínútur ffá markinu er Rúnar bætti við öðm marki KR-inga með fimaföstu skoti. I síðari hálfleik var sama einstefha á ferðinni. KR-ingar sóttu látlaust og um miðbik leiksins fengu þeir víta- spymu er skot ffá Hilmari Bjömssyni var varið með hendi á línu Víðis- manna. Keflvíkingurinn Sigurður Björgvinsson skoraði úr vítinu fyrir KR. Fjórða mark KR-inga og sfðasta mark leiksins leit svo dagsins ljós í lok hanss, er Rafn Rafnsson skoraði auð- veldlega ffam hjá markverði þeirra Gerðamanna. , Á myndinni em frá vinstri: Karl Karlsson sem var markahæstur leikmanna á mótinu, Dagur Sigurösson Val en hann var útnefndur leikmaður mótsins og Geir Hallsteinsson þjálfari landsliös Islands 18 ára og yngri. Mynd: Jim Smart. Norðurlandameistarar í handbolta Við Islendingar höfum nú í fyrsta sinn síðan 1970, hlotið Norðurlandameist- aratitil i handbolta. Drengja- landslið 18 ára og yngri gerði sér lítiö fyrir og hirti siguriaunin á Norðurlandamóti sem haldið var í Finnlandi í síðustu viku. Karl Karlsson úr Fram varð marka- hæstur á mótinu og Dagur Sig- urðsson úr Val var útnefndur besti leikmaður mótsins. „Þetta er sigur liðsheildarinn- ar,“ sagði Geir Hallsteinsson þjálf- ari liðsins er hann fór yfir stöðu mála með blaðamönnum í gær. „Svona hópur kemur aðeins á 20 ára fresti,“ sagði Geir og sagði að auk liðsandans sem hefði verið frá- bær hafi þrotlaus vinna og bindindi á áfengi og tóbak haft sitt að segja um þennan árangur. Fyrsti leikur strákanna var við Svía. Byijaði leikurinn vel hjá okkar mönnum og skoruðu þeir fimm fyrstu mörkin í leiknum. Þetta setti Svíana út af laginu og íslenskur sigur 22-20, á höfuðóvin- inum í handbolta Svíum varð stað- reynd. Næst tóku íslendingar Finna í kennslustund og sigruðu þá 27- 21. Danir urðu næst fyrir kraft- miklu íslensku liði og urðu að lúta í lægra haldi 23-19. Seinasti leik- urinn var við Norðmenn og voru þeir lítil hindrun hjá strákunum. Sigur varð staðreynd og um leið sigruðu Islendingar mótið með fullt hús stiga. Landsliðshópurinn sem skipað- ur er leikmönnum 18 ára og yngri er búinn að æfa meira og minna saman í fjögur ár. Þeir byijuðu í landsliði 16 ára og yngri og hafa nú spilað 17 landsleiki án taps. Miklar vonir eru bundnar við þennan hóp í ffamtíðinni og má segja að menn bíði spenntir eftir heimsmeistaramóti 21 árs og yngri, sem haldið verður í Grikklandi næsta haust. Það verða allavega 5 til 6 leikmenn úr þessum kjama sem verða orðnir nógu gamlir til að spila með því liði. -sþ TÓBAKSVARNANEFND REYKLAUS DAGUR 31. MAÍ Tilefnið sem þú beiðst eftir? BúSu þig undir aö hætta aÖ reykja Leiðbeiningarrit Krabbameinsfélagsins ÚT ÚR KÓFINU °9 EKKI FÓRN - HELDUR FRELSUN fást ókeypis á heilsugæslustöðvum um land allt, í mörgum apótekum og hjá Krabbameinsfélaginu. Reyklaus dagur - reyklaus framtíÖ! Síða 9 ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 22. maí 1991

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.