Þjóðviljinn - 23.05.1991, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 23.05.1991, Qupperneq 2
Af litlu að státa Talsmönnum stjórnarandstöðunnar þótti lítið til stefnuræðu hins nýja forsætisráðherra koma eins og glöggt kom fram í umræðum á Alþingi í fyrrakvöld. Olafur Ragnar Grímsson rakti það í sínu máli, að stefna stjórnarinnar, sem margauglýst hefur verið eftir, hún væri áfram óútskýrður leyndar- dómur í mörgum greinum. Það eina sem forsætis- ráðherra hefði sagt skýrt í sinni ræðu væri tengt boð- skap hans um vaxtahækkun - sem þýddi mikla tekju- aukningu til fjármagnseigenda um leið og launafólki er neitað um 2,5% hækkun launa vegna viðskiptakj- arabatans. Og taldi Ólafur Ragnar að með þessu og öðru því um líku væri ríkisstjórnin komin á fulla ferð með að eyðileggja þann árangur sem fyrri ríkisstjórn náði í efnahagsmálum og þá einkum í baráttu við verðbólgu. Og satt er það: ræða forsætisráðherra er heldur bragðdauf. í stórmálum eins og Evrópumálum og sjávarútvegsmálum er sem rækilegast sneitt hjá öllu öðru en almennum viljayfirlýsingum: Koma skal í veg fyrir að íslenska þjóðin einangrist - um leið og hún á að halda sjálfstæðri tilvist sinni, segir um fýrra málið. Um hið síðara segir á þá leið að nú skuli stefnt að víðtækri sátt um stjórn fiskveiða með því að setja málin í nefnd, sem „ekki verður sagt fyrir verkum sér- staklega". í báðum dæmum er um að ræða eitthvað sem ekki hljómar illa úr fjarska en getur í raun þýtt hvað sem vera skal. Það er þó ekki í öllum dæmum sem forsætisráð- herra talar út úr þoku. Hann mælti fyrir vaxtahækk- unum og sagði þá sem svo að hér væri um það að ræða að velja annaðhvort skattahækkun eða vaxta- hækkun til að leysa ákveðna hnúta. Ögmundur Jón- asson, formaður BSRB, hefur svo bent á að vaxta- hækkun sé í raun ekki annað en skattahækkun. Vaxtahækkanir eru reyndar að verða enn stærra mál en fram kemur í sjálfri stefnuræðunni. Nú berast þær fregnir inn á borð að ríkisstjórnin hafi samþykkt að hækka vexti af húsnæðislánum með afturvirkum hætti. Sakar þá ekki að geta þess, að í gær var Morgunblaðið í leiðara sínum að mæla gegn slíkri fólsku: það væri „óþolandi kækur" í þjóðfélaginu að gjörbreyta forsendum fyrir fjárhagslegum ráðstöfun- um fólks með stjórnvaldsákvörðunum - eins og gert er með því að hækka vexti á húnsæðislánum sem fólk hefur þegar tekið. Davíð Oddsson boðaði líka einkavæðingu, sem enginn veit hvernig út lítur enn. Hann boðaði það líka að nú ætti „í auknum mæli að taka gjald fyrir þjón- ustu sem fyrirtæki og stofnanir á vegum hins opin- bera veita". Við vitum að sönnu ekki enn um hvers- konar gjöld er hér að ræða. En þegar allt dæmið er lagt saman: vaxtahækkanir og hækkun á verði fyrir ýmsa opinbera þjónustu (sem oftar en ekki er þess eðlis að menn snúa sér ekki annað til að fá hana) eru í raun ekki annað en hækkun álagna á fólkið í landinu. Eini metnaður stjórnarinnar um þessar mundir virðist vera fólginn í því að sneiða hjá því að slíkar hækkanir séu kallaðar skattahækkanir - vegna þess að þaö hefur lengi verið trúaratriði í Sjálfstæðis- flokknum að það ætti að lækka skatta. En þessar til- færingar, þessi feluleikur, breyta litlu um þaö að út- koman er ein og hin sama. Morgunblaðið sagði í leiðara í gær að fyrstu yfir- lýsingar ríkisstjórnarinnar lofuðu góðu, ræður þeirra Davíðs og Friðirks Sophussonar voru taldar „sterkar" og einkennast af krafti. Jamm, það er nú svo. Litlu verður Vöggur feginn... ÁB Þtódviltinn Málgagn sósfalisma þjóðfrelsis og verkalýöshreyfingar Síðumúla 37 — 108 Reykjavík Sími: 681333 Símfax: 681935 Útgefandi: Útgáfufélagið Bjarki h.f.. Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson. Rltstjórar: Ámi Bergmann, Helgi Guðmundsson Fréttastjóri: SigurðurÁ. Friðþjófsson. Ritstjóm, skrifstofa, afgreiðsla, auglýsingar: Slöumúla 37, Rvik. Auglýsingar. 681310, 681331. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Oddi hf. Verð i lausasölu: 100 kr. Nýtt Helgarblað: 150 kr. Áskriftarverð á mánuði: 1100 kr. Er í aðsigi atlaga Þrautin þyngri Það er kannski eins og að nauðga miðlungsgóðum brandara að fjasa eina ferðina enn um mannraunir í borgarstjómarflokki Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. En þó verðu það nú gert eina ferð- ina enn. Tilefnið er klausa sem birtist í Morgunblaðinu á laugar- daginn var. Fyrirsögnin hefúr það eftir borgarstjómarflokknum að „Umræður um val borgarstjóra laefjast lengri tíma“. Síðan em all- ir vonbiðlar embættisins leiddir fram og látnir vitna um það, að rétt hafi Davíð gert þegar hann fór í sumarfrí sem borgarstjóri til að geta unnið betur „hjá öðm fyrir- tæki“ eins og það heitir víst í þeim lögum um sumarleyfi sem banna mönnum að fara í ffí í þykjustunni. Borgin er ríkinu meiri Allir em sáttir við þessa stöðu mála, eða svo sverja þeir. Þurfi borgarstjómarliðið góðan tíma til að ræða valið á eftirmanni Davíðs „enda væri hér um afar mikilvæga ákvörðun að ræða“. Og þama kviknaði einmitt á þeirri pólitísku grútartýru! Það er ekki ncma rétt, að tafir þær sem verða á að velja eftirmann Davíðs, þær endurspegla vissan vemleika. Sem sagt þann, að val á borgar- stjóra í Reykjavík er miklu mikil- vægara fyrir Sjálfstæðisfiokkinn sem slíkan en til dæmis myndun ríkisstjórnar. Enda em söguleg hlutfoll eftir því: það tók ekki nema fjóra sólarhringa að sögn, að mynda nýja ríkisstjóm. En það tekur sex eða átla vikur að ræða um það hver getur tekið við Borg- inni Sjálfri. Reykjavík er nefnilega lífakk- eri Flokksins, enda var hann nær lamaður af sorg þegar meirihlutinn eitt sinn gekk honum úr greipum. Ríkisstjómir koma og fara - en Reykjavík blífur.... Hættan af Allaböllum Margir segja að þjóðarsáttin sé í hættu. Og vegna hvers? Um það hefur frumlegasta kenningu Þröst- ur Olafsson hagfræðingur og ný- legur Alþýðufiokksmaður. Hann skrifar grein í Morgunblaðið um atlögu að þjóðarsátt sem kunni að vera í hættu. Að hans dómi kemur atlagan úr þessari átt hér: „Það er ástæða til að vera hræddur við forystumenn Alþýðu- bandalagsins, því þjóðarsáttinni stendur ógn af þeim. Þeir hóta að sprengja hana í loft upp.“ Nú er vitaskuld ekki nema gott um það að segja að stjómarliðar séu hræddir við forystumenn Al- þýðubandalagsins. En að öðru leyti stendur hér allt á hvolfi. Þröstur leggur út af hugsanlegum áhrifum oddvita Alþýðubandalags- ins á kröfúgerð verklýðsfélaga á næstunni og sér í þeim fjandann á veggnum. Og ætti hann þó í fyrsta lagi vel að vita að sá tími er löngu liðinn að stjómmálaflokkur, Al- þýðubandalag eða hver annar, móti kröfúgerð launþegasamtaka. Það gera þau reyndar sjálf. í öðru lagi hleypur Þröstur sér til þæginda gjörsamlega yfir þau skilaboð til „þjóðarsáttar" sem nú berast dag hvem frá ríkisstjóminni. Vaxta- hækkanir einn daginn - og nú í gær var það boðað að hækka skyldi vexti af húsnæðilánum aftur á bak. Davíð forsætisráðherra boð- aði að hækka skyldi gjöld fyrir þjónustu sem fyrirtæki og stofnan- ir á vegum hins opinbera veita (og er oftar en ekki þess eðlis að menn hljóta að nota hana). Þetta eru þau tilræði við þjóð- arsátt sem þegar liggja á borðinu: og þau, koma öll frá stjóminni sjálfri. I ljósi þessa verður ákæra Þrastar Ólafssonar á hendur Al- þýðubandaiagi í ætt við þá norð- lensku fyndni að kalla einn ágætan mann Jón þjóf. Af þeirri ástæðu að það var stolið frá honum. Hvers menn væntu Þröstur víkur heldur ekki einu orði að mjög mikilvægu atriði: en það eru þær væntingar sem skapast hafa hjá launafólki í tengslum við efnahagsbata. Þjóðarsáttin var fóm, sem kom eins og fyrri daginn mest niður á ósköp venjulegu launafólki. Það virtist einhvers- konar „pólitísk þjóðarsátt" um það, að þegar þessi fóm skilaði ár- angri þá væri komið að launafólki að fá umbun sinnar þolinmæði. Þetta sögðu stjómarliðar í vinstri- miðjustjóminni sem var. Og þetta sagði stjónarandstaðan líka. Það var einmitt rifjað upp í umræðum frá Alþingi í fyrrakvöld (Ingibjörg Sólrún Gísladóttir) hvemig Morgunblaðið kynti undir einmitt þessar væntingar rétt fyrir kosningar. í Reykjavíkurbréfi var um það skrifað að efnahagsbati væri staðreynd og launafólk ætlaði sér að njóta góðs af og það þýddi ekki fyrir atvinnurkendur að vísa því máli frá sér! Þetta gerðist sem sagt fyrir kosningar. Eftir kosning- ar gerist svo blaðið aftur samstíga pólitískum þörfúm dagsins hjá sín- um flokki með því að slá á þá strengi helst, að ekkert sé til skipt- anna, fé er ekki fyrir hendi, þrauk- ið áfram í þjóðarsátt, elskuleg guðs böm. Og takið á ykkar nýjar hirt- ingar (vaxtahækkanir og fleira) án þess að mögla, því slikur er vilji Órlaganna (það er að segja Mark- aðarins). Stétt með stétt Ekkert af þessu telur Þröstur Ólafsson þess virði að vikið sé að einu orði í pistli um veika stöðu þjóðarsáttar og má með sanni segja að lítið legst fyrir skilgrein- ingarkappann. Hann lætur sér nægja að hafa fundið fjandann sjálfan: „meðal stjómmálaflokka landsins er einn sem hefur hafið undirbúning að pólitískri skemmd- arstarfsemi á efnahagskerfi lands- ins“. Þetta er náttúrlega Alþýðu- bandalagið, sem fyrr segir. Og af hveiju er sá flokkur svo illur í áformum? Jú - það stafar af því, segir Þröstur, að Alþýðubandalag- ið lítur á sig sem flokk stéttabar- áttu og stéttabarátta er í hans munni ill og skaðvænleg og fer eflir því að tilgangur helgi meða- lið. Þetta er býsna ffóðlegt. Við skulum ekki vera að fjasa um það að stéttabarátta er ekki eitthvað sem tiltekinn flokkur finnur upp: það takast á ólíkir hagsmunir í samfélaginu, menn taka sér stöðu í þeirri glímu ekki síst eftir því hvar þeir em niður komnir í stétt og stöðu, þetta er eitt af því sem ræð- ur því að til em fleiri en einn flokkur í landinu. En ef halda ætti áfram með röksemdafærslu Þrastar Ólafssonar þá er eins gott að allir sameinist í flokki allra flokka, Sjalfstæðisflokknum. Þar er ein- mitt að fmna sterkasta hefð fyrir þvi að „stéttabarátta" sé laumuspil djöfúlsins, en hægt sé að samfylkja stétt með stétt í samstillingu hags- muna a sameiginlegum vett- vangi,“hinum eðlilega vettvangi málamiðlunar í þjóðfélaginu“ eins og Morgunblaðið kallar jafnan Sjálfstæðisflokkinn. Gáum að þessu. ÁB ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 23. maí 1991 Síða 2

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.