Þjóðviljinn - 30.07.1991, Side 1

Þjóðviljinn - 30.07.1991, Side 1
Mörg hundruð manns lögðu leið sína í Haukadalinn á laugardag til að sjá hinn eina sanna Geysi gjósa. Gosið hafði verið auglýst kl. 15, en áhorfendur þurftu að bíða í nær hálfan annan tíma eftir að hverinn sendi frá sér lóðréttan vatnsstrók. Gosið reyndist heldur ekki sérlega tilkomumikið. Talsverð úrkoma var á svæðinu og mjög lágskýjað, þannig að gossúlan rann nánast saman við umhverfi sitt. Enda héldu flestir á brott áður en Geysir gamli hafði lokið gosi sínu. fsama mund kvað Strokkur upp raust sína og gerði mun betur en Geysir. Mynd: Þorfinnur. Veiðileyfagjald ekki á dagskrá að sögn Davíðs Davíð Oddsson forsætisráðherra telur ekki eðlilegt að þing- maður annars stjórnarflokksins sé í forsæti fyrir nefnd sem á að endurskoða lögin um stjórn fiskveiða og sjávarútvegs- ráðherra skipar. Davíð fór í gær á fund Þorsteins Pálssonar í sjávarútvegsráðuneytinu við Skúlagötu og dvaldi þar lengi. Þá ræddi Davíð einnig við Jón Baldvin Hannibalsson formann Alþýðu- flokksins í gær. Davíð sagði að málið yrði leyst í vikunni. Hans túlkun á stefnuyf- irlýsingu stjómarinnar er sú að þar sé ekki kveðið á um upptöku veiðileyfagjalds. „Það er eðlilegt að menn leiti sátta um mannskap. Eg fyrir mína parta tel að það sé ekki eðlilegt að þingmaður annars hvors stjómar- flokksins veiti nefndinni for- mennskusvaraði Davíð aðspurð- ur um hvort eðlilegt væri í stjóm- arsamstarfmu að Alþýðufiokkur- inn hafnaði Vilhjálmi Egilssyni þingmanni Sjálfstæðisfiokksins sem formanni nefndarinnar. Davíð taldi ekki að kominn væri brestur i heiðursmannasam- komulag hans og Jóns Baldvins og sagði að verið væri að vinna að lausn málsins og að það myndi leysast síðar í vikunni. Agreiningur er greinilegur í stjóminni um hvemig eigi að end- urskoða sjávarútvegssteftiuna. Al- þýðufiokkurinn hefúr talið sig eiga rétt á formanni sjömannanefndar sem á að endurskoða stefnuna. Þorsteinn skipar hinsvegar nefnd- ina og lagði til að Vilhjálmur yrði í forsæti í nefndinni, en því hafnaði Alþýðuflokkurinn. Þeir hafa einnig hafnað Áma Kolbeinssyni ráðu- neytisstjóra, en til athugunar er til- laga Þorsteins um að skipa tvo for- menn sinn úr hvomm flokknum. Davíð hefur tekið jákvætt í þessa lausn. Þessi nefhdarskipan hefúr leitt til mikilla yfirlýsinga af hálfu Þor- steins og Jóns Baldvins. Þorsteinn segist ekki hafa heyrt annað en skítkast úr röðum Álþýðufiokks- manna auk þess sem hugmyndum þeirra um auðlindaskatt hafi verið hafnað í stjómarmyndunarviðræð- unum. Jón Baldvin segir Þorstein ekki hafa gert annað en að vísa á bug stefnu Alþýðuflokksins í sjáv- arútvegsmálum varðandi veið- leyfagjald og að það sé í andstöðu við það sem talað var um í stjóm- armyndunarviðræðunum. I stefftuyfirlýsingu ríkisstjóm- arinnar segir að stjómin ætli að ná markmiðum sínum með mótun sjávarútvegsstefnu þar sem stjóm- skipunarleg staða sameignar- ákvæðis laga um stjóm fiskveiða er tryggð. Þetta ákvæði virðist hver túlka fyrir sig. Davíð sagði við Þjóðviljann í gær nýkominn af fundi Þorsteins að enginn hefði haldið því fram að upptaka veiði- Ieyfagjalds fælist í stefnuyfírlýs- ingu ríkisstjómarinnar. -gpm Hitabylgja á leiðinni Islendingar eiga von á ann- arri hitabylgju sem spáð er að standi fram á fimmtudag, sam- kvæmt upplýsingum frá Veður- stofu íslands. „Við getum kallað þetta hita- bylgju á íslenskan mælikvarða,“ sagði Einar Sveinbjömsson veð- urfræðingur hjá Veðurstofu Is- lands. „Þetta verður líklegast minni útgáfa af þeirri hitabylgju sem var hér fyrstu vikuna í júlí- mánuði og á líklega aðeins eflir að standa fram á fímmtudag.“ Einar sagði að júlímánuður liti út fyrir að verða með þeim allra hlýjustu júlímánuðum sem menn muna eftir. Hlýjasti júlímánuður á öld- inni var árið 1936 en þá var með- alhitinn 13,2°. Árin 1939 og 1944 var meðalhitinn 13,0°. Allt bendir til þess að meðalhitinn fyrir júlímánuð þetta árið verði um 13,0°. Margir vilja kenna gróður- húsaáhrifunum um þær veður- farsbreytingar sem virðast eiga sér stað hér á landi en Einar sagði það mikinn misskilning. Skýringarnar væru fyrst og fremst þær að afbrigðilegur lægðargangur valdi því að hita- dreifingin yfir allt norðurhvelið væri öðruvísi en gengur og ger- ist. Það verður sem sagt hlýnandi veður um allt land í dag og hlýj- ast verður á Norður - og Vestur- landi, samkvæmt veðurspá ís- lands. -KMH Mengunar- úttekt frestað Leiðangri að undirlagi Um- hverfisráðuneytisins á Heiðar- fjall á Langanesi, til að mæla hugsanlega mengun frá sorp- haugum hersins hefur verið frestað. Upphaflega átti ferðin að vera farin 12. ágúst nk. en hefur nú verið frestað til 19. dags ágústmánaðar. Að sögn Bjöms Erlendssonar, eins af landeigendum Eiðis á Langanesi, sem staðið hefur í ströngu vegna meintrar mengun- ar frá soprhaugum hersins á fjall- inu, er ástæðan sögð sú af hálfú opinberra aðila að jarðgasleitar- tækið sem ætlað er að þefa uppi eitraðar gufur, sem frá haugnum kunna að leka, er ekki starfhæft sem stendur. Á tækið vantar þar til gert efni, en það er ekki til í landinu eins og stendur. Ferðinni á Heiðarfjall hefur því verið frestað meðan nauðsyn- leg efni á tækið eru ekki handbær í landinu. -rk

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.